Tíminn - 08.02.1974, Blaðsíða 24
fyrirgóÓan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Ðl
Brezkar kosningar
um mdnaðamófin
NTB—London — Edward Heath
forsætisráðhcrra Bretlands
ákvað i gær, að rjúfa þing og láta
fara fram kosningar 28. febrúar.
Jafnframt fór hann þess á leit við
kolanámumenn, að þeir frestuðu
boðuðu verkfalli sinu þar til eftir
kosningar.
Heath tilkynnti ákvörðun sina
eftir tveggja klst, langan rikis-
stjórnarfund i embættisbústað
sinum i Downingstræti 10.
Hann sagði einnig, að hann i
bréfi til formanns sambands
námuverkamanna, Joe Gormley,
hefði beðið um, að verkfalli , sem
boðað hefur verið, verði frestað
vegna þjóðarhagsmuna. Gormley
sagði siðar, að hann hefði kallað
saman fund til að ræða málið, en
sjálfur kvaðst hann vera hlynntur
þvi að fara að ósk Heaths.
Margir af stjórnarmeðlimum
sambandsins hafa þó sagt, að þeir
séu mótfallnir frestuninni. Eru
það einkum fulltrúar Wales og N-
Englands.
Kosningabaráttan næstu þrjár
vikurnar verður að likindum ein
hin harðasta, sem verið hefur i
Bretlandi á þessari öld.
Verkamannaflokkurinn mun
byggja baráttu sina á harðri
gagnrýni á fjármálastefnu
stjórnarinnar undir slagorðinu
„Verkamannaflokkurinn aftur til
verks”. Ihaldsstjórnin mun hins
vegar biðja kjósendur að velja
hverjir eiga að stjórna landinu,
rikisstjórnin eða stéttarfélögin.
St jórnm álasérfræðingar i
London halda þvi fram, að Heath
tefli á mjög tæpt vað nú, er hann
vill dóm kjósenda um stjórnar
stefnuna, þegar stjórnin á eftir
tæplega hálft annað ár af
kjörtimabilinu, Heath hefur
sjálfur að miklu leyti mótað
stjórnarstefnuna og ýmsir eru
þeirrar skoðunar að hann veröi að
segja af sér formennsku flokksins
ef hann biður ósigur.
Segir Pompidou af
sér vegna veikinda ?
NTB—Paris — Sögusagnir i
Frakklandi um að Pompidou for-
seti myndi ef til vill segja af sér
vegna veikinda, fengu byr undir
báða vængi í gær, þegar
tilkynning kom frá Elysee-höll
um að forsctinn væri rúmliggj-
andi vegna inflúensu.
t tilkynningunni, sem var frá
læknum forsetans, segir, að han
sé með 38 til 39 stiga hita og að
hann verði að liggja i rúminu
nokkra daga. Franskir fjölmiðlar
hafa haft miklar áhyggjur af
heilsufari Pompidous síðan 1972
og siðasta hálfa mánuðinn hafa
alls kyns sögusagnir um það verið
á kreiki. Tilkynningin um veik-
indi forsetans i gær, hafði sérlega
mikil áhrif, þar sem þetta er i
fyrsta sinn, siöan Pompidou tók
við embætti árið 1969, að læknar
hafa sent út slfka tilkynningu um
heilsufar hans.
Skömmu eftir að tilkynningin
var birt, skrifaði hið vel upplýsta
blað Le Monde, að frá forsetahöll-
inni hefði verið haft samband við
rikisráöið til að kanna, hvort ráð-
ið gæti skipulagt for-
setakosningar á skömmum tíma,
ef Pompidou segði af sér eftir tvo
mánuöi.
Ráðgjafar forsetans hafa
ekkert viljað segja um heilsufar
hans, annað en það, að hann
mundi fara i þau ferðalög sem
þegar hefðu verið áætluö m.a. til
Sovétrikjanna nú i lok febrúar.
Pompidou kom seinast fram
opinberlega fyrir hálfum mánuði
og sögðu blaðamenn þá, að hann
hefði verið illa útlitandi og
veikindalegur og hefði fitnað
mikið, einkum i andiiti. 1 fyrra
var sagt, að forsetinn gengist
undir kortison-meðhöndlun við
gigt og leiddi það oft til þess aö
fólk fitnaði.
Rætt um nýtt
tilboð V.S.Í.
— 3 félög hafa boðað verkfall
HS Rvik. —Sáttafundur hófst
með samninganefndum vinnu-
veitenda og A.S.Í. kl. 14 i gær, en
siðasti fundur stóð frá kl. 16 i
fyrradag og til ki. 02 um nóttina.
A fundinum á miðvikudaginn
lögðu atvinnurekendur fram nýtt
tilboð og var verið að ræða það á
fundinum i gær.
