Tíminn - 14.09.1973, Page 15
Föstudagur 14. september 1973
TÍMINN
15
Hans Fallada:
Hvaðnú,ungi maður?
r
Þýðing Magnúsar Asgeirssonar
framt augunum til manns sins
eins og hálf-hikandi.
„Við höfum ekki haft tíma til að
tala um það ennþá. Nú skaltu fá
að heyra nokkuð, Hannes. Jach-
mann hefir boðið okkur út i kvöld,
fyrst i bió og svo inn á eitthvert
fint veitingahús til að borða og
drekka”.
Pinneberg kinkar kolli til
samþykkis. „Jæja, Pússer, þarna
færð þú eina af þinum aðal-óskum
uppfyllta, að fá einu sinni ærlega
að skemmta þér. — Pússer hefir
alltaf langað til þess. Þakka yður
fyrir, Jachmann”.
Klukkutima siðar sitja þau öll i
kvikmyndahúsi og það meira að
segja i dýrustu sætum — i stúku.
Þar eru flosklæddir stólar með
armbrikum. Pússer hallar sér
aftur á bak og finnst hún vera i
sjöunda himni.
Svo verður dimmt og myndin
byrjar.
Svefnherbergi. Tvö höfuð á
koddanum. Andlit hennar er ung-
legt og hrukkulaust. Hann er
eldri, með áhyggjusvip, jafnvel
nú meðan hann sefur. Siðan er
klukkuskifa sýnd i framsýn.
Vekjaraklukka. Hún er sett til að
slá vekjaraslögin klukkan hálf-
Sjö, og nú vantar hana fimm
minútur. Maðurinn rumskar og
seilist hálfsofandi eftir klukkunni.
Hann lætur hana aftur á sinn stað,
andvarpar, lokar augunum og
reynir að blunda. Nú sést eitthvað
hvitt við fótagaflinn — barnarúm.
Barnið sefur með annan hand-
legginn undir hnakka sér og hálf-
opinn munn.
Vekjaraklukkan fer að hamra.
Kólfurinn sést hamast á klukkun-
um i sifellu. Maðurinn tekur við-
bragð, sest upp og veltir fótunum
á sér út fyrir rúmstokkinn.
Fótleggirnir eru mjóir og beina-
berir og fæturnir stórir. Leggja-
nefnurnar eru þaktar löngum
svörtum hárum.
Hláturinn ýskrar og sýður i
áhorfendum yfir þessum fótum.
„Þessi mynd verður ómynd”,
segir Jachmann. „Verulega góðir
kvikmyndaleikarar mega ekki
hafa hár á fótleggjunum”.
Konan geðjast áhorfendum
miklu betur. Hún virðist vera
fullkomin kvikmyndadis. Núna,
þegar hún sezt upp i rúminu og
ábreiðan fellur til hliðar, er
náttkjóllinn opinn niður fyrir
brjóst. Áður en hún hefir getað
náð honum saman, eru allir i
leikhúsinu gripnir þeirri þægilegu
tilfinningu, að þeir hafi staðið i
hinu allra nánasta sambandi við
hina fögru konu. Enginn er sá,
sem ekki finnnst hann hafa séð
nakin brjóst hennar. Þvi kitlar
það tvöfalt meira, að hún gerir
sér svo mikið far um það eftir á
að smeygja sér sem lengst undir
ábreiðuna.
„Að sjá litla svinið”, segir
Jachmann.
„Já, en hún er bara ljómandi
lagleg”, segir Pinneberg.
Maðurinn klæðir sig nú af
kappi. Barnið situr i litla rúminu
sinu og heimtar bangsa sinn.
Faðirinn verður fúslega við skip-
uninni og örstundu á eftir er hann
kominn út i eldhúsið til að hita
vatn og búa til morgunmatinn. En
barnið orgar og heimtar náttpott-
inn og faðirinn verður að hlaupa
út og inn. Hann er renglulegur,
klæðasnjáður og lúpulegur, elli-
legur um ár fram og þolinmóður.
Og hann hefir nóg að gera! Ýmist
er hann inni i eldhúsinu og býr til
kaffi inni i svefnherberginu til að
annast um krakkana eða frammi
i borðstofunni við að bera á borð.
Öllu kemur hann af. Konan hans
liggur i rúminu, ung sléttholda og
lagleg, og brosir.
