Tíminn - 05.09.1973, Síða 20
Verður þremur
hótelum
NTB-Kaupmannahöfn — Þrjú
hótel i Kaupmannahöfn munu
væntanlega á næstunni fá skipun
um að leggja upp laupana vegna
ónógra eldvarnaráðstafana, að
þvi talsmaður danska slökkviliðs-
ins, sagði i gær.
t borginni eru þrjú hótel, sem
hafa alls ónógar eldvarnir og ef
kviknaði i þeim, gætu af-
lokað?
leiðingarnar orðið svipaðar og i
Hótel Hafniu, þar sem 35 manns
fórust um helgina. Eigendur
þessara hótela hafa margsinnis
verið beðnir að bæta úr þessu og
ef þeir gera það ekki, mun
slökkviliðið mælast til þess við
borgaryfirvöldin, að þessum
gististöðum verði lokað. Ekki
voru nöfn hótelanna nefnd.
Harðir bardagar
í Kompong Cham
þjóðfyIkingin ræður mestu
NTB-Phnom Penh — Þjóðfylking
Kambódiu gerði i fyrrinótt nýjar
árásir á þriðju stærstu borg
landsins, Kompong Cham og i
gær geisuðu þar enn harðir bar-
dagar, einkum á háskólasvæðinu
og i útjaðri borgarinnar.
Yfir 200 eldflaugasprengjum
var varpað að borginni um nótt-
ina og ekki hafa enn verið birtar
opinberar tölur um mannfall, en
80 manns féllu i svipuðum að-
geiröum fyrir viku.
Þjóðfylkingin ræður nú öllum
þjóðvegum, sem liggja að borg-
inni og flugvöllurinn hefur verið
lokaður i meira en viku, þrátt
fyrir að hann er enn i höndum
stjórnarhersins. Þjóðfylkingar-
menn náðu i gær á sitt vald
Nkor-musterinu skammt frá
Kompong Cham. Musterið, sem
er byggt á 12. öld, er ein af
merkustu fornminium landsins.
Glæpamenn sendu
lögreglunni sprengju
— að fyrirmynd IRA
NTB-London — Sprengjuárás,
sem glæpamenn i London gerðu á
lögregluna, olli i gær mikilli
ringulreið á öryggiskerfi þvi, sem
komið hefur verið upp til varnar
þeim sprengjufaraldri, sem
undanfarið hefur geisað i Bret-
landi. Fólks, sem grunað er um
að vera handbendi IRA, hefur
verið vel gætt, en allt kom fyrir
ekki.
Sprengjan sem um ræðir
sprakk milli handa þriggja lög-
reglumanna, sem voru að bera
hana inn i húsagarð lögreglu-
stöðvar i East End, til aö gera
hana óvirka. I fyrstu var talið vist
að þarna væri um IRA-sprengju
að ræða, en af leifum hennar er
séð, að hún var af allt öðru sauða-
húsi. Rannsóknarlögreglan hefur
nú komizt að þeirri niðurstöðu, að
glæpamenn i hverfinu hafi gert
þetta til aðhefna sin á lögreglunni
vegna þess að hún heíur undan-
farið verið ötul við aö fjarlægja
menn úr röðum þeirra.
Slikar aðgerðir hafa ekki verið
tiðkaðar áður og telur lögreglan,
að þarna hafi einhver glæpa-
mannasamtök tileinkaö sér að-
gerðir IRA. Sprengjan fannst i
mannlausum bil og var merkt
lögreglunni. Lögreglumennirnir
þrir særðust viö sprenginguna, en
enginn þeirra lifshættulega.
