Tíminn - 30.11.1973, Side 23
Föstudagur 30. nóvember 1973.
TÍMINN
23
Alþingi
framlag á fjárlögum 1974 til þess
að byggja nýjan snyrtiskála við
Gullfoss.
5. Hafa ráðstafanir verið gerð-
ar til að kynna alþjóðlegum fjár-
málastofnunum urnræddar
áætlanir og hugsanlega þörf á
lánveitingum vegna fram-
kvæmda á ferðamálum?
Ráðherra kvað svo ekki hafa
verið gert.
Eysteinn Jónsson sagði, að
nauðsynlegt væri, að skýrt væri
fram tekið, að það sem sumir
kölluðu áætlun um ferðamál á Is-
landi og gerð hefði verið af ame-
risku fyrirtæki, væri ekki heildar-
áætlun um ferðamál á Islandi,
þar sem þar væri aðeins fjallað
um einstaka þætti, og fyrst og
fremst miðað við erlenda ferða-
menn og ráðstafanir til þess að fá
þá til landsins.
— Frá minu sjónarmiði séð,
sagði Eysteinn, getur ekki komið
til að ákveða verkefnaröðun i
ferðamálum, fyrr en allir þættir
hafa verið skoðaðir, þeim raðað
upp og þeir bornir saman, þar á
meðal aðstaða og möguleikar
viðsvegar um landið til þess að
koma upp ferðaþjónustu fyrir
innlent ferðafólk og erlent — en
min skoðun er sú, að gætilega og
hóflega verði að fara i að fjölga
erlendum ferðamönnum, en vinna
sem bezt að þvi, að Islendingar
geti ferðazt sem mest um land sitt
og dreift sér um það.
Ég vil þvi fara þess á leit við
samgönguráðherra, að hann beiti
sér fyrir heildarskoðun þessara
mála á þann veg, að sem flest
sjónarmið komi til, þ.á.m.
byggðarsjónarmið og umhverfis-
sjónarmið og hin mikla nauðsyn
þess að dreifa ferðalögum um
landið. Sem sé, að hæstvirtur ráð-
herra beiti sér fyrir þvi, að ferða-
málaáætlun verði gerð, þar sem
stefnan verður mótuð.
Ég vænti þess, að engar meiri-
háttar ákvarðanir verði teknar i
þessum málum, sagði Eysteinn,
án ákvarðana Alþingis — né er-
lendar lántökur undirbúnar fyrr
en stefnan hefur verið mótuð á
Alþingi.
Þá benti Eysteinn á, að sáralit-
ið virtist ætlað i amerisku til-
lögunum til framkvæmda úti um
landið,en meiginhlutanum hingað
á þéttbýlissvæðið.
Heimir Hannesson sagði, að
mörg atriði i skýrslunni þyrfti að
kanna betur, og benti m.a. á, að á
fiskeldisrannsóknir skorti mjög.
Þá gagnrýndi Heimir, aö af rúm-
lega tveggja milljaröa króna
fjárfestingarhugmyndum væri
gert ráð fyrir, að meginhlutan-
um, eða yfir 90%, yrði varið við
þéttbýlissvæðið við Faxaflóa.
Eölilegt væri að visu, að miðstöð
ráðstefnuuppbyggingarinnar yrði
i Reykjavik, en umrædd skiðaiðk-
ana- og heilsuræktarmiðstöð, sem
kosta á stórfé og nýtast af erlend-
um ferðamönnum, og ekki siður
landsmönnum sjálfum, ætti hik-
laust aö koma upp annars staðar
á landinu. Þar væri byggða-
sjónarmiöið þungt á metúnum, en
hagkvæmnisjónarmiö mæltu
einnig með þvi. Þá sagði Heimir,
að orsökin fyrir slæmu hrein-
lætisástandi á ferðamannastöð-
um væri sú, að litlar og viða eng-
ar ráðstafanir hefðu veriö gerðar
til að bæta þar úr.
0 íþróttir
son. A, sem aldrei hefur
verið sterkari en einmitt
núna, og er von til þess aö
hann setji Norðurlandamet i
þungavigt. Þá mun Gústaf
Agnarsson A. reyna að
veita honum keppni, en hann
á möguleika á þvi að ná 700
kg. samanlagt og verður þá
þriðji tslendingurinn, sem
þeim árangri nær, hinir eru
þeir Óskar og Björn R.'
Lárusson.
1 millivigt verður hat-
römm barátta milli þeirra
Einars Þorgrimssonar K.R.
og Skúla Óskarssonar U.I.A.,
sem keppnir sem gestur, og
hætta er á að nokkur met
falli i þeim darraðardansi.
