Tíminn - 08.02.1974, Qupperneq 20

Tíminn - 08.02.1974, Qupperneq 20
20 TÍMINN Föstudagur 8. febrúar 1974. Verður Pat Quinn með FH-liðið? FH hefur fengið tilboð fró 16 skozkum bidlfurum Þessi þekkti knatt- spyrnumaður er nú vænt- anlegur til landsins til að spjalla við FH-inga x Miklar likur eru á þvi ab PAT QUINN, fyrrum framkvæmda- stjóri skozka 1. deildar liösins East Fife, komi hingaö til lands- ins fljótlega til aö spjalla við FH-inga. FH-ingar hafa fcngið ein 16 tilboð frá Skotlandi, þar sem ýmsir kunnir þjálfarar hafa áhuga á að koma hingað og þjálfa 2. deildar lið FH i knatt- spyrnu. Pat Quinn er einn af þeim mönnum, sem FH hefur haft samhand viö. Quinn þessi er mjög þekktur knattspyrnu- maður, hann hefur leikið me< Hlackpool, Motherwell og Hibernian, og þar aö auki lék liann mcð skozka landsliðinu á árunum 1961-’H2. Quinn tók siðan við East Fife-liðinu, en honum hefur ekki gengið vel með það á y firstandandi keppnistimabili og hætti, þcgar hann fékk ekki að kaupa leik- menn. Það eru fleiéi kunnir knatt- spyrnumenn, sem hafa haft samband við FH. Menn eins og Bobby Evans, sem lék um skeið með Celtic, og Billy McNeill, fyrrum fyrirliði Celtic og skozk- ur landsliðsmaður. F’H-ingar, sem hal'a eingöngu áhuga á þjálfurum frá Skotlandi, eru nú að athuga tilboð, sem þeir hafa fengið, og mun fljótlega koma i ljós, hvaða þjálfari verður hjá fh-liðinu i sumar. —SOS PAT QUINN...tilFH? Arabar ætla að skjóta eldflaug- um á HAA í sumar Arabiskir skæruliðar frá Palestinu segjast ætla að gera usla, þegar heims- meistarakeppnin i knatt- spyrnu fer fram í Vestur- Þýzkalandi i sumar. Þeir segjast ætla að skjóta eld- flaugum á ýmsa staði, þar sem keppnin fer fram. Þaö má þvi búast við þvi, aö V-Þjóð- verjar geri miklar varúðar- ráðstafanir, þegar keppnin fer fram i sumar, þvi að þeim er enn i fersku minni, hryðju- verkin, sem áttu sér stað i Munchen á OU-leikunum 1972. HERBEHT LUTKEBOHMERT..hinn 25 ára gamii miðvallarleik- maður Schalke 04. Hann er talinn eitt mcsta miðvallarmannsefni V-Þýzkalands V-þýzka knattspyrnan: Björgvin og Axel skoruðu 22 mörk — og Guðjón varði 4 vítaköst, þegar Fram vann Þór 27:21 BJÖRGVIN Björgvinsson, linu- maöurinn snjalli hjá Fram, fékk heldur hetur að leika lausum hala, þegar Framarar unnu sigur yfir Þór frá Akureyri 27:21 á mið- vikudagskvöldið. Hann var óstöðvandi i leiknum og skoraði II mörk, sum stórglæsileg. Axel Axelsson skoraöi einnig 11 mörk i leiknum, þótt hann liafi verið tekinn úr uinferö allan leikinn. Þessir tveir leikmenn. ásamt Guðjóni Erlendssyni, markvcrði Fram, voru aðalmenn leiksins, sem var frekar bragðdaufur. Guðjón varði fjögur vitaköst i leiknum og um tima var eins og cnginn leikmaður Þórs vildi taka vítaköst, og þegar einhver leik- maðurinn stillti sér upp til að taka viti, þá snéru þeir sér undan, leik- mennirnir. scm sátu á bekknum hjá Þór. Það var kannski ekki nema von, þvi að leikmenn Þórs misnotuðu sex vitaköst af átta, sem þeir fengu i leiknum — Guðjón varði fjögur, eitt fór yfir markið og eitt vitakastið var dæmt af, þar sem leikmaðurinn sem tók það, steig á vitakast- linuna. Guðjón markvörður Fram gerði meira en að verja vitaköst, hann varði oft mjög vel skot af linu og úr hraðupphlaupum. Framliðið var allan timann betra liðið i leiknum. Það komst i 9:3 sem var sá markamunur, sem hélzt út fyrri hálfleikinn, en staðan var 13:7 i hálfleik. t byrjun siðari hálfleiksins, komust Framarar i 18:10 og siðan 19:11, en þá var eins og þeir færu að slaka á og Þórsarar náðu að minnka muninn i 20:17, en loka- tölurnar urður 27:21 fyrir Fram. Það er ekki hægt að segja, að leikur