Tíminn - 14.09.1973, Page 6
6
TÍMINN
Föstudagur 14. september 1973
Aðalfundur Læknafélags Islands:
Á móti
frjólsum
fóstur-
eyðingum
AÐALFUNDUR Læknafélags ts-
lands var haldinn i Domus
Medica i lok síðustu viku. t sam-
bandi við fundinn var haldið
læknaþing og einnig tvö nám-
skeið, stendur annað þeirra yfir
þessa dagana I Norræna húsinu.
Mörg mál voru rædd á fundin-
um og breytingar gerðar á lögum
félagsins. Var nú t.d. sett i lögin
ákvæöi um, aö félög islenzkra
lækna erlendis geti sent fulltrúa á
aðalfund Læknafélags Islands.
Þennan fund sat einn slikur,
Þórður Harðarson frá Félagi isl.
lækna i Bretlandi.
Meðal mála, sem rædd voru á
þinginu, var starfsaðstaöa
héraðslækna og framkvæmdir á
sviöi heilbrigðismála. Þar fluttu
Ólafur Ólafsson landlæknir og
Guðmundur Sigurðsson héraös-
læknir erindi um starfsaðstöðu
héraðslækna og greindu frá könn-
un, sem nú stendur yfir á þvi máli
á vegum landlæknisembættisins.
Hefur þessi könnun þegar leitt i
ljós, að starfsaðstöðu lækna i
dreifbýli er viöa ábótavant. Einn-
ig kom fram, að á komandi vetri
er útlit fyrir læknaskort i dreif-
býli eins og oft áður. Mun þar
vera um að ræða ein 15 læknis-
héruð á Vestfjörðum, Norö-
Austurlandi og Austfjöröum.
Taka ber upp kennslu í
ellisjúkdómum viö H.l.
Samþykktar voru tillögur um
nauösyn aukinna fjárveitinga til
heilbrigöismála og um forgangs-
röð framkvæmda I heilbrigðis-
málum. Þá var lögö áherzla á aö
flýta bæri framkvæmdum nýju
heilbrigöislaganna, sérstaklega
ákvæðum um byggingu heilsu-
gæzlustööva.
A læknaþinginu var fjallað um
málefni aldraðra hér á landi,
bæði félagslega aðstoö, svo og
heilbrigöisþjónustu. Aðalfundur-
inn samþykkti ályktun um þessi
mál og er þar m.a. vakin athygli á
hinum mikla sjúkrarúmsskorti
fyrir aidraða, sem þarfnast
hjúkrunar.
Einnig samþykkti fundurinn að
taka þyrfti upp kennslu i ellisjúk-
dómum við Háskóla Islands.
1 umræðum um þetta mál kom
fram, að fræðslustarf læknafélag-
anna fer vaxandi og þátttaka
lækna i þessu starfi er góð. í sám-
bandi við umræður um þetta mál
ályktaöi fundurinn, aö stefna beri
aö þvi, að framhaldsmenntun is-
lenzkra lækna fari að mestu leyti
fram hér á landi.
Fóstureyöingamálið
mikið rætt
Fyrir fundinum lá greinargerð
nefndar, sem L.í. hafði skipað til
aö fjaíla um „Nefndarálit,
greinargerð og frumvarp til laga
um fóstureyðingar og ófrjósemis-
aögerðir” frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu.
Uröu miklar umræður um þetta
mál og kom þar m.a. fram, að það
sé tvimælalaust mjög timabær
breyting og til bóta að fella inn i
lög sem þessi ákvæði um ráðgjöf
og fræðslu varðandi kynlif og
barneignir.
Akvæði um þessa ráðgjöf og
fræðslu eru hins vegar svo
óákveðin, að þau binda ekki rikis-
valdið til aðgeröa i þessu mjög
svo aðkallandi máli. Til þess að
eitthvað raunhæft verði gert i
þessu efni, er nauðsynlegt, aö
skipaður verði ákveöinn aðili,
einstaklingur eða nefnd, sem sjái
um framkvæmd þessa þáttar
fræðslumála, og hafi það verkefni
að byggja upp þetta fræöslustarf.
Sú breyting, aö félagslegar
ástæður einar heimili fóstur-
eyðingu, er nægileg til þess að
leysa vanda flestra þeirra
kvenna, sem ekki tá fóstur-
eyöingu skv.'núgildandi löggjöf.
