Tíminn - 11.10.1973, Síða 36

Tíminn - 11.10.1973, Síða 36
 fyrir góúan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Agnew sagði af sér —vegna hagsmuna ríkisins NTB-Washington — Spiro Agnew, varafor- seti Bandarikjanna sagði af sér embætti i gær, að þvi er tilkynnt var í Washington i gær- kvöldi. Agnew hefur verið ásakaöur um mútuþægni meðan hann var rikisstjóri i Maryland og dómstóll rannsakar nú málið nánar. Akæran er þess efnis, að Agnew hafi þegið fé af framkvæmda- mönnum og þannig tryggt þeim stóra samninga. Varaforsetinn hefur marg- sinnis haldið þvi fram, að hann sé saklaus, og lýst þvi yfir, að hann myndi ekki segja af sér. í gær birtist hann siðan öllum að óvörum i réttarsal rikisdóm- stólsins i Baltimore og lýsti þvi yfir, að hann segði af sér vara- forsetaembættinu. Astæðuna sagði hann þá, að málið gegn hon- um, sem tekið gæti mörg ár, gæti skaöað hagsmuni rikisins, og það vildi hann koma i veg fyrir með að segja af sér. Egyptar hafa betur á Sínaí - ísraelar í lofti NTB-Tel Aviv, Beirut, Damaskus — i ísraels- menn gerðu viða loftárásir i gær, m.a. á þrjár hafnarborgir i N- Sýrlandi og flugvöllinn i Damaskus. í Golanhæð- um segjast þeir hafa hrakið Sýrlendinga inn fyrir landamæralinuna siðan 1967, og nú sé bar- izt á sýrlenzku lands- svæði. í Sinai-eyðimörk- inni virðist Egyptum ganga vel og ef dæma má eftir fréttum þeirra þaðan, hafai ísraels- menn beðið þar mikið tjón á mönnum og her- gögnum. Irakska stjórnin tilkynnti i gær, aö hún hefði sent flugvélar til Egypta og hermenn til Sýr- lendinga. Jafnframt var sagt i gær, aö irakskar flugvélar hefðu gert 80 árásir á israelskar stöðvar við Golan-hæðir og tiu i Sinai. Sýrlendingar sögðust i gær hafa skotið niður 43 israelskar fugvélar til viðbótar og þá væru þær alls orðnar 144. Israelskar flugvélar réðust i gær á þrjár borgir i Norður-Sýrlandi og eru hundruð óbreyttra borgara sagðir hafa fallið i árásunum. Bærinn Homs er um 160 km frá Damaskus og þar eyðilagðist oliuhreinsunarstöð og orkuver. Sprengjur féllu einnig á ibúða- hverfi og létu hundruöir kvenna og barna þar lifið að sögn áýr- lenzka talsmannsins. Þá reðust Israelsmenn á bæina Tartuos og Latakia, en Sýrlendingar hafa ekki gefið upp neinar tölur um tap þar. I tilkynningum frá sýrlenzkum yfirvöldum segir, að reynt hafi verið tvisvar að ráðast á Damaskus, en vélarnar hraktar Framhald á bls. 28. Nær vikulega koma skip frá Bandarikjunum með nýja eða notaða bila. Ef einhver töf verður á skipa- ferðum hrúgast bílarnir upp á hafnarbakkanum I Norfolk. (Timamynd GE) Bílainnflutningurinn frd Bandaríkjunum: Bílarnir hrúgast upp og bíða ísl. skipa Klp-Rcykjavik. Eins og áður hef- ur komið fram i fréttum hefur innflutningur á bilum frá Banda- rikjunum aukizt all verulega á undanförnum mánuðum. Ástæðan er gengishækkanirnar að undanförnu, en eftir þær er talið mun hagkvæmara að kaupa bíla frá Bandarlkjunum en öðr- um löndum. Þarna er bæði um nýja og notaða bila að ræða. Fjöldi manns hefur farið til Banda- rikjanna að undanförnu, nær ein- göngu til þess að kaupa sér ný- lega bila, sem þeir siðan senda heim með skipum Eimskipa- félags tslands. Eimskip hefur varla haft undan i þessum flutningum, og hafa bilar komið með öllum skip- um, sem sigla til Bandarikjanna. Fyrir um það bil mánuði stóð þannig á ferðum, að ekkert skip kom til Norfolk frá Islandi i nokkra daga. Þá hrúguðust upp bilar á hafnarbakkanum, og þegar næsta skip kom, voru þeir orðnir langt yfir 100. Þetta voru bæði notaðir og nýir bilar, og voru þeir allir sendir með þessu skipi. Sem stendur biða engir bilar eftir flutningi til Islands, enda eru nú vikulegar