Tíminn - 08.02.1974, Blaðsíða 15

Tíminn - 08.02.1974, Blaðsíða 15
Föstudagur 8. febrúar 1974. TÍMINN 15 Umsjón og ábyrgð: Samband ungra framsóknarmanna. Ritstjórar og ábyrgðarmenn fyrir hönd stjórnar SUF: Ólafur. Ragnar Grimsson, Pétur Einarsson. Unga fólkið vill herinn burt! Æskulýðssa mtök fjögurra st jórnm álaflokka hafa gert svohljóðandi samþykkt: „S a ni b a n d u n g r a framsóknarmanna, Samband ungra jafnaðarmanna, Æskulýðsnefnd Alþýðubanda- lagsins, og Æskulýðsnefnd Samtaka frjálslyndra og vinstri manna krefjast þess, að rikis- stjórnin standi við það loforð sitt, að allur her verði horfinn frá islandi fyrir lok kjörtima- bilsins. Rikisstjórninni ber nú þegar skylda til að leita heimildar Alþingis til uppsagnar varnar- samningsins við Bandariki Norður-Ameriku frá 1951 og beita þeirri heimild, ef ekki næst samkomulag um brottför alls herliðs i fyrirhuguðum febrúarviðræðum islendinga og Bandarikjamanna. Þurfi herflugvélar á vegum NATO að fá lendingarleyfi hér á landi i sérstökum tilfellum, eftir að samningurinn er úr gildi fallin, skal allri fyrirgreiðslu viö þær vera eins háttað og við aðrar flugvélar. öll störf á Keflavikurflugvelli, þar með talin flugþjónusta og löggæ/.la, skulu að sjálfsögðu vera i hönd- um íslendinga.” Forystugrein Framsóknarflokkurinn og brottför hersins Á flokksþingi Framsóknarflokksins 1967 varð einróma samkomu- lag um þá stefnu i herstöðvamálinu, að bandariski herinn ætti að fara af landinu i áföngum á einu kjörtimabili. Fyrir þann tima var stefna flokksins i aðalatriðum sú, að með tilliti til fyrirvarans frá 1949 um, að hér ætti ekki að vera her né herstöðvar á friðartimum, væri rétt að herinn færi úr landinu þegar fært þætti. Arið 1967 var sem sagt kveðið mun fastar að orði og þvi lýst yfir, að herinn ætti að fara á tilteknu timabili. Á flokksþinginu 1971 var þessi stefna skýrt itrekuð og brottför hersins gerð að einu af átta stærstu baráttumálum Framsóknar- flokksins i þingkosningunum það ár. Við myndum núverandi rikisstjórnar var fullt samkomulag milli stjórnarflokkanna um, að framkvæma ætti þessa stefnu á þvi kjör- timabili vinstri stjórnarinnar, sem nú er rúmlega hálfnað. t mál- efnasamningnum var þvi ákveðið, að samningurinn við Bandaríkin frá 1951 skyldi tekinn til endurskoðunar eða uppsagnar i þvi skyni, að bandariski herinn færi brott af landinu, og gefið skýlaust fyrir- heitum, að þessi brottför ættisér staðá kjörtimabilinu. Einar Ágústsson, utanrikisráðherra, sagði um þessa ótviræðu stefnuyfirlýsingu á miðstjórnarfundi SUF I nóvember 1971: „Stefnumark okkar er það, að við viljum, að hið erlenda varnarlið hverfi úr landi i áföngum, og ósk okkar er sú, að það geti átt sér stað á kjörtimabilinu. Ákvæði málefnasamnings rikisstjórnarinnar eru samhljóða stefnu Framsóknarflokksins, sem áréttuð hefur verið á mörgum flokksþingum. Þvi verður að ætla, að mikill meirihluti okkar fólks geri sér vonir um, að varnarliðið geti farið,nema eitt- hvað sérstakt komi til”. Hina siðustu mánuði hefur krafan um, að skýlaust verði staðið við þetta