Tíminn - 28.02.1974, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 28. febrúar. 1974.
TÍMINN
11
HEIMSMEISTARAKEPPN-
jlN í HANDKNATTLEIK...
Mætum
Tékkum
í daq
— leikurinn hefur
mikla þýðingu
fyrir íslenzka
landsliðið
island mætir Tékkum i
HM-keppninni i hand-
knattleik i dag. Leikur-
inn hefur mikla þýðingu
fyrir íslenzka iiðið, sem
verður að vinna hann, ef
það á að hafa einhverja
möguleika á að komast i
8-liða úrslitin. ísland
leikur i riðli með Tékk-
um, V-Þjóðverjum og
Dönum. Leikirnir við
Tékka og Dani hafa
úrslitaþýðingu fyrir
islenzka liðið, þvi að þá
leiki verður það að vinna
til þess að komast i 8-
liða úrslitin.
Landsleikur fslands og Noregs
sl. mánudagskvöld lofar vissu-
lega góðu. Ef islenzka liðið nær
eins góðum leik gegn Tékkum i
dag, þá á sigurinn að lenda hjá ís-
landi. Það má þvi búast við
skemmtilegum og tvisýnum leik i
dag, leik þar sem markvarzlan
ræður úrslitum. fslendingar og
Tékkar leika svipaðan hand-
knattleik, og hafa leikir þjóðanna
verið mjög jafnir sl. ár. Á morgun
leika svo islenzku leikmennirnir
gegn V-Þjóðverjum og á sunnu-
daginn gegn Dönum.
---------------m.
AXEL AXELSSON.. sést hér skora i leik gegn ÍR. Hvað skorar hann
mörg mörk gegn Tékkum i dag?
Landsliðið í
golfi valið
15 kylfingar hafa verið valdir til aefinga. Undirbúningur hafinn
fyrir Norðurlandamótið, sem fram fer d Grafarholtsvellinum
Jafn-
tefli í
Róm
ítalía og Vestur-Þýzkaland
gerðu jafntefli 0:0 i landsleik i
knattspyrnu, sem fram fór i
Róm. 70 þús. áhorfendur sáu
þennan markalausa leik milli
þessara tveggja sterku knatt-
spyrnuþjóða, sem koma til
með að berjast um heims-
meistaratitilinn i knattspyrnu
i sumar.
Leeds
heppið
Leeds-liðið er greinilega ekki bú-
ið að ná sér eftir tapið fyrir Stoke
og Bristol City. Á þriðjudags-
kvöldið var Leeds-liðið heppið að
ná jafntefli gegn Leicester á
heimaveili sinum, Elland Road, á
sama tima og Englandsmeistar-
arnir frá Liverpool-liðið minnkar
nú smátt og smátt á forskot Leeds
i deildinni, og má búast við mikilli
spennu milli liðanna á lokasprett-
inum að Englandsmeistaratitlin-
um.
#
Úrslit leikja í 1. og 2. deild urðu
þessi á þriðjudagskvöldið:
1. DEILD:
Coventry—Norwich 1:0
Ipswich—Chelsea 1:0
Leeds—Leicester 1:1
Liverpool—Southampton 1:0
2. DEILD:
Bristol City—Millwall 5:2
Swindon— Luton 0:2
Fátt getur nú bjargað Norwich
frá falli i 1. deild og Swindon i 2.
deild.
Á stjórnarfundi hjá
Golfsambandi islands
fyrir skömmu var skip-
uð landsliðsnefnd karla,
sem skal m.a. sjá um
val á karlalandsliði ís-
lands i golfi 1974 og
vinna að undirbúningi i
sambandi við þjálfun
liðsins og fleira á þessu
keppnistímabili.
Þar ber hæst Norðurlandamót-
ið i golfi, sem haldið verður á
Grafarholtsvellinum i Reykjavik
i lok ágúst, en þar munu keppa
sex islenzkir kylfingar. Nefndin,
en hana skipa þeir Jóhann
Eyjólfsson formaður, Jón
Thorlacius og Haukur V. Guð-
mundsson, hefur þegar haldið
nokkra fundi, og þar m.a. valið 15
manna hóp til æfinga fyrir þessa
keppni, svo og aðrar, sem liðið
getur tekið þátt i.
