Fréttablaðið - 06.09.2004, Síða 48
20 6. september 2004 MÁNUDAGUR
Við auglýsum..
...enn og aftur eftir íslenskum knattspyrnuunnendum. Þegar botnbaráttuslagur FH og
Fjölnis hófst í Krikanum í gær var aðeins einn áhorfandi mættur á völlinn – blaðamaður
Fréttablaðsins. Hann lét lítið í sér heyra.
sport@frettabladid.is
,,Það hlaut að koma að því. Þetta er nú búið að að
vera ágætt.”
Sagði markadrottningin Olga Færseth í gær en þá mistókst henni að skora í fyrsta
skipti á Hásteinsvelli frá því hún gekk til liðs við ÍBV
■ FH–FJÖLNIR 2-1
0–1 Helga Franklínsdóttir 17.
1–1 Sigríður Guðmundsdóttir 42.
2–1 Valdís Rögnvaldsdóttir 73.
BEST Á VELLINUM
Valdís Rögnvaldsdóttir FH
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 16–12 (8–7)
Horn 4–6
Aukaspyrnur fengnar 12–13
Rangstöður 5–2
GÓÐAR
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir FH
Guðrún Sveinsdóttir FH
Eva María Árnadóttir FH
Lind Hrafnsdóttir FH
Sigríður Guðmundsdóttir FH
Valdís Rögnvaldsdóttir FH
Sonný Lára Þráinsdóttir Fjölni
Helga Franklínsdóttir Fjölni
Hrefna Sigurðardóttir Fjölni
Erla Þórhallsdóttir Fjölni
Rúna Sif Stefánsdóttir Fjölni
■ ÍBV–VALUR 1-3
0–1 Nína Ósk Kristinsdóttir 3.
1–1 Margrét Lára Viðarsdóttir 11.
1–2 Laufey Ólafsdóttir 23.
1–3 Kristín Ýr Bjarnadóttir 59.
BEST Á VELLINUM
Laufey Ólafsdóttir Val
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–16 (5–8)
Horn 3–5
Aukaspyrnur fengnar 12–10
Rangstöður 7–1
MJÖG GÓÐAR
Laufey Ólafsdóttir Val
Málfríður Sigurðardóttir Val
GÓÐAR
Pála Marie Einarsdóttir Val
Nína Ósk Kristinsdóttir Val
Kristín Ýr Bjarnadóttir Val
Guðbjörg Gunnarsdóttir Val
Íris Sæmundsdóttir ÍBV
Rachel Kruze ÍBV
Karen Burke ÍBV
LANDSBANKADEILD KVENNA
[ LOKASTAÐAN ]
Valur 14 13 1 0 56–7 40
ÍBV 14 10 2 2 69–12 32
KR 14 9 3 2 49–20 30
Breiðablik 14 5 0 9 25–35 15
Stjarnan 14 3 5 6 18–40 14
FH 14 4 2 8 14–54 14
Þór/KA/KS14 1 5 8 14–48 8
Fjölnir 14 1 2 11 7–37 5
MARKAHÆSTAR
Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV 23
Olga Færseth, ÍBV 20
Nína Ósk Kristinsdóttir, Val 16
Hólmfríður Magnúsdóttir, KR 13
Kristín ýr Bjarnadóttir, Val 12
Getum komist ofar
FH-stúlkur enduðu í sjötta sæti Landsbankadeildar kvenna eftir að þær lögðu Fjölni sem var
þegar fallið úr deildinni. Þær stefna enn ofar á næsta ári.
FÓTBOLTI FH-stelpur luku tímabil-
inu með sigri á Fjölni, 2-1, í
Kaplakrika í gærdag. Þar með
endaði liðið í sjötta sæti deildar-
innar með 14 stig, jafnmörg og
Stjarnan, sem hafði betra marka-
hlutfall. Góður árangur hjá FH-
stelpum, þær voru aðeins einu
stigi á eftir Breiðabliki sem end-
aði í fjórða sæti, og sérstaklega ef
miðað er við áföllin sem dundu
yfir í vor.
Fyrst skipti Sif Atladóttir yfir í
KR og síðan meiddist hinn efni-
legi framherji, Elín Svavarsdóttir.
Enda var það svo að byrjun móts-
ins var liðinu erfið en FH-stelpur
sýndu karakter, þeim óx smám
saman ásmegin og sýndu að þær
eiga svo sannarlega heima í efstu
deild.
Til sóma
Fjölnisstelpur voru fallnar
fyrir leikinn en óhætt er að segja
að frammistaða þeirra í sumar
hafi verið félaginu til sóma. Hér
er á ferð kornungt lið sem sýnt
hefur þrælgóða takta. Mikil og
góð barátta hefur einkennt það en
satt best að segja hefur heppnin
ekki verið með Fjölnisstelpum. Ef
fram fer sem horfir kemur liðið
fljótt upp aftur, reynslunni ríkari.