fyrirheit, verið samþykkt á ýmsum kjördæmisþingum fram- sóknarmanna, svo sem i Norðurlandskjördæmi vestra, á Vestur- landi, Suðurlandi og nú siðast i Reykjaneskjördæmi. Krafan um, að staðið verði að fullu og öllu við fyrirheitið um brottför hersins á kjörtimabilinu, er þvi borin fram af trúnaðarmönnum Fram- sóknarflokksins um allt land. Forystan hvött til að svíkja stefnuna Margir framsóknarmenn hafa lengi bent á, að innan Fram- sóknarflokksins vaíri hópur manna, sem i reynd væri ekki sammála ýmsum grundvallaratriðum istefnu flokksins. Þessi hópur vildi t.d. áframhaldandi hersetu i landinu. Jafnframt hefur verið bent á, að þessi hópur, sem er fyrst og fremst á Reykjavikursvæðinu, hefði, i krafti aðstöðu og fjármagns, slik áhrif og völd innan flokksins, að óeðlilegt væri, jafnt með tilliti til raunverulegra skoðana sem og fylgis hópsins meðal flokksmanna. Sumir af forystumönnum flokksins hafa mótmælt þessu harðlega, og fullyrt, að „illgresið” i flokknum væri með ,,róg” um „góðu ræktunarmennina”, sem unnið hefðu mikið og fórnfúst starf fyrir Framsóknarflokkinn. Nú hafa hins vegar sumir af forystumönnum þessa valdahóps komið út úr skúmaskotunum, þar sem þeir hafa lengi falið sig, þannig að flokksmenn og reyndar alþjóð má þá bæði sjá og heyra. Þessir menn hafa afhent forystumönnum flokksins sérstakt ávarp, ásamt undirskrift 32 manna, sem reyndar segjast afhenda ávarpið fyrir hönd 170 framsóknarmanna. Hverjir þessir 138 huldumenn eru, fá flokksmenn ekki að vita. Helst er að fá um þá upplýsingar á siðum Morgunblaðsins, sem reyndar virðist hafa fengið samkeppni frá Timanum undanfarið sem málgagn hernámssinna i landinu. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa framsóknarmanna, að þessir „máttarstólpar Framsóknarflokksins", eins og ihaldið kallar þá, láti nafna sinna getið. Avarp þessara 32 ,,170-menninga” felur i reynd i sér áskorun til forystumanna flokksins um að svikja þá stefnu, serh flokksþing Framsóknarflokksins hafa einróma mótað hvað eftir annað og sem kjördæmisþing viða um landið hafa itrekað nú hina siðustu mánuði. Jafnframt felur það I sér áskorun til ráðherra og þingmanna flokksins að fella með slíkum svikum núverandi rikisstjórn frú völdum. Það er þvi ekki að furða, að Morgunblaðið rjúki upp til handa og fóta og fagni þessum 32 „máttarstólpum Framsóknarflokksins” sem sönnum skoðanabræðrum ihaldsins, eða eins og Morgunblaðið sagði 1. febrúar s.l.: „Undir hvert einasta orð, sem I þessari yfirlýsingu stendur, getur Morgunblaðið tekið”. Morgunblaðið fagnar alveg sérstaklega þeirri yfirlýsingu þessara 32 ,,170-menninga”, að ekki sé tímabært „að gera grundvallar- brcytingar á núverandi öryggismálasamstarfi við Bandarikin og Atlantshafsbandalagið”. Og blaðið heldur áfram i fagnandi tón: „Askorun þessi mun þykja miklum tiðindum sæta og efla stöðu þeirra ábyrgu afla i þingflokki Framsóknarflokksins og rikisstjórn, sem vilja fara mjög varlega i allar breytingar á fyrirkomulagi varnanna”. Enginn hyggst banna þessum 32 mönnum að hafa hvaða þá skoð- un á herstöðvamálinu, sem