Tíminn - 11.10.1973, Blaðsíða 26

Tíminn - 11.10.1973, Blaðsíða 26
TÍMINN 26 Fimmtudagur 11. október 1973. I ALÞJOÐAKEPPNI EFTIR 2 AR VÍKINGS-LIÐIÐ FRAMBÆRILEGT — segir Sigurður Jónsson, formaður Handknattieiksdeildar Víkings. Telur, handknattleiksmenn eyði allt að 22 — Það getur allt eins orðið, en það er samt ekki endilega markmiðið að verða tslands- meistari á þessu keppnistíma- bili. Okkur skortir ekki mann- skap, við eigum úrval góöra leikmanna, bæði eldri og yngri, og auk þess hefur bætzt frábær markvörður i hópinn. Að minu mati tekur það meira en eitt ár að stilla þessa strengi svo vel, að topp- árangur náist. En að tveimur árum liðnum, svo fremi að ekkert óvænt komi fyrir, á þetta Vikings-lið ekki einugis aö vera á toppinum i islenzk- um handknattleik heldur einn- ig mjög frambærilegt i al- þjóðakeppni. — Nú hefur ýmsum þótt ganga illa hjá ykkur i byrjun, Sigurður. Hvað hefur þú að segja um það? — Já, þetta hefur ekki geng- ið nógu vel i Reykjavikurmót- inu, en fyrir þvi eru ýmsar ástæður, og þá kannski fyrst og fremst sú, að liðið hefur ekki náð að æfa saman nema i örfá skipti. tþróttahúsið i Réttarholtsskóla var lokað um hálfsmánaðartima vegna við- gerða, og einnig hafa lands- liðsæfingar skemmt fyrir okk- ur. Jón Sigurðsson, einn af hinum efniiegu leikmönnum Vikings. vinnuvikum til handknattleiksiðkana Islandsmótið i handknattleik hefst innan fárra vikna. Getgátur eru um það, hvaða lið muni bera sigur úr býtum, og sýnist sitt hverjum, eins og gengur. Merkileg þáttaskil urðu i siðasta íslands- móti, þegar áratugs einveldi FH og Fram var brotið á bak aftur með sigri Vals. Nú er spurt, var það aðeins lognið á undan storminum? Er við þvi að búast, að fleiri feti i fótspor Vals. Og þá er það helzt Vik- ingur, sem er undir smásjá. Flestir, sem fylgjast með Is- lenzkum handknattleik, eru sammála um, að Vlkingur hafi öll skilyrði til að ná topp- árangri, m.ö.o. að hljóta Is- landsmeistaratitil. Hvort tveggja er, að Vikingur hefur glæsilegan efnivið og við þjálf- un liðsins hefur tekið reynd- asti og bezti þjálfari islenzks handknattleiks, Karl Bene- diktsson. í þriðja lagi mætti svo nefna það, sem er kannski ekki þýðingarminnst, aö for- maöur Handknattleiksdeildar Vikings er Sigurður Jónsson, fyrrum landsliðseinvaldur, sem er hugmyndarikur og djarfur framkvæmdamaður. iþróttasiðan spurði Sigurð að þvi, hvort hann byggist við þvi, að Víkingur yrði islands- meistari 1973-74. Jón Hjaltalfn Magnússon, reyndasti leikmaður Vikings. — Nú ert þú i þeirri aðstöðu að koma féiagsliði áfram i stað landsliðs. Frá hvaða sjónarhóli líturðu á samskipti, eða öllu heldur samvinnu, félagsliða og landsliðs nú? — Ég hef alla tið verið þeirr- ar skoðunar, að góð samvinna geti rikt milli félaganna og landsliðsins af þeirri einföldu ástæöu, að báðir aðilar eiga að geta hagnazt á henni, ef rétt er á spilunum haldið. Spurningin er sú að finna heppilegar leiðir til aö geta gert þeim leik- mönnum, sem valdir eru til landsliðsæfinga, kleift að æfa einnig hjá félaginu. Æfingaað- ferðir breytast i sifellu. Ég hygg, að skynsamlegast muni vera, að landsliðið noti sumar- timann sem bezt til æfinga og þátttöku i alþjóðlegum mót- um, sem viða fara fram I formi æfingamóta. Meö þessu móti þurfa leikmennirnir ekki