Einnig mun Friðrik
Jósepsson i Í.B.V. keppa sem
gestur og verður gaman að
sjá hvernig viðskiptum hans
og lyftingamannsins góð-
kunna úr K.R., Ólafs Sigur-
geirssonar, reiðir af. En sjón
er sögu rikari.
Kökubasar Verzlunarskólans:
Bæði kynin baka
0 Lektorsembættin
var Páll Skúlason skipaður i.
lektorsstöðuna 2. nóvember s.l.
Um ástæður fyrir skipun
Þorsteins Gylfasonar i fyrri
lektorsstöðuna, er fljótsagt, að sú
ákvörðun var reist á tveimur
forsendum:
1. Af fimm umsækjendum um
stöðuna hlutu tveir atkvæði i
heimspekideild, Páll Skúlason
7atkvæðiog Þorsteinn Gylfason
5 atkvæði. Stóð þvi hið raun-
verulega val á milli þeirra
tveggja.
2. Þeir tveir menn, sem heim-
spekideild hafði fengið til að
meta umsóknir um stöðuna,
Páll S. Ardal og.Jóhann Páll
Arnason, skiluðu álitsgerðum
sinn i hvoru lagi. Alitsgerð
Jóhanns Páls fjallaði fyrst og
fremst um rit umsækjenda, svo
sem fyrirsögn hennar ber með
sér: „Athugasemdir við nokkur
rit umsækjenda um lektors-
stöðu i heimspeki við Háskóla
Islands”. I lok álitsgerðarinnar
segir: „Niðurstaða min af
athugun á ritverkum hinna
fjögurra (áður er tekið fram,
að ekkert verði sagt um fimmta
umsækjandann, þar sem engin
rit fylgi umsókn hans — innskot
hér) er sú, að traustust tök á
heimspekilegri hugsun komi
fram hjá þeim, sem fyrst er
talin (þ.e. Páli Skúlasyni —
innskot hér): fleira ber
auðvitað að taka til greina,
þegar skipað er i kennarastöðu,
en það er þessari umsögn óvið-
komandi”. Páll S. Árdal gerir
hins vegar grein fyrir átta
atriðum, sem hann leggi til
grundvallar mati á hæfni
umsækjenda til að takast
lektorsstöðuna á hendur, og
fjallar siðan um þá hvern og
einn með hliðsjón af þeim
kröfum. 1 upphafi ályktunar-
orða hans segir á þessa leið i
þýðingu (álitsgerðin er rituð á
ensku): „t huga minum er
enginn efi um það, að ég tel
Þorstein Gylfason langbezt
fallinn umsækjendanna til að
takast á hendur lektorsstöðuna
við Háskóla íslands”. („There
is no doubt in my mind that I
consider Þorsteinn Gylfason by
far the most suitable candidate
for the post of lecturer at The
University of Iceland”.) Telur
Páll þessum dómi til stuðnings
bæði framlag Þorsteins til að
efla áhuga á heimspekilegum
fræðum á íslandi, ritfærni hans
og prýöilega háskólamenntun.
Mér er engin launung á því, að
rækileg álitsgerð Páls S. Ardals
réö úrslitum um ákvörðun
mína varðandi ráðstöfun fyrri
lektorsstöðunnar.
Aö lokum skal vikið að lektors-
stöðu við námsbraut i almennum
þjóðfélagsfræðum, þar sem
Þorsteinn Gylfason kom einnig
við sögu. Sú staöa var auglýst i
júli s.l. sem „lektorsstaöa i
stjórnmálafræði, einkum á sviöi
stjórnmálaheimspeki eða al-
þjóðastjórnmála”. Þrir menn
sóttu um starfiö, þeirra á meðal
Þorsteinn Gylfason. Hann var þó
samtimis meðal umsækjenda um
tvær lektorsstöður i heimspeki
við heimspekideild, og var ekkert
er benti til annars en áhugi hans
beindist fyrst og fremst að öðru
hvoru þeirra starfa. Með bréfi
háskólarektors 21. september s.l.
var ráðuneytinu tjáð, að stjórn
námsbrautar i almennum þjóð-
félagsfræðum hefði mælt með
þvi, að Þorsteinn Gylfason yrði
settur um eins árs skeið til að
gegna lektorsstöðu þeirri, sem
laus var við námsbrautina. í
greinargerð námsbrautar-
stjórnar kom fram, að tillagan
um þennan skammtimahátt á
ráðstöfun stöðunnar var ekki
beinlinis reist á þeim forsendum,
að ekki væri séð, hver verða
mundu afdrif umsóknar Þor-
steins um lektorsstööu i heim-
speki.
Bréf þetta er sent dag-
blöðunum til birtingar, þar sem
hið „opna bréf” stjórnar Félags
stúdenta i heimspekideild var birt
þar.
