Tíminn - 10.01.1974, Side 8

Tíminn - 10.01.1974, Side 8
8 TÍMINN Fimmtudagur 10. janúar 1974 Guðlaugur Þorvaldsson háskólarektor og Páll H. Pálsson forstjóri happdrættis Háskólans ásamt Grétu Jónsdóttur frá fsafiröi, en hún og maður hennar Hermann Sigurösson hlutu einn af hæstu vinningunum. Hæsta vinnings hlutfall í heimi sagt frá starfsemi happdrættis Háskóla íslands UM ÞESSAR mundir er fjörutíu ára afmæli Happdrættis Háskólans. Háskólinn fékk einka- leyfi til happdrættis- rekstrarins 1. jan. 11934 samkvæmt lögum frá 3. mai 1933 og bréfi fjár- málaráðuneytisins 4. júli sama ár. ö Fyrst var dregið í happ- drættinu 10. marz 1934. Einkaleyfið var fyrst veitt til 10 ára, en hefur siðan verið fram- lengt, og nú nýlega um 15 ára skeið. t þessu fjörutiu ára timabili hefur Happdrætti Háskólans staðið fjárhagslega undir mestum hluta framkvæmda i þágu Háskólans og miklum hluta framkvæmda i þágu rannsókna- stofnana rikisins, en til þeirra rennur 20% einkaleyfisgjald, sem Happdrætti H.t. greiðir i rikis- sjóð. Alls hefur Happdrætti lt.t. greitt á 5. hundrað milljónir króna til þessara framkvæmda á þessu fjörutiu ára timabili, en það mun láta nærri að vera 1.100-1.200 milljónir króna á núvirði, ef miðað er við breytingar- a byggingavisitölu, eða hátt i 30 milljónir króna að meðaltali á ári. A fjárlögum ársins 1974 er áætlað, að Happdrættið greiði til Háskólans og i rikissjóð (rennur til rannsóknastofnana) 105,5 millj. kr., en þar af eru 85-90 millj. kr. af væntanlegum rekstrarhagnaði ársins. Þetta sýnir, að Happdrætti HH.t. hefur sótt mjög i sig veðrið, þar sem væntanlegt Irainlag þess til framkvæmda á næsta ári er um það bil þrefalt meðalframlag siöustu 40 ára, reiknað á sama verðlagi. Til þess að þessu marki verði náð, þarf 40-50% veltuaukningu á árinu. Horfur eru á, að slikt geti tekist, og á hin nýja skipan vinn- inga, sem siðar verður skýrt frá, vafalaust mikinn þátt i þvi. Forstjórar Happdrættis H.t. hafa verið tveir frá upphafi, fyrst Pétur Sigurðsson, fyrrv. háskóla- ritari og núverandi forstjóri, Páll. H. Pálsson, sem verið hefur starfsmaður stofnunarinnar um rúmlega 30 ára skeið. Flest það fólk, sem nú vinnur á skrifstófu stofnunarinnar, hefur unnið þar mjög lengi, og hefur það orðið Happdrætti H.t. til ómetanlegs gagns, þar sem um mjög sérhæfðan rekstur er að ræða. Fyrstu stjdrn Happdrættis H.í. skipuðu þeir Alexander Jóhannesson, formaður, Bjarni Benediktsson og Magnús Jóns- son. Núverandi stjórn skipa: Guðlaugur Þorvaldsson, for- maður, Þórir Kr. Þórðarson og Bjarni Guðnason. Aðrir stjórnar- formenn hafa verið Magnús Jóns- son, Bjarni Benediktsson, Ólafur Lárusson og Armann Snævarr. Gnægð verkefna fram- undan Enda þótt framkvæmdir á veg- um Háskólans hafi verið miklar undanfarin ár, má ætla, að fremur muni þær fara vaxandi en minnkandi á næstu árum, ef miðað er við þarfir. Nú er i gangi bygging 2. áfanga húss fyrir verkfræði- og raun- visindadeild og i undirbúningi miklar framkvæmdir i þágu læknadeildar og tannlækna- deildar á Landspitalalóðinni, einkum sunnan Hringbrautar, en þær verða að einhverju leyti kostaðar af framkvæmdafé Háskólans. Mikill skortur er einnig að verða á almennu kennsluhúsnæði fyrir aðrar deildir, þar sem nemendum hefur fjölgað mikið, m.a. i viðskipta- deild og heimspekideild. Loks er þess að geta, að viðhalds- kostnaður húsa og lóða,tækja- kaup og ýmiss konar búnaður i skólahúsnæði, sem fyrir er, tekur nú æ stærri hluta af fram- kvæmdafénu til sin. Mikil breyting á vinningaskipan. Nýir 50 þúsund og 500.000 kr. vinningar og mikil fjölgun 10 þúsund kr. vinninga Á árinu 1973 hefur sala hluta- miða gengið mjög vel. Um ára- mótin 1972/1973 varð um 6,5 % söluaukning, þrátt fyrir óbreytt miðaverð, sem er mjög gott miðað við þá geysilegu veltu- aukningu, sem varð næstu ára- mót á undan (60,52%), Aberandi er, að á liðnu ári hafa færri viðskiptavinir hætt við miðana sina en áður, og eins eru vinningarnir betur sóttir. Þetta er tvimælalaust þvi að þakka, að menn munar meira um vinning- ana nú orðið, þegar þeir lægstu eru 5.000 krónur, heldur en þegar þeir voru aðeins 2.000 krónur. 