ferðir á milli. Þeir bilar, sem nú eru aðallega fluttir til landsins, eru notaðir bilar, þvi innflutningsfyrirtækin halda að sér höndum þessa stundina og biða eftir nýju gerðunum. Varalið Jórdaníu kvatt til vopna NTB-Amman — Varnarráð Jórdaniu lýsti þvi yfir i gær, að allt varalið landsins hefði verið kvatt til vopna. Skipunin kom frá Hussain konungi. Ekki var ljóst af yfir- lýsingunni hvort Jórdania hygðist hefja bardaga við ísrael á þriðju vig- stöðvunuin. Hussain konungur hefur haft herlið sitt viðbúið síðan striðið brautzt út á laugar- daginn, en til þessa hefur Jórdania ekki blandað sér i bardagana, þó að þvi sé haldið fram, að þar hafi verið skotnar niður tvær israelskar flugvélar, sem rufu lofthelgi landsins. Her Jórdaniu er vel búinn og hefur um 70 þúsund manns undir vopnum. Bæði i sex daga striðinu og i striðinu 1948-1949 urðu hörð átök milli Jórdaniu og Israels. Jórdania missti þó vesturbakka Jórdanárinnar ’67 og Hussain lýsti þvi yfir að hann muni ekki fara út i nýja styrjöld, nema vera viss um að .endurheimta það svæði. Nú siðustu dagana hef- ur verið lagt hart að Hussain, að fara að berjast með Aröbum. Kaddafi, leiðtogi Lýbiu hefur kallað Hussain skræfu, fyrst hann sé ekki með og libansk blað, sem er málpipa Palestinuaraba, sagði i gær, að nú hefði Hussain tækifæri til að taka þátt i sigursælu strlði. Israel hefur sent Libanon aðvörun um að blanda sér ekki i stríðið og tryggja að palestinuskæruliðar láti ekki til skarar skriða frá libönsku landssvæði. Aðvörunin var send eftir að skæruliðar höfðu skotið að minnsta kosti 50 eld- flaugum á israelska landa- mæraverði. Vopn um loftbrú frá Sovétríkjunum NTB-Washington — Eftir öllu að dæma munu Sovétrikin flýta af- hendingu hergagna til Sýrlands og Egyptalands, að þviopinberar heimildir I Washington sögðu i gær. Ekki er Ijóst hvers konar húsgögn hér er um að ræða, en flogið ei með þau um loftbrú frá Sovétrikjunum til viökomandi landa. 1 Bandarikjunum er gjörla fylgst með flutningum og þykir ekkert benda til, að þeir fari einnig fram á sjó, en sagt er, að sovézku flutningaflugvélarnar geti flutt mjög stóra og þunga hluti. Ekki er vitað hvort Sovét- menn senda nú Egyptum eld- flaugar þær, sem skotið er frá jörðu á skotmark i lofti, en þær munu eiga drjúgan þátt i hversu vel Egyptum hefur gengið i átökunum nú. Bandarísk og sovésk herskip af stað NTB-Istanbul og Washington — Bandaríska flugmóöurskipið Frankl. D. Roosewelt er farið frá Barcelona og á leið til austur- hluta Miðjarðarhafs, að þvi talið er. Skipið mun væntanlega fara á svipaðar slóðir og flugmóður- skipið Independence, sem er i grennd við Krit. Heimildir i bandariska varnarmálaráðu- neytinu segja, að skipin eigi að vera þarna viðbúin þvi að flytja þurfi á brott 90 þúsund banda- riska borgara, sem eru I Mið- Austurlöndum. Þrjú sovézk herskip fóru i gær gegn um Bosporus út i Miðjarðarhaf, að þvi tyrkneskar heimildir upplýsa. Eru þetta fyrstu sovézku herskipin, sem fara um sundið, siðan átökin hófust um helgina. Samkvæmt Lausanne-samningnum verða lönd, sem liggja að Svartahafhað láta tyrknesku stjórnina vita með minnst átta daga fyrirvara, áður en þær senda herskip gegn um tyrknesku sundin. Sovetrfkin hafa hins vegar standandi slika til- kynningu hjá tyrkneskum yfir- völdum. Herskipin, sem fóru gegn um sundið i gær, eru búin eldflaugum, sem skjóta má bæði i yfirborði sjávar og lofti. óskast Aragötu, Bergstaðastræti, Starhaga, Reynimel, Laugarásveg, Vesturbrún, Laugateig, Akurgerði, Austurbrún, Unnarbraut, Lindarbraut, Seltjarnarnes. Upplýsingar i sima 12323.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.