Tíminn - 10.01.1974, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 10. janúar 1974
TÍMINN
13
0 Vinningar
verða vinningar 60.000 yfir árið,
þannig að fjórði hver miði hlýtur
vinning að meðaltali.
Eins og áður greiðir
Happdrætti Háskóla íslands 70
% af veltunni i vinninga.en það er
hæsta vinningshlutfall, sem þekk-
ist i heiminum.
Þegar dregið var i fyrsta
flokknum kostaði miðinn 6 krónur
og lægsti vinningurinn var 100
krónur. Og nú, 40 árum seinna,
kostar miðinn 300 krónur og
lægsti vinningurinn er 5.000
krónur — eða það hefur haldist i
hendur, að báðar þessar fjár-
hæðir hafa fimmfaldast á þessu
timabili. Ef menn bera þessar
bláköldu staðreyndir saman við
aðrar veðmætabreytingar i
landinu á þessu timabili, munu
menn komast að raun um, að þær
eru i mjög mörgum tilfellum
svipaðar. Og á þessum saman-
burði sjáum við, að ómflýjanlegt
hefur verið að breyta verði
miðanna og vinningaskránni til
samræmis við verðlagið á hverj-
um tima.
Astæða er til að vekja sérstaka
athygli á hinum nýju 50.000 króna
vinningum, sem gera þessa nýju
vinningaskrá mjög glæsilega. Og
i þessu sambandi er ástæða til að
benda mönnum á að ef þeir
eiga fjóra samstæða miða af
númerinu, þá fá þeir 200.000 krón-
ur. Stjórn happdrættisins hefur
orð vör við, að viðskiptavinirnir
gera sér ekki almennt grein fyrir
þeirri ferföldun á rekstri
happdrættisins, sem tekin var
upp fyrir nokkrum árum siðan.
Menn virðast ekki gera sér fylli-
lega ljóst, að af hverju númeri,
sem út er dregið, koma upp fjórir
jafnháir vinningar. Þannig eru
mánaðarlega dregnir út fjórir
milljón króna vinningar o.s.frv.
Með þessu er mönnum einnig
gefinn kostur á að spila
„stærra,” eða með meiri breidd,
þannig að vinningurinn verður
hærri, þegar númerið kemur upp.
Þá gefur hin mikia fjölgun
10.000 krónavinninganna þessari
vinningaskrá aukið gildi. að ekki
sé talað um hálfrar milljón króna
vinningana, sem auka breidd
vinningaskrárinnar mjög. Þessi
nýja vinningaskrá býður upp á
fjórtán sinnum meiri likur til aö
fá stóra vinninga heldur en
gamla vinningaskráin.
Heildarfjárhæð vinninganna
verður 604.800.000,00 — sex
hundruð og fjórar milljónir og
átta hundruð þúsund krónur.
Hækkunin nemur 201.600.000.00 —
tvö hundruð go einni milljón og
sex hundruð þúsund krónum.
Hinir gullvægu möguleikar,
sem skapast af þvi að spila
„LANGSUM” og „ÞVERSUM”
eru enn i fullu gildi. Þegar spilað
er ,, ÞVERSUM” á maður tvo,
þrjá eða fjóra miða, E, F, G eða
H, af sama númeri. Sé spilað á
tvo miða, tvöfaldast vinningur-
inn, þrefaldast með þremur
miðjum og fjórir miðar fjórfalda
vinninginn. Nú, þegar likur á
stórum vinningum, fimmtiu
þúsund og þar fyrir ofan, hafa
fjórfaldast, á getur það gert
gæfumuninn aðspila á E, F, G, H
(„ÞVERSUM”), á fjdrða miða af
sama númeri. Þegar talað er um
aðspila „LANGSUM”, er átt við
númeraraðir, en það hefur verið
mjög vinsælt.
Umboðsmaður i 40 ár
Happdrætti Háskólans stendur i
mikilli þakkarskuld við hina
fjölmörgu umboðsmenn sina viðs
vegar um landið, ekki aðeins
vegna dugnaðar þeirra við sölu
happdrættismiða, heldur einnig
fyriraðtengja Háskólann sjálfan,
sem Happdrætti H.í. vinnur fyrir,
betur við landsbyggðina.
1 hópi þeirra 98 umboðsmanna,
sem störfuðu fyrir Happdrættið á
siðasta ári, er einn, sem verið
hefur umboðsmaður frá upphafi
eða i 40 ár. Það er hinn kunni at-
hafnamaður Einar Guðfinnsson i
Bolungavik.
Þau sem unnu
t tólfta flokki eru fjórir tveggja
milljóna krónu vinningar sem
kunnugt er. Þegar dregið var i
desember hlutu eftirtaldir
viðskiptavinir happdrættisins þá
vinninga : Þorkell Guðfinnsson og
Edda Snorradóttir. kona hans,
Aki Heinz Haraldsson og unnusta
hans Jóna Dóra Kristinsdóttir.