þeir vilja. Og þeim er auðvitað einnig heimilt að koma þeirri skoðun sinni á framfæri með hverjum þeim hætti, sem þeir telja heppilegast. Hins vegar hlýtur það að vera ámælisvert framferði gagnvart flokksmönnum, að hafa ekki látið þessa skoðun koma ótvirætt I ljós á flokksþingum framsóknarmanna, þar sem stefna flokksins hefur verið mótuð. Þar heyrðust ekki þær raddir þessara manna, sem nú hljóma sem ástaróður i eyrum Morgunblaðsmanna. Þvert á móti hafa margir þessara manna staðið að samþykktum flokksþinganna um brottför hersins. Slikur tviskinnungur er óverjandi. Það er cinnig óvcrjandi, að forysta flokksins láti það nú liðast, að þeim mönnum, sem hvatt hafa hana til að svikja grundvallaratriði i stefnu flokksins, skuli áfram vera falið að túlka stefnu flokksins fyr- ir landsmönnum. Og það er sömuleiðis óverjandi, ef forysta flokksins lætur sjónar- mið þessara manna — jafnt þeirra, sem skrifað hafa undir, og hinna, sem róa ú bakvið, en dvelja enn I skúmaskotunum — verða til þess, að reynd verði einhver „millilausn”, sem enginn getur sætt sig við. 1 þessu máli er einfaldlega ekki um neina „millilausn” að ræða. Annað hvort fer herinn, eða hann fer ekki. Það þarf engan speking til að sjá, að herinn getur ekki bæði farið og veriö. Allar til- lögur, sem gera ráð fyrir áframhaldandi starfsemi erlends hers á Keflavíkurflugvelli, gera um Ieið ráð fyrir, að her verði áfram i landinu. Það fer ekki lengur framhjá neinum, að sá djúpstæði málefna- ágreiningur, sem er innan Framsóknarflokksins, er sifellt að koma skýrar I ljós. Við, sem höfum barizt fyrir þvi, að sú stefna, sem flokksþing hafa markað, verði undanbragðaiaust framkvæmd, hljótum aðberjastaf alefli gegn öllum þeim, sem vilja svikja stefnu flokksins. Allir flokksmenn, sem trúa á grundvallaratriðin i stefnu Fram- sóknarflokksins, liljóta að taka þátt i þeirri baráttu. Við skulum þvi sýna vilja okkar i verki og slá skjaldborg um skýra stefnu flokks- þinga Framsóknarflokksins, og tryggja framgang hennar. Stjórn SUF hefur sent frá sér yfirlýsingu um, með hvaða hætti eðlilegt er að framkvæma þá stefnu. Fréttatilkynning þar um var send Timan- um, eins og öðrum fjölmiðlum, en hefur ekki birzt þar enn. 1 þessari yfirlýsingu er gert ráðfyrir að Bandarikjamönnum verði afhentar lokatillögur Islendinga, sem feli i sér eftirfarandi meginatriði: 1. Allur bandariskur her verði af landinu fyrir 1. marz 1975. Brott- flutningurinn eigi sér stað i áföngum fram til þess tima. Jafn- framt falli varnarsamningurinn frá 1951 úr gildi frá og með sama tima. 2. Til þess að uppfylla skyldur sinar við NATO vegna NATO-samn- ingsins og fyrirvarans frá 1949, fallist tslendingar á eftirfarandi fyrirgreiðslu við NATO: a. Herflugvélar á vegum NATO fái hér á landi lendingarleyfi vegna viðgerða og til eldsneytistöku i sérstökum tilfellum. b. Þessi þjónusta við NATO-herflugvélar verði í höndum inn- lendra aðila eins og önnur þjónusta við flugvélar á Keflavikur- flugvelli. c. Löggæzlustörf á Keflavikurflugvelli verði aö öllu leyti I höndum islenzku lögreglunnar og