1 þessu sambandi er rétt að benda á, að þvi er eins háttað með vinninga i happdrætti og svo margt annað, að þeir verða að haldast i hendur við gildi pening- anna á hverjum tima. Að sjálf- sögðu er það alltaf sársaukafull ráðstöfun, þegar verð miða er hækkað. En hjá þvi er ekki hægt að komast. 1 þessu sambandi má benda á, hve árangursrik sú ráð- stöfun var, þegar lægsti vinningurinn var hækkaður úr 2.000 krónum i 5.000 krónur. Þetta var aðeins hægt að framkvæma með þvi að hækka verð miðanna á ársbyrjun 1972. A þvi tveggja ára timabili, sem siöan er liðið, hafa vixlhækkanir verðlags og kaupgjalds haldið stöðugt áfram. Byggingarvisitala hefur hækkað um meira en 50%. Og launastéttir landsins hafa fengið sist minni kauphækkanir á þessu timabili, og krefjast nú mikilla hækkana. Eins og áður hefur verið bent á, á stjórn Happ- drættis Háskóla tslands ekki annarra kosta völ en fylgjast með straumnum og kappkosta það eitt, að vinningarnir séu það verðmæti, sem fólk sækist eftir. Þess vegna hefur verið gerð ný vinningaskipan, sem réttilega hefur verið kölluð verðtrygging vinninganna. Helstu breytingarnar eru þessar: 1 Nýr flokkur vinninga — 50.000 krónur. Verða þessir vinningar 'samtals 2.460, eða andvirði 123.000.000 króna — eitt hundrað tuttugu og þriggja milljóna króna. Þessir 50.000 króna vinningar skiptast á alla tólf flokka ársins og verða frá 60 vinn- ingar i 1. flokki upp i 1.080 vinn- ingar i 12. flokki. Þetta er mjög glæsilegur vinningur, sem menn munar um að fá, að ekki sé talað um þá, sem eiga fernur, en þeir munu fá 200.000 krónur. 2. Annar nýr flokkur vinninga — 500.000 krónur, eða fjórir hálfrar milljón krónu vinningar i hverjum drætti allt árið. Þessir vinningar koma á milli milljón króna vinningsins, sem verður áfram hæsti vinningurinn i ellefu flokkum ársins, og 200.000 króna vinningsins. 3. 10.000 króna vinningunum fjölgar stórlega, úr 7.472 i 20.900 eða um 13.428. Þessar staðreyndir eru óbreyttar frá fyrra ári: 1. Hæsti vinningurinn i desember verður tvær milljónir króna. 2. 1 hina ellefu mánuði ársins verður hæsti vinningurinn ein milljón króna. 3. Eins og áður verða fjórir 200.000 króna vinningar i öllum tólf flokkum ársins. .4. Lægsti vinningurinn verður 5.000 krónur. Vegna tilkomu 50.000 króna vinninganna, stór- legrar fjölgunar 10.000 króna vinninganna og nýju 500.000 króna vinninganna, fækkar þeim hins vegar úr 52.336 i 36. 400 eða um 15.936. Heildarf járhæð vinninga hækkar úr 403 milljónum i tæpar 605 milljónir króna. Er þetta rúmlega 200 milljóna króna aukning, eða VERÐTRYGGING VINNINGANNA, þannig að við- skiptavinum happdrættisins eru tryggð sömu lifsgæði fyrir vinningana. Gefinn verður út sami fjöldi miða, 60.000 hlutamiðar fjórum sinnum. með bókstöfunum E, F, Gog H, eða samtals 240.000 hluta- miðar. Nú breytist verð þeirra í 300 krónur á mánuði. Samtals Framhald á bls. 1 3 Erna Jóhannesdóttir, umboösmaður happdrættisins I Eyjum (lengst t.v.) ásamt vinningshöfum. úr Eyjum. Lánió genr ekki endasleppt við Stokkseyringa, sem hlutu hæsta vinning annað áriö I röö. Marta Bibi Guðmundsdóttir umboðsmaður á Stokkseyri (lengst t.v.) ásamt hinum heppnu Stokksevringum. Timamyndir: Róbert.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.