Tíminn - 30.11.1973, Page 24
Auglýsingasími
Tímans er
fyrir góóan mai
^ KJÖTIONAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
".............
Grikkir vonsviknir
— stefnuræðan boðaði ekkert
NTB-Aþenu — Hinn almenni
Grikki er nú oröinn tortryggnari
gagnvart nýju valdhöfunum, en i
fyrstunni. Astæðan er einkum sú,
aö i stefnuyfirlýsingu nýja for-
sætisráöherrans vantaði »11 loforö
um aö koma á iýöræöislegu
stjórnarfari I landinu.
Mörgum Grikkjum fannst i_
gær, aö þeir væru komnir aftur i
áriö 1967, þegar Papadopoulus
tók völdin og hrifningaröldurnar
yfir þvi að honum var steypt á
sunnudaginn hefur lægt.
t stefnuræðunni voru að visu
óljós fyrirheit, en engin lof-
orö og engin timatakmörk
nefnd. Ráðherrann sagði, að
gera yrði nýja stjórnarskrá,
en nefndi ekkert um, hvort það
myndi leiða af sér kosningar.
Ekki nefndi hann heldur hvenær"
hernaðarástandinu yrði aflétt.
Grikkir höfðu vonað, að nýja
stjórnin myndi slaka mikið á
ströngum ráðstöfunum, en þar
sem hernaðarástand er enn i
gildi, þýðir það að hægt er að
draga óbreytta borgara fyrir her-
dómstól, ef þeir brjóta lögin. Ráð-
herrann lagði áherzlu á, að nýja
stjórnin myndi ekki þola neinum
að trufla ró og frið i landinu og
var það greinilega ætlað
stúdentum til umhugsunar.
Fleiri gallar á
Watergate-böndunum
NTB—Washington — John Sirica
dómari hefur komizt aö raun um
aö hljóöritun sú, sem áöur hefur
veriö getiö i fréttum og 18
minútna kafla vantar á, er meira
gölluö en þaö. Leikur nú vafi á aö
nokkur fái nokkurn tima aö vita,
hvort Nixon vissi um tilraunirnar
til aö hreiða yfir hneyksliö eöa
ekki.
Lögfræðingur Hvita hússins
sagði Sirica frá þvi, að fleiri
gallar væru á hljóðrituninni af
samtali Nixons við Haldeman, en
hann bætti þvi við, að þessir
gallar skiptu ekki miklu máli og
að engin ástæða væri til að ætla,
aö hlutar af samtalinu hefðu verið
þurrkaðir út.
Sérfræöingar bentu á, að Sirica
hafi upphaflega beðið um niu
Ný Watergateákæra:
Sór Chapin
rangan eið?
NTB—Washington — Einn af
fyrrverandi nánustu samstarfs-
mönnum Nixons forseta, Dwight
L. Chapin, var i gær ákæröur
fyrir fjórfalt meinsæri i greinar-
gerð sinni fyrir Watergate-nefnd-
Dwight L. Chapin — fjórfalt
meinsæri?
inni. Þetta er fyrsta ákæran, sem
kemur frá dómstóli þeim, sem
komið var á fót i ágúst til að rann-
saka hinar umfangsmiklu póli-
tisku njósnir, sem áttu sér stað
viö kosningabaráttuna i fyrra.
Chapin hafði þann starfa með
höndum hjá Nixon, aö hafa röð og
reglu á viðtalaskrá forsetans.
Hann hafði nána samvinnu við
Haldemann, yfirmann starfsliðs
Hvita hússins og Ehrlichman,
ráögjafa i innanrikismálum.
Chapin yfirgaf starf sitt i Hvita
húsinu fyrr i ár og starfar nú hjá
United Airlines i hárri stöðu.
I ákærunni er Chapin sagður
hafa svarið rangan eið i þau
fjögur skipti, sem hann ræddi við
Watergatenefndina i april i ár.
Veröi hann sekur fundinn um
meinsæri, á hann yfir höfði sér
fimm ára fangelsi og tiu þúsund
dollara sekt fyrir hvert skipti.
Málið gegn Chapin er tengt starf-
semi þeirri, sem annar sam-
starfsmaður Nixons, Donald
Segretti hefur verið dæmdur
fyrir. Hann var sekur fundinn um
aö hafa breitt út sögusagnir og
dreift fölskum upplýsingum um
frambjóöendur demókrata i for-
setakosningunum i fyrra.
