Fréttablaðið - 14.11.2004, Qupperneq 20
Um sextíu milljón börn á Indlandi
vinna fulla vinnu til að framfleyta
fjölskyldu sinni og ættingjum.
Börn allt frá sex ára aldri vinna
frá morgni til kvölds fyrir lítinn
sem engan pening og oft fá þau
ekkert fyrir vinnuna.
Alþjóðasamband frjálsra
verkalýðsfélaga telur að 245
milljónir barna á aldrinum fimm
til sautján ára í heiminum, eða eitt
af hverjum sex börnum, séu við
störf sem teljast óhæf fyrir börn.
Þar af eru rúmlega átta milljónir
barna í nauðungarvinnu, í hernaði
eða í kynlífsiðnaðinum.
Alþjóðasamband frjálsra
verkalýðsfélaga hefur birt
skýrslu um stöðu þessara mála en
þessa daga stendur yfir ráðstefna
á Indlandi um vinnu barna og ung-
linga og hvað sé hægt að gera í
þessu vandamáli. Verkalýðsfélög
á Indlandi berjast ötullega fyrir
réttindum barna. Þau vilja að
börn fái rétt til að sækja skóla í
stað þess að vinna myrkranna á
milli. Í skýrslunni kemur fram að
börn vinna sem verkamenn til
sveita á Indlandi, sem vinnufólk á
heimilum, við að vefa mottur og
selja, sem verkafólk í verksmiðj-
um og grjótnámum og margt,
margt fleira. Enn fremur kemur
fram að allt að hundrað þúsund
börn vinna við teppagerð á Ind-
landi, eða fjörutíu prósent af öll-
um starfsmönnum í þeirri at-
vinnugrein. Börnin vinna oft tólf
tíma eða lengur á hverjum degi. Í
skýrslunni segir að þetta sé af-
leiðing mikillar fátæktar en allt
að 400 milljón manna á Indlandi
lifa undir fátæktarmörkum. ■
Atvinnutilboð Ekki segja já í flýti þegar þér er boðin vinna. Hugsaðu
málið í nokkra daga. Farðu yfir alla kosti og galla með vinum þínum og
fjölskyldu. Hugsaðu jafnvel um minnstu hlutina eins og hvort strætó
stoppi fyrir utan vinnustaðinn og taktu síðan ákvörðun.[ ]
Íslenska vefst fyrir mörgum
Kári kveðst oft þurfa sjálfur að fletta upp í orðabókum og orðabönkum til að leysa úr álitamálum. Heimasíða Íslenskrar
málstöðvar er www.ismal.hi.is.
Kári Kaaber segir alls konar
fólk hringja í Íslenska mál-
stöð.
Þegar upp kemur vafi um hvernig
eigi að skrifa eða beygja eitthvert
íslenskt orð er þægilegt að geta
hringt í Íslenska málstöð og feng-
ið góðar leiðbeiningar. Kári
Kaaber svarar þar oftast í símann
og er ekkert nema greiðviknin.
„Málfarsráðgjöf er eitt af mínum
helstu viðfangsefnum hér og ég
svara bæði síma og tölvupósti,“
segir hann og bætir við að flestir
noti símann enda vanti oft upplýs-
ingarnar samstundis. „Hingað
hringir alls konar fólk – bara Jón
og Gunna og svo er talsvert mikið
hringt frá auglýsingastofum og
ráðuneytum. Alls staðar þar sem
verið er að nota málið okkar geta
komið upp spurningar,“ segir
hann góðlátlega. Ekki getur hann
nefnt eitt öðru fremur sem fólk
hnýtur um. „Það er oftast spurt
um orðalag, stafsetningu eða
beygingar. Þetta þrennt. Sem bet-
ur fer eru þeir býsna margir sem
vilja vanda það sem þeir eru að
gera og hafa kannski á tilfinning-
unni að eitthvað mætti betur fara
í þeim texta sem þeir eru að setja
saman. Þá hringja þeir og það er
gott.“ Kári kveðst ekki verða mik-
ið var við rithöfunda á línunni og
kemur með sennilega skýringu á
því. „Þeir hafa flestir sem betur
fer góð tök á málinu og svo vilja
þeir hafa sinn eigin stíl.“ Kári
verður líka var við nýyrðasmíð.
„Yfirleitt eru það samsetningar
orða og ef þær eru í samræmi við
allar reglur auðga þær bara málið
og allir verða glaðir.“
Dagur íslenskrar tungu er
þriðjudaginn 16. nóvember
næstkomandi og að sögn Kára
verður málræktarþing í hátíðasal
Háskóla Íslands um næstu helgi.