I tillögum hinnar stjórnskipuðu '
nefndar er gert ráö fyrir, að
fóstureyðing sé heimiluð að ósk
konunnar, ef gerö er aögerö fyrir
lok 12. viku meögöngutimans.
Hér er i rauninni verið aö heimila
fóstureyðingu, án þess að fyrir
hendi séu nokkrar félagslegar eða
læknisfræðilegar ástæöur. Verður
aö telja, að þetta ákvæöi stangist
á við það grundvallarsjónarmið,
er þessi sama stjórnskipaða
nefnd setur fram, að ávallt beri
aö lita á fóstureyðingu sem
neyöarráðstöfun.
Að lokum var bent á, að sam-
þykkt ákvæðanna um frjálsar
fóstureyðingar gæti haft I för með
sér erfiðleika vegna sjúkrarúma-
skorts, þannig að þessi ákvæði
væru litt framkvæmanleg viö nú-
verandi aðstæður. 1 samræmi við
áðurnefnda greinargerð nefndar
L.I. samþykkti fundurinn eftir-
farandi ályktun:
„Aðalfundur L.t. 1973 fagnar
fyrirhugaöri endurskoðun á nú-
gildandi löggjöf um fóstureyöing-
ar og ófrjósemisaðgerðir.
Fundurinn lýsir stuðningi viö
framkomnar tillögur um aukna
fræðslu varöandi kynlif og barn-
eignir, og við það, að félagslegar
ástæður einar saman séu nægjan-
legar til þess að heimila fóstur-
eyöingu. Fundurinn lýsir ein-
dreginni andstöðu við tillögu
hinnar stjórnskipuðu nefndar, að
fóstureyðingar skulu heimilaðar
að ósk konunnar eingöngu. Með
sliku ákvæði er ákvöröunin um
aðgerö, sem valdið getur varan-
legu heilsutjóni, tekin úr hendi
læknisins og öryggi sjúklingsins
þannig stefnt i óþarfa hættu.
Fundurinn Iýsir stuðningi við þá
hugmynd, að ófrjósemisaðgeröir
veröi geröar frjálsar, en telur þó
nauðsynlegt, að sett séu viss
ákvæði til þess að fyrirbyggja og
vernda fólk gagnvart litt hugsuð-
um og ótimabærum ófrjósemis-
aðgerðum.”
A fundinum var kjörin ný stjórn
og skipa hana: Snorri P. Snorra-
son formaður, Guðmundur Jó-
hannesson varaformaður, Skúli
G. Johnsen ritari, Guðmundur
Sigurðsson gjaldkeri og Grimur
Jónsson meðstjórnandi. Fram-
kvæmdastjóri Læknafélags Is-
lands er Páll Þórðarson.
—klp—
Svipmynd af æfingu L.R. á „Ótrygg er ögurstund”. Frá vinstri: Margrét ólafsdóttir, Helga Bachmann,
Jón Sigurbjörnsson, Steindór Hjörleifsson og Sigríður Hagalin. Það ku vera mikið drukkið í þessu leik-
riti.
L.R. frumsýnir:
„Otrygg er ögurstundin"
eða „A Delicate Balance"
LEIKFÉLAG Reykjavíkur hefur
leikárið næstkomandi laugardag,
15. sept., með frumsýningu á
„Ótrygg er ögurstund” eftir
Bandarikjamanninn Edward
Albee. Þýðingu verksins, sem á
frummálinu heitir „A Delicate
Balance”, annaðist Thor
Vilhjálmsson rithöfundur. Leik-
stjóri er Helgi Skúlason. Sviðs-
mynd gerði ívar Török.
Leikendur eru sex, og eru þeir
flestir meöal elztu og reyndustu
leikara L.R. Þeir eru: Sigriður
Hagalin, Jón Sigurbjörnsson,
Helga Bachmann, Margrét ólafs-
dóttir, Steindór Hjörleifsson,
Margrét ólafsdóttir Steindór
Hjörleifsson og Þórunn M.
Magnúsdóttir. (Þetta er fyrsta
hlutverk Þórunnar hjá L.R., en
hún lék m.a. siðastliöið vor i „Sjö
stelpur” hjá Þjóðleikhúsinu, eins
og menn muna.)
Edward Albee er alls ekki
óþekktur hér á landi, þar sem
hafa þegar verið sýnd fjögur verk
eftir hann. Fyrsta verkiö sem hér
var sýnt var „Saga úr dýra-
garöinum” (1964). Þá komu
„Hver er hræddur viö Virginíu
Woolf”, „Dauði Bessy Smith” og
siðast „Allt I garðinum.”
dirrandi jafnvægi.”
Að sögn leikstjórans, Helga
Skúlasonar, er ,, ögurstundin”
eiginlega lokahluti þrileiks
höfundar, erhófstmeð „Virginiu
Woolf.” Miðhlutinn heitir „Tiny
Alice.”Hvert þessara verka mun
þó vera algjörlega sjálfstætt. En
aðalviðfangsefni þeirra er það
sama, þ.e. eiginmaðurinn og
eiginkonan i amerisku þjóðfélagi.
— Þaðmáseg ja, að i þessu verki
sé hringurinn að lokast, segir
Helgi, — komiö er fram á ögur-
stund. Hjónin hafa komið sér upp
„dirrandi jafnvægi” til að geta
lifaö lifinu.
Leikritið f jallar einnig um gildi
vináttunnar, en sumir segja, að
þeir i Bandarikjunum „skipti
álika títt um vini og um föt.”
Hvað sem þvi liður, er algengt I
Bandarikjunum, að fólk stundi
nokkur mismunandi störf um
ævina og flytji sig til meira og
minna eftir þvi. Það eignast nýja
vini á nýjum stað, en þeir gömlu
vilja hverfa i fjöldann.
Sálfræðileg átök eru mikil i
leikritinu, en til að slaka á
spennunni, er slegið á léttari
strengi inn á milli. Segja má, aö
Albee hafi tekið við af Strindberg.
Báðir taka fyrir átök hjónanna I
þjóðfélaginu.
,,A Delicate Balance” var
frumsýnt vestra (á Broadway)
árið 1966 og hlaut Pulitzer-verð-
launin, sem bezta verk leikársins
i Bandarikjunum þaö árið.
Þýöandinn, Thor Vilhjálmsson,
hafði upphaflega látið leikritið
heita ,,A ögurstund”, en á siöustu
stundu var þvi breytt i „ótrygger
ögurstund.” Orðið „ögurstund”
er fornt i málinu (kemur m..a
fyrir i Völundarkviðu) Merking
þess (i dag a.m.k.) mun vera
„stutt, kyrr stund,” eiginlega
stundin milli sjávarfallaskipta.
Fallegt og gott orö, sem ef til vill
kemur hér meö að marki inn i
nútimamál.
„Black Comedy” i
október— Austurbæjar-
bió freistandi
Um verkefni L.R. i haust er þaö
annars að segja, að „Flóa á
skinni” verður tekið upp aftur.
Verður byrjað að sýna það geysi-
vinsæla verk siðasta leikárs um
þarnæstu helgi. Það var alls sýnt
106sinnum,95sýningar Ilðnó og
11 á Akureyri.
Um miðjan október frumsýnir
L.R. „Svörtu kómediuna(,,Black
Comedy”) eftir Peter Shaffer, í
þýðingu Vigdisar Finnboga-
dóttur leikhússtjóra L.R. Þetta
er langur einþáttungur, og
verðursýndur einn sér.kómedia,
eins og nafnið bendir til. Leik-
stjóri er Pétur Einarsson.
Að sögn Vigdisar er ekki endan-
lega ákveðið með önnur verkefni.
„Loki þó” eftir Böðvar
Guðmundsson verður væntanlega
tekinn upp aftur til sýningar f
október. „Seria” út frá þvi verki
er jafnvel i ihugun. 1 athugun
hefur verið að taka upp „Pétur og
Rúnu” eftir Birgi Sigurðsson, er
sýnt var við góðan róm á siðasta
leikári. En þetta er allt i óvissu,
þar sem annar aðalleikarinn i þvi
verki, Arnar Jónsson, ernúfast-
ráðinn hjá L.A. og er tekinn til við
æfingar þar nyrðra — Veðráttan
er oft hverful á haustin, þannig að
erfitt er að treysta á flugið á milli,
ef þvl væri að skipta, sagði
Vigdis.
Að sögn Vigdisar verður lögð
höfuöáherzla á að flytja islenzk
verk á árinu 1974. Hvað um
stóruppfærslu i Austurbæjarbiói?
— Það er mjög freistandi, sagði
Vigdis, — þar sem aðstaðan er
oröin svo góð þar. En það mál er á
samningsstigi.
-Stp.
Leikstjórinn Helgi Skúlason, Steindór Hjörleifsson form. L.R. og Vigdls Finnbogadóttir leikhússtjóri.
(Timamynd: G.E.)