Orlofs- og hvíldardvöl
aldraðra að Löngumýri
Gó. — Sauðárkróki
í Húsmæðraskólanum að Löngu-
mýri, sem rekinn er á vegum
þjóðkirkjunnar, var i ágústmán-
uði starfrækt orlofs- og hvildar-
dvöl fyrir aldrað fólk. Hefur rúm-
lega 40 manns verið þar um líma i
tveimur hópum. Var fyrri hópur-
inn, sem dvaldi þar, frá Reykja-
vík en i þeim siöari voru Vest-
mannaeyingar. Þetta er tilraun,
sem þjóðkirkjan ákvað að reyna 1
sumar i samstarfi við félagasam-
tök, (félagsstarf eldri borgara i
Reykjavfk sá um dvöl Reykvik-
ingana, en hjálparstofnun kirkj-
unnar um dvöl Vestmanna-
eyingana) sagöi frk. Margrét
Jónsdóttir , sem veitt hefur þess-
ari starfsemi forstöðu á Löngu-
mýri.
Löngumýrarskólinn er sem
kunnugteri miðjum Vallhólmi og
er umhverfið þar mjög fagurt og
vinalegt. Gott veður var yfirleitt
rikjandi i siðasta mánuði og fóru
gestirnir ökuferöir um héraðið
m.a. til Hóla og Sauðárkróks.
Fréttaritari Timans var gestur
á kvöldvöku, sem Vestmanna-
eyjahópurinn efndi til siöasta
kvöldið er hann dvaldi á Löngu-
mýri. Margrét skólastýra stjórn-
aði kvöldvökunni og sýndi lit-
skuggamyndir. Hafði hún boðið
nokkrum gestum úr nágrenninu
og skemmti fólkiö sér viö sam-
eiginlegan söng undir stjórn
Björns Ólafssonar Krithóli og
upplestra hjá frú Jóhönnu S.
Siguröardóttur Miklabæ og sr.
Gunnars Gislasonar Glaumbæ.
Þá flutti sr. Þorsteinn L. Jónsson,
sem var einn dvalargestanna
skemmtilega ræðu og lýsti dvöl-
inni á Löngumýri þennan tima,
rómaöi frábæra fyrirgreiðslu og
aðbúnað, sem gestirnir hefðu
notiö og þakkaði Margrétu Jóns-
dóttur og öðrum, sem gert heföu
dvölina þar ógleymanlega, eða
eins og hann orðaði þaö, að sam-
feldri 10 daga „sæluviku". Og
ýmsir i hópnum höföu haft orð á
þvi, að þeir heföu hug á aö koma
hingað aftur næsta sumar.
Aö lokum færði svo sr. Þor-
steinn fyrir hönd Vestmannaey-
inganna Margrétu Jónsdóttur
ritið Saga Sauðárkróks eftir
Kristmund Bjarnason, sem kom
út í 3 bindum I tilefni 100 ára
byggðarsögu Sauðárkróks. Og
starfsstúlkunum voru færð hekluð
herðasjöl.
Myndin er frá fundinum á Hallormsstaö. Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra I ræöustól.
Hallormsstaðarfund-
urínn settur í dag
FUNDUIt þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar Framsóknar-
flokksins var settur á Ilallorms-
stað klukkan tvö I gær. Sitja
fundinn þingmenn flokksins og
framkvæmdastjórnarmcnn, auk
gesta, scm boöið var — varaþing-
manna af Austurlandi, stjórnar-
m anna Kjördæmissambands
Framsóknarmanna á Austur-
landi og miðstjórnarmanna, sem
búsettir cru eystra.
Þórarinn Þórarinsson, for-
maður þingflokksins, setti
fundinn, bauð fundarmenn vel-
komna og gat þeirrar nýlundu,
sem tekin var upp i fyrra meö
Akureyrarfundinum að halda
einn slikan fund á ári utan höfuð-
staðarins. Þakkaði hann kjör-
dæmasambandinu eystra undir-
búning þann, sem það hafði
annazt.
Þessu næst flutti Ólafur Jó-
hannesson forsætisráðherra mjög
Itarlega ræðu um islenzk stjórn-
mál og hugsanlega framvindu
þeirra á næstunni. Að erindi hans
loknu hófust almennar umræður,
sem stóðu til klukkan sjö i gær-
kvöldi. Þá héldu fundarmenn inn i
Fljótsdal, þar sem þeir drukku
kaffi i félagsheimilinu Végarði á
Valþjófsstað I boði Framsóknar-
manna i sveitinni.