undir islenzkri stjórn. d. Hafi NATO áhuga á, að radarstöövarnar á Suðurnesjum og Hornafirði verði starfræktar áfram, muni islendingar taka við rekstri þeirra og reka þær á sama hátt og innlendar radar- stöðvar aÁrar. Gert er ráð fyrir, að jafnframt þvi, sem þessar lokatillögur verði lagðar fram, óski rikisstjórnin eftir heimild Alþingis til að segja samningnum frá 1951 upp. Þessi heimild liggi siðan fyrir, þegar frestui, sem Bandarikjamönnúm verður gefinn til að svara lokatil- lögunum, rennur út. Verði svar Bandaríkjamanna ekki jákvætt, beri að nota heimildina og segja samningnum frá 1951 upp til að ná á þann hátt ofangreindum markmiðum. Með þessu móti væri stefna Framsóknarflokksins og fyrirheit málefnasamningsins framkvæmt á eðlilegan hátt. Sýnum þá sam- stöðu, sem dugir til að sannfæra alla stjórnarsinna um, að fráhvarf frá slikri skýlausri framkvæmd fyrirheitsins verður alls ekki þolað. , —EJ. Fylkjum okkur um stefnu flokksþinganna Stefnan verði fram- kvæmd undanbragðalaust JÖN SKAFTASON er alþingis- maður framsóknarmanna i Reykjaneskjördæmi. Hann sat sem slikur siðasta kjördæmis- þing framsóknarmanna, sem haldið var i Hafnarfirði 25. nóvember 1973. Hann var i stjórnmálanefnd þingsins og samþykkti þar tillögu i varnar- málum, sem þingið siðan gerði að sinni. 1 tillögunni fagnar þingið þvi „að nú stendur yfir formleg endurskoðun á varnar- samningnum við Bandarikin frá 1951. Þingið telur, að ef endur- skoðunin leiðir ekki til nýrra samninga við Bandarikjamenn á endurskoðunartímanum hljóti tslendingar að segja samningnum einhliða upp. Leggur þingið áherzlu á þá stefnu rikisstjórnarinnar og Framsóknarflokksins, að stefnt skuli að þvi, að bandariska her- liðið hverfi af landi brott fyrir lok kjörtimabilsins.” Eitt meginefni þessarar samþykktar er, að það er ákveðið fyrirfram, að ef endur- skoðunin leiðir ekki til sam- komulags, þá skuli einhliða uppsögn koma til af islendinga hájfu. ,'iri Skaftason er álþingr#- muður framsóknarmanna í ReyKjar.eskjördæmi. Han:: situr þv. i þingflokki F'ramsóknar- flokksins. Hann lét bóka þar sérstakan fyrirvara i varnar- málum 21. janúar 1974. Þennan fyrirvara hefur hann birt ásamt athugasemdum i blöðum, svo- hljóðandi: „Ég hef ekkert við það að at- huga, að utanrikisráðherra leggi þessa punkta fram sem sina I rikisstjórninni sem um- ræðugrundvöll, eða að hann leggi þá fram i viðræðum við Bandarikjamenn. Ég undir- strika, að náist ekki samkomu- lag um þá við Bandarfkja- menn, er ég ekki bundinn fyrir- fram um stuðning við upp- s a g n a r t i 1 1 ö g u v a r n a r - samningsins skv. 7. grein, er kynni að vera flutt." Og athugasemdin: „Afstaða min i þessu máli hefur allt frá byrjun verið sú, að þá fyrst, þegar endurskoðun er lokið og niðurstöður hafa verið kynntar i þingflokki fram- sóknarmanna, sé timabært að taka afstöðu til tveggja kosta. þ.e. annars vegar uppsagnar samningsins og hins vegar breytts samnings. Þessari stefnu re.vni ég að framfylgja eftir getu og bind mig hvergi fyrirfram.”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.