Tíminn - 30.11.1973, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 30. nóvember 1973.
Illllllíllll
PEGI
I
■
fx
haú.
Tvíburavandamál
Austur- og vestur-þýzk stjórn-
völd reyna nú aö finna lausn á
miklu vndamáli. Upphaf erfið-
leikanna var það, að tvibura-
systur, sin hvorum megin viö
landamærin, ákváðu að skipta
um hlutverk i sumarleyfinu.
Þetta gekk allt samkvæmt'
áætlun, og þær systur, sem báð-
ar eru giftar, voru svo ánægðar
með skiptin, að þær ákváðu að
skipta um hlutverk til frambúð-
ar. Þær voru nefnilega báðar
orðnar bálskotnar i eiginmönn-
um sinum, þ.e.a.s. hvor i ann-
arrar eiginmanni.
Næst gerðist það, aö sú systir-
in, sem upphaflega hafði búið i
Vestur-Þýzkalandi, fékk bréf
frá ættingjum vestra. Þar sagði,
að ástandið á fyrrverandi
heimili hennar væri ekki sem
bezt, systir hennar hugsaði lil
dæmis litið sem ekkert um
börnin.
Nú voru góð ráð dýr. Hún var
þegar búin að afsala sér vestur-
þýzka vegabréfinu og bókstaf-
lega skipta um nafn og persónu.
Hún var ekki lengur hún sjálf!
Samkvæmt upplýsingum vest-
ur-þýzka utanrikisráðuneytisins
hefur vesalings konan, sem nú
sér sárlega eftir öllu, sent
vestur-þýzkum yfirvöldum
hjálparbeiðni, en þau segjast
ekkert geta gert vegna banns
austur-þýzku stjórnarinnar við
þvi að flytjast ylir um.
Austur-þýzk yfirvöld segjast
einungis geta gef ið henni
flutningsleyfi með þvi skilyrði,
að hin systirin komi aítur sjálf-
viljug til sinna fyrri heimkynna
og allt verði eins og áður. En
þar stendur hnifurinn i kúnni.
Hún er svo ánægð i Vestur-
þýzkalandi, að hún harðneitar
að flytja. ()g við það situr enn.
Hún hefur lítið
breytzt með
aldrinum
Lauren Bacall hefur alltaf þótt
aðlaðandi kona, enda þótt tæp-
ast sé hægt að segja að hún sé
falleg. Hún er háfætt og
beinhoruö, en samt er eitthvað,
sem fólk tekur eftir i fari henn-
ar, og það hefur það alltaf gert.
Lauren hefur komið fram sem
sýningarstúlka og auglýsinga-
manneskja fyrir tizkukónga i
Paris og viðar, og sumir segja
að hún gæti allt eins veriö kjörin
Ungfrú 1973, eins og hún varð
Ungfrú 1945. Laurent var gift
Humphrey Bogart i tólf ár, og
þau voru sögð einstaklega
hamingjusöm, en svo lézt þessi
frægi leikari úr krabbameini.
Siðar giftist hún Jacon Robards,
og með honum á hún einn son.
Þið sjáið þau saman með litla
soninn, Sam, hér á einni mynd-
inni. Svo er hér lika mynd af
Lauren með börnin sin þrjú.
Susan er dóttir hennar og
Humphrey,og sama er að segja
um unga piltinn, hann er sonur
hennar og Humphrey og heitir
Steve. Litli strákurinn er Sam,
sem nú er 11 ára gamall. Susan
likist móður sinni að mörgu
leyti, hún er leggjalöng eins og
móðirin og glæsileg útlits og
hefur lika komið fram sem
sýningarstúlka og vakið mikla
athygli sem slik. Að lokum er
svo mynd af Humphrey og
Lauren með soninn Steve. Sú
mynd er tekin nokkru áður en
leikarinn dó.
◄
Ríka frúin hans
Richards Burton
Richard Burton hefur sézt i
fylgd með konum, eins og eðli-
legt má teljast, eftir að hann
skildi við konu sina Elisabeth
Taylor. Auðvitað velur hann
konurnar ekki úr hópi neinna
fátæklinga, og hér sjáum við
hann með einni slikri, Monique
van Doren. Þau hafa mikið sézt
saman að undanförnu, þegar
Richard er ekki að vinna. t
vinnunni skemmtir hann sér
hvað mest við að tala við Sophiu
Ijoren. Þau hafa verið að leika
saman i kvikmynd, en vonandi
endurtekur ekki sama sagan sig
og þegar Richard og Liz hittust
fyrst við leik i kvikmyndinni
Cleopatra.
Ég held mamma þurfi á frii aö
halda. Hún hrekkur við, við allra
minnsta hávaða.
DENNI
DÆMALAUSI