Þau eru öll búsett i Vestmanna-
eyjum. Umboðsmenn i Eyjum
eru hjónin Sveinbjörn Hjálmars-
son og Erna Jóhannesdóttir.
Lánið lék við Stokkseyringa eins
og fyrri daginn og þar hlutu
vinninga þau hjónin Hörður Páls-
son og eiginkona hans Margrét
Sturlaugsdóttir og Viktor Tómas-
son og systir hans Kristin.
Umboðsmaður á Stokkseyri er
Marta Bibi Guðmundsdóttir. Þá
hlutu þau hjón Hermann Sigurðs-
sonogGréta Jónsdóttirá Isafirði
tveggja milljóna króna vinning.
Umboðsmaður þar vestra er
Gunnlaugur Jónasson.
Blaðamaður Timans hafði tal
af tveimur þeirra, sem urðu
tveimur milljónum króna rikari
núna fyrir jóíin.
— Það hefur nú lengst af verið
svo, þegar gluggað hefur verið i
vinningaskrána, að þá hefur
maður ekki haft fyrir þvi að lita á
númerin á þeim miðum, sem
hlotið hafa hæsta vinninga sagði
Áki Heinz Haraldsson frá Eyj
um, þvi að þar er vonin minnst.
Maður hefur byrjað á þvi að lita á
fimm og tiu þúsund króna
vinninga. Ég er nú ekki hjátrúar-
fullur, en ég get samt sagt frá þvi,
að eitt nóvemberkvöld núna i
haust var ég á gangi við Landa-
kirkju, og kom þá auga á
stjörnuhrap. Þá rann mér i húg,
það sem sagt er, að menn megi
óska sér einhvers, þegar þeir sjá
slikt náttúrufyrirbæri. Þá óskaði
égmérþess að ég fengi milljón i
happdrætti og viti menn — það
rættist i desember. Milljónirnar
voru þó tvær en ekki ein og
reyndar tvö hundruð þúsund
krónúm betur, þvi að við fengum
tvo aukavinninga.
Ég get ekki neitað þvi, sagði
Áki, að hjartsláttur minn örvaðist
nokkuð, þegar ég fékk að vita, að
við værum orðin rösklega tveim-
ur milljónum rikari. Þetta kemur
sér óneitanlega vel fyrir okkur,
þvi að við erum að leggja i húsa-
kaup.
— Mér datt nú fyrst i hug, að eitt-
hvað slæmt hefði gerzt, þegar
hringt var i mig, sagði Gréta
Jónsdóttir frá ísafirði. En það var
nú eitthvað annað eins og kom á
daginn. Við hjónin eigum þrjá
miða og fyrir tveimur árum feng-
um við tiu þúsund á sama
númerið og við fengum tvær
milljónir á núna. Ég er varla búin
að jafna mig eftirað hafa orðið
fyrir þessu happi. Við hjónin
höfum ekkert ákveðið i hvað við
verjum peningunum, sagði Gréta
að lokum.
Þá höfum við tal af Mörtu Bibi
Guðmundsdóttur, sem er um-
boðsmaður happdrættisins á
Stokkseyri, þótt hún sé reyndar
póst- og simstöðvarstjóri þeirra
Stokkseyringa að aðalatvinnu.
Marta Bibi er ættuð frá tsafirði og
var á sinum tima landskunn
skiðakona.
— Það er vist óhætt að segja, að
happdrættið stendur ekki undir
sér, að þvi er Stokkseyri varðar,
sagði Marta Bibi. Þetta er annað
árið i röð, sem hæsti vinningur
kemur á miða á Stokkseyri, enda
eru allir miðar uppseldir hjá mér,
og ég er búin að biðja um fleiri.
Og auðvitað þorir enginn að
hætta, sem eitt sinn er búinn að
kaupa miða.
Þau Hörður Pálsson og
Márgrét Sturlaugsdóttir héldu að
ég væri bara að grinast, þegar
ég sagði þeim frá vinningnum.
Þessi vinningur skiptist á tvo
miða og hinn hlutann hlaut Viktor
Tómason.
Það er þannig i litlum þorpum á
borð við Stokkseyri, að þar sam-
gleðjast allir þeim, sem happið
fellur i skaut, sagði Marta Bibi.
554 VISTMENN AÐ GRUND
OG ÁSI
t ARSBYRJUN voru vistmenn
368, 276 konur og 92 karlar.
A árinu komu 72 konur og 32
karlar eða 104 alls, en 31 kona og
12 karlar eða 43 alls fóru,44 konur
og 10 karlareða alls 54 létust á
árinu.