Fundinum verður haldið áfram
á Hallormsstað á morgun, en á
föstudaginn verða fjórtán
almennir stjórnmálafundir viðs
vegar um Austurland.
Nú byrjar á ný reiptog
Nixons og þingsins
NTB-Washington — Bandarikja-
þing kemur saman i dag að loknu
mánaðar sumarleyfi. Búizt er við
nýjum átökum bráðlega milli
þingsins og Nixons forseta um
vald hans til að reka styrjöld og
draga að framkvæma sam-
þykktir þingsins.
Úrslit þessa reiptogs milli lög-
gjafar- og framkvæmdavalds I
Bandarlkjunum, mun að miklu
leyti fara eftir þvi, hvernig
öldungadeildarþingmenn og þeir i
fulltrúadeildinni hafa túlkað vilja
kjósenda sinna.
Þeir hafa ekki aðeins spurt um
Watergate-málið, heldur einnig
um togstreituna milli forsetans
og þingsins, sem leitt hefur til
þess, að Nixon hefur fjórum
sinnum i ár beitt neitunarvaldi
gegn samþykktum þingsins. Auk
þess eru flestar tillögur sem hann
hefur komið fram með, enn i af-
greiðslu hjá nefndum og ráöum.
Nýrforstjóri Hrafnistu
Rafn Sigurðsson hefur tekið viö
starfi forstjóra Hrafnistu, dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna i
Reykjavik.
Rafn var um langt skeiö bryti á
skipum Eimskipafélagsins og
siðar forstjóri veitingahússins
Skiphóls I Hafnarfirði. Rafn tók
viö starfi sinu hjá Hrafnistu i
siðasta mánuði.
Hækkun daggjalda f Hveragerði
HINN 10. ágúst s.l. barst heil-
brigöis- og tryggingamálaráðu-
neytinu bréf frá stjórn Náttúru-
lækningafélags tslands, þar sem
tilkynnt var, að félagið treystist
ekki til að reka Heilsuhæliö I
Hveragerði meö þeim dag-
gjöldum, sem daggjaldanefnd
sjúkiahúsa hefur ákveðið þvf kr.
950.00. Stjórnin tilkynnti jafn-
framt, aö frá og meö 1. sept. hefði
hún ákveðiö að daggjöld hælisins
yrðu kr. 1200.00
I samræmi við 4. mgr. 45. gr.
Heimspressan óánægð
NTB-Helsingfors — Við sjálft
lá, aö opinber heimsókn
Margrétar Danadrottningar
og Henriks prins til Finnlands
yrði „þöguð I hel” I blöðum,
stjónvarpi og útvarpi.
Astæðan var sú, að alls staðar,
þar sem fréttamenn hugðust
fylgjast meðatburðum, „fjar-
lægöi” lögreglan þá, vegna
einhverra varúðarráðstafana,
sem hún ein vissi um. úr
þessu rættist þó eftir miklar
og margvislegar kvartanir og
jafnvel hótanir fréttamanna
og þriggja klukkustunda
samningafund. Þá loks fengu
þeir viðunandi starfsaðstöðu.
laga um almannatryggingar nr.
67/1971 óskaði ráöuneytið eftir þvi
aðTryggingastofnun rikisins tæki
afstöðu til þessarar ákvörðunar
stjórnar Náttúrulækningarfélags
Islands, svo að þegar hinn 1. sept.
yrði ljóst hvernig greiðslum yröi
háttað af hálfu sjúkratrygg-
inganna fyrir dvöl á hælinu.
Meö bréfi hinn 30. ágúst til-
kynnti Tryggingastofnunin, aö
málið heföi veriö tekið til af-
greiöslu i Tryggingaráöi hinn 29.
ágúst og þar ákveöið að sjúkra-
tryggingar skyldu endurgreiða
kr. 950,00 á legudag af kostnaði
við dvöl i heilsuhælinu.
Frá og meö 1. sept. 1973 er bvi
daggjald Heilsuhælis Náttúru-
lækningafélags Islands i Hvera-
gerði kr. 1200,00 á dag og af þeirri
upphæð munu sjúkratryggingar
endurgreiða kr. 950,00 á dag.