Sakharov
ætlar
vestur
um haf
NTB—Moskvu — Sovéski kjarn-
eölisf ræðingurinn Andrej
Sakharov hefur sótt um út-
flytjendaleyfi til Bandarikjanna
fyrir sig og fjölskyldu sina. Hann
hefur tekið tilboði um að flytja
fyrirlestra við bandariska há-
skóla, þrátt fyrir að sovézk yfir-
völd muni liklega neita honum
um að fá að koma aftur til Sovét-
rikjanna.
Sakharov hefur verið ófsóttur
af sovézkum yfirvöldum siðan
hannhóf að gagnrýna þjóðfélags-
málin þar fyrir opnum
tjöldum. Hann sagði á blaöa-
mannafundi á heimili sinu igær,
að hann vonaðist til að komast úr
landi strax i desember.
Tilboðið um að koma til Banda-
rikjanna, nær til Sakharovs
sjálfs, konu hans, Helenu, og
tveggja barna hennar frá fyrra
hjónabandi, sonar og dóttur,
eiginmanns dótturinnar og barns
þeirra.
íranska
olían seld
hæst-
bjóðanda
NTB—Teheran — Iran hefur
ákveðið að selja sinn hluta af oliu-
framleiðslu landsins hæst-
bjóðanda, að þvi að áreiðanlegar
heimildir sögðu i gær. Magnið er
að minnsta kosti 100 milljónir
lesta á ári á næstu 20 árum.
Aðeins alþjóðaoliufélög,sem eiga
hreinsunarstöðvar og hafa dreif-
ingarkerfi geta boðið i oliuna.
I gær var undirritaður 20 ára
samningur Irans við vestræn
oliufélög. Samkvæmt honum fá
oliufélögin 29,3 milljarða tunna,
sex milljarða notar Iran sjálft og
7,2 milljarðar verða boðnir upp.
Á uppboði á oliu, sem haldið var
1 Nigeriu nú i mánuðinum, var
hæsta boð 18,20 dollarar fyrir
tunnuna af hráoliu og er það
hæsta, sem fengizt hefur. Talið er
að iranska olian verði allmiklu
verðhærri, ef svo heldur fram,
sem nú horfir i oliumálum.
Þá var kátt i Grænlandi:
Bjór rann úr
vatnskrönum!
NTB—Góðvon — Um 200
þúsund bjórdósir, sem sendar
voru frá Danmörku til græn-
lenzku bæjanna Nanortalik,
Narssaq og Julianeháb,
reyndust innihalda of mikið
ger og urðu yfirvöld þvi ásátt
um að koma þeim fyrir
kattarnef. i Nanortalik var
gerð mikil gryfja og 43 þúsund
dósir grafnar i jörð, En það
dugði litið, þvi bæjarbúar fóru
á stjá um nóttina með allar
sinar skóflur.
í Narssaq gekk aðeins
betur, þvi að þar var ákveðið
að fleygja dósunum i sjóinn.
Þá fengu allir ógnaráhuga á
fiskveiðum næstu dagana, en
dósafiskiriið var heldur tregt.
En ibúar Julianeháb þurftu
ekkertfyrir þvi að hafa, að ná
I bjórinn. Þar var 150 þúsund
dósum fleygt i gamla grjót-
námu rétt við vatnsbólið og
þangað rann bjórinn og nú var
bara að skrúfa frákrönunum.
Að visu hafði drykkurinn eftir-
sótti þynnzt dálitið á leiðinni.
hljóðritanir, en hafi aðeins fengið
sjö. Lögfræðingurinn sagði i rétt-
inum, að gallarnir, sem nú hefðu
fundizt á bandinu, ættu rætur að
rekja til hávaða frá flutninga-
bilum fyrir utan Hvita húsið.
1 fyrradag sagði Rose Mary
Woods, að verið gæti, að hún
hefði af slysni þurrkað úr hluta af
samtalinu, meðan hún var að
vélrita af þvi. Hún kvaðst hafa
þrýst óvart á upptökutakkann, en
þó væri ómögulegt, að við það
hefðu eyðilagzt heilar 18 minútur.
Hún kvaðst ekki vita, hver hefði
eyðilagt afganginn.
l<3t7tUchadl
Úrvalsvörurnar frá Marks & Spencer
fást i Gefjun Austurstræti,
Domus Laugavegi 91.
og hjá kaupfélögum um land allt.
Fatnaöur á alla fjölskylduna.
Vörurnar, sem eru þekktar og rómaðar
um víöa veröld.
Framleiddar undir strangasta gæöaeftirliti.
%
m
I É
te
r
w'-
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
SambandshúsiÖ Rvík sími 17080