Magnús T. ólafsson.
O Á víðavangi
þarna um að ræða 16-17
milljónir á fjórum árum. Um
þetta sagöi Heimir m.a:
„Nær hefði veriðyað þetta fé
hefði runnið til Ferðaskrif-
stofu rikisins eða hreinlega til
islensku flugfélaganna, sem
hafa háö haröa baráttu á
þessum sömu mörkuöum. Ég
skal við öll möguleg tækifæri
lýsa yfir stuðningi minum við
norræna samvinnu og nor-
rænt samstarf, en I þessum
málumverða menn að átta sig
á þvi, aö viö okkar ágætu
frændur á Norðurlöndum
eigurn viö i samkeppni I flug-
málum og þar meö ferða-
málum, þannig að þar liggja
okkar leiðir alls ekki saman.
Ég vil þess vegna halda þvi
hér fram, að þessi opinbera
ráðstöfun á þetta miklum upp-
hæðum og enn þá hærri upp-
hæð fyrir áriö 1974 séu hrein
mistök og mjög óeölileg eyösla
á opinberu fé "
—TK
o 1. des.
fylkingar S-Vietnama. Sá frá
Chile Rafael Carero er stúdent og
kemur hingað frá Osló, en hann er
fulltrúi útlaga frá Chile (útlögum
herforingjastjórnarinnar), en
þeir eru um þessar mundir að
hefja fyrirlestraferðir um allan
heim.
Þetta er i fyrsta skipti, sem Le
van Ky kemur hingað til lands, og
mun hann dvelja hér i eina viku.
Le van Ky er forstöðumaður upp-
lýsingaskrifstofu bráðabirgða-
byltingarstjórnarinnar ((BBS),
sem er i Osló. Mun hann i heim-
sókn sinni eiga fund með utan-
rikisráðherra og fleiri þingmönn-
um. Þá mun fyrirhugað, að hann
heimsæki vinnustaði. Loks mun
Vietnam-nefndin á Islandi halda
stuðningsmannafund meö Le van
Ky i næstu viku.
Rafael Carero mun koma fram
á opnum fundi, sem 1. des- nefnd
stúdenta gengst fyrir i Norræna
húsinu á mánudagskvöld 3. des.
ki. hálf niu og fjalla þar um
valdarán herforingjanna i Chile
og svara fyrirspurnum fundar-
gesta þar að lútandi. A fundinum
mun ennfremur Dagur Þorleifs-
son blaöamaður ræöa um Chile og
baráttuna i rómönsku Ameriku.
Þá verða fluttar hljómplötur
með siöasta ávarpi Allendes heit-
ins forseta Chile til þjóöar sinna.r i
útvarpi en þær tók upp mexi-
kanskur fréttamaður að morgni
11. september s.l. og tókst að
smygla þeim út úr landinu. Loks
verða almennar umræður um á-
standið I Chile og baráttu útlaga
þaðan.
Rafael Carero mun ræða við
ýmsa forystumenn félagssam-
taka, meðan hann dvelur hér
(hann fer héðan 4. des.), meðal
annars A.S.I. Þá ætlar hann einn-
ig að hitta að máli fulltrúa stjórn-
málaflokka og fréttamenn.
, —Step
o Hvító
Hrunamannaafrétt að virkiunar-
stað skammt austan við Dæinn
Haukholt. A vetrum yröi lítið vatn
i farvegi Hvitár við Gullfoss og
þar fyrir ofan og neðan, en á
sumrin mætti hafa þar niutiu
þúsund sekúndulitra rennsli, sem
ekki er óalgengt vatnsmagn i ánni
eins og hún nú er á þeim árstima.
Hefði Gullfoss einskis I að sakna
að sumarlagi, og sæjust hvergi i
námunda við hann merki þess, að
áin hefði verið beizluð.
Hvitárvatn yrði vatnsforðabúr
orkuversins, og myndi yfirborð
þess hækka um fimmtán til
tuttugu metra vegna stiflugerðar,
svo að Hvitárnes færi að mestu
leyti undir vatn. Sennilega yrði
stórt uppistöðulón á Búrfells-
mýrum, sem eru inni á
afréttinum vestan viö upptök
Leirár og inntakslón á Hegra-
mýruín fyrir ofan bæinn Foss i
Hrunamannahreppi.
A fundinum voru bornar fram
fyrirspurnir um áhrif slikra
vatnsflutninga á jarðvatn og skil-
yrði til búsetu, veðrun á fossbrún
Gullfoss i vatnslitlum farvegi að
vetrarlagi og stóriðnað i sam-
bandi við þessa virkjun. Létu
margir I ljós efasemdir um rétt-
mæti svo stórbrotinna breytinga
NEMENDUR 4. bekkjar Verzl-
unarskólans efna til kökubasars
að Hallveigarstööum kl. 2-6 i dag.