Fram og Þórs hafi verið skemmtilegur. Framarar höfðu það mikla yfirburði, að leik- mennirnir gerðu vmislegt, sem þeir myndu ekki leyfa sér gegn sterkari liðum. Þórs-liðið byggist upp á tveimur leikmönnum, þeim Sigtryggi Guðlaugssyni og Þorbirni Jenssyni, en það er eins og þessir tveir leikmenn eigi að gera nær allt i sókninni hjá Þór. Þórsliðið er nú komið i alvarlega fallhættu og það þarf að gerast kraftaverk, ef liðið á ekki að falla ofan i 2. deild. Mörkin i leiknum, skoruðu: FRAM: Björgvin 11, Axel 11 (5viti), Ingólfur 2, Hannes, Arnar og Stefán, eitt hver. ÞóR: Sigtryggur 8 (1 viti), Þorbjörn 8. Árni 3 (1 viti) og Benedikt, tvö. —SOS Valsmenn vöknuðu við vondan draum og þó unnu þeir sigur yfir Haukum 18:13. Þeir skoruðu 5 síðustu mörk leiksins ÍSLANDS M EISTARAR V a 1 s vöknuðu við vondan diaum, þegar fjórar min. voru til leiks- loka af leik þeirra fiegn Ilaukum. Þá fóru þcir i ganfi ofi skoruðu fimm mörk i röð ofi breyttu stöð- unni úr 13:13 i 18:13. Fram að Nú kannast menn við Schalke 04 Mútuþegarnir byrjaðir að leika aftur með liðinu, og strax farnir að skora mörk Schalke 04 sýndi stórfióðan leik á laufiardafiinn, þefiar liðið vann fióðan sigur yfir Borussi Mönch- cnfiladbach á heimavelli sínum Gluekauthampflahn. Um 70.600 sáu leikinn. scm var mjöfi vel leikinn af bcfigja halfu og skemmtilegur. Þegar liðin hlupu inn á völlinn, föfinuðu áhorfendur fieysilega, og voru það fimm menn, sem þeir voru að fagna — þeir Kussmann, Scher, Klaus Fichter, Herbert Luthebroh- merktofi Ilans-Jurgen VVittkamp, en þessir leikmenn léku sinn fyrsta leik i þýzku „Bundeslig- unni" — eftir að þeir komu úr kcppnishanni. Þeir voru settir i Framhald á bls. 8. þeim tima hafði Valsliðið verið mjög dauft, i fyrri hálfleiknum skoruðu Valsmenn ekki mark i lieilar 17 mínútur og það var ekki fyrr en á 10. min. siðari hálf- leiksins, að þeir skoruðu mark með langskoti — það var Bergur Guðnason, sem það gerði og við það færðist lif i Valsliðið. Með sigrinum gefin Ilaukum hafa Valsnienn tilkynnt. að þeir ætla sér aö vera með i baráttunni um silfursætið i 1. deildarkeppninni i handknattleik. Valsmenn byrjuðu með þvi að taka forustuna 3:1 á 8. min. leiksins. en siðan kom daufur kafli hjá liðinu og tókst þeim ekki að skora mark i 17 min. Haukar skoruðu á þeim tima fimm mörk og komust i 6:3. Valsmönnum tókst að minnka muninn i 6:5 fyrir leikhlé. I byrjun siðari hálf- leiksins. jafnaði Bergur Guðna- son 8:8 og var mark hans skorað með langskoti, en á þéim hafði litið borið i leiknum hjá Val. Siðan komust Valsmenn i 13:10, en Haukum tókst að jafna 13:13 og voru þá fjórar min. til leiksloka. Þá fóru Valsmenn i gang og skoruðu fimm siðustu mörk leiksins. Valsliðið var mjög dauft i þessum leik og sést það bezt á þvi, að langskot sást ekki hjá liðinu fyrstu fjörutiu min. Það er ekki hægt að hrósa leikmönnum Vals fyrir leikinn. nema þá siðustu fjórar min. þegar þeir skoruðu fimm mörk á kostnað Hauka- liðsins, — sem lék eins og Valur, mjög illa i þessum leik. Það átti svo sannarlega við um bæði liðin, þegar einn áhorfandi kallaði: „Farið nú að leika handknatt- leik'’. Markhæstu leikmenn Vals, voru: Stefán 4. Bergur 4(2 viti), Gisli 3(2viti), Ágúst 2, Hermann 2( 1 viti), Ölafur 2 og Gunnsteinn, eitt. Ilaukar: Hörður 7 (2 viti), Stefán 2. Ólafur Sigurður, Arnór og Sigurgeir, eitt hver. Þótt að Hörður hafi skorað 7 mörk i leiknum, þá átti hann þarna einn sinn lélegasta leik á keppnistima- bilinu. llann skaul mörgum ótimabærum skotum og gaf margar slæmar sendingar sem kostuðu það að Haukar misstu knöttinn. —SOS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.