Tíminn - 08.02.1974, Side 2

Tíminn - 08.02.1974, Side 2
2’ TÍMINN Föstudagur 8. febrúar 1974. Föstudagur 8. febrúar 1974 Vatnsberin (20. ian.—18. febr.) Þú skalt rifja upp fyrir þér, hvort þú hafir ekki fengið tilboð frá einhverjum ættingja þinum ný- lega, og þú skalt ganga að þvi. Það bendir margt til þess, að ef þú beitir þér að ákveðnu verkefni, þá getir þú aukið mjög þroska þinn. Fiskarnir (19. febr.—20. marz) Það litur helzt út fyrir, að i dag opnist þér ein- hver ný leið, sem þig hefur lengi dreymt um. Það er ekki að vita, nema þú ættir að halda þig heima i kvöld. Lestur fræðandi bóka er þér mjög hagstæður um þessar mundir. Hrúturinn (21. marz—rl9. april) t dag og i kvöld ættir þú að taka einveruna fram fyrir samkvæmislifið og mannfjöldann. Sérstak- lega skaltu taka lifinu með ró, þegar fer að liða að kvöldi, og huga þá að áhugamálunum eða tómstundaiðjunni heima fyrir. Nautið (20. april—20. mai) Þú kemur á einhvern stað, þar sem þú kynnist mörgu fólki. Fæst þessara kynna munu vara nokkuð, en það er þó aldrei að vita, nema þú kunnir að hafa af þeim einhverja ánægju. Farðu varlega i fjármálunum — venju fremur. Tviburar (21. mai—20. júní) Þú skalt ekki hafa mikið um þig i dag og reyna aö fresta þvi til morguns, sem þú þarft ekki al- veg bráðnauðsynlega að gera i dag. Það eru sér- stakar ástæður fyrir þvi, að þú skalt láta fara eins litið fyrir þér og þú getur. Krabbinn (21. júni—22. júli) Það er rétt eins og þú sért ekki i sem beztu skapi i dag, og þú munt þó nokkrum sinnum verða að halda aftur af þér. En það litur nú samt ekki út fyrir, að þessi dagur hafi sérlega slæm áhrif, nema þú sleppir þér alveg. Ljónið (23. júli—23. ágúst) Þetta er hálf-varhugaverður dagur, sérstaklega ef þú ert að fara til fundar við ástvin þinn. Þú gerðir viturlega i þvi að eyða nokkrum tima i það að lagfæra að nýju verk, sem gengið hefur úr skorðum, jafnvel þótt ekki sé af þinum völd- um. Jómfrúin (23. ágúst—22. sept.) Kunningi þinn einhver kemur að máli við þig i dag, og þú skalt veit þvi eftirtekt, sem hann seg- ir, þvi að það litur út fyrir, að hann sé að reyna að opna augu þin fyrir nýjungum, sem gætu orð- ið þér til bóta við áhugamál þin — á ýmsum svið- um. Vogin (23. sept.—22. okt.) Það er hætt við, að þú verðir fyrir einhverjum vonbrigðum i dag, sem þú tekur talsvert nærri þér. Það litur út fyrir, að einhverjar breytingar verði á næstunni á högum þinum, ef til vill i sam- bandi við starf, jafnvel flutningar. Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.) Allt, sem þú gerir á þessum degi, skaltu hugsa þig vandlega um, sérstaklega það sem þú skrif- ar. Samningsgerðir eru sérstaklega varasamar, og ef þú gáir ekki þvi betur að þér, er hætt við,að þú verðir fyrir afleitu skakkafalli. Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.) Þér hefur verið falið að reka eitthvert erindi, eða koma fram fyrir einhvers hönd, og þaö tekst þér alveg með ágætum. Likur eru á þvi, að þú fáir heimsókn einhvers kunningja þins, sem flytur þér góð tiðindi. Steingeitin (22. des.—j-19. jan.) Þú heldur, að þú getir afkastað miklu meira en raun ber vitni, og þetta kemur niður á þinum nánustu, þvi að þú verður úrillur og uppstökkur. Veltu þessu fyrir þér af fullkominni gagnrýni, og þá er aldrei að vita, nema þú finnir lausn. Auglýsið í Tímanum 1 14444 -M muam *■ 25555 BÍLALEIGA CAR RENTAL BORGARTUIM Vökustaurar Einn ábúðarmesti sjónvarps- þátturinn er VAKA, þar sem menn stynja undan gáfum og talað er við „útvalda” listamenn, eins og heilaga menn. Hver þátt- ur er þannig eins konar upprisu- hátið. Þegar fjallað er um myndlist i Vöku, skilur undirritaður oft minnst. Þó skal undanskilinn Björn Th. Björnsson, sem er ágætur, þótt skoðanir okkar fari ekki alltaf I sama farveg, er þvi illt til þess að vita, að hann hættir i Vöku. Þú situr undir lestri og á skerminum birtist kommi eftir komma, endalaus röð af heilög- um mönnum og við þá er oftast rætt i oflofsstil og fjálgleik. Nú er það svo, að mér er hjartanlega sama, hvað sagt er i sjónvarpinu um listir — á ekki von á neinu af viti, þvi ég er vist orðinn gamall SAMVIRKI AA/s Hekla fer frá Reykjavik fimmtu- daginn 