Fréttablaðið - 06.09.2004, Page 63
35MÁNUDAGUR 6. september 2004
Póstkröfusími 525 5040
TILBO‹
VIKUNNAR
N‡jar og vinsælar geislaplötur á frábæru
tilbo›i í verslunum Skífunnar.
Meira sítt að aftan
- 39 vinsæl 80's lög
Óbeint framhald af safnplötunni vinsælu
„Sítt að aftan“. Hér eru m.a. Queen, Wham,
Duran Duran, Kraftwerk, ABC, Europe, Falco,
Modern Talking, Limahl, Culture Club o.fl.
Young Buck - Straight Outta Cashville
Íslandsvinurinn Young Buck úr G Unit með
sína fyrstu sólóplötu.
Papa Roach - Getting Away With Murder
Jacoby Shidixx og félagar hans í Papa Roach
eru hér með sína þriðju plötu. Platan
inniheldur m.a. samnefnt smáskífulag sem er
í fínni spilun þessa dagana.
R Kelly - Happy People/U Saved Me
Glæný tvöföld plata frá R Kelly. Fyrri platan
inniheldur dansvæna smelli að hætti R Kelly
og seinni platan inniheldur lofsöngva sem fá
hjartað til að syngja.
Maroon 5 - Songs About Jane
Maroon 5 hafa heldur betur slegið í gegn með
þessari plötu, enda inniheldur hún smellina
Harder To Breath, This Love og vinsælasta
lag landsins í dag She Will Be Loved.
Brandy-Afrodisiac
„Afrodisiac“ er fjórða breiðskífa söng- og
leikkonunnar Brandy sem sló eftirminnilega í
gegn aðeins 19 ára gömul með plötunni
„Never Say Never“ og laginu The Boy Is Mine
árið 1998.
The Jacksons-Very Best Of
Þessi tvöfalda safnplata spannar allan feril
Jacksons systkinanna. Hér eru lög á borð við
ABC, Ben, I’ll Be There, Shake Your Body, Can
You Feel It og Blame It On The Boogie.
Thomas Thordarson-Sig Det' Logn
Ný plata frá hinum íslensk ættaða Tómasi
Þórðarsyni, sem flutti framlag Dana í
Eurovision söngvakeppninni 2004.
Ray Charles-Genius Loves Company
Síðasta platan frá Ray Charles er dúetta plata
með Norah Jones, Van Morrison, James
Taylor, Elton John o.fl.
Jeff Buckley-Grace
Þreföld afmælisútgafa af þessari mögnuðu
plötu Jeff Buckley. Í pakkanum er „Grace“
með endurbættum hljómburði, 13 áður
óútgefin lög og að auki DVD mynddiskur.
Red Hot Chili Peppers
-Live In Hyde Park
Frábær tvöföld 26 laga tónleikaplata með Red
Hot Chili Peppers á einföldu verði. Auk þeirra
bestu og vinsælustu laga er hér að finna 3 ný
lög og nokkur tökulög að auki.
Pottþétt 35
Mörg af allra vinsælustu lögum sumarsins á
tvöfaldri plötu. T.d. Quarashi, Keane, Britney,
Pink, Nerd, G Unit, Usher, Outkast, The 411,
Nylon, Kelis, 50 Cent, Maroon 5 ofl. o.fl.
Vikutilbo›
1.999 kr.
2CD
Vikutilbo›
1.799 kr.
2CD
Vikutilbo›
1.999 kr.
2CD
Vikutilbo›
1.999 kr.
Vikutilbo›
1.999 kr.
Vikutilbo›
1.999 kr.
Vikutilbo›
1.999 kr.
Vikutilbo›
2.999 kr.
2CD+DVD
Vikutilbo›
1.999 kr.
2CD
Vikutilbo›
1.999 kr.
2CD
Vikutilbo›
1.999 kr. Vikutilbo›
1.999 kr.
„Við köllum þetta Listahátíð í allan
vetur,“ segir Vigdís Esradóttir, for-
stöðumaður Salarins í Tónlistar-
húsi Kópavogs. Vetrardagskrá Sal-
arins er að hefjast nú í vikunni, og
vart er hægt að segja að of stórt sé
tekið upp í sig með því að kalla
dagskrána listahátíð.
Á dagskránni er að finna hvern
stórviðburðinn á fætur öðrum í
tónlistarlífinu, og enginn hægðar-
leikur að taka eitt fram yfir annað
þegar Vigdís er beðin að nefna
helstu viðburði vetrarins.
„En bara til að stikla á stóru, þá
eru þrír ungir Íslendingar að
debútera. Þeir heita Víkingur, Ari
og Ögmundur. Svo eru sex ein-
stæðir tónleikar erlendra gesta.
Þeir eru píanóleikararnir Liene
Circene frá Lettlandi, sem hélt hér
tónleika í vor við fádæma undir-
tektir, og Barry Snyder frá Banda-
ríkjunum, fiðluleikarinn Earl Car-
lyss og eiginkona hans, píanóleik-
arinn Ann Schein, strengjakvart-
ettinn Pi-Kap frá Prag og gömbu-
kvartettinn Phantasm.
