Tíminn - 08.02.1974, Síða 9

Tíminn - 08.02.1974, Síða 9
Föstudagur 8. febrúar 1974. iTÍMINN 9 iiíliinlllliii B Þjóðaratkvæði skilnað á Ítalíu um Italir eru að búa sig undir þjóðaratkvæðagreiðslu. Liklega fer hún fram fyrsta sunnudaginn i mai og efnið eru hin umdeildu hjónaskilnaðarlög. Þetta skilnaðarstrið á Italiu á sér orðið tiu ára sögu, en sjálf lögin voru samþykkt fyrir þremur árum. Undanfarin tvö ár hafa farið i að togast á um hvort þjóðaratkvæðagreiðsla um lögin skuli fara fram eða ekki. Ógnin um atkvæðagreiðsluna hefur legið eins og mara á italska stjórnmálalifinu og vissulega mun öllum létta, þegar loks er séð fram á einhver úrslit i málinu. t fyrri viku varð ljóst, að ekki verður komið á neinni mála- miðlun og eins og oftast eru það stjórnmálamennirnir, sem ráða þessu öllu. Astandið i sumum flokkunum er orðið þannig, að við klofningi liggur vegna málsins. Sósialistar lögðu fram málamiðlunartillögu, sem fékk þó nokkurn stuðning jafnaðarmanna og republikana, en hægriflokkurinn var andvigur. Kommúnistaflokkurinn var lengi á báðum áttum, en ákvað svo fyrir skömmu, að greiða atkvæði með þvi, að þeir sem væru borgaralega giftir, gætu fengið skilnað, en ekki þeir sem væru kirkjulega vigðir. En I öllum flokkum voru hópar, sem voru háværir gegn málamiðlun og sögðu það hrein og bein svik. Skilnaðarlögin voru drifin gegnum þingið eftir áralangar þvinganir frá hreyfingu, sem kallaðist „Samtök um hjóna- skilnað á ttaliu” skammstafað LID. Leiötogi samtakanna var sósialistinn Loris Fortuna. Þegar ljóst varð, að kaþólikkar voru að safna undirskriftum gegn lögunum, færði LID út baráttuna og barðist nú einnig fyrir þvi að fellt væri úr gildi allt samkomulag milli rikis og kirkju (konkordatið) og auk þess fyrir frjálsum fóstureyðingum. LID hefur gengizt fyrir mörgum skoðanakönnunum og var sú siðasta birt fyrir nokkrum dögum. Sýna úrslit, að aðeins 29,7% vilja afnema skilnaðar- lögin, 63,7% vilja halda þeim, en 7,2% hafa enga skoðun. Hlutfallið milli kynjanna er mjög jafnt um allt landið. Einnig. er jákvætt fyrir skilnaðarlögin, að hæsti- réttur landsins hefur úrskurðað, að leyfi til skilnaðar brjóti ekki i bága við hvorki stjórnarskrána né samkomulag rikis og kirkju. KOSNINGAR í LIECHTENSTEIN Um þessar mundir ganga menn tilkosninga i smárikinu Liechten- stein. Karlmenn einir hafa kosningarétt, en likast til verða þessar kosningar hinar siðustu, sem konum leyfist ekki að taka þátt i. Þrir flokkar, sem kallaðir eru hinir „rauðu, „svörtu” og „grænu” bitast um 4500 atkvæði að þessu sinni, en þeir hafa allir lýst sig fylgjandi kosningarétti kvenna, þannig að sennilega fá þær næst að kjósa þá fimmtán þingmenn, sem eiga sæti á þing- inu. Liechtenstein, sem er i ölpun- um á landamærum Sviss og Austurrikis, er eina landið i Evrópu, sem ekki hefur enn leitt i lög almennan kosningarétt. S.l. 26árhefur samsteypustjórn tveggja flokka, Föðurlands- flokksins, sem almenningur nefn- ir hina „rauðu” og Framfara- sinnaða borgaraflokksins, sem kallast hinir „svörtu”, verið við vold i Liechtenstein. Þessir flokk- ar eru báðir ihaldssamir. í kosningunum nú býður Kristilegi flokkurinn, hinir „grænuý einnig fram og stefnir að þvi að fá einn þingmann eða tvo, ef byrlega blæs. Til þess að flokkurinn komi manni að, þarf hann að fá a.m.k. átta hundraðs- hluta atkvæða samkvæmt kosningalögunum. Þá varð heldur engin skilnaðar- skriða eftir samþykkt laganna eins og kirkjan hafði spáð. Aðeins 50 þúsund hjón skildu fyrstu þrjú árin i 55 milljóna þjóð. Kaþólikkamegin er nú verið að undirbúa strið. Leiðtogi