Fréttablaðið - 06.09.2004, Page 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
A
O
F
ÍS
LE
N
SK
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
A
N
/S
IA
.I
S
L
B
I
25
09
3
0
8/
20
04
Tónleikar fyrir Vör›ufélaga
í bo›i Landsbankans
Fyrstir koma - fyrstir fá!
410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna
Varðan - alhliða fjármálaþjónusta
Jón Ólafsson heldur sérstaka tónleika fyrir Vör›ufélaga
í Salnum í Kópavogi sunnudagskvöldi› 12. september nk.
kl. 20.30 í bo›i Landsbankans.
Á tónleikunum mun Jón leika lög af n‡útkomnum geisladiski sínum
auk fless sem eldra efni fær a› fljóta me›. Án efa spjallar Jón af
fingrum fram vi› tónleikagesti eins og honum einum er lagi›.
Mi›a á tónleikana er hægt a› nálgast í útibúi Landsbankans í
Smáralind. Tveir miðar á mann - fyrstir koma fyrstir fá!
Tilbo› fyrir Vör›ufélaga
Tónleikagestum stendur til bo›a a› kaupa
geisladiskinn á frábæru ver›i, a›eins 1500 kr.
Fullt ver› er 2.399 kr.
fieir Vör›ufélagar sem ekki sjá sér fært a›
mæta á tónleikana geta keypt diskinn me›
20% afslætti í verslunum Skífunnar gegn
framvísun gulldebet- e›a kreditkorts
Vör›unnar.
Afsakið hlé,
fullorðna fólk-
ið er að rífast
Eftir tvær vikur lamast stærsti ogmikilvægasti vöðvinn í íslenska
þjóðarlíkamanum. Tvö hundruð grunn-
skólar munu standa auðir, fjörutíu og
fimm þúsund börn verða send heim.
Því miður: Fullorðna fólkið er að rífast.
VERKFALL grunnskólakennara er
boðað frá og með mánudeginum 20.
september. Það er skammur tími til
stefnu. Og himinn og haf á milli
kennara og sveitarfélaganna, sem nú
reka grunnskólana. Verkfall virðist
óhjákvæmilegt. Eða hvað?
Á ÍSLANDI er þjóðarsátt um að öll
börn eigi rétt á menntun og sá réttur er
bundinn í lög. Það er þess vegna álita-
mál hvort hægt er að svipta börnin þeim
rétti, vegna innbyrðis deilna þeirra sem
standa að grunnskólakerfinu.
KENNARAR gera svo ríflegar launa-
kröfur að ASÍ hefur bankað í borðið,
varað er við skriðuföllum. Samt viður-
kenna flestir að starf grunnskólakenn-
ara eigi að vera betur borgað. Sjálfum
finnst mér eðlilegt að grunnskólakenn-
ari og alþingismaður hafi svipuð laun,
ábyrgðin er af svipaðri stærðargráðu.
Þingmenn hafa skriðið upp launastigann
á síðustu árum með hjálp Kjaradóms, og
þurfa aldrei að óhreinka sig sjálfir í
launabaráttu.
OG væri ekki þjóðráð að einhverskonar
kjaradómur tæki að sér að úrskurða um
laun grunnskólakennara og annarra
hópa í þjónustu ríkis og borgar? Það er
ómögulegt að starfsmenn séu reglulega
í stríði við vinnuveitendur. Slíkar að-
ferðir þurfti í árdaga verkalýðsbarátt-
unnar en eiga ekki við í samfélagi okkar
tíma.
LEYSUM þetta mál, svo fjörutíu og
fimm þúsund börn verði ekki svipt
rétti sínum til menntunar. Fullorðna
fólkið hefur fjórtán daga til að forða
hneykslinu.
KENNARAR eiga að hafa góð laun, af
því að starf kennarans er mikilvægt.
Og kennarar eiga ekki að þurfa að eyða
andlegri orku í verkalýðspuð. Kennar-
arnir eiga að gera íslenskt skólakerfi
hið besta í heiminum. Ekkert minna.
BÖRNIN sem eru í grunnskóla núna
verða við stjórnvölinn á Íslandi kring-
um 2030. Þá munu þau taka ákvarðan-
irnar. Þess vegna skulum við vanda
okkur núna.
HRAFNS JÖKULSSONAR
BAKÞANKAR