Tíminn - 14.09.1973, Blaðsíða 7
Föstudagur 14. september 1973
TÍMINN
7
AAANUELA WIESLER
flautuleikari í
Norræna húsinu
MANUDAGSKVÖLDIÐ, 17.
september, kl. 20.30 verða haldnir
tónleikar i Norræna húsinu. Flutt
verða verk fyrir flautu og pianó
eftir 20. aldar tónskáld, m.a. þá
Poulenc, Prókofieff og Hinde-
mith.
Hér leikur i fyrsta sinn opinber-
lega á íslandi, Manuela Wiesler
frá Austurriki.
Hún stundaði tónlistarnám i
Vin hjá Camillo Wanausek og
siðar i Paris hjá Jean-Pierre
Pampal og Alain Marion. Hún
hefur leikið einleik með Wiener
Symphoniker á tónleikum i Vín,
haldið tónleika I Þýzkalandi og
Rúmeniu og hefur farið i tón-
leikaferð með Wiesler-trióinu
(sem nefnt er eftir henni) til
SB-Reykjavík — Nú i haust eru
liðin 20 ár siðan Málaskóli Hall-
dórs var stofnaður. Af þvi tilefni
ræddi Timínn við skólastjórann,
Halldór Þorsteinsson og spurði
hann um starfsemi skólans.
Halidór Þorsteinsson.
Halldór sagði, að skólinn hefði
verið stofnaður til að gefa Reyk-
vikingum kost á að læra talmál
erlendra þjóða með nýrri aðferð,
sem gefið hafði góða raun er-
lendis. Aðferðin, sem notuð hefur
verið frá upphafi, er svokölluð —
Bein aðferð — „direct method”.
Er hún i stuttu máli þannig, að
hver kennslustund hefst á þvi
að kennari og nemendur tala
r" ÍGNÍS^
UPPÞVOTTAVÉLAR
Austurlanda nær. Þá hefur hún
farið i tónleikaferð til Banda-
rikjanna með litilli hljómsveit frá
Vinarborg. Hún hefur tvivegis
unnið til verðlauna i tónlistar-
samkeppni i Austurriki. Manuela
er nýsetzt að hér að landi, en hún
er gift klarinettleikaranum,
Sigurði Snorrasyni, en þau eru
nýkomin heim frá námi. Með-
leikari Manuelu á þessum tón-
leikum er Halldór Haraldsson,
pianóleikari.
A fyrri hluta tónleikanna eru
verk eftir frönsku tónskálin,
Mouquet, Rivier og Poulenc, en á
siðari hluta þeirra verða leiknar
hinar velþekktu sónötur
Prókofieffs og Hindemiths.
(Frettatilkynning)
saman á þvi máli, sem verið er að
kenna, en siðan er farið i bækurn-
ar og lesið um sama efni. Blátt
bann er lagt við þvi að kenna ein-
stök orð, sem tekin hafa verið úr
samhengi, eða eyða löngum tima
i að skýra málfræðireglur og út-
lista. Ekki ber þó að skilja þetta
þannig, að málfræði sé ekki
kennd, það er hún, en nemendur
læra hana með endurtekningum
og þaulreyndum æfingum.
Málaskóli Halldórs hefur fylgt
þeirri stefnu, að hafa fáa nem-
endur i hverjum flokki, enda leyf-
ir kennslutilhögunin vart annað. 1
slikum flokkum verður samband
kennara og nemenda nánara og
kennslustundir skemmtilegri.
Á hverju ári eru haldin þrjú
námskeið. Það siðasta, sem er
vornámskeið miðast einungis við
þarfir nemenda, sem hyggjast
þreyta landspróf. Er þá veitt til-
sögn I þyngstu námsgreinunum,
islenzku, stærð fræði, eðlisfræði,
dönsku og ensku.
Að endingu sagði Halldór: —
Sumir halda að það hljóti að vera
fyrirhafnarlitið og auðvelt að
læra tungumál eftir nýrri aðferð,
en það er misskilningur. Enginn
lærir erlend tungumál fyrir-
hafnarlaust. Það kostar erfiði og
æfingu, þolinmæði og þraut-
seigju. Að læra mál er ekki ósvip-
að þvi og læra á hljóðfæri. Enginn
nær fögrum tónum úr fiðlu til
dæmis, nema sá sem stundað hef-
ur nám sitt af áhuga og elju.
Sama gildir um tungumálanám.
Glava
glerullar-
hólkar
Hlýindin af góðri
hitaeinangrun
vara lengur en
ánægjan af
lagu verði
AAálaskóli Hall-
dórs 20 ára
RAFIÐJAN RAFT0RG *
■ SIMI: 19294 SÍMI: 26660 ■
L -________________________ 4
Unglingspiltur óskast
á heimili i Borgarfirði um lengri eða
skemmri tima.
Upplýsingar gefur simstöðin Reykholti.
I 14444 %
mfiifim
V 25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTUN
Byggingaverkfræðingur —
byggingatæknifræðingur
Mikið uppbyggingarstarf er framundan i
Vestmannaeyjum og má þar til nefna:
Framkvæmdir við gatnagerð, holræsi,
vatnsveitu, svo og hafnargerð og aðrar
byggingaframkvæmdir.
Vegna þessara framkvæmda þurfum við á
aðstoð að halda sem fyrst og viljum þvi
ráða duglegan og reglusaman mann með
verkfræði eða tæknifræðimenntun.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir
Páll Zophaniasson, bæjartæknifræðingur
eða Magnús Magnússon, bæjarstjóri i
simum 25536 — 25788 — og 99 — 6953.
Skriflegar umsóknir, er greini menntun og
fyrri störf, sendist bæjarstjóranum i Vest-
mannaeyjum fyrir 1. okt. n.k.
Bæjarráð Vestmannaeyja
Fró gagnfræða-
skólunum
í Kópavogi
Skólarnir verða settir þriðjudaginn 18.
september.
Nemendur mæti sem hér segir:
5. bekkur, 4. bekkur, Landsprófsdeildir og
2. bekkur kl. 2.
Almennur 3. bekkur og 1. bekkur kl. 4.
Kennarafundir verða i skólunum kl. 2
mánudaginn 17. september.
Fræðslustjórinn i Kópavogi.
Stólskipasmíði
ó Akureyri
Óskum að ráða nú þegar eða seinna
járniðnaðarmenn og trésmiði.
öll vinna i nýsmiði i bónus. Upplýsingar
hjá starfsmannastjóra.
PÓSTHÓLF 246 . SÍMI (96)21300 . AKUREYRI
UNAA-nefndin ó
íslandi tilkynnir:
SKILAFRESTUR á tónverkum til þátt-
töku i móti ungra tónlistarmanna á
Norðurlöndum (UNM-’74) er til mánu-
dagsins 17. september 1973. Verkum skal
skilað i lokuðu umslagi undir dulnefni.
Heimilt er að skila raddskrám
(partitúrum) og/eða segulböndum.
Nafn fylgi i lokuðu umslagi.
Verkum skal skila til
UNM-nefndarinnar á íslandi
c/o Snorri Sigfús Birgisson
Hofteigi 21, Reykjavik.