Tíminn - 11.10.1973, Síða 11

Tíminn - 11.10.1973, Síða 11
Fimmtudagur 11. oktdber 1973. TÍMIÍVN Í1 Þar er og bæjarhóllinn. Viö kál- garðshorn er hesthús og við það hestarétt. Milli eldhúss og skemmu er bæjarsundið. Vindhani er á stafni og baðstofu og skjól á eldhússtrompi. Það er sumar i sveit. Gestur er nýriöinn i hlaö og hefur bundið hest sinn við hestasteininn. Húsbændur ganga til móts við hann. A hlaðinu er heimahundur og hundur komumanns, en köttur læðist út úr bæjargöngum á eftir húsmóðurinni. Tveir litlir strákar eru á gægjum fyrir bæjarhornið. ! 3 : - v Við heygarðinn stendur einn af heimamönnum og biöur eftir hey- lestinni. I túni er sýnd beöslétta, en fjærst i túnfæti er grjótvarða, leiðarvisir við heiöarveg. Þar sem likanið ber hæst er álfaborg. Sýnd er álfakona, skrautlega búin, sem gengið hefur út úr berginu og mælir fram heillaorð yfir bæinn með útréttum örmum. — Hvaða efni er i þessu likani? — Það er gert úr trétexi og eld- spýtnastokkum að mestu leyti. Eg bjó það til i aprilmánuði 1960 og gaf það byggöasafninu. Allt varð að vera eins — Nú hefur þú ekki aðeins gert þetta mikla likan af sveitabæ. Er það ekki rétt, aö þú hafir líka teiknað sveitabæi? — Jú. Ég vissi, aö ekki voru til neinar ljósmyndir af gömlu torf- bæjunum hérna, hvorki þeim, sem staðiö höfðu hér niðri á Skipasakaga né bæjunum i sveit- unum hér sunnan heiðar. Mér datt i hug, að gaman væri aö draga þá upp, þessa gömlu bæi, svo að ég fór til fólks, sem i þeim hafði búið, og bað það lýsá . þeim fyrir mér eins vel og hægt væri. Fólk tók þessu yfirleitt mjög vel, og þarna sat ég hjá þvi með blýantinn minn og blokkina og rissaöi. Siðan fór ég heim, full- gerði myndina og fór svo aftur til fólksins, sýndi þvi myndirnar og spurði, hvort þetta væri eitthvað likt því sem vera ætti. Ef eitthvað var að, spurði ég alltaf hvað þaö væri, hverju væri of eða van I myndinni. Og með þvi að fara aftur og aftur, hverja ferðina á fætur annarri til sama fólksins, gat ég loks fengið þá mynd af bæjunum, sem fyrrverandi ibúar þeirra geymdu i minni sinu. Þegar fólki fannst það komið heim til sin við að horfa á mynd- ina, fann ég, að ekki stóð i minu valdi að gera betur. Þá taldi ég mig búinn að fullgera myndina. Hitt er svo annað mál, að þess- ar myndir minar eru alls ekki nein listaverk. Þetta er aðeins til þess gert að varðveita ytra útlit þessara gömlu bæja. Ég hafði það sannarlega ekki á tilfinningunni aö ég væri að hengja upp lista- verk, þegar ég var að koma þeim fyrir á byggðasafninu. — Var gamla fólkið nákvæmt og kröfuhart um útlit bæjanna? — Sumir höfðu alveg frábært minni, þótt langt væri um liöið, siðan það átti heima i gömlu bæj- unum. Það var ekki tiltökumál, þótt mér liðist ekki aö láta vanta litinn glugga á þekju eða á stafn. Nei, það mátti engu muna. Vegg- irnir urðu að hafa nákvæmlega réttan halla, þeir máttu hvorki risa of mikið né of litið. Liku máli gegndi um flest annað. — Hvaö voru þetta margir bæir, sem þú teiknaðir? — Þeir eru eitthvaö rétt um áttatiu. En þess ber að geta, að ég náði ekki alveg öllum þeim bæjum, em til höföu verið. Það uröu nokkrir bæir útundan, þar sem enginn var til frásagnar og ekki við neitt að styðjast. Það var jafnvel búið að slétta svo ræki- lega yfir bæjartóftirnar, að óger- legt var að geta sér til um fjölda vistarveranna á bænum, hvað þá heldur lögun þeirra. — Hversu mörg voru þessi býli, sem þú náðir ekki til? — Það munu vera fimm býli sem sluppu alveg. Likan af verstöð. — Þú hefur ekki eingöngu haldið þig við landbúnaðinn. Er ekki þetta likan af verstöö? — Jú, rétt er það. Mér fannst vel fara á þvi, að hinum megin i húsinu, beint á móti sveitabæn- um, væri eitthvaö sem minnti á sjóinn. Segja má, að þetta likan sé aö verulegu leyti af gamalli vör, sem er hér ennþá, og heitir Framhald á 35. siðu. Vefstóll og rokkar — helztu tóskaparáhöldin, allt fram á okkar daga. Lfkanið, sem Runólfur ólafsson gerði af Kútter Haraldi. Smiðin er fögur, enda skipið frægt, eins og þeir vita, sem einhvern tlma hafa raulað „Kátir voru karlar....” fyrir munni sér. Gamla timburkirkjan I Görðum. Lfkan, gert af séra Jóni M. Guöjóns syni. þeirra og ömmur, langafar og' langömmur, voru lifs. Það sýnir sveitabæ eins og þeir tiðkuðust á þeirri tið. Bæjarhúsin eru, talið frávinstri: Baðstofa, bæjargöng, búr og eldhús (hlóðaeldhús), skemma, hjallur, smiðja. Inn af bæjargöngunum er eldiviðar- geymsla, að baki smiðju er fjós og við dyr þess er haugstæði. Að húsabaki er kamar og skánar - eða móhlaði. Aftur af fjósi er hey- garður með tyrfðu heyi, þaö er aö segja frágengnu undir vetur, og einnig eru þar önnur hey, nýhirt og nýuppgerð. Fjær er lambhús og kviar og karlmaöur við slátt á teig og kvenmaður sem breiðir á eftir honum. Heylest er á leið heim að bænum, drengur situr ofan i milli á eiúum hestinum. Fyrir framan traðir er brunnhús. Koffortið gamla, sem tengt er hryllilegu sjóslysi, sem varö á fyrstu ár- um þessarar aldar. A veggnum eru myndir af systkinunum, sem fór ust. Séð inn i baöstofu, rúmin I röð undir súð. Hér var sofiö og hvllzt vakaö og elskaö. Og dreymt, — misjafnalega vel, eins og gengur, þvl að mannkindin breytist ekki svo ýkjamikið, þó að aldir renni. Þetta er Ilkaniö, sem séra Jón gerði af fslenskri vör. Veriö er að leggja frá landi, morgunn yfir vlkinni.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.