Tíminn - 19.01.1974, Síða 6
6
TÍMINN
Laugardagur 19. janúar 1974.
ÆLíHIjte r SimH
Bandarlkjamennirnir vift komuna til Kefiavikurflugvallar. Þeir voru hressir og kátir, þótt trúlega hafi einhverjum þeirra þótt kuldalegt um
aft litast. Ljósm.: Heimir Stígsson
BANDARÍKJAAAENN Á FERÐAAAÁLA
NÁAASKEIÐ Á HÓTEL LOFTLEIÐUAA
40 STLDENTAR frá háskólum og
menntaskólum i Bandarikjunum
komu til landsins á föstudags-
morgun, ásamt þremur
prófessorum og fræðslufulltrúa
alþjóðasambands hótelsölustjóra
I New York, David C. Dorf.
Stúdentarnir stunda allir nám i
hótelrekstri og ferðamálum, og
eru þeir hingað kdmnir að sækja
námskeiö um ferftamál, sem
viftkomandi menntastofnanir i
Bandarikjunum og alþjóðasam-
band hótelsölustjóra gengst fyrir
að Hótel Loftleiðum dagana 18. til
22. janúar.
Það er engin nýlunda fyrir
bandariska háskólanema i þess-
um greinum að sækja ferðamála-
námskeið eins og þetta, þvi að
þau eru haldin árlega og eru liður
I námi þeirra. En þetta er i fyrsta
sinn, að slikt námskeið er haldið
utan Bandarikjanna, og er til-
gangurinn aö kynnast af eigin
raun skipan ferðamála á Islandi.
Á námskeiðinu koma bandarisku
stúdentarnir þannig til með að
hlýða á mál ýmissa forráða-
manna hér á landi á hinum ýmsu
sviðum ferðamála og heimsækja
fyrirtæki og stofnanir.
Meðal þeirra Islendinga, sem
ávarpa stúdentana, verða
Brynjólfur Ingólfsson, ráðu-
neytisstjóri i samgöngumála-
ráðuneytinu, Sigurður Magnús-
son, forstjóri Ferðaskrifstofu
rikisins, Markús Orn Antonsson,
formaður ferðama'lanefndar
Reykjavikurborgar, ásamt full-
trúum i söludeild Loftleiða og frá
Hótel Loftleiðum. Að loknu nám-
skeiði fá stúdentarnir skirteini,
sem undirritað er af Brynjólfi
Ingólfssyni ráðuneytisstjóra og
Birgi tsleifi Gunnarssyni borgar-
stjóra Reykjavikurborgar.
Það er von þeirra fslendinga,
sem aðstoðað hafa við skipu-
lagningu námskeiðsins, að fleiri
slikar námsmannaheimsóknir
megi fylgja i kjölfar þessarar,
enda liggur tsland vel við ferð-
um þeirra, er eiga yfir Atlantsála
að sækja til að kynnast skipan
ferðamála á erlendri grund.
(jj ÚTBOÐ JJJ
Tilboð óskast um sölu á eftirfarandi efni fyrir Vatnsveitu
Reykjavikur:
1. 80 m stálpipum 800 mm.
2. 200 m stálpípuin 1000 inm.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
Tilboð verða opnuft á sama stað, þriftjudaginn 7. febrúar
1974, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Landhelgisgæzlan
Vélstjóra vantar á varðskip nú þegar.
Upplýsingar i sima 17650.
FÉLAGS-
FUNDUR
■
n==
::::
:===
::::
t:H
c::
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVtKUR
heldur félagsfund aft Hótel Esju sunnudaginn 20.
janúar kl. 14.
Fundarefni:
KJARAM ALIN
ÖFLUN VERKFALLSHEIMILDAR
Verzlunarmannafélag Reykjavlkur.
Verum virk í VR
UNNIÐ AÐ FYRSTU LANG-
TÍAAAÁÆTLUN FLUGLEIÐA
Ýmsir þættir 5 ára áætlunarinnar fullunnir, aðrir eiga
nokkuð í land. A.m.k. eina vél vantar í innanlandsflugið.
