Tíminn - 05.09.1973, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Miðvikudagur 5. september 1973
llniilinkii
I.
Lasergeislar til uppskurða
Fyrir átta árumvar fyrst hafin
notkun lasergeisla við lækningu
nokkurra augnsjúkdóma i
Vísinda og rannsóknarstofnum
augnveiki og húðaðgerða i
Sovétrikjunum. Þetta var
mögulegt eftir margar tilraun-
ir, sem sýndu að með hjálp mjós
ljósgeisla, sem kom frá laser,
var hægt á svipstundu að
„sjóða” lithimnu augans, sem
hafði losnað, við hornhimnuna.
Framkvæmd sjálfrar
„suðunnar” var algjörlega
sársaukalaus og tók ekki nema
þúsundasta brot úr sekúndu.
Fram fer staðbundin ofhitun
himnunnar á smá belti og á
ö
Hún er áttræð
Hvað haldið þið að konan á
þessari mynd sé gömul? Þri-
tug? Fertug? Jafnvel íimmtug
kannski? Ekki aldeilis! Hún er
áttræð. Þetta er kvikmynda-
rOOo,
leikkonan Mae West, sem
margir kannast við úr kvik-
myndum frá þriðja og fjórða
áratug aldarinnar, þegar hún
var upp á sitt bezta. Hún segir,
að hún fái enn gjafir frá aðdá-
endum, ekki sizt ungum mönn-
um. Það er kannski skiljanlegt?
þeim stað, sem geislanum var
beint að myndast má hnúður,
en hann gefur til kynna að „suð-
an” hafi farið fram. En laser-
geislin er ekki notaður i augn-
lækningum eingöngu til að festa
lithimnuna. Hann er einnig
notaður til lækningar á æxlun
inni i auganu og einnig við
ákvörðun ýmissa veikinda i
augum. Litrófsmælir sem notar
lasergeisla gerir kleift að greina
betur og fljótar útbreiðslu
gláku i augum. Sovézkir sér-
fræðingar hafa á seinustu árum
gert mikið af tilraunum með
áhrif lasergeislans á húðina.
Sovézkir visindamenn hafa
komizt að, að með auknum
styrk lasergeislunar eykst um
leið áhrif hennar á vefina, þar
til þeir deyja. Með tilraunum
var sannað að með lasergeislum
fer fram eyðilegging ekki aöeins
litaðra hluta húðarinnar heldur
einnig dýpri hluta vefjanna og
einnig hemóglóbins. A svæðum
llkama dýra vegna skemmda á
framleiðslu litarefna vex af
þessum sökum htlaust hár.
Sérstök áhrif lasergeislans á
húðina hafa verið notuð til að
fjarlægja fæðingarbletti og
húðæxli. Að áliti sérfræðinga er
i mörgum tilfellum betra að
nota „ljóshnifinn” við aðgerðir
heldur en skurðaðgerðum. Það
skal sérstaklega minnt á áhrif
lasergeislans á illkynja æxlis-
frumur. Niðurstöður tilrauna
hafa leitt i ljós að lasergeislar
geta drepið þessar frumur.
Einnig eru dæmi þess aö
geislun hati verið hægt að lækna
illkynjuð æxli — melanomæxli.
Sovézkir sérfræðingar hafa
einnig korhizt að þvi, að hægt er
að framkalla æxlismyndun með
þvi að hafa hita lasergeislans
300 gráður og meira.
Landfræðileg
alfræðiorðabók
um héruð
Norðurpólsins
Ný landafræöileg orðabók, sem
gefin hefur verið út I Moskvu,
veitir upplýsingar um yfir 2.000
staðarnöfn við strönd Norður-
tshafsins og eyjar frá Franz-
Jósefslandi og Novaja Zemlja i
vestri til Próvidens flóa i austri.
Verk þetta styðst meðal annars
við efni, sem aldrei hefur verið
birt áður.
Ekki fótalaus
Blaðamaður spurði leikkonuna
Liv Ullmann hvernig á þvi
stæði, að hún væri ávallt i siðum
kjólum eða siðbuxum i hlut-
verkum, hvort hún hefði ekki
Hlýðinn
bankaræningi
Ekki eru allir sænskir banka-
ræningar jafn kaldrifjaðir og
Jan Erik Olsson, aðalmaðurinn
i Kreditbankaráninu á dögun-
um. Fyrir nokkrum dögum kom
ungur, grimuklæddur maður
inn i eitt af útibúum Kredit-
bankans fyrir utan Stokkhólm,
veifaði byssu og spurði gjald-
kerann hvort nokkrir peningar
væru I kassanum. — Nei,
svaraði stúlkan, — aðalgjald-
kerinn er því miður ekki við og
við megum ekki afhenda neina
peninga á meöan. — Jæja,
svaraði ræninginn, stakk
byssunni i vasann og yfirgaf
staðinn. Nokkrum minútum
siðar greip lögreglan hann samt
úti á götunni.
Þegar ló brú yfir
Beringsund
Sovézka rannsóknamiðstöðin i
Austur-Siberiu hefur átt frum-
kvæðið að haldi ráðstéfnu, þar
sem ræddur verður árangur af
rannsóknum varðandi Bering-
sund. Hið þrönga sund, sem
fætur. Ullmann svaraði ekki
með öðru en að lyfta kjólfaldin-
um svo hátt að spyrjandanum
þótti nóg um og vék að öðru um-
ræðuefni.
skilur sovézku Asiu frá Alaska,
er mjög mikilvægt i sambandi
viö rannsóknir á plöntu og dýra-
lifi i Norðaustur-Asiu og Norð-
ur-Ameriku. Það er nú endan-
lega sannað, að á ýmsum tim-
um hefur verið efnskonar brú
milli meginlandanna sitt hvoru
megin við Beringsund. Það er á-
litið að siðasta brú af þessu tagi
hafi verið til fyrir 14.000 árum.
Visindamenn álita að fólk hafi
notað brúna til að elta stór-
gripahjarðir þær fyrstu sem
fóru frá Asiu til Ameriku.
Misheppnuð
tilraun
Frakkinn Raymond Mouchon,
54ára, fórfyrir tveimur mánuð-
um einn sins liðs út i eyna Por-
quarolles utan við Toulon, i þvi
skyni að gera á sjálfum sér til-
raun, til að komast að þvi, hve
vel einn maður þyldi að vera án
sambands við annað fólk. Til-
raunin mistókst þvi miður,
'vegna þess að vesalings Ray-
mond dó úr hungri. Hann bjó i
yfirgefnu húsi á eynni og veiddi
fisk sér til matar. En aflinn var
þó ekki nógur til að einn maður
gæti lifað af honum, að þvi er
lögreglan upplýsti.
„Þvi miður sá ég þetta ekki. Það
gerðist allt um lcið og ég beygöi
mig eftir veskinu minu, sem datt i
götuna...”
„Ég vona að þú hafir stoliö
henni."
DENNI
DÆMALAUSI
Hvað heitir maðurinn, sem átti
að koma og laga sjónvarpið
okkar?