Við valið var stuðzt við árangur
i hinum ýmsu opnu mótum, sem
fram fóru á siðasta sumri og gáfu
stig til landsliðs GSt. Þeir, sem
valdir voru, eru þessir:
Þorbjörn Kjærbo GS
Einar Guðnason GR
Björgvin Þorsteinsson GA
Loftur Ólafsson NK
Óttar Yngvason GR
Óskar Sæmundsson GR
Gunnlaugur Ragnarsson GR
Jóhann Ö. Guðmundsson Glt
Ragnar ölafsson GR
Hannes Þorsteinsson GL
Július R. Júliusson GK
Haraldur Júliusson GV
Hallgrimur Júliusson GV
TómasHolton NK
Jóhann Benediktsson GS
Liðið mun verða kallaö saman
einhvern næstu daga, en úr þvi
fara að hefjast æfingar. Þjálfari
liðsins verður Þorvaldur Ásgeirs-
son golfkennari.
Unglingalandsliðið í handknattleik valið:
Gunnar á mögu-
leika á leikjameti
Unglingalandslið pilta i hand-
knattleik var nýlega valið, en lið-
ið tekur þátt i Norðurlandamóti,
sem að þessu sinni verður haldið i
Danmörku.
Liðið er þannig skipað (i sviga
fjöldi UL-leikja):
Marteinn Árnason, UBK (1)
Einar Guðlaugsson, Á (4)
Þorgeir Pálsson, Fram (1)
Gunnar Einarsson, FH (9)
Guðm. Sveinsson. Fram (1)
Jón Á. Rúnarsson, Fram (1)
Ragnar Hilmarsson, Fram (0)
Hannes Leifsson, Fram (4)
Hörður Harðarson, Val/UBK (4)
Stefán Hafstein, Á (1)
Friðrik Friðriksson, Þr. (1)
Hörður Hákonarson, ÍR (1)
Bjarni Guðmundsson, Val (0)
Jóhannes Stefánsson, Val (1)
Mótið hefst 23. marz n.k. og
stendur i þrjá daga. Undanfarið
hefur liðið æft undir stjórn þeirra
Olferts Naby og Stefáns Gunnars-
sonar.
Þess má geta, að einn leik-
manna liðsins, Gunnar Einars-
son, á möguleika á þvi að bæta
fyrra leikjamet með unglinga-
landsliði, sem þeir Hilmar
Björnsson, Pálmi Pálmason og
Guðjón Erlendsson eiga, 12 leiki,
en Gunnar, sem hefur leikið 9
leiki, nær 13 leikjum, ef hann leik-
ur alla leiki tslands í keppninni,
sem fram fer i Borgundarhólmi.
Ástæðan til þess, að Gunnar hefur
möguleika á að hnekkja fyrra
metinu, er sú, að leikur unglinga-
landsliðsins gegn Bandarikja-
mönnum, sem leikinn var fyrr i
vetur, er talinr. fullgildur leikur.
Allir
beztu
með..
— þegar Úlfarnir
og City mætast
á Wembley
Wolves og Manchester City
leika mcð alla sina sterkustu
leikmenn, þegar liðin mætast
á Wembley á laugardaginn i
úrslitaleik deildarbikarkeppn-
innar. Liðin verða skipuð
þessum leikmönnum:
ÚLFARNIR: Parkes,
Palmer, Munro, McAllen,
Farkin, Bailey, Powell, Hibb-
itt, Richards, Dougan og
Wagstaffe.
MANCHESTER CITY:
MacRae, Pardoe, Barrett,
Booth, Donachie, Doyle,
March, Bell, Summerbee,
Law og Lee.
Ellert
svarar
d morgun
Ellert B. Schram, formaður
KSÍ, hefur beðið iþróttasiðuna
að birta athugasemd vegna
skrifa um stjórn KSÍ, sem
birzt hafa hérá iþróttasiðunni.
Vegna þess, hve seint þessi at-
hugasemd barst til blaðsins i
gær, verður birting hennar aö
híða til morguns.
—alf.
JÓN ASGEIRSSON.. lýsir
(Tímamynd Gunnar).
ÍSLAND —
TÉKKAR
Jón Ásgeirsson
lýsir síðari
hdlfleik
klukkan 17,10