„Rúsínan í pysluendanum er
svo Mary Lou Fallis, kanadíska
söngkonan og grínistinn sem fer á
kostum ásamt Peter Tiefenbach pí-
anóleikara í frumsömdum kabar-
ett, þar sem hún gerir grín að
„söngkonunni“. Svo koma fram
yfir hundrað íslenskir flytjendur,
þar á meðal margir af helstu lista-
mönnum þjóðarinnar.“
Salurinn varð fimm ára í janúar
síðastliðnum. Af því tilefni er
þessa dagana að koma út geisla-
diskur með úrvali af afmælisdag-
skránni síðastliðinn vetur.
„Þessi diskur er bara fyrir
áskrifendur,“ segir Vigdís og bros-
ir í kampinn. „Þeir sem kaupa
fimm miða eru þar með orðnir
vildarvinir og áskrifendur í Saln-
um. Þeir fá sjöttu tónleikana frítt
og svo fá þeir jafnframt í hendurn-
ar þennan einstæða disk.“
Á disknum getur meðal annars
að heyra Kristin Sigmundsson,
finnska stórsöngvarann Jorma
Hynninen, nýtt lag eftir Tatu
Kantomaa með Rússíbönum, selló-
snillinginn Erling Blöndal Bengts-
son, og hinn heimskunna rúss-
neska píanóleikara Igor Kamenz,
svo fátt eitt sé nefnt. ■
LETTNESKI PÍANÓLEIKARINN LIENE CIRCENE Hún kemur fram á fyrstu tónleikum
vetrardagskrár Salarins í Kópavogi, sem haldnir verða á þriðjudagskvöldið.
Níu mánaða listahátíð í Salnum
Ídag klukkan 12 hefst forsala miða átónleika söngkonunnar Mariönnu
Faithfull sem haldnir verða á Broad-
way 11. nóvem-
ber. Faithfull
mætir hingað til
lands með full-
skipaða hljóm-
sveit og ætlar að
flytja öll sín
þekktustu lög í
bland við lög af
síðustu plötu
sinni Kissin Time
sem kom út árið
2002. Faithfull er
enginn byrjandi í bransanum en hún
höf söngferil sinn árið 1964 með lag-
inu As Tears Go By sem rokkpáfarnir
Mick Jagger og Keith Richards
sömdu fyrir hana. Rolling Stones
tóku lagið ekki fyrr en ári síðar en
Faithfull og Jagger voru elskhugar
þegar lagið var samið. Ferill hennar
hefur verið nokkuð brokkgengur en
hún náði nýjum hæðum árið 1979
með breiðskífunni Broken English en
féll síðan í skuggann aftur þar til hún
söng með Metallicu í laginu Load.
Kissin Time fékk svo fyrirtaksdóma
þegar hún kom út en á henni vott-
uðu margir yngri tónlistarmenn
henni virðingu sína með því að taka
með henni lagið. Þar á meðal voru
Beck, Damon Albarn, Billy Corgan
úr Smashing Pumpkins, Dave
Stewart úr Eurythmics og Jarvis
Cocker úr Pulp. Fyrstu miðarnir á
tónleikana á Broadway verða seldir á
vefslóðinni concert.is og í síma 511
2255. Við þetta má svo bæta að
Concert, sem stendur fyrir tónleikun-
um, stefnir að því að flytja inn fleiri
eldri og reyndari tónlistarmenn og
hefur í þeim tilgangi tryggt sér leigu
á fyrsta flokks hljóðkerfi sem ætti að
sóma sér vel í stóra sal Háskólabíós.
Áfimmtudaginn eru liðin 20 ár fráþví að hin ástsæla hljómsveit
Grafík sendi frá sér plötuna Get ég
tekið sjéns og af því tilefni ætlar
Grafík að halda afmælistónleika í
Austurbæ að kvöldi 9. september.
Grafík á traust bakland aðdáenda
sem hafa engu gleymt frá því að
Helgi Björnsson beið eftir því að
verða sextán svo hann gæti látið
elskuna sína sjá sig í bíó og fór fram
á að draumadísin segði „já“ þúsund
sinnum. Miðar á viðburðinn hafa
rokið út og eins og staðan er í dag
eru fáir miðar eftir en þeir eru meðal
annars seldir á Hard Rock í Kringl-
unni. Grafík var ein áhrifamesta
hljómsveit níunda áratugarins á Ís-
landi en hún var stofnuð á Ísafirði af
þeim félögum Rafni Jónssyni og
Rúnari Þóris-
syni í kringum
árið 1980.
Sveitin gaf út
tvær plötur á
því tímabili en
svo árið 1983
gekk Helgi
Björnsson til
liðs við sveitina
og var þá hafist
handa við tök-
ur á plötunni
Get ég tekið
sjéns.
FRÉTTIR AF FÓLKI