í millilandaflugið koma til greina DC 8, 10, 727 og 747
NÚ ER nálega fullbúin 5 ára
áætlun fyrir Flugleiðir h.f., en
nefnd hefur unnið að gerð
hennar á siðustu mánuðum.
Það er ekkert nýtt, ef menn
skyldu halda það, að islenzku
flugfélögin geri slikar lang-
tima áætlanir. Flugfélag ts-
lands hefur t.d. gert allt frá 5
upp i 15 ára áætlanir. En þetta
er fyrsta áætlun Flugfélagsins
og Loftleiða eftir sameining-
una i sumar. Áætlanir sem
þessar hafa einkum verið
gerðar I sambandi við flug-
vélakaup. Slikar áætlanir
gerði Flugfélagið m.a. i sam-
bandi við Fokker Friendship
flugvélakaupin forðum, og
siðar i sambandi við kaup á
Boeing 727 þotunum. Þessar
áætlanir eru siðan alltaf i
endurskoðun.
Sveinn Sæmundsson, blaða-
fulltrúi Flugfélags tslands,
sagði i viðtali við blaðið i gær,
að áætlun Flugleiöa væri við-
tækari en fyrri áætlanir og
tæki til alls flugsins, bæöi
millilandaflugs beggja félag-
anna og innanlandsflugsins. I
fyrsta lagi væri um að ræða
spá um flutningaþörfina, og i
þvi sambandi þörf á flug-
vélakaupum. Annars sagði
Sveinn, að þetta væri anzi
flókiö og viöamikið mál, sem
sjálfsagt yrði gert opinbert á
sinum tima. Væri ekki hægt að
segja um að svo stöddu,
hvenær áætlunin lægi fyrir.
Algjör skepnuskapur
Sveinn sagði, að flugvél
vantaði til viðbótar i innan-
landsflugið, Fokker eða aðra
gerð. og yrði tekin ákvörðun
um það innan skamms. — Það
er venjulega tekin ákvörðun
um mál sem þessi einhvern
tima um þetta leyti ársins,
sagði Sveinn.
Við spurðum Svein, hvort
hann héldi, að flugfélög litu al-
mennt björtum augum til
næstu ára.
— Ég hugsa, að það sé dálit-
ið misjafnt. t áramótaboð-
skapnum, sem forstjóri Al-
þjóðasambands flugfélaga gaf
út núna, gætir nokkurrar
svartsýni. Fyrst og fremst
kom hann þar inn á oliukrepp-
una. Hann hefur i huga far-
þegaflug um allan heim, og
það sem einnig gerir hann
svartsýnan, er að ekki skuli
hafa tekizt að stöðva flugránin
gersamlega, eins og Alþjóða-
samband flugfélaga, Alþjóða-
flugmálastofnun og fjölda
margir aðrir aðilar háfa lagt
alveg feiknalega áherzlu á og
vinnu i að fá framgengt, sagði
Sveinn.
En þótt haldnar hafi verið
alþjóðlegar ráðstefnur um
þessi mál, hafa viss lönd ekki
verið reiðubúin að fordæma
flugránin og undirskrifa, að
þau muni ekki veita flug-
ræningjum hæli. A þvi hefur
strandað, en þetta eru fyrst og
fremst hin svokölluðu
þróunarlönd, Arabalöndin o.fl.
Og þessi lönd hafa haldið þvi
fram, að þetta myndi koma
niftur á hinum ýmsu frelsis-
hreyfingum þar um slóðir. En
náttúrulega er það algjör
skepnuskapur, hvernig þetta
hefur verið framkvæmt.
Margar blikur
á lofti
— En eruð þið svartsýnir?
— Ég held nú, að ekki sé
ástæða til svartsýni, sagði
Framhaid á bls. 10
JjJ ÚTBOÐ |jj
Tilboö óskast um sölu á eftirtöldu efni fyrir Hitaveitu
Reykjavikur:
A. 1700 rúmm. steinullar einangrun fyrir pipur af ýmsum
stærðum.
B. 7.465 stk. lokar af ýmsum stærftum og geröum.
C. I.:i63 stk. suftufittings af ýmsum stærftum og gerftum.
Hér er um þrjú sjálfstæð útboð að ræða.
Útboðsskilmálar eru afhentir i skrifstofu vorri.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800