Tíminn - 11.10.1973, Qupperneq 7
Fimmtudagur 11. október 1973.
TÍMINN
7
Opið bréf til
sauðfjársjúk-
dómanefndar
Laugardaginn 22. septem-
ber s.l. vorum viö undirritaöir
I annarri leit á afrétti Borg-
hreppinga. Fórum viö þá meö
giröingu þeirri, sem oftast er
kölluð mæöiveikisgirðing,
milli Dalahólfs og Mýrahólfs.
Okkur leizt þannig á, aö varla
væri hægt að kalla þetta
varnargirðingu. Við tókum þvi
þá ákvörðun aö leggja
giröinguna niöur á tveimur
stööum vestan viö Viðimúla,
þannig að féð, sem kemur að
vestan, komist suður fyrir en
veröi ekki hungurmorða við
giröinguna. Munum við halda
þessu áfram i haust og fram-
vegis, ef þeim skripaleik, að
hafa girðinguna ekki sauð-
helda og skera fé sem fer yfir
I hundraða tali á hver ju sumri,
verður ekki hætt.
Benda ma. á það, að 19. októ-
ber 1972 leit giröingin þannig
út upp af Vifilsdalsdröngum,
að á einum stað lá hún á hlið-
inni, á öðrum voru u.þ.b. 50 sm
upp að neösta streng, og á
þeim þriðja var hún svo lág,
að 50 sm snjór huldi efsta
strenginn. Þarna var nóg af
girðingarefni, bæöi vir og
timbri, bara ekki hugsað um
að nota það.
A a.m.k. þremur stöðum i
Viðimúla var bætt i renglum,
u. .þ.b. ein tomma á kant. 1
stað þess að reka þær niður,
voru þær látnar standa á jörð-
inni, og fjórir strengir negldir
I rengluna, en tveir lágu I
jörð. Stóð renglan þvi 1-2 fet
upp fyrir girðinguna.
Að þessu athuguöu gerum
við þá kröfu til sauðfjársjúk-
dómanefndar, að hún, i fyrsta
lagi, láti gera girðinguna
sauðhelda. Þaö teljum við
hægt, ef vilji er fyrir hendi. 1
öðru lagi, að hætt veröi aö
skera niður það fé, sem fer
gegnum þetta girðingartjasl.
Verði hvorugt af þessu gert,
munum við halda áfram meö
jafnvel róttækari aðgeröir.
Viö undirritaðir höfum farið
vestur i Dali og sótt þangað fé,
sem átti að skera. Getum gert
það aftur, ef þörf er á. Okkur
undrar það ekki, þótt Dala-
menn vilji losna við ágang af
fé hér sunnan yfir. Hitt furöar
okkur, að sauðfjársjúk-
dómanefnd skuli telja, að það
sé nóg að setja upp slika ó-
myndargirðingu, og að hún
helgi henni einhvern rétt til að
skera það fé, sem fer yfir
hana.
Nú er loksins búið að færa
girðinguna úr Viðimúla-
brekkum upp á Viðimúla. Er
það rétt, aö hún sé ekki sauö-
held?
Fari svo, að við veröum
sóttir til saka fyrir að reyna
að bjarga fé okkar frá hungur-
dauða eða hnifi sauðfjársjúk-
dómanefndar, þá erum viö til-
búnir að mæta, hvar sem er og
hvenær sem er, og svara þar
fullum hálsi.
Mætti þá kannski spyrja,
hvað á að gera við vira-
draslið, sem liggur hingaö og
þangaö um Viðimúlabrekkur.
Og einnig, hverjir stjórna þar,
t.d. sauöfjársjúkadómanefnd,
eða aðrir, o.m. fl.
Einar Jóhannesson
Jarðlangsstöðum.
Skúli ögmundur Kristjónsson
Svignaskarði.
Dual Dual Dual Dual Dual Dual Dual
HS. 39
12 wött.
Stereo og 4 rása.
Yerð kr. 32.600.-
með tveim hátölurum
HS. 43
30 wött.
Stereo og 4 rása.
Verð kr. 49.000. -
með tveim hátölurum
HS. 53
60 wött.
Stereo og 4 rása.
Verð kr. 63.000. -
með tveim hátölurum
Nóatúni sími 23800
Klapparstíg sími 19800
Akureyri sími 21630
ISLENSK
Finna þeir vðar fyrirtæki þar?
FRJÁLST FRAMTAKHF UUGAVEG1178 SÍMI 82300