Leikurinn fór fram við frekar
erfiðar aðstæður, mikil rigning
var lengstum og völlurinn því
verulega þungur. Samt sem áður
sáust ágætis tilþrif á báða bóga og
í það heila hefði jafntefli líklega
verið sanngjörnustu úrslitin.
Viljum gera betur
Fyrirliði FH-stelpna, Hlín Pét-
ursdóttir, var ánægð með sigurinn
og uppskeruna. „Við sýndum hvað
í okkur bjó eftir erfiða byrjun og
erum mjög ánægðar með árang-
urinn í sumar. Við viljum gera enn
betur en til þess þarf okkur að
ganga betur að halda leikmönnum
því það er svo erfitt til lengdar að
þurfa alltaf að byrja upp á nýtt á
hverju tímabili. Takist það getum
við komist enn ofar, engin spurn-
ing,“ sagði Hlín
sms@frettabladid.is
„Við viljum gera enn
betur en til þess
þarf okkur að ganga betur
að halda leikmönnum því
það er svo erfitt til lengdar
að þurfa alltaf að byrja upp
á nýtt á hverju tímabili.”
,,
SKREFI Á UNDAN Fjölnisstúlkur áttu lítið erindi í grimmar FH-stúlkur í Krikanum í gær. Þær gáfust þó aldrei upp og luku tímabilinu
með miklum sóma. FH-ingurinn Guðrún Sveinsdóttir skeiðar hér auðveldlega fram hjá varnarmanni Fjölnis. Fréttablaðið/Vilhelm
FÓTBOLTI “Við vildum sýna það að
við værum með besta liðið og ég
held við höfum gert það hér á Há-
steinsvelli í dag,” sagði Elísabet
Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, eftir
að lið hennar hafði sigrað lið ÍBV
3-1 í Eyjum og var um leið fyrsta
liðið til að sigra þar í tvö ár.
“Ég er afskaplega ánægð með
þennan sigur en mig varðar
ekkert um það hvenær ÍBV tapaði
hérna síðast. Við erum bara tap-
lausar í sumar og ég er mjög sátt
við það. Mér fannst við spila mjög
vel í seinni hálfleik og er mjög
ánægð með fyrri hálfleikinn.
Hvort þær voru sterkari eða
veikari en ég átti von á veit ég
ekki, ég hugsa ekki mikið út í það.
Við vorum að spila vel og það
skiptir mestu máli,” sagði Elísa-
bet sem eins og kunnugt er var
rekin sem þjálfari ÍBV fyrir
réttum tveimur árum síðan.
Valsstúlkur tóku forystuna
strax á 3. mínútu leiksins þegar
Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði
gegn hálf vængbrotnu liði ÍBV.
Markvörður liðsins, Claire
Johnstone, lék ekki með og Hanna
G. Guðmundsdóttir sem ekki
hefur æft í sumar stóð á milli
stanganna. Hún virtist úr leikæf-
ingu og má skrifa tvö fyrstu mörk
Vals á hana. Þá vantaði Michelle
Barr og Sammy Britton í vörnina
en þær voru báðar meiddar.
Margrét Lára reyndi hvað hún
gat í sókninni en náði aðeins einu
sinni að koma knettinum framhjá
góðum markverði Vals,
Guðbjörgu Gunnarsdóttur, þrátt
fyrir nokkur góð marktækifæri.
“Leikurinn þróaðist svipað og í
fyrri umferðinni á móti Val á Vals-
vellinum. Við fengum aragrúa af
færum í byrjun og náðum að vísu
að nýta eitt núna en við hefðum
getað verið þremur eða fjórum
mörkum yfir snemma í fyrri hálf-
leik,” sagði Olga Færseth, fram-
herji hjá ÍBV, sem tókst ekki að
skora í leiknum og er þetta í
fyrsta sinn sem hún skorar ekki á
Hásteinsvelli frá því hún gekk til
liðs við ÍBV fyrir tveimur árum.
Valsstúlkur tóku öll völd á vell-
inum í seinni hálfleik og unnu
sanngjarnan 3-1 sigur og verð-
skulda Íslandsmeistaratitilinn
enda ekki tapað leik í deildinni í
sumar. Laufey Ólafsdóttir kom
Valsstúlkum í 2-1 eftir að Margrét
Lára hafði jafnað metin snemma í
fyrri hálfleik en Kristín Ýr Bjarna-
dóttir gulltryggði sigurinn á 59.
mínútu með góðu skallamarki.
JIA
Íslandsmeistarar Vals undirstrikuðu yfirburði sína með því að leggja ÍBV í Eyjum:
Sýndum að við erum bestar
Á SKOTSKÓNUM Laufey Ólafsdóttir var
best á Hásteinsvelli í gær og skoraði að
auki eitt mark.