Fréttablaðið - 14.11.2004, Page 8
8 14. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
Látna afganska stúlkan var
fyrirvinna átta manna fjölskyldu
Feriba var bara þrettán ára þegar hún reyndi að selja íslenskum friðargæsluliðum bækur á Kjúklinga-
stræti í Kabúl. Hún lést í sjálfsmorðsárás hryðjuverkamanns á Íslendinga. Okkar maður í Kabúl hitti
foreldra hennar að máli.
S prengjutilræðið gegn ís-lensku friðargæsluliðunumí Kabúl 23. október kostaði
tvo lífið; tuttugu og þriggja ára
gamla bandaríska konu og þretta-
án ára gamla afganska stúlku.
Þrír Íslendingar særðust. Ítarlega
hefur verið rætt við friðargæslu-
liðana sem komust í hann krapp-
ann í Kabúl en hinir látnu eru ekki
til frásagnar og minni athygli
hefur beinst að örlögum þeirra.
Fréttablaðið fór þess á leit við
afganskan blaðamann að hann
hefði uppi á fjölskyldu stúlkunnar
sem lét lífið. Hún var á Kjúklinga-
stræti þegar hryðjuverkamenn
sáu væna bráð; íslenska friðar-
gæsluliða. Hún var fyrsta mann-
eskjan í fjölskyldu hennar sem lét
lífið í meira en tveggja áratuga
löngu stríði í Afganistan. Blaða-
maðurinn Borhan M. Yonus komst
að því að unga stúlkan, Feriba að
nafni, hefði verið óvenjulega dug-
leg og heillandi ung stúlka.
Brauðfæddi fjölskylduna
Það var um þrjúleytið að staðar-
tíma í Kabúl 23. október sem ná-
granni bankaði upp á hjá Lailu,
móðir Feribu og sagði að hann
hefði verið beðinn fyrir skilaboð
um að dóttir hennar hefði særst í
sprengjutilræði í Shar-e-Naw
hverfinu. „Ég, mágur minn og ná-
grannakona flýttum okkur á vett-
vang og síðan á slysavarðstofuna.
Enginn vildi hjálpa mér að finna
dóttur mína þannig að ég sneri
heim. Um sjöleytið um kvöldið
var komið með lík hennar heim“.
Feriba gekk í skóla á morgnana
í þriðja bekk í Rahman Mina
stúlknaskólanum.
„Hún var ekki eins og venjuleg
stúlka. Hún sá um að brauðfæða
átta manna fjölskyldu,“ segir
móðir Feribu heitinnar, Laila, 35
ára að aldri.
Hún sýnir blaðamanni ljós-
mynd af dótturinni að selja dag-
blöð og grætur beisklega.
Þótt Feriba hafi verið aðeins
þrettán ára gömul vann hún fyrir
fjórum systkinum sínum, móður,
veikum afa og frænku. Það gerði
hún með því að þræða götur
Shahr-e-Naw hverfisins í miðborg
Kabúl og selja bækur, kort og dag-
blöð eftir að skóla
lauk um hádegis-
bilið.
Nánast all-
ir verslunar-
menn í
Kjúklingastræti,
þekktustu göt-
unni í Shahr-e-
Naw, könnuðust
við Feribu, með-
alháu mjóu
stelpuna sem
seldi útlending-
um enskar vasa-
brotsbækur og
Kabúlblöðin. Fjórt-
án ára gamall
frændi hennar
sem var oft með
henni í sölunni segir að útlending-
arnir hafi oft greitt henni margfalt
sannvirði fyrir blöðin bara af því
að þetta var hún.
Reyndi að selja
friðargæsluliðunum bækur
Þennan dag, 23. október, var hún
sem oftar á ferðamannagötunni
Kjúklingastræti þegar bundinn
var endi á líf hennar í sjálfs-
morðsárás. Tilræðismaðurinn
festi sprengjur um mitti sér og
sprengdi þær þegar hann nálgað-
ist bifreið sem merkt var ISAF,
friðargæsluliði NATO, að sögn
VETTVANGUR TILRÆÐISINS Auk Feribu lést 23 ára gömul
bandarísk kona sem starfaði sem túlkur í Úsbekistan en var í
Kabúl að leita sér lækninga.
ÍSLENSKU FRIÐARGÆSLULIÐARNIR Skörtuðu bolum
með áletruninni „Chicken Street - Shit happens“ við kom-
una til Íslands og áttu þar við tilræðið sem kostaði Feribu
og ameríska konu lífið.