Tíminn - 26.09.1974, Side 1
Stjórnventlar
Ólíudælur
Olíudrif
ii.j • • r-xv
... n.i
Landvélarhf
183. tölublað — Fimmtudagur26. september — 58. árgangur
Nýjungí
DRESSFORM fatnaðurlöks á
íslandi
Pantið bækling núna
Sjálfvirkur simsvari allan
' sólarhringinn.
Póstverzlunin
Heimaval/ Kópavogi.
Dr. Sigurður Nordal.
Útförin
á vegum
ríkisins
RÍ KISSTJÓRNIN hefur ákveðið
með samþykki vandamanna dr.
Sigurðar Nordals prófessors, að
jarðarför hans fari fram á vegum
rikisins.
tltförin verður gerð frá dóm-
kirkjunni föstudaginn 27. septem-
ber kl. 1.30.
í DAG
Heita vatnið
á Húsafelli
— sjá baksíðu
Líf mitt
óslitin
skemmti-
ferð
rætt við Björn á
Skóney bls. 8-9
•
Einvígi
Korchnojs
og Karpofs
skdkskýringar
eftir Friðrik
Olafsson bls. 6
Yrt á
blindingja
sjd leiðara d
bls. 7
Vatnið
í Keflavíki
Bæjarstjórinn
óskar rannsóknar
BH-Reykja.vlk. — Ég hef fengið
töluvert af fréttum um ollumeng-
un uppi á Keflavlkurflugvelli,
sagði Jóhann Einvarðsson,
bæjarstjóri I Keflavlk, I viðtali við
blaðið I gær. Og ég hef bæði skrif-
að varnarmáladeild og hringt
nokkrum sinnum i þá út af tilvik-
um, sem ég hef frétt af varðandi
þetta, og hef farið fram á það við
þá, að þeir láti fara fram, með að-
stoð jarðfræðinga, úttekt á land-
svæðinu þarna, sem hugsanlega
gæti talizt hættusvæði, sem sagt:
taki jarðvegssýni á mismunandi
stöðum og á misjöfnu dýpi.
Við höfðum samband við Jó-
hann bæjarstjóra af þvi tilefni, að
sú saga hafði borizt okkur til
eyrna, að oliubragð hefði fundizt
af vatni þar syðra. Spurðum við
Jóhann, hvort hann hefði heyrt
þetta.
— Nei, sagði Jóhann ákveðinn.
Hins vegar hefur borið á þvi, að
mönnum hefur fundizt vatnið
annarlegt á bragðið, en það er
eftir breytingar á vatnslögnum,
og mestar likur á, að það stafi af
smurningi eða einhverju þétti-
efni. Mér er sagt, að einhvern
ákveðinn tima á eftir geti borið á
sliku og leikmaður gæti haldið, að
væri oliukeimur. Nú, sýni hafa
verið tekin úr vatnsbólunum hjá
okkur nokkuð reglulega, og þau
hafa alltaf fengið mjög góða
dóma. Það er ekki mjög langt slð-
an ég sá niðurstöðutölur um
þetta. Vatnið hefur alltaf reynzt
mjög vel hæft til neyzlu, og það er
náttúrlega eitt það fyrsta, sem
maður myndi verða var við, það
er olla I vatni. Það leynir sér
aldrei, jafnvel ekki fyrir leik-
menn.
— Er langt siðan þú hafðir fyrst
samband við varnarm'áladeild út
af þessu?
— Ég man það nú ekki svo
glöggt, en við höfum oft rætt þessi
mál, og það varð að samkomu-
iagi, að ég sendi þeim blaðafrétt-
ir, sérstaklega héðan sunnan að,
þegar þessi mál bæri á góma, og
það hefur verið nokkuð oft. Siðan
hef ég hringt I þá, þegar menn
hafa haft samband við mig. Menn
ofan af velli hafa sagt við mig:
„Ja, nú voru grafnar tunnur, full-
ar af olíu”. Þá hef ég hringt inn
eftir. Stundum er þetta borið til
baka, það hefur komið i ljós, að
það var rangt. — Nú, hvenær ég
stakk fyrst upp á þvi að láta fara
fram úttekt á svæðinu? Ég hygg
að þaö hafi verið eftir viðtal, sem
ég átti við Jón Jónsson, sem valdi
með okkur nýja vatnsbólið okkar,
ákvarðaði holuna fyrir okkur. Þá
var farið að huga að nauðsyn þess
að rannsaka jarðveginn uppi á
flugvelli i sambandi við niðurfall
á olfu og öðru sliku, og svo hitt,
sem er mjög athyglisvert, en það
er að rannsaka rennsli neðan-
jarðarvatnsins, og i hvaða átt það
rennur og hvernig það berst um
skagann.
— Já, það er auðvitað ókannað?
Dvergkálfurinn frá Búðarhóli I fangi Kristjáns Jósepssonar. Afmælis-
veizlan hans verður I dýrasafninu á Skólavörðustig I dag, þvl að nú er
hann fjögurra vikna. — Tlmamynd Gunnar.
— Já, og setjum svo, að vatnið
berist I átt til flugvallarins, þá er
oliumengunarhættaaf flugvellin-
um ekki svo veruleg. Ennfremur
verður að gá að þvi, að þó að oliu-
mengun væri i vatnsbólum hjá
okkur, þá þarf flugvöllurinn ekki
endilega að vera þar valdur að
þvi. Geymir getur verið lekur við
heimahús, og olian skilað sér þar
niður, oliutankar við hús eru
mjög misjafnir að frágangi og
aldri. Byggðin er mjög nálægt
aðalvatnsbólinu okkar, og menn
hafa stundum farið með bilana
sina upp að því til að þvo þá, og
maður veit ekkert um, hvort ein-
hverju hefur verið hellt þar, eða
eitthvað lekið niður. Það þarf
ekki nema hálfpott af ollu i vatns-
ból til að þess gæti um langan
tima.
AAinkur í
Vopnaf jarðar-
kauptúni
MINKAR eiga til að gera sig
heimakomna, þegar svo vill
verkast, og sannaðist það slðast I
kauptúninu I Vopnafirði nