Tíminn - 30.11.1973, Page 12
leiðinni, sem ungi meistarinn frá
Nazareth visaði, og hann hefði
áreiðanlega rekið upp stór augu,
ef hann hefði séð, til hvers nafn
hans var notað. Jesús var maður
upprunninn i fátækrahverfi og
hann dordæmdi jarðnesk gæði og
hélt sig i návist annarra fátækra.
Hann rak vixlarana og kaup-
mennina úr musterinu og sagði:
Það er auðveldara fyrir úlfaldann
að komast gegnum nálaraugað en
rikan mann inn i guðs riki.
Það voru aflátsbréf páfa, sem
gerðu mönnum kleift að kaupa
sér syndafyrirgefningu, sem
komu af stað uppreisn Martins
Lúthers gegn kirkjunni.
Greinilegur stuðningur við
hina kúguðu
Áhrif páfa á konunga og keis-
ara heyra nú sögunni til, en samt
er ekki hægt að tala um að póli-
tisk völd páfans og Vatikansins
séu ógreinileg. Það kemur i ijós
(neikvætt, finnst mörgum) i
áhrifum Vatikansins á þróunina á
italiu. Þetta kemur i ljós i vax-
andi mæli (og i þessu tilfelli
jákvætt) i þjóðfélags og pólitiskri
framfarastefnu varðandi þróun-
ina i kaþólskum löndum, eins og
Spáni, Portúgal (og nýlendum
Portúgals) og sérstaklega i
þróunarlöndunum. Það eru
kaþólskir (ekki mótmælendur)
prestar og biskupar, sem ganga
harðast fram i að verja mann-
réttindi og þá kúguðu i mörgum
þróunarlöndum, einkum i
Rómönsku-Ameriku.
Það sitja tugir kaþólskra presta
I fangelsi vegna meintrar
„undirróðursstarfsemi”. Þessir
framfarasinnuðu prestar og
biskupar njóta siðferðilegs og
pólitisks stuðnings Vatikansins.
Maður eins og brasiliski erki-
biskupinn Helder Camera hefur
orðið fyrir banatilræðum og prest
ur, sem var einkaritari hans, var
pyndaður til dauða, og tveir nán-
ustu samstarfsmenn hans sitja i
fangelsi hjá leynilögreglunni.
Þegar greinarhöfundur heimsótti
hann i Rio de Janeiro, stóðu tveir
leyniiögreglumenn fyrir utan
heimili hans og mynduöu þá, sem
komu i heimsókn með myndavél-
um, innpökkuðum i jólapappir.
Tveir seinustu páfarnir,
Jóhannes XXIII og Páll VI, hafa
með umburðarbréfum sinum —
nokkurs konar pólitiskum yfirlýs-
ingum — gert greinilega tilraun
til að skapa þolanlegri kjör fyrir
þær milljónir kúgaðra i heimin-
um. Rómversk-kaþólska kirkjan
er stærsta trúsamfélag heimsins,
og orð páfans hafa þýðingu ,,siö-
ferðilegt vald” i þeim löndum,
sem kalla sig kaþólsk.
(Sem sérstaklega afturhalds-
samt umburðarbréf má nefna,
Humanæ Vitæ Páls páfa, sem
bannaði notkun getnaðarvarna og
leysti úr læðingi mikla mótmæla-
öldu). Þegar páfinn gefur yfirlýs-
ingar um alþjóðamál, birtast for-
siðufréttir um það i dagblöðum
margra stórþjóða. Páfinn er
„embættismaður” og vald hans
jafnast á við völd eins af tiu
þekktustu stjo’rnmálaleiðtoga
heimsins.
Smáríki meö mikil
sumsvif
Vatikanið er eitt af minnstu
smárikjum veraldar. En það er
ekki óverulegt riki á borð við San
Marino, Monako eða Andorra.
Það eru fleiri sendiherrar frá
erlendum rikjum i Vatikaninu en
t.d. i Kaupmannahöfn. Vati-
kanska rikið i miðri Rómaborg
hefur sinn eigin her ( svissneska
lifvörðinn) og lögreglu, það hefur
brunaliö, heilbrigðisþjónustu,
póstþjónustu, ásamt utanrikis-
ráöuneyti, menntamálaráðuneyti
o.s.frv. Það hefur eigin útvarps-
stöð, sem sendir út á meira en
tuttugu tungumálum og eigin
dagblöð, sem koma út á sex
tungumálum, og hafa meðal
áskrifanda sinna Hvita húsið og
Kreml.
Skriffinnskuveldi Vatikansins
hefur stjórn að meira eða minna
leyti yfir 3000 biskupum, 450.000
prestum og munkumog einni
milljón nunna innan rómversk-
kaþólsku kirkjunnar. Corrado
Pallenberg hefur gert eftirfar-
andi „skýrslu”: Það eru 5
milljónir, sem vinna fyrir
kaþólsku kirkjuna (prestar,
munkar, nunnur, og aðrir starfs-
menn, svo sem kennarar, læknar,
og hjúkrunarkonur) meira en 20
milljónir drengja og stúlkna fá
kennslu i kaþólskum skólum, allt
frá leikskólum, (barnaheimilum)
til háskóla. 13 milljónir manna,
bæði barna og fullorðinna fá hjálp
frá kaþólskum velgerðastofnun-
um.
Hvaðan koma allir peningarnir,
sem eru nauðsynlegir fyrir þessa
griðarstóru stofnun?
Peningarnir frá Mussolini
koma enn til góöa
Undirstaðan undir auðæfum
Vatikansins eru þær hundruð
milljóna króna, sem Mussolini
gaf Vatikaninu, þegar hann gerði
samkomulag við það árið 1929.
Þessa peninga festi Vatikanið i
viðskiptum og fyrirtækjum.
Vatikanið keypti einnig jarð-
eignir. Margir ibúar fátækra-
hverfanna i Róm búa i ibúðum,
sem Vatikanið á. Mussolini veitti
Vatikaninu skattfrelsi, og það var
misnotað af rikum „vinum”
Vatikansins, þangað til fyrir
nokkrum árum siðan.
Vatikanið hefur sitt eigið
„fjármálaráðuneyti”, sem hefur
yfir sér leyndardómsblæ, sem ýt-
ir undir sögusagnir um hin gifur-
legu auðæfi Vatikansins. Er Vati-
kaniðnæstum eins auðugt og sjálf
Bandarikin? Af og frá. En Vati-
kanið á mikið af hlutbréfum i
stærstu fyrirtækjum Evrópu og
það á hagsmuna að gæta i mörg-
um auðhringjum.
Fjármálaráðherrar Vatikans-
ins eru eins vel að sér á sinu sviði
eins og leiknustu fjármálamenn i
Paris, London eða New York. En
hvað segir meistarinn frá Naza-
reth um allt þetta? Páll páfi er i
varnarstöðu: „Kirkjan kemur
fram eins og hún er, eins og hún
skóar og vera kirkja allra og
einkum kirkja hinna fátæku”.
Græöa peninga á P-pillunni
Fyrir skömmu sendi páfinn
yfirlýsingu til hinna 3000 biskupa
kaþólsku kirkjunnar um, að þeir
skuli lifa i samræmi við boðorðið
um „kirkju hinna fátæku”. Burt
með allan ytri munaö, dýrar
ibúðir, glæsilega bila og dýrar
máltiðir. En áður en páfinn getur
búizt við að fá þessa ósk uppfyllta,
verður hann að breyta venjunum,
sem viðgangast kringum hann
sjálfan. Til dæmis sú siðvenja,að
hann sé borinn i hásæti við opin-
berar athafnir.
Verðir Vatikansins heilsa aö hermannasið einum af lúxusbílum þess
(Vatfkansins), merktum SCV-Stato della Citta del Vaticano.
Páfarikið —Vatikanið— d
margar ibúðir í fátækrahvcrfum
Rómaborgar og það á hlutahréf i
mörgum auðhringjum.
„Fjármálaráðhcrrar” Vati-
kansins cru alveg jafnslyngir og
hinir frcmstu fjármálamenn i
London og i New York.
Hversu miklar jarðeignir og
fjármuni á Vatikanið? Þessi
spurning hefur leitað á marga,
bæði kaþólska og þá.sem ekki eru
kaþólskir, kannski sérstaklega
þá, sem finnst Vatikanið og
auðæfi þess brjóta i bága við
kenningar kristninnar.
Þegar ibúar Rómaborgar sjá
einn af lúxusbilum Vatikansins
með bilstjóra við stýrið og klerk i
aftursætinu, segja þeir: „Si
Cristo vedesse”, en upphafsstafir
þessarar setningar eru þeir sömu
og einkennisstafir Vatikansins á
bilum þess, SCV (Stato della Citta
del Vaticano). Setningin þýðir:
Ef Kristur sæi þetta.
Spurningunni um, hversu auð-
legð Vatikansins er mikil, er
ósvarað. Að minnsta kosti er
enginn, sem treystir sér til að
segja til um hversu mikið
Vatikanið á i krónum og aurum.
En ein ágæt tilraun hefur verið
gert til að svara spurningunni.
Það gerði italski blaðamaðurinn
og rithöfundurinn Corrado
Pallenberg i litilli bók „Peningar
Vatikansins”.
A 148 siðum kemur Pallenberg
viða við, hann segir ekki aðeins
frá, hvar Vatikanið geymir fjár-
muni sina, heldur gefur einnig
góða mynd af allri hinni furðu-
legu sögu Valtikansins. Norkkrir
af páfum fyrri tima höfðu slik
veraldleg völd, að t.d. hinn ein-
valdi páfi Innocensius III (1198-
1216) gat ráðið.hverjir urðu keis-
arar og konungar i Evrópu.og gat
þvingað konungana i Þýzkalandi,
h’rakklandi, Spáni, Póllandi og
Englandi til að hlýða fyrirmælum
sinum.
Páfinn Leo X < 1513-21) hafði 683
hriðmenn og þjóna við hirð sina,
sem ekki stóð að baki nokkurri
evrópskri keisarahirð. Leikhús
hans sýndi verk eins og gaman-
leikinn „Mandaragola” eftir
Machiavelli. A veiðiferðum sin-
um, sem stóðu yfir i viku, hafði
hann 200 manns i fylgdarliöi sinu,
þar á meðal kardinála, gaman-
leikara og tónlistarmenn. Við hirð
hansstarfaði kardináli sem páfa-
legur ölmusu-úthlutari, og einnig
voru þar hirðfifl og filatemjarar.
Allt var þetta ótrúlega langt frá
Frá Tiber liggur glæsileg gata aö Péturstorginu, sem er myndað frá hvolfþaki kirkjunnar. Byggingar
Vatíkansins eru báðuni megin við torgiö.
Einar Bragi:
ÞÁ VAR ÖLDIN ÖNNUR
isafoldarprentsmiðja
I þessari bók Einars Braga
eru fjórir þættir, er svo heita:
Siðasta aftaka á Austfjörðum
og tildrög hennar.
Sumardagar i Suðursveit.
Galdra-Fúsi. Samantekt um
séra Vigfús Benediktsson.
Sumardagar á Hornbjargs-
vita.
Þetta eru mjög misjöfn og
Verð kr. 1073,00
sundurleit söguefni, og sjálfsagt
eitthvað misjafn fengur að frá-
sögnum þessum. Fyrsti þáttur-
inn er fullur af óhugnaði. Sú
saga hefur komið á prent áður,
en Einar Bragi hefur kannað
frumheimildir, svo að hér er
sagan sjálfsagt eins nákvæm-
lega rétt og hægt er að rekja
hana, úr þvi sem komið er.
-etta er saga um unga menn,
sem ætluðu sér að bjargast i
neyð móðuharðindanna með
gripdeildum, og jafnvel þvi að
leggjast út. Sjálfsagt er það rétt
hjá Einari Braga, að kannski
hefðu þeir, sem þar er sagt frá,
allir oröið nýtir menn við hlið-
hollar ástæður. Þó bendir margt
til þess, aö Eirikur hafi verið
næsta ófyrirleitinn, og þvi hefur
verið trúað snemma, að hann
væri hörkutól og illmenni. En þó
að þessi þáttur sé allt annað en
hugljúfur lestur, er þetta þó
þáttur úr islenzkri mannlifs-
sögu.
Um Galdra-Fúsa eru til ýms-
ar þjóðsögur, og Einar Bragi
rekur þær ýmsar i léttum og
liprum stil, jafnframt þvi sem
hann rekur sögu Vigfúsar svo
sem unnt er eftir samtima bréf-
um. Það, sem mér er hugstæö-
ast eftir þann lestur, er sú ráð-
stöfun yfirvaldanna að láta
prestinn á Stað i Aðalvik flytja
sig að Einholti i Suðursveit 1776.
Naumast mun hægt að finna
meiri vegalengd milli tveggja
prestakalla á landinu, enda mun
prestur hafa verið nokkuð á
þriðja mánuð á ferðinni og
sumarið að mestu hafa farið i
þennan búferlaflutning.
Sumardagar á Hornbjargs-
vita er létt og skemmtileg frá-
sögn af þriggja vikna dvöl
höfundar þar sumarið 1968,
ferðinni þangað og ýmsu, sem
kemur i hugann i sambandi við
þá ráðabreytni og atvik ferðar-
innar.
Sumardagar i Suðursveit er
sá þáttur bókarinnar, sem mér
þykir vænzt um. Höfundur kom
þar til dvalar fermingarvorið
sitt 1935. Frá þeim tima er sag-
an, en ýmislegt rifjast þö upp
frá fyrri dögum þeirra, sem við
söguna koma. Þetta er sönn og
glögg þjóðlifslýsing, rituð af
næmri samúð og nærfærni.
Það er náttúrlega rugl hjá
höfundi, að árið 1935 hafi verið
bannár, en það er lika eina
sögulega skekkjan, sem ég varð
var við í bókinni.
Þessi bók er þjóðleg i bezta
lagi. Þættir þeir, sem eru frá
samtið höfundar, eru þrungnir
af þjóðlegri dulhyggju. Þar
koma við sögu draumar og
fyrirburðir — jafnvel huldu-
maður vitjar höfundar i draumi
og sýnir honum bústað sinn, svo
að hann þekkir steininn, þegar
hann sér hann daginn eftir.
Frásögnin af ferð höfundar i
bjargið með Jóhanni vitaverði
minnir nokkuð á Þórberg, og er
ekki leiðum að likjast, en mjótt
er mundangshófið og vandfarið
með, svo að sögumaður verði
bæði skoplegur og eðlilegur.
Einar Bragi kemst vel frá þvi,
þó að stórmeistarinn hefði e.t.v.
getað gert enn betur.
Ég hygg, að menn hafi yfir-
leitt gaman af að lesa þessa bók,
með þeim fyrirvara þó, sem á
k viö efni fyrsta þáttarins. Jafn-
framt ætla ég, að þessi lestur
geri menn fróðari ogglæði skiln-
ing lesandans á þjóð sinni og
sögu. H.Kr.
TÍMINN
13
Hvort Vatikanið á einn mill-
jarð, tiu milljarða eða hundrað
milljarða. er ekki sérstaklega
mikilvægt. Rómversk-kaþólska
kirkjan hefur svo mikiar fjár-
hagslegar skyldur, að hún er
neydd að hafa geysistóran banka-
reikning til að mæta þeim.
Fjármunir kaþólsku kirknanna
koma ekki frá rikinu, eins og t.d.
hjá þjóðkirkjunum á Norðurlönd-
um, með örfáum undantekning-
um (Spánn, Portúgal, Argen-
tina).
Það, sem gefur tilefni til gagn-
rýni,er, að margar af fjárfesting-
um Vatikansins eru i fyrirtækj-
um, sem eru i augljósri andstöðu
við boskap páfanna. Skemmtilegt
er að athuga, að það hefur lagt
fjármuni i italska verksmiðju,
sem m.a. framleiðir P-pillur.
— En, bætir Corrado Pallen-
berg við háðslega — það er eins
og rómverski keisarinn Vespasi-
an sagði einu sinni: „Það kemur
ekki lykt af peningum”.
(þýtt og endursagt. — gbk).
Hancodi Roma (á iniftri myndinni) er ein af þeirn itölsku peningastofnunum, sem Vatfkanift stjórnar.
Otal spurningar leita
á tróðleiksfúsan nútímamanninn,
sem lifir i heimi malbiksog steinsteypu: Hver er
munur borga og sveita? Hvaö veldur f lótta fólks úr
strjálbýlinu? Hvernig er stéttaskipting og fjölskyldu
lif borgarbúa? Hvernig hafa borgir oröið til og þró-
azt? Hver eru vistfræðileg, félagsleg og skipulagsleg
vandamál borgarbúa? Hver er staða þeirra í nútímanum?
Jónas Kristjánsson, ritstjóri Vísis, er kunnur af
óvenjulegum forustugreinum i blaði sínu. Hann er
sagnfræðingur að mennt og stundaði að auki félags-
fræði um tveggja ára skeið. Bók hanser nauðsynleg
öllum þeim, sem áhuga hafa á félagsmálum og stjórn-
málum. Þetta er bókin um islenzkt þéttbýli.
HILMISBÓK ER VÖNDUÐ BÓK
Enn ein
jdciluk
frá
Elilmí
I