Torfi Hjartarson, sáttasemjari,
sagði I viðtali við blaðið seinni-
partinn i gær, að hann byggist
ekki við löngum fundi og var
heldur dauft I honum hljóðið.
Meginatriði hins nýja tilboðs
vinnuveitenda munuvera þau, að
lægstu laun hækki um 17%
i áföngum, þannig að 11%
hækkun komi til framkvæmda
strax, en 3% 1. marz 1975 og 3% 1.
marz 1976. Gert mun ráð fyrir að
öll laun hækki um 5% strax, auk
1200 króna hækkunar, en
hundraðstalan fari siðan stig-
hækkandi með lægri
flokkum.Eins og lægstu launin,
munu öll laun eiga að hækka um
3% i marz 1975 og 1976.
Undanfarið hefur sjö manna
nefnd frá A.S.l. átt viðræður við
rikisstjórnina um mögulegar
breytingar á beinum sköttum lág
láunafólks, og hefur verið skipuð
Allsherjarverkfall
V-Þýzkalandi?
NTB—Bonn — Verkalýðs-
samband V-Þýzkzlands
tilkynnti i gær, að mikil þátt-
taka væri I atkvæðagreiðslu
um verkfall, eftir að viðræöur
um kaup og kjör rúmlega
tveggja milljóna opinberra
starfsmana höfðu siglt i
strand.
Búizt er við, að um það bil
ein milljón félagsbundinna
manna muni hafa greitt
atkvæði áður en atkvæða-
greiðslu lýkur i kvöld. Orslitin
munu hins vegar ekki liggja
fyrir fyrr en á sunnudaginn.
Þeir, sem ekki eru félags-
bundnir, greiða ekki atkvæði.
Flestir sérfræðingar eru
þeirrar skoðunar, að úrslitin
verði á þá lund, að verkfall
verði og er það þá I fyrsta
sinn, sem opinberir starfs-
menn i flest öllum greinum
gera verkfall. Arið 1967
munaði litlu að verkfall yrði
hjá opinberum starfsmönnum
i V-Þýzkalandi, en á siðustu
stundu lagði rikisstjórnin
fram launatilboð.
Kuwait
lét undan
NTB—Kuwait — Rikisstjórn
Kuwait samþykkti i gær, að
jápönsk flugvél með f jóra hryðju-
verkamenn innan borðs, fengi að
lenda i Kuwait. Þar með er ljóst,
að vopnuðu
hryðjuverkamennirnir, sem
halda japanska sendiráðinu i
Kuwait fá framgengt kröfum
sinum um að fjórmenningarnir,
sem rændu ferju i Singapore éftir
misheppnaða tilraun til að
sprengja oliuhreinsunarstöð. Sheil
þar, fái að fara frjálsir ferða
sinna úr landi, áður en gislunum
13 i sendiráðinu verður sleppt.
Snæfjallaströnd:
11 brotnuðu
GS-lsafirði — Um siðustu lielgi
brotnuðu 11 staurar af isingu i
Bæjarlinunni i Snæfjallahreppi.
Háspennulfna þessi er fyrir fáa
bæi. Eru þeir hitaður upp með
rafmagni, en hafa allir varahitun.
Fór rafstraumurinn af sjónvarpi,
FM-býglju útvarps og einnig af
sima. Sjónvörp ganga þó fyrir
geymum eins og er, en simi og
FM-bylgja eru óvirk. Rafveita
tsafjarðar brá við og sendi strax
tvo menn inneftir til viðgerðar, og
er vonazt til, að lirian komizt i lag
um næstu helgi. En viögerð er
erfið', ba;ði vegna mikilla snjóa og
rysjóttar tiðar, en austanáttin er
anzi hvöss niður af hliðinni.
Aðalveiðisvæðið
undari Reykjanesi
—hs—Rvik. — Ennþá veiða þeir
loðnuna i stórum stil og var aðal-
veiðisvæðið i gær á svæðinu frá
Þorlákshöfn og vestur undir
Grindavík. Allt geymslurýni fyrir
loðnu á Suðvesturlandinu er fullt
og skipin landa jafnóðum og
brætt er úr þrónum. Eitthvert
geymslurými var i gær laust á
Seyðisfirði og á Norðfirði, en
búast mátti við að það fylltist á
skömmum tima. Börkur fór til
Norðfjarðar með 800 tonn og
Sigurður, sem eins og kunnugt er
var breytt i loðnuskip, fór þangað
einnig með 700 tonn. Samtals eru
þar komin 1500 tonn og munar um
minna.
Heildaraflinn var um kl. 18 i
gær orðinn 167.370 tonn, en aflinn
frá kl. 19 i fyrradag til kl. 18 i gær
var orðinn 9120 tonn.
