Tíminn - 14.09.1973, Blaðsíða 10

Tíminn - 14.09.1973, Blaðsíða 10
10 TÍMINN Föstudagur 14. september 1973 HANN MÓTMÆLIR Trúarbrögðin eru stærsti þátt- urinn ilifi Hakons, en samt hefur hann gefið sér tima til að klifa hæsta fjall Evrópu, Mont Blanc. Það gerði hann, þegar hann var fimmtugur. Hakon er mikill tungumalamaður og hefur lesið Bibliuna á dönsku, norsku, sænsku, frönsku, spænsku, þýzku og ensku. Meðal áheyrenda Hakons er margt æskufólk. En hann visar algerlega á bug nýtizku sértrúar- stefnum þeirra. — Unga fólkið, sem ég hef talað við á götunni, og er i rauninni byrjaöur að halda uppá, er hrifið af árásum mínum á kirkjuna. En þvi er ver og miður, að það er ótraust, sem það byggir á. Skól- inn afvegaleiðir það. Ekki aðeins, að það fær ekki að vita sannleik ann um föðurlandssvikin fyrir hernámið 1940, heldur llka vegna þess, að skólinn otar fram þró- unarkenningu Darwins, sem hefur eyðilagt siðferðiskenndina. Reiði Hakons Holm gegn stjórnmálamönnunum, sem stjórnuðu landinu meðan á heimsstyrjöldinni stóð er djúp- stæð. Hann fullyrðir, að danski utanrikisráðherrann, dr. phil Peter Munch og Heinrich Himmler hafi hitzt i Rostock I marz 1939. — Stjórnmálamenn okkar stóðu saman að þvi, sem geröist, en það var aldrei opinberlega viðurkennt. 19 ungir hermenn voru skotnir niður við landamær- in, svo að það liti út fyrir, að við hefðum verið herteknir skyndi- lega . . . Ég hef notað allt, sem ég á I mótmælin min, segir Hakon, sem hefur látið sig varða allt frá klámi til bibliufalsana i sjö bæklingum hans. — Ég vildi gjarnan láta prenta einn til, en hvaðan á ég að fá pen- inga? Það er spennandi að vita. Þó að Hakon sé svona upptek- inn af að mótmæla á strætum úti, yrkir hann stöðugt. 1 skúffum hans liggja bunkar af handritum. En dag hvern tekur skáldið Hakon Holm — sem fórnaði frægðinni fyrir trúna — vagn I miðbæinn til að halda áfram krossferð sinni á aðalgötunni. — í Bibliunni stendur, að hend- ir þú brauði þinu i vatn, þá komi það einhvern tima aftur, segir hann. — Og það er það, sem ég geri hér i miðborginni. Ég hef nógan tima . . Þýtt og endursagt g.b.k. STÖÐUGT var á spænsku. Arið 1919 dó faðir minn. Þá fór ég með mömmu og systkinum minum til Kaup- mannahafnar. Hér var ég stærð- fræðistúdent. Skáldið er viss um, að allt, sem hann skrifar sé þvert á móti þvi, sem fólk vill, að hann skrifi. Samt hafa bækur hans verið gefnar út i um fjórðungsmilljón eintaka. 1 mörgum verka hans koma svip- myndir frá útlöndum. Hann hefur ferðazt um Ameriku, Sviss, Þýzkaland, Frakkland, Italiu, Spán og Norðurlönd. — 1 minum augum hefur kynlif alltaf verið heilagt, segir hann. — Og I Bibliunni stendur, að þú skul- ir ekki drýgja hór. Ég varð mjög æstur, þegar eitt Kaupmanna- hafnarblaðanna skrifaði um hóp- kynlif. Þess vegna þaut ég út með mótmælaspjald. Það hafði áhrif á marga. Hvers vegna ég snerist endilega gegn hópkynlifi? Vegna þess, að það er eitt af þvi við- bjóðslegasta, sem til er. Frá þessum degi hefur Hakon Holm verið á ferli á götunni flesta daga vikunnar. Hann hefur talað við og dreift mótmælabæklingum meðal þúsunda manna. — Ég hef aldrei verið ánægðari með hlutskipti mitt en nú, þegar ég mótmæli, segir har.n Ég hef sett lif og sál i þetta og allar eigur minar. Þess vegna er stórkostlegt, þegar einhverir taka á móti. Og þegar ég segi þeim, að ég trúi á Jesú, svara merkilega margir, að það geri þeir einnig, og ekki siður yngri kynslóðin. Skáldiö Hakon Holm er manna þrautseigastur við að ganga um götui Arhusborgar tii að mótmæla öllum sköpuöum hlutum, jafnvel þó að hann hafi orð gagnrýnenda fyrir, að hann geti orðið þekktur rithöfundur. Grein um hópkynlif i einu Kaupmannahafnarblaðanna fyrir nokkrum árum var óbeint upphaf þess, að káldið Hakon Holm i Ar- hus öðlaðist tilgang I lifinu. Það fullyrðir hann a.m.k. sjálfur. Hann málaöi á skilti og fór út á aðalgötuna i Arhus. A skiltinu stóö: Ég mótmæli. Og Hakon Holm hefur mótmælt siðan, ekki aðeins hópkynlifi, heldur einnig allavega „kristni”. , Þetta er einkennandi fyrir sk- aldið. Alla sina ævi hefur hann verið upp á móti þjóðfélaginu. Jafnvel þó að bókmenntagagn- rýnendurnir hrósuðu honum, hélt hann áfram I rólegheitum að hringja dyrabjöllum til að selja bækurnar sinar. Hann lét ekki beina sér inn á neina ákveðna braut . . . — Ég fæddist i Suður-Amerfku- rikinu Paraguay árið 1906. Faöir minn var sonur stórjarðeiganda, sem var sviptur öllu i landbún- aðarkreppunni 1888. Hann flutti út. Ég skrifaði samt fyrsta ljóðið mitt i Paraguay. Það Fyrsta æskuverk hans var „Krossfestingin”, sem kom út 1932. En hann varð fyrst þekktur með bókinni „Hefur enginn áhuga”, en hún kom út ári seinna en sú fyrsta. Allir hossuðu unga skáldinu og bókaútgefendur rifust um hann. — Einn átti að gefa út næstu bók mina „Frelsi, jafnrétti, lifi- brauö”, segir Hakon Holm. — En þeir kröföust, aö ég tæki af kafl- ana um frelsi og jafnrétti, og þá var aðeins lifibrauðið eftir. Pen- ingar hafa aldrei skipt mig mestu máli . . . Allt lif okkar var og er heljar- mikil lygi, heldur Hakon Holm áfram. Þess vegna hætti ég, þeg- ar allar dyr stóðu mér opnar. Allt, sem ég geri eru mótmæli gegn upplognu samfelagi. Ég er viss um, að sannleikinn sigrar að lok- um. — Ég hef talað við þúsundir manna hér á aðalgötunni i Arhus. Margir trúa mér fyrir, að þeir trúi einnig á Jesú. — Þegar ég dreifði mótmælum minum gegn klámi, hió fólk. Þvi fannst það fyndið, en mér grátlegt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.