1 árslok voru vistmenn 375, 274
KOM EKKI TIL
ÞYRLUFLUGSINS
Mikið ísrek á Breiðafirði
konur og 101 karlar.
1 Asi-Asbyrgi i Hveragerði voru
vistmenn i ársbvrjun 149, 85
konur og 64 karlar.
A árinu komu þangað 51 kona og
37karlar eða 88 alls,34 konur og
23 karlar eða 57 alls fóru og ein
kona lézt.
1 árslok voru vistmenn 179, 101
konur og 78 karlar.
Samtals var heimilisfólkið á
stofnununum 375 konur og 179
karlar eða 554 alls og hafði þvi
fjölgað um 37 á árinu.
KG-Stykkishólmi. — isinn á
Breiðafirði hefur brotnaö upp i
þiðunni að undanförnu, og á
sunnudagskvöld hvessti af suðri
og rak þá allan is út úr Stykkis-
hólmshöfn.
Ekki kom til þess, aö þyrla yrði
fengintil þess að flytja hrúta út i
Breiðafjaröareyjar, þar eð ekki
viðraði til þess fyrstu dagana, er
þetta var til umræðu, og siðan
kom hlákan. Konráð Júliusson
hefur aftur á móti verið i stöðug-
um fjárflutningum á Sigurvon
siðan á laugardag, og á mánu
dagskvöldiö voru i eyjum úti ekki
nema hundrað ær, sem ekki hafði
tekizt að koma hrútum til. 1 gær,
þriðjudag, fór Sigurvonin inn i
Akureyjar, og var þá gert ráð
fyrir, að nær allar ær i eyjum
hefðu fengið hrút til sin.
Isrek er mjög mikiö á Breiða-
firði og sigling viða örðug og
hættuleg. Lónar isinn fram og
aftur eftir vindi og sjávarföllum
og er nú á leið norður yfir þar eð
suri'nanátt er. Nú i stórstraumi
mun losna enn frekar um isinn, og
getur hann jafnvel brotnað upp á
Hvammsfirði, ef vindar að ráði.
En hvassa austanátt þarf til þess
að isinn á Breiðafirði reki til hafs.
Framleiðslu
samvinnufélag
RAFVIRKJA
annast allar
almennar
raflagnir
og viðgerðir
TIMINN .
ER _
TROMP »
>MF _
#9
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐl
Reykjavik, 8. janúar 1974.
Laust starf
Félagsmálaráðuneytið vill ráða nú
þegar ritara til starfa hálfan daginn.
Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna rikisins.
Auglýsið í Tímanum
Aðalfundur Félags
Sameinuðu þjóðanna
AÐALFUNDUR Félags Saniein-
uðu þjóðanna á tslandi var hald-
inn i Þjóöleikhúskjaliaranuni 17.
des. s!.. Þar flutti formaður
fclagsins, Jóhannes Elfasson
bankastjóri, skýrslu stjórnar um
störf þess á liðnu ári.
1 henni kom m.a. fram, að vorið
1973 var haldin i Reykjavik ráð-
stefnu framkvæmdastjóra Sþ-
félaga frá öllum Norðurlöndun-
um, ásamt fulltrúum upplýsinga-
skrifstofu Sþ i Kaupmannahöfn.
24. okt. efndi félagið til fyrir-
lestrahalds i 18 gagnfræöa- og
menntaskólum i Reykjavik og ná-
grenni. 10. des. hélt félagið al-
mennan fund um mannréttindi i
tilefni 25 ára afmælis mannrétt-
indayfirlýsingar Sþ. I upphafi árs
1973 tók félagið að sér útsendingu
fréttabréfs upplýsingaskrifstofu
Sþ. Það kemur út 12 sinnum á ári i
eitt hundrað eintökum hvert, og
er einkum dreift til fjölmiðla.
Talsverðar umræður uröu á aðal-
fundinum um skýrsluna og
starfssvið félagsins.
Formaður félagsins fyrir næsta
starfsár var kjörinn Jóhannes
Eliasson. Aðrir i stjórn eru Bald-
vin Tryggvason, Helgi Eliasson,
Knútur Hallson og Sigriður J.
Magnússon. .1 varastjórn Björn
Þorsteinsson, Eiður Guðnason og
Guðmundur S. Alfreðsson.
Endurskoðendur Guðrún Er-
lendsdóttir og Jóhannes G.
Helgason. Framkvæmdastjóri
félagsins er Guðmundur S. Al-
freðsson.
SAMVIRKI
Barmahlíö 4jkSimi 15-4-60
t 14444 1
* 25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTUN
Amerískar
kuldaúlpur
Á
SP0RTVAL
| Hlemmtorgi — Simi 14390
Verð fró kr. 3.990,00