Með þessu móti ætla nemendur að
afla fjár til þess að geta hér eftir
eins og hingaö til haldið hátiö-
legan peysufatadaginn, sem svo
er nefndur, en þá ganga
Verzlunarskólanemendur um
bæinn og gera sér glaðan dag. Til
þessa hafa nemendur 4. bekkjar,
notið ágóðans af skólaböllum, en
nú hafa þeir verið sviptir þeirri
tekjulind. Ennfremur er þeim
fjár vant til útgáfu á árlegri
minningabók úr skólalifinu, en
á náttúrufari og ótta um örlög
Gullfoss, og var vitnað til þess, að
enn hefur aðeins 7-8% virkjan-
legrar vatnsorku verið beizlað.
Var samþykkt á fundinum að fela
stjórn náttúruverndarsamtak-
anna að vinna að könnun og
upplýsingasöfnun um þessi
virkjunarmál.
Að stóriðju i sambandi við
Hvitárvirkjun er ekki farið að
huga, enda langur timi til stefnu
og margt breytingum undirorpiö
á þeim tima. Um önnur atriði,
sem þarna bar á góma hefur
Timinn leitaö álits þeirra Jakobs
Björnssonar orkumálastjóra og
Háuks Tómassonar jaröfræðings.
— Eitt af þvi, sem hvetur okkur
tii þess að kanna þennan
virkjunarmöguleika, er sú stað-
reynd, sagði Jakob Björnsson, aö
Hvitá er vestan viö eldfjalla-
svæöiö , en allar stórvirkjanir i
Þjórsá og Tungná eru á þvl, nema
sú virkjun i efri hluta Þjórsár,
sem margrætt hefur orðið um
vegna þess, að þá yrði Þjórsár-
verum að einhverju leyti fórnaö.
— Þaö er ekki fullráðið, sagði
Haukur Tómasson, að uppistöðu-
lón veröi gert á Búrfellsmýrum,
en þær eru á svæði, þar sem nú er
uppblástur. Innar á afréttinum er
uppblásturinn um garð genginn
og gróður að sækja á að nýju, en
nær byggö er land að blása upp.
Um jarðvatniðer það að segja, aö
staöa þess mun að sjálfsögðu
hækka á afréttinum og á flatlendi
á svæðinu milli Hvitár og
aöfærsluskurðarins. En það ætti
aö stuöla að þvi að stöðva upp-
blástur og leiöa til þess, að nýjar
mýrar mynduöust með timanum.
þetta kostar hvort um sig nokkur
hundruð þús. kr., að þvi er nem-
endur áætla. Þá mun verða efnt
til happdrættis i fjáröflunarskyni.
Aðalvinningar eru tvær utan-
landsferöir, en auk þeirra eru 20
aukavinningar. Nemendur fjórða
bekkjar vænta þess, að hvoru
tveggja verði vel tekið, menn
kaupi miða i happdrættinu og
fjölmenni á kökubasarinn. Þess
má geta, að bæði piltar og stúlkur
i skólanum baka kökurnar sem til
sölu verða, svo að fullnægt sé
sjálfsögðum jafnréttiskröfum.
Ég held til dæmis, að nýtt
mýrlendi verði til viö Hvitárvatn i
stað þess gróðurlendis, sem fer
undir vatn i Hvitárnesi. A búsetu
manna I Hrunamannahrepi ættu
vatnsflutningarnir ekki að hafa
áhrif.
Um Gullfoss sagöi Haukur, að
ráðgert væri að hafa Sandvatn og
Hagavatn að vatnsgeymum
vegna fossins, og þó aö vatn yrði
lltið i ánni á vetrum, lágmark um
fimm þúsund sekúndulitrar, teldi
hann, að frost og önnur veðrun
mvndi ekki valda meiri sköddun á
fossbrún heldur árflaumurinn
gerir ella með jakaburði á
vetrum — jafnvel hið gagnstæða.
Vantar
bílinn
1 fyrrinótt var stolið bifreið af
gerðinni Ford Consul árgerð 1965,
þar sem hún stóð viö Laugarnes-
veg. Bifreiðin er ljós blá að lit og
með númeriö R-19988.
Þeir, sem geta gefið einhverjar
upplýsingar um þessa bifreið,
eru beðnir um að láta rannsókn-
arlögregluna vita, sem allra
fyrst.
I
I
I
Dagblaðið Timinn
Aðalstræti 7
Reykjavik
Má leggja
ófrimerkt
i póst.
I
I