Lokins þegar allt er tilbúið og
maðurinn er búinn að setja barnið
I háan barnastól við morgun-
verðarborðið, fer frúin að klæða
sig og fága. Hún fer inn i baðber-
bergið og lagar sig til. Hann litur
á úrið, leikur dálitið við barnið
gengur fram og opnar forstofu-
dyrnar og gætir að þvi, hvort
mjólkin sé ekki komin. En þar er
ekkertnema morgunblaðið. Hann
litur á úrið og fer að hella kaffinu
i bollana.
Nú kemur hún og sezt þegar við
borðið, tekur blaðið, kaffibollann
sinn og sneið af smurðu brauði.
Maburinn litur enná úrið og er
sýnilegg orðinn órólegur.
„Della!” segir Pússer. „Svona
er þetta alls ekki i veruleikan-
um”.
„Biddu nú róleg”, segir Pinne-
berg og þaggar niður i henni.
„Auðvitað heldur þetta ekki
svona áfram.”.
En Jachmann skýrir allt
ástandið með örfáum orðum:
„Maðurinn hefir ekki nógu há
laun til að gefa haft vinnukonu.
Það virðist sem hann hafi rétt
fyrir sér að vanda. Allt i einu
finnur frúinauglýsingu i blaðinu.
Hún vill fápeninga fyrir nýrri loð-
kápu. Maðurinn er alveg úti á
þekju. Hvað hefir hún gert við
alla peningana, sem hann lét
hana fá i gær og fyrradag? Hún
hlær bara og sýnir honum tóma
budduna. Hann hristir höfuðið og
sýnir henni galtómt veskið.
Veggalmanakið sýnir, að það er
hinn seytjándi i dag. Mjólkurselj-
an kemur með reikninginn fyrir
siðasta mánuð. Hún krefst skuld-
arinnar með frekju. Maðurinn
horfir örvæntingarfullur á þá fáu
smáskildinga, sem hann hefir
slætt upp úr vestisvasanum.
Veggalmanakinu er flett. Seytj-
ándi, átjándi, nitjándi — alla leið
aftur að þritugasta og fyrsta.
Ö, hvað litla frúin verður nú
yndisleg allt i einu. Svo bliðleg og
kvenleg vera er ekki á hverju
strái. Hún strýkur hendinni yfir
hárið á honum. Hún talar til hans
huggunarorðum. Hún réttir hon-
um, með tárin i augunum, hinar
nýmáluðu varir sinar.
Fyrst virðist sem vesalings
maðurinn ætli að láta huggast.
Hann á vist ekki slikri bliðu að
venjast daglega, svo að hann vef-
ur frúna örmum. Auglýsingin i
blaðinu birtist i framsýn,
Almanakið lika. Fjórtán dagarn-
ir, sem eftir eru til mánaðamota,
liða framhjá með hraða, — það er
að segja á pappirnum. Barnið sit-
ur i stól og leikur sér að bangsan-
um. Konan situr á hné mannsins
og þrýstir sér upp að höfði hans,
eins og hún ætlaði að kæfa hann
með ástaratlotum sinum.------
Nýtt sjónarsvið. Fyrst er allt i
niðamyrkri. Siðan koma aðal-
drættirnir i ljós. Aðalfjárhirzlan i
Lárétt
1) Aman,- 5) Dýr,- 7) öfug
röð,- 9) Fljótur,- ll)Væl,-
13) Keyra,- 14) Stétt,- 16)
öfug röð.- 17) Leiðtogi,- 19)
Fimt.-
Lóðrétt
1) Verkfæris,- 2) öfug röð.- 3)
Ungs.- 4) Dýr.- 6) Heilsugóð.-
8) Andstutt,- 10) Götu.- 12)
Máttlaus,- 15) Veiðarfæri,-
18)Si,ttj hvoru megin við T,-
Ráðning á gátu no. 1499
Lárétt
1) Sekkur,- 5) Lár.- 7) Et,- 9)
TTTT - 11) Rót,- 13) Aur,- 14)
Klóa,- 16) Ná,- 17) Fróni,- 19)
Lummur.-
nýtizku stórbanka kemur í ljós.
Borð á bak við sterkt virnet og á
borðinu liggja stórar hrúgur af
bankaseðlum. Böggull á böggul
ofan. Netið er dregið frá til hálfs.
nginn maður er sýnilegur. Aðeins
peningarnir, stórir hlaðar af
hundrað og fimmhundruð marka
seðlum og langir sivalningar af
silfurpeningum. Fremst á af-
greiðsluborðinu er breitt úr spá-
nýjum hundrað marka seðlum,
svo að það er eins og þeir myndi
biævæng.
„Peningar”! segir Jachmann.
„Ekkert vill fólk sjá fremur en
peninga”.