kirkju- legra samtaka þar er Luigi Gedda, sem eitt sinn var kallaður „hljóðnemi Guðs” Hann var bar- áttuhetja kirkjunnar 1947 og færði kaþólskum mikinn kosningasigur 1948. En timarnir hafa breytzt siðan þá og nú þorir kirkjan varla að bannfæra andstæðinga sina, eins og þegar Pius Páfi bannfærði kommúnista 1948. Opinberlega er það ekki kirkjan, sem krafizt hefur þjóðar- atkvæðagreiðslu, þó að Vatikanið Framhald á bls. 23 OLÍUKREPPAN STÓRJÓK GRÓÐA OLÍUHRINGANNA FREGNIR frá Bandarikjun- um herma, að ágóði hinna stóru alþjóðlegu oliuhringa hafi að meðaltali aukizt um 50% s.l. ár. Þá sýna árs- reikningar hringanna, að gróðinn varð mestur siðasta fjórðung ársins, þ.e. þá mánuði, sem Arabarikin minnkuðu oliuvinnsluna og oliukreppan s.k. skall á. Agóði Standard Oil óx um 54% á árinu i heild og um 94% siðasta fjórðung þess miðað við sama tima 1972. Gróði Exxon var var 59% á árinu i heiid og 59% siðasta fjórðung þess. Texaco jók ágóða sinn um 45% á árinu i heiid og 70% siðasta fjórðung þess. Gróðinn hjá Mobil var 47% á árinu i heild og 68% siðasta fjórðung þess. Þær upphæðir sem hér um ræðir eru ósmáar. Reiknað i dollurum græddi Exxon 1973 hvorki meira né minna en 2,44 milljarði. Texaco græddi 1.292 milljarði dollara, Mobil 843 milljónir dollara, Shell 333 milljónir dollara og Standard Oil 843,6 milljónir dollara. Oliuhringarnir gera ekkert til þess að ieyna þvi að gróði þeirra sé mikill, en halda þvi fram, að gróðinn sé nauðsynlegur. Margir oliu- hringanna hófu nýlega mikla auglýsingaherferð i Banda- rikjunum, sem ætlað er til að fá fólk á band oliuhringanna i þessu efni. 1 einni auglýsing- unni er t.d. spurt tveggja spurninga. Hin fyrri hljóðar svo: Er gróði oliufélaganna mikill? Svar: Já. Siðan er spurt: Er gróði oliufélaganna of mikili? Svar: Nei. Sfðan segir, að oliufélögin þurfi á einni billjón dollara að halda næsta áratuginn til rannsókna og vinnslu nýrra oliulinda. Bandarisku oliuhringarnir njóta mikilla skattfriðinda i heimalandi sinu. Áætlað hefur verið að með þvi móti geti þau á löglegan hátt dregið tvo milljarði undan skatti. Stjórn Suður-Kóreu riðar til falls „Stjórn Suður-Kóreu getur ekki haldið áfram á sömu braut. Hún stefnir beint að árekstri við ibúa landsins. Búast má við að átökin verði innan eins árs;og þá verður annar hvor aðilinn undir, stjórnin eða þegnarnir.” Þetta eru orð leiðtoga stjórnarandstöðunnar, Kim Dae Jung, og lét hann sér þau um munn fara, tveim mánuðum eftir að hann hlaut frelsi sitt á ný eftir ellefu mánaða varðhald, en honum var á sinum tima rænt i Tokió af KCIA, sem er öryggisþjónusta stjórnar Suður- Kóreu. A þeim tveim mánuðum siðan leiðtoga stjórnarandstöð- unnar var sleppt.hafa áhrif KCIA farið mikið minnkandi i landinu. Á sama tima hafa stúdenta- samtökin eflzt mjög og eru orðin svo sterkt pólitiskt afl, að ekki verður við annað jafnað en þegar þau komu 'þvi til leiðar, að Syngmann Rhee hrökklaðist frá völdum 1960. Mótmælagöngur, hungurverkföll og setuverkföll breiðast út sem eldur i sinu frá háskólanum i Seoul til nær aiira menntastofnana i landinu. Kirkjufélög, sem áður voru hlut- laus i stjórnmálaátökum. safna nú saman fé til varnar stúdentum i fangelsum og skipuleggja eigin mótmælagöngur. Hundruð blaða- manna styðja mótmælaaðgerð- irnar og krefjast þess að rit- skoðun KCIA verði afnumin. Meira en orðin tóm. Viðbrögð stjórnarinnar voru þau, að i desember s.l. lét hún loka mennta- og háskólum til að stöðva flóðbylgju óánægjunnar. Park Chung Hee íorseti hefur varað við og sagt, að brugðizt verið við gagnrýni á stjórnina af hörku. Eigi að