Fréttablaðið - 14.11.2004, Qupperneq 44
24 14. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
11 12 13 14 15 16 17
Sunnudagur
NÓVEMBER
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandsliðið
beið lægri hlut gegn Noregi, 2-1, í
síðari leik liðanna í umspili um
sæti í lokakeppni Evrópumótsins.
Íslenska liðið var ákveðið að láta
ekki slátrunina í Egilshöllinni á
miðvikudaginn endurtaka sig og
mætti ákveðið til leiks í Valhöll í
Osló, í leik sem snerist umfram
allt um stoltið þar sem farseðill-
inn til Englands var fokinn út í
hafsauga.
Íslenska liðið fékk þó óþægi-
lega áminningu strax í upphafi
leiks þegar Dagny Mellgren
komst upp hægri kantinn og átti
gott skot en Þóra Helgadóttir
varði vel. Hún kom þó ekki nein-
um vörnum við á 22. mínútu þeg-
ar áðurnefnd Dagny komst aftur
upp hægri kantinn og fór skot
hennar í Ástu Arnardóttur og í
netið. Íslenska liðið var að sýna
góðan leik og gaf þeim norsku fá
tækifæri, þær pressuðu þær stíft
og náðu að brjóta flestar sóknar-
lotur Norðmanna á bak aftur.
Aftur á móti var lítið um sóknar-
tilburði hjá íslenska liðinu og
máttu þær Margrét Lára Viðars-
dóttir og Olga Færseth sín lítils í
fyrri hálfleik. Íslenska liðið kom
sterkt út í síðari hálfleik og náði
tökum á miðjunni. Íslenska liðið
náði góðri sókn á 68. mínútu þeg-
ar Erla Árnadóttir fékk boltann
til hægri í vítateig Norðmanna
og skaut föstu skoti í slá og inn
fyrir línuna en það var aftur á
móti Nína Ósk Kristinsdóttir
sem fylgdi á eftir og tryggði að
markið stæði. Íslenska liðið
skapaði sér ekki mörg færi eftir
þetta en það voru hins vegar
heimamenn sem skoruðu aftur
og þar var að verki engin önnur
en Dagny Mellgren sem tryggði
sigur Norðmanna.
Helena Ólafsdóttir, þjálfari
íslenska liðsins, var bærilega
sátt í leikslok. „Við náðum and-
litinu aftur og getum farið stolt-
ar frá þessum leik. Markmiðið
var að ná hagstæðum úrslitum
og betri leik en
síðast. Ég er auð-
vitað hundfúl að
hafa tapað leik en
samt má segja að
þetta séu eðlileg
úrslit á útivelli
gegn svo sterku
liði.“
Erla Hendriks-
dóttir var sam-
mála þjálfaran-
um. „Mér fannst
við eiga skilið
jafntefli úr þess-
um leik, liðið lagði sig 110 prós-
ent fram eftir áfallið á miðviku-
dag og grætilegt að við náðum
ekki að halda jafnteflinu. Við
sýndum í dag hina raunverulegu
getu okkar þar sem varnarleik-
urinn var sterkur og meiri agi og
þéttleiki í liðinu. Við náðum að
loka svæðum og þær voru ekki
að skapa sér hættuleg færi. Það
mikilvægasta er samt að enda
þetta á jákvæðum nótum og mér
finnst það hafa tekist.“
audolfur@frettabladid.is
■ ■ LEIKIR
19.15 Haukar og KR mætast á
Ásvöllum í Intersportdeildinni í
körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
12.00 Evrópska mótaröðin í golfi
á Sýn. Sýnt frá Open de Madrid
sem fram fór fyrir skömmu.
13.50 Ítalski boltinn á Sýn. Sýnt
beint frá leik Lecce og Juventus.
14.00 Enski boltinn á Skjá einum.
Sýnt beint frá leik WBA og
Middlesbrough.
15.50 HM í póker á Sýn. Sýnt frá
heimsmeistarakeppninni í póker.
16.00 Enski boltinn á Skjá einum.
Sýnt frá leik Newcastle og
Manchester United.
17.50 Spænski boltinn á Sýn. Sýnt
beint frá leik Real Madrid og
Albacete.
19.50 Spænski boltinn á Sýn. Sýnt
beint frá leik Real Betis og
Barcelona.
21.55 Ameríski fótboltinn á Sýn.
Sýnt beint frá leik Green Bay og
Minnesota.
22.10 Helgarsportið á RÚV.
Íþróttum helgarinnar gerð skil.
Hundfúlar en þó sáttar
Íslensku stelpurnar sýndu góða baráttu gegn norska kvennalandsliðinu í leik þjóðanna sem fram fór í
Noregi í gær. Léku stelpurnar annan og mun betri fótbolta en í fyrri leiknum en það dugði þó ekki til.
ÍSLAND ÚR LEIK Norsku stelpurnar unnu báða leiki sína gegn Íslandi í barátt-
unni um sæti á Evrópumótinu sem fram fer í Englandi. Landsliðið sýndi þó bar-
áttuhug í leiknum í gær sem var ekki til staðar á miðvikudaginn í fyrri leiknum.
ERLA HEND-
RIKSDÓTTIR
Segir afar græti-
legt að ná ekki
að halda jöfnu í
Noregi en er
stolt og ánægð
með leik liðsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Við tökum hattinn ofan....
...fyrir Helenu Ólafsdóttir, þjálfara kvennalandsliðsins í fótbolta, en henni tókst að rífa hópinn úr mikilli lægð eftir hræðilega útreið af
hálfu norska kvennalandsliðsins á miðvikudaginn var þegar Ísland tapaði 2-7. Þremur dögum síðar nær sama lið að halda aftur af
sama norska liði á útivelli og leikurinn hefði með örlítilli heppni getað endað í jafntefli. Þessi baráttuandi er nokkuð sem margir aðrir
íslenskir íþróttamenn virðast hafa gleymt og gætu tileinkað sér á ný.