Frá þvi kl. 19 i fyrradag og til
miðnættis tilkynntu eftirtalin skip
um afla: Eldborg 550, Surtsey
120, Jóhannes Gunnar 100,
Skagaröst 70, Albert 320, Loftur
Baldvinsson 320, Ólafur Magnús-
son 180, Hamar 230, Sigurður 700,
Ingibjörg 357 Gullberg 70, Ólafur
Sigurðsson 170.
Frá miðnætti og fram til kl. 18 i
gær tilkynntu eftirtalin skip um
afla: Höfrungur III 220, Súlan 430,
Fifill 320, Hilmir 400, Sæunn 50,
Heimaey 160, Heimir 450, Gull-
berg 135, Hamravik 140, Járn-
gerður 190, Haraldur 150, Helga
130, Ólafur Tryggvason 100, Ottó
Wathne 100, Sigurbjörg 45.
Asberg 410, Rauðsey 300, Frið-
þjófur 200, Svanur 315, Harpa RE
340, Dagfari 280, Skagaröst 55,
Alftafell 200, Sandafell 140, Jón
Garðar 290, Bára 200, Árni
Kristjánsson 200, Baldur 220.
Hurðarlæsing bilaði
- Hinrik KÓ lagð-
ist á hliðina
hs-Rvik. — Um klukkan 9.20 i
gærmorgun varð það óhapp, að
Hinrik KÓ 7, sem var á leið til
Eskifjarðar með um 220 tonna
loðnufarm, lagðist á hliðina
skammt undan Vattarnesi.
Skinney SF, sem einnig er loðnu-
skip og var statt á Reyðarfirði er
óhappið skeði, og lagði
samstundis úr höfn með dælur.
tókst að dæla sjó úr Hinriki og
rr.ikið mátt út af bera til þess að
svo yrði.
Ef til dæmis lestarlúgur hefðu
verið eitthvað illa skálkaðar
niður, hefði ekki þurft að spyrja
að leikslokum, en sem betur fer
reyndist allur annar öryggis-
búnaður skipsins i lagi. og seinni-
partinn i gær lá Hinrik við
bryggju á Eskifirði.
oma honi ingin meðs im til Eskif jaröar. 1 urðu á mönnum. Skák mót ið
Óhappið r nun hafa orðið með 4. umfe :ro Ke> k javikurskák-
•eim hætti^ að huröarlæsing á mótsins i /ar tefl d i gærkvöldi.
iakborftsgai rgi bilaði'með þeim | Þegar bla ðið fór i prentun var að-
fleiðingum , að ganginn fyllti af eins einni skák lok ið, Bronstein og
nefnd fjögurra manna til að
kanna það mál nánar. 1 þeirri
nefnd eru þeir Jón Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri, Jón Sigurðsson,
hágrannsóknastjóri, Björm Þór-
hallsson, form. Landssambands
isl. verzlunarmanna og
Guðmundur J. Guðmundsson,
varaform. Dagsbrúnar.
Fundinum i gær lauk um kl. 18
og gerðist ekkert markvert. Nú
hafa 3 verkalýðsfélög boðað verk-
föll þann 19. febrúar þ.e. Mjólkur-
fræðingafélag Islands, Iðja i
Reykjavfk og Verkalýðsfélag
Akraness.
Engin út-
varpsdag-
skrá í dag
ÞVt MIÐUR getur Timinn
ekki birt að þessu sinni dag-
skrá útvarpsins næstu viku,
svo sem venja hefur verið á
föstudögum, þar eð við
fengum hana ekki í hendur i
tæka tið.
Blaðið biður lesendur sina
velvirðingar á þessu og
leyfir sér að vona, að henni
seinki ekki svo eftirleiðis, að
það útiloki birtingu hennar
þennan vikudag.
Ofviðri á
Frakklandi
NTB—Paris — Fjórir biðu bana
og sex særöust I miklum stormi,
sem gekk yfir Frakkland i
fyrradag. Við Ermasundsströnd-
ina fór vindhraðinn upp I 55 metra
á sekúndu f verstu hryðjunum, og
er það næstum tvöfalt á við það
sem kallað er fellibylur.
I Savoi köstuðust nokkrar
flugvélar á flugskýli og brotnuðu
og 3000 vöruflutningabilar festust
i snjósköflum fyrir utan Chamon-
inx. Margir vegir i Alpafjöllum
lokuðust og er mikil hætta á
snjóflóðum viða i ölpunum og
Pyreneafjöllum.
Blaðburðar
fólk óskast
,S]Ó c
Leit
óttuð
sökk
skipi
etta :
timabili
m að Hinri
aðnum. He
illa
elimi
leins
sidur
agriús
itntefh
móti
Timann vantar fólk
til blaðburðar
í eftirtalin hverfi:
Stórholt, Skipholt, Há-
teigsveg, Laugarnes-
veg, Suöurgötu, Hverf-
isgötu og Laugaveg.
Ennfremur vantar
SENDLA
fyrir hádegi