siður halda stúdentarnir áfram að tala um endalok Park-stjórnarinnar, ekki siðar en i april. Þóunin siðan i desember sýnir að þetta eru ekki orðin tóm. Áður gat KCIA reiknað með að fá upplýsingar hjá vissum hópum stúdenta og prófessora. en nú eru þessir aðilar þögulir sem gröfin og óttast hefndaraðgerðir stúdentasamtakanna. Einnig þykir ekki ráðlegt að veita öryggisþjónustunni fulltingi lengur, þar sem hún hefur veikzt mjög á siðustu mánuðum. Blaðamenn mótmæla. Greinilegt er að samtök stúdenta eru nú mun betur skipu- lögð en áður og aðgerðir þeirra samhæfðar. Ýmsir hópar i röðum þeirra, sem áður létu mótmæla- a'ðgerðir afskiptalausar. svo sem eldri stúdentar og hinir kristnu, hafa nú skipað sér opinberlega i sveit með mótmælendum. 1. des. sl. brutust út mótmæla- aðgerðir meðal blaðamanna. Starfsmenn stærsta dagblaðsins i Seoul fóru i verkfall til að mót- mæla ritskoðuninni. Og skömmu siöar sendi Biaðamannasamband Kóreu út yfirlýsingu til enn frekari mótmæla. Ný aðferð. Jafnvel stjórnarandstæðingar i þinginu, sem lengi höfðu þagað. Framhald á bls. 23 ER LEYSIGEISLINN AÐ VERÐA AÐ VOPNI? SIFELLT er verið að gera tilraunir með leysigeislann og þó að hann verði tæplega nokkurntima dauðageisli úr byssu eins og sjá má i teikni- myndum, er liklegt að á næsta áratug verði hann notaður sem „ljós-fallbyssa” gegn árásarflugvélum I litilli hæð. Tilraunir hafa verið gerðar bæði austan hafs og vestan við að gera leysigeislann að nothæfu vopni og þrátt fyrir mikið leynimakk og strang- lega ritskoðaðar visinda- greinar um efnið, er nokkurn veginn ljóst, hvernig málin standa nú. Kapphlaup Ljóst er að Sovétrikin taka þátt i kapphlaupinu um fram- leiðslu á leysivopni. Banda- riskt visindatimarit spurðist fyrir hjá varnarmála- ráðuneytinu og fékk þau svör, að af þeim þremur visinda- mönnum, sem fengið hefðu Nóbelsverðlaun fyrir leysi- geislarannsóknir, væru tveir frá Sovétrikjunum. Eftir þvi sem bandarfskir visindamenn þekkja nú til eiginleika leysigeislans, telja þeir, að hann megi nota til varnar lágfleygum flugvélum, eldflaugum og öðrum árásar- tækjum úr lofti, einnig i loft- bardögum. t landher, flugher og flota Bandarikjanna er unnið að rannsóknum á leysigeislanum og eiginleikum hans. Flugher- inn virðist hafa náð einna lengst og hefur þegar innrétt- ar Boeing-flugvél sem til- raunastofu i lofti. Gagn fiughersins af „dauðageislum” liggur i aug- um uppi. Með venjulegum varnartækjum þarf að athuga skotmark um vissan tima frá mörgum sjónarhornum, áður en hægt er að reikna út. hvar skotmarkið verður. þegar sprengja eða eldflaug á að hitta það. Leysigeisli fer hins vegar með hraða ljóssins og notar þá tæplega mælanlegan tima á leið sinni. Vantar orkulind Yfirmaður þróunaráætlunar bandariska hersins, William Gribble, hershöfðingi, taldi fyrir tveimur árum, að það tæki sex til tiu ár að skapa nothæft leysivopn. Samkvæmt nýjustu upplýsingum kemur i ljós, að Bandarikjamenn hafa nú gefið upp á bátinn þá hugmynd, að geta innan skamms beint leysigeisla gegn eldflaugum, sem skotið er milli megin- landa, þegar þær eru á leið niður i gegn um þéttari loftlög gufuhvolfsins. Bandarisk tækni ræður greinilega ekki enn yfir orku- lind, sem getur framleitt ljós- geisla. sem varðveitir næga orku til að eyðileggja hlut. eftir að hafa farið gegnum gufuhvolfið. Þess vegna hafa Bandarikjamenn nú eingöngu snúið sér að þvi i bráðina, að framleiða leysi-fallbyssur til notkunar i návigi i lofthernaði. — SB. Kim Dae Jung. leiðtogi stjórnarandstöðu Suður-Kóreu

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.