Fréttablaðið - 14.11.2004, Blaðsíða 12
12 14. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
Forstjóri Marels segir rekst-
urinn lofa góðu í ár eftir
erfitt ár í fyrra. Hann segir
marga kosti við að reka fyrir-
tækið á Íslandi. Skattaum-
hverfi og gott starfsfólk eru
kostir Íslands en miklar
launahækkanir og gjaldeyris-
áhætta hafa neikvæð áhrif.
Marel hefur á tuttugu árum vax-
ið úr því að vera hugmynd tveg-
gja fræðimanna við Háskóla Ís-
lands í það að verða fjölþjóðlegt
iðnfyrirtæki sem fær 98 prósent
tekna sinna frá útlöndum. Í upp-
hafi framleiddi Marel vogir og
hugbúnað til notkunar í sjávar-
útvegi og þótt um fjörutíu pró-
sent af sölu fyrirtækisins enn
þann dag í dag séu vörur til
notkunar í sjávarútvegi hefur
framleiðsla fyrir annan mat-
vælaiðnað stóraukist.
Sjávarútvegur undirstaðan
Hörður Arnarson, forstjóri
Marels, segir að sjávarútvegur-
inn og tæknin þaðan hafi verið
ákveðin undirstaða velgengni
Marels á öðrum mörkuðum.
„Það gera sér ekki allir grein
fyrir því hvað fiskvinnsla hér er
framarlega,“ segir hann. Nú ný-
verið seldi Marel úrbeiningar-
vinnslulínu til eins stærsta
framleiðanda nautakjöts í Ástr-
alíu. „Þar erum við raunveru-
lega að notast við tækni úr fisk-
vinnslu,“ segir hann.
Nú starfa um þrjú hundruð
manns á skrifstofu og í verk-
smiðju Marels í Garðabæ og
ámóta fjöldi í verksmiðju fyrir-
tækisins í Danmörku. Þessu til
viðbótar eru hundruð sölu-
manna á vegum Marels víða um
heim. Þeir sjá einnig um þjón-
ustu til þeirra aðila sem keypt
hafa vörur Marels.
Byggt utan um tækin
Í verksmiðju Marels í Garðabæ
má sjá bæði fólk og vélmenni
vinna að stórum sem smáum út-
búnaði sem svo er sendur eftir
pöntun. „Við ráðleggjum við-
skiptavinum okkar að byggja
utan um tækjabúnaðinn svo
ekki þurfi að sníða tækjabúnað-
inn eftir húsnæðinu,“ segir
Hörður. Sama hugmyndafræði
var notuð við hönnun á nýjum
höfuðstöðvum Marels í Garða-
bæ. Aðföngin koma inn öðrum
megin í verksmiðjuhúsið en
fullunnin vara er send í gáma í
hinum enda hússins. Þar var
einnig lagt mikið upp úr loft-
ræstingu og hljóðeinangrun.
Þetta hefur lánast vel því þegar
komið er inn á verkstæði Mar-
els má allt eins halda að þar fari
fram skákmót eins og stórvirk
framleiðsla á iðnvörum.
Reksturinn í rétta átt
Rekstur Marels hefur verið góð-
ur það sem af er ári. „Þetta
hefur verið gott ár. Á miðju síð-
asta ári var ákveðin niðursveifla
en margir þættir hafa hjálpað til
við að gera stöðuna betri nú, „
segir Hörður. „Þetta hefur ekki
verið nein bylting en allar deild-
irnar eru að þokast í rétta átt í
rekstrinum,“ segir hann.
Marel starfar nú á þremur
mörkuðum. Um fjörutíu prósent
af tekjum félagsins koma í
gegnum sölu á búnaði til vinnslu
á sjávarfangi en hin sextíu pró-
sentin skiptast nokkuð jafnt á
milli búnaðar til vinnslu á fugla-
kjöti og dýrakjöti. Að sögn
Harðar hefur það í för með sér
ákveðna kosti að starfa á þess-
um þremur mörkuðum því
gjarnan sé það svo að þegar
niðursveifla sé á einum þeirra
sé uppgangur á öðrum. „Mark-
mið okkar er að salan skiptist
nokkuð jafnt á alla þessa mark-
aði og í ár erum við komin ná-
lægt því,“ segir Hörður.
Hörð samkeppni
Samkeppnin um viðskipti á
heimsmarkaði er mjög hörð og
margir um hituna. „Það er eng-
inn einn risi á þessum markaði
vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is
„Marel hefur lengi verið sterkt sóknarlið en vörnin hefur ekki verið
sérlega góð og við höfum oft spilað án markvarðar. Nú má segja að
við séum búin að þétta vörnina og setja mann í markið og séum til-
búin til þess að takast á við enn frekari vöxt.“
Marel tilbúið í sóknarleikinn
Antwerpen
124 km
Brussels
100 km
Liege
Lille
224 km
Paris
387 km
London
420 km
Düsseldorf
135 km
Eindhoven
128 km
Dortmund
232 km
Hannover
Bremen
Köln
123 km
Bonn
123 km Frankfurt
320 km
Luxembourg
142 km
Strassbourg
406 km
Stuttgart
Rotterdam
224 km
Amsterdam
250 km
Eins
og
skot
Liège
-beint fraktflug 11 sinnum í viku
Frá 15. október eykur Icelandair Cargo vikulegt fraktflug til og frá Liége úr 6 ferðum í 9 á viku.
Við bætum svo um betur frá 1. nóvember og fljúgum 11 sinnum í viku á þessari leið. Icelandair
Cargo í Liege er í innan við 400 km fjarlægð frá mörgum af stærstu borgum Evrópu.
Á skyggða svæðinu hér að ofan á 75% af allri flugfrakt frá Evrópu sér uppruna. Icelandair
Cargo býður þér landflutninganet hvaðan sem er í Evrópu.
Nýttu þér hraðvirkasta flutningsmátann innan Evrópumarkaðar.
Hafðu strax samband við Icelandair Cargo við Flugvallarveg í Reykjavík.
Sími 5050 400, fax 5050 630, veffang icelandaircargo.is.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
FR
2
57
01
09
/2
00
4
Geymdu það ekki til morguns sem við getum gert í dag.
HÖRÐUR ARNARSON, FORSTJÓRI MARELS Segir kostnað vegna íslensku krónunnar
hafa neikvæð áhrif á rekstur iðnfyrirtækja í alþjóðlegri samkeppni. Næstum allar tekjur
Marels koma frá útlöndum og félagið skilar bókhaldi í evrum.