Tíminn - 14.09.1973, Qupperneq 2
2
'TMínn
Föstudagur 14. september Í973
m
verzlið á 5 hæðum 7j T-húsinu
Skoðið hina nýju
ATON
DEILD
á annarri
hæð
ATON-
HÚSGÖGNIN
eru sérstæð
qlæsileq oq
AL-ÍSLENSK
Skoðið renndu
vegghúsgögnin
skápana og skattholin
Engir víxlar — heldur mánaðargreiðslur
með póstgíróseðlum — sem greiða má
í næsta banka, pósthúsi eða
sparisjóði.
Opið til kl. 10 í kvöld
— og til kl. 12 á hádegi laugardag.
Næg bílastæði.
JÓN LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 . Sfmi 10-600
Bókavörður
Bæjar- og héraðsbókasafnið i Hafnarfirði
óskar að ráða bókavörð frá 1. október n.k.
Upplýsingar gefur yfirbókavörður i sima
5-07-90.
Bókasafnsstjórnin.
Vindrafstöðvar
RAFORKUMÁL eru meðal okkar
Islendinga gjarnan deilumál
mikil,og má benda þar á heilla-
vænlegar og árangursrikar
dynamitsprengingar og deilur
um raforkuverð „viðreisnar-
stjórnar” til erlendra auðhringa.
Um það fyrrnefnda má segja, að
þar hafi sannarlega sigrað
sjónarmið landverndarmanna,
um hið siðara — með álverk-
smiðjuna i huga — má þvi miður
segja, að þar hafi sigrað sjónar-
mið þeirra manna, er trúðu
fremur á mátt erlendrar stóriðju
en mátt islenzks framtaks (einka-
og félagsframtaks) Um þá minni
máttarkennd og lágkúru, sem
„viðreisnarstjórnin” sýndi gagn-
vart erlendum aúði‘ og áhrifum,
má skrifa,og mun eflaust verða
gert, en þessari grein er ætlað
annað hlutverk.
Þingeyingurinn
Hér á landi er þvi almennt
haldið mjög á lofti.að vindur eða
loft sé meira i Þingeyingum en
öðrum landsmönnum. Ekki
verður afstaða tekin af þeim, er
þetta ritar, enda málið honum
skylt.
Erlendis er nú mjög rætt um
notagildi vinda til raforkufram-
leiðslu, og er þar rætt i fullri al-
vöru um að vindrafstöðvar séu
ódýrasti aflvaki, sem völ er á um
þessar mundir. Með þessu er ekki
verið að tala um vindrafstöðvar
fyrir einstaka sveitabæi, heldur
um afkastamiklar vindraf-
stöðvar, er fullnægi þörf lands-
hluta. I þvi sambandi má nefna
staði eins og Stórhöfða i Vest-
mannaeyjum, er gæti vindsins
vegna fullnægt raforkuþörf
byggðarlagsins mikinn hluta
ársins. Með þessu er átt við gjör-
nýtingu þess vindal'ls, er Stór-
höfði býr við allt árið, og jafn-
framt þeirri samlengingu dreifi-
veitna rafkerfis, sem stefnt er að.
Verði komið upp vindrafstöðv-
um i risavöxnum mæli um land
allt.gætu þær leyst af hólmi aö
verulegu eða öllu leyti dýrustu
raforku landsins, dieselraf-
orkuna. Með mörgum vindraf-
stöðvum mætti og jafnvel lækka
almennt raforkuverð i landinu,
ÁLFNAÐ ER VERK
ÞÁ HAFIÐ ER
g SAMVINNUBANKINN
enda gefa nýjustu erlendar upp-
lýsingar i skyn, að vindrafstöðvar
séu ódýrarsti aflvaki, sem völ er
á.
Astæða er til að skora á starfs-
menn RARIK (Rafmangsveitna
rikisins) að birta opinberlega
fréttir af nýjustu upplýsingum
um þetta efni og álit þeirra um
hagnýtingu þess fyrir okkur Is-
lendinga.
Allir viljum við ódyra orku, er
það ekki?
Einn forvitinn.
sem harðnar
dn brennslu
ÚTSOLUSTAÐIR:
UAABOÐS- OG
HEILDVERZLUN
Sími 2-65-50
Brautarholti 2
Skólavörubúðin, Tjarnargötu 10
Föndurhúsið, Hverfisgötu 98
Verslunin Úlfarsfell, Hagamel 67
Bókabúðin Huld, Akureyrí
Námsflokkarnir
í Kópavogi
Kennsla hefst í námsflokkunum mánudaginn l.október
Kenndar veröa eftirtaldar greinar:
Esperanto Danska Spænska
Myndlist Þýska Islenska
Enska Sænska Sníðakennsla
Innritun alla daga í síma 43809 frá kl. 17,20.