14. þ.m. vestur um land i hringferð. Vörumóttaka: mánudag, þriðjudag og miðvikudag til Vestfjarða- hafna, Norðurfjarðar, Sigiu- fjarðar, óiafsfjarðar, Akur- eyrar, Húsavikur, Raufar- hafnar, Þórshafnar, Bakka- fjarðar, Vopnafjarðar og Borgarfjarðar. HALLDÓEI Skóla vörðustig 2 — Simi 1-33-34 (43) og sit oftast einn i minu myrkri og „sem” persónur, sem eru svo hræðilega gamaldags að þær hafa ekki einu sinni getnaðarlim út úr bakinu eins og barnið hafði hjá honum þessum, sem kom seinast og eldaði bækur. (Hann var nú annars skemmti- legur). Það skiptir mig i rauninni engu máli hvað kommar skrifa og hvernig kommar mála. Það heitir formyrkvun. En það má brýna deigt járn svo biti. Reykjavikurborg tekur niður málverk af snögum útum allt og hengir upp á Kjarvalsstöðum. Til þess arna voru fengnir þrir menn: Einar Hákonarson, Guð- mundur Benediktsson, og Sigur- jón Ólafsson. Þessar myndir hafði borgin keypt, þegið að gjöf, ellegar tekið upp i skuldir á lög- boðnum gjöldum, þvi listamenn greiða lika opinber gjöld — og eiga að gera. Satt að segja þá undraðist ég, er ég sótti þessa sýningu, hversu góða mynd hún gaf málaralist seinustu áratuga. Þarna voru þeir allir: Jón Stefánsson, Asgrimur Jónsson, Höskuldur Björnsson, Engilberts, Kristin Jónsdóttir, Júliana Sveinsdóttir og meistari Kjarval svo hinum megin I húsinu með ef til vill sina mestu dýrgripi. Það sem maður undraðist þó hvað mest. var hversu góð eintök borgin átti af verkum þessara látnu snill- inga. — Svo voru abstrakt- mennirnir, sem nú eru liklega aö verða gamlir lika og þvi ef til vill ekki móðins lengur, Þorvaldur Skúlason, Valtýr Pétursson, Jóhannes Jóhannesson, Kristján Daviðsson, Karl Kvaran, Kjartan Guðjónsson og Svavar Guðnason. Lika margir aðrir, sem ekki er hægt að nefna hér — og svo allt unga fólkið, Súmarar og sýningarhópurinn frá þvi i fyrra vetur, Einar Hákonarson, Sigurður örlygsson, Magnús Kjartansson, Þorbjörg Höskulds- dóttir og fleiri og fleiri. Reykjavikurborg hefur keypt og eignazt myndir á löngum tima. Hún hefur reynt margt til að hlynna að listum, ekki þá sizt myndlist, og nú er borgin gagnrýnd harðlega og ómaklega i sjónvarpinu fyrir listaverka- kaupin, af þvi að sýningin gefi ekki rétta mynd af „formbylting- unni” i myndlist á Islandi. Það getur vel verið að þeir i VÖKU haldi að tslendingar hafi fundið upp abstraktið, eins og maðurinn, sem hélt að Borgfirðingar hefðu fundið upp kartöflurnar! Ég skal að visu taka undir það, að borgin mætti eiga meira af málverkum Þorvaldar Skúlasonar, meira af málverkum eftir alla mögulega menn, en hræddur er ég um að „nefnd sérfræðinga” myndi litið bæta úr. Visast þar t.d. til lista- verkakaupa Listasafns tslands, þar sem hver tekur i nefið á sjálfum sér. (Að visu er farið með þau listaverkakaup, eins og mannsmorð) og ekki hefur sú „sérfræðinganefnd” tryggt það, að „keypt væri grafik” þvi meðan hundruðum þúsunda hefur verið varið til kaupa á málverkum, til að sanna „formbyltinguna” og varðveita hana, hefur verið keypt grafik eftir útlendinga fyrir nokk- ur þúsund krónur, og ef farið er tvö til fimm ár aftur i tlmann, má telja grafikmyndir eftir islenzka listamenn á fingrum sér og þúsundirnar lika. Guð forði þvi Reykjavikurborg frá enn einni sérfræðinganefndinni af þessu tagi! Þá vil ég einnig mótmæla árásinni á Ásmund Sveinsson myndhöggvara, sem var smekkleysa. Að lokum vil ég þakka aðstand- endum sýningarinnar fyrir ágæta vinnu og þá auðvitað þeim, sem valið hafa myndirnar á sýning- una, nefndinni. Ég er lika sam- mála um það, að „Þytur”, hin fræga mynd Þorvaldar Skúla- sonar átti þarna ekki heima. Hún hangir fyrir augum þúsundanna og enga opinbera mynd á tslandi ber eins oft fyrir sjónir manna, þvi hún er hengd upp á bezta stað i Laugardalshöllinni, þar sem hundruð þúsunda sjá hana á hverju ári, og hefur hún nú eignazt álika marga vini og sápuklukkan á Lækjartorgi. Sýningin er borginni til mikils Sóma. Jónas Guðniuiidsson. Fyrstir á morgnana HVERAGEROI •nnheimto Tímons f Hv® Simi 4225. nveragerð/. blo8ið fromvegis verðo Hl haupenda doje^ pjwíiiÍiÉiÍllilÍ^ ^

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.