svo mikla æfingu af hálfu landsliðs yfir vetrarmánuð- ina, þegar félögin þurfa mest á þeim aö halda. Eins mætti hugsa sér það, að ef einstaka landsliðsmenn þyrftu sér- æfingu að mati landsliðsþjálf- ara, þá tækist samvinna milli hans og félagsþjálfarans um það, að tiltekin atriði yrðu æfð sérstaklega hjá félaginu. A þetta atriði vil ég leggja sér- staka áherzlu, þvi að ég tel, aö með betra skipulagi á Sigurður Jónsson. þjálfunarmálum megi ná miklu betri árangri, án þess að leikmenn séu keyrðir út með allt of mörgum æfingum hjá tveimur aðilum. — Nú er það ljóst, Sigurður, að leikmenn, sem eru i lands- liði, auk þess, sem þeir taka þátt í keppni með eigin félags- liðum, eyða miklum tima i æfingar og keppni. Er verið að ofbjóða þeim með núverandi fyrirkomulagi? — Miðað við, að hér er um áhugamenn að ræða, segi ég hiklaust já, og það er einmitt þess vegna, sem ég vil hvetja til skipulegri vinnubragða. Ég vil i þessu sambandi geta þess, að ég hef reiknað það út, að leikmaður, sem er i lands- liði og keppir fyrir félag sitt, eyöir ekki færri en 22 vinnu- vikum á ári I handknattleik. Er þá allt meðtalið að sjálf- sögðu, æfingatimar, keppni I mótum innanlands, svo og keppnisferðir erlendis, og sá timi, sem fer i ferðalög og undirbúning undir keppni. — Þetta er ekki svo lltill timi. Er ekki fyllsta ástæða til að greiða ieikmönnum vinnu- tap? — Það stendur fyrir dyrum hjá HSl að greiða landsliðs- mönnum vinnutap nokkuð rif- legar en áður, þó að sú upphæð sé engan vegin nægjanleg. En varöandi Viking vil ég geta þess, að við höfum tekið upp þá stefnu að greiða öllum okk- ar leikmönnum, sem þátt taka I landsleikjum, hvort sem það eru landsleikir meö a-landsliði eða unglingalandsliöi, 5 þús. króna ferðastyrk, ef keppt er erlendis. — En nú hlýtur að vera erfitt fyrir fjárvana félög að inna slikar greiðslur af hendi? — Já, þvi er ekki að neita, en félögin verða að sýna áræðni og kjark i fjármálum. Min skoöun er sú, að þau eigi að reka eins og fyrirtæki. Þau þurfa að gera áætlun til eins eða fleiri ára i senn, og mega ekki einvörðungu treysta á framlög opinberra aðila. Helzt þyrftu félögin að eiga eignir, sem skiluðu það miklum arði, að hann stæði undir rekstri þeirra. — Svo við vikjum að hand- knattleiksliði Vlkings aftur, Sigurður, er ykkar vandi kannski aðaiiega fólginn i þvi, að þiö eruð með of marga góða leikmenn, sem allir ætia að framkvæma meira en eitt lið þolir? — Það er nokkuö til i þessu. Þegar ég tala um, að þetta lið verði fullmótað á tveimur ár- um er það vegna þess, að við þurfum að innleiða leikaðferð- ir, sem tekur lengri tima en svo að ná tökum á, að það ger- ist á einu ári. Leikaðferðirnar gera það að verkum, að hver leikmaður hefur sinu hlut- verki að gegna, og það kemur I veg fyrir að leikmenn hafi al- gerlega fritt spil, þó að ég sé nú ekki það róttækur i skoðun, að ég viðurkenni ekki, að ein- staklingsframtakiö geti stund- um reynzt býsna vel. — Viltu að lokum, Sigurður, spá um úrslit islandsmótsins? — Nei, ég held ég láti það ógert. En þó að ég búist ekki viö Vikingssigri á þessu keppnistimabili, er það trú min, aö liðið verði það sterkt, að ekkert annað lið geti gengið til leiks við okkur öruggt um sigur fyrirfram. — alf.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.