Nú verður myrkur aftur. Það
helzt lengi, og áhorfendur heyrast
draga andann djúpt og órólega.
Pússer heyrir að Pinneberg styn-
ur þungan, og hann heyrir hana
anda ótt og titt. Báðum finnst þau
vera komin langt, langt i burt frá
TIL SÖLU!
'/iiMtitÍ
Drengjafataverzlun
og
sængurfatagerð.
Hefur starfað i 30 ár.
Húsnæði fylgir.
Sanngjörn leiga.
Hjálmtýr Pétursson,
simi 38793.
Lóðrétt
1) Sterka,- 2) Kl.- 3) Kát,- 4)
Urta,- 6) Stráir,- 8) Tól.- 10)
Tunnu.- 12) Tófu,- 15) Arm.-
18) Óm,-
m
[Jæja Villi, svo þ
Est til Mars
að vinna.'
I
Já, heldurðu að sveit
irnar geti notað hina
r.ir^VrtMn hapifilpilríi minfl?
Ég veit ekki, hvers ^Alltsem ég' i
vegna þú átt að vinna ^veit, er að við \
r eigúm áð vera á
með mér Villi.
Mig heiur venð aö V Heldurðu að það\
dreyma umgömlu Mars geti staðiö í
búana að þeir lifni víö. sambandi við
starf okkar?
!Í:ll !
FÖSTUDAGUR
14. september
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7,30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigurður Gunnarsson
heldur áfram að lesa „Sög-
una af Tóta” eftir Berit
Brænne (3). Tilkynningar
ki. 9.30. Létt lög á milli liða.
Morgunpopp kl. 10.25:
Daliah Lavi syngur. Fréttir
kl. 11.00. Tónlist eftir David
Monrad-Johansen: Per öi-
en og Hindarkvartettinn
leika Kvintettfyrir flautu og
strengi. — Uno Ebrelius
syngur lagaflokkinn
„Norðurlandstrómet”. —
Filharmóniusveitin i ósló
leikur Sinfóniska fantasiu.
— Norski einsöngvarakór-
inn syngur „Á grafar-
bakkanum”.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Með sinu lagi. Svavar
Gests kynnir lög af hljóm-
plötum.
14.30 Siödegissagan: „Sumar-
friiö” eftir Cesar Mar
Valdimar Lárusson les (10).
15.00 Miödegistónleikar:
Walter Gieseking og hljóm-
sveitin Philharmonia I
Lundúnum leika Pianókon-
sert I A-dúr (K488) eftir
Mozart; Herbert von Karaj-
an stj. Pilar Lorengar syng-
ur ariur úr óperum eftir
Puccini.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Popphornið.
17.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill.
19.35 Spurt og svaraö.Guðrún
Guðlaugsdóttir leitar svara
við spurningum hlustenda.
20.00 Sinfóniskir tónleikar a.
Sinfónia nr. 101 i D-dúr eftir
Joseph Haydn. Hljómsveit-
in Philharmonia leikur; Otto
Klemperer stj. b. „Dauði og
ummyndun”, tónaljóð eftir
Richard Strauss. Sinfóniu-
hljómsveitin i Cleveland-
leikur; Georg Szell stj. Guð-
mundur Gilsson kynnir.
21.00 Vilhjálmur frá Skáholti
Umsjónarmaður: Vilmund-
ur Gylfason.
21.30 Otvarpssagan: „Fulltrú-
inn, sem hvarf” eftir Hans
Scherfig. Þýðandinn, Silja
Aðalsteinsdóttir les (3).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Eyjapistill
22.35 Draumvisur. Sveinn
Magnússon og Sveinn Arna-
son sjá um þáttinn.
23.35 Fréttir i stuttu máli.
MlBlilll
FÖSTUDAGUR
14. september
20.00 Fréttir
20.25 Veöur og auglýsingar
20.30 Fóstbræður Breskur
sakamála- og gaman-
myndaflokkur. Leyni-
skyttan. Þýðandi Óskar
Ingimarsson.
21.20 Aö utan Þáttur meö
eriendum fréttamyndum.
Umsjónarmaöur Jón Hákon
Magnússon.
22.00 Músik og myndir.
Bandariskur skemmti-
þáttur með popptónlist.
Kvikmyndafyrirtækið CBS
hefur gert allmarga þætti af
þessu tagi og verða væntan-
lega fleiri af þeim sýndir
hér á næstunni. 1 hverjum
þætti kemur fram frægur
tónlistarmaður, söng-
flokkur eða hljómsveit, og
að þessu sinni er það jass--
söngvarinn B.B. King.
22.30 Dagskrárlok