Þar verður fjallað um áhrif hnatt-
væðingar og upplýsingatækni á
þjóðtungur og er haldið í sam-
vinnu við Mjólkursamsöluna, sem
ávallt styður dyggilega við
fræðslu um íslenskt mál.
gun@frettabladid.is
Innan raða Samtaka iðnaðarins eru fjölmörg fyrir-
tæki sem starfa í mannvirkjagerð, þar má til dæmis
nefna Félag byggingarverktaka, Félag jarðvinnu-
verktaka, Félag vinnuvélaeigenda og ýmis meistara-
félög. Mannvirkjagerð er mikilvægur þáttur
atvinnustarfsemi í landinu og ársverk í mannvirkja-
gerð hafa verið á bilinu 11.500-12.500 á undanförnum
árum. Með hverju starfi í mannvirkjagerð má segja
að fylgi að minnsta kosti tvö önnur í öðrum atvinnu-
greinum, svo sem framleiðslu, verslun og þjónustu.
Það háir hins vegar fyrirtækjum í mannvirkjagerð
hve aðgangur að verkefnum er sveiflukenndur.
Frank Friðrik Friðriksson hjá Vinnumálastofnun
segir að störfum almennt fjölgi nú fyrir jól, en
sveifla sé meiri á sumrin en veturna. „Vinnuframboð
eykst oft rétt fyrir jólin en í janúar er viðbúið að
aftur verði samdráttur. Spár um atvinnuleysi benda
þó til að atvinnuleysi muni ekki aukast jafn mikið í
ár og á sama tíma í fyrra. Það er þó misjafnt eftir
atvinnugreinum og helst er skortur á iðnaðarmönn-
um í byggingariðnaði. Þar vantar mannskap, bæði á
höfuðborgarsvæðinu og fyrir austan og viðbúið að
þeirri þörf verði að mæta enn frekar með erlendu
vinnuafli. ■
Helst skortur á iðnaðarmönnum
Vinnuframboð eykst fyrir jólin.
Skortur er á iðnaðarmönnum í jarðvegs- og byggingariðnaði.
Börn í þrældómi
Indversk börn vinna mörg hver fulla vinnu allt frá sex ára
aldri. Lítið er greitt fyrir þessa vinnu.
Mörg börn á Indlandi vinna við að vefa mottur og fá lítið fyrir.
STARFIÐ: Gullsmíði er löggilt iðngrein.
Gullsmiðir starfa á gullsmíðaverkstæð-
um og í skartgripaverslunum. Sumir
smíða eingöngu úr silfri en aðrir úr
gulli. Þeir hanna, smíða og gera við
skartgripi. Við vinnu sína nota þeir
gull, silfur og aðra málma og ýmiss
konar verkfæri s.s. hamar, steðja, sag-
ir, þjalir, valsa, dragjárn, tangir, klippur,
gas, lóðbyssu o.fl. Í dag eru um 70
manns í Félagi íslenskra gullsmiða,
sem er meðal elstu fagfélaga á land-
inu. Þeir eru þó ekki allir í fullri vinnu
en starfa á litlum verkstæðum og
sumir hafa gullsmíðina sem áhuga-
mál.
NÁMIÐ: Námið tekur 4 ár og fer að
mestu fram á gullsmíðaverkstæði hjá
meistara en einnig í Iðnskólanum í
Reykjavík. Á hverjum vetri eru nem-
endur þrjá mánuði (eina önn) í Iðn-
skólanum. Sá sem lýkur sveinsprófi
fær heimild til að bera starfsheitið
gullsmiður.
Í skóla eru kenndar almennar greinar
eins og íslenska, danska, enska og
stærðfræði. Þá eru kenndar sérgreinar
sem tengjast gullsmíðinni eins og efn-
isfræði, fríhendisteikning, grunnteikn-
ing, hönnun og lista- og menningar-
saga og síðast en ekki síst verktækni.
Gullsmiðir geta farið í meistaranám
t.d. við Iðnskólann í Reykjavík og orðið
meistarar í gullsmíði. Það tekur eitt ár.
ATVINNUHORFUR: Gullsmíðastarfið
getur verið ábatasamt en það ræðst
fyrst og fremst af hæfni, frumkvæði og
dugnaði viðkomandi gullsmiðs.
Hvernig verður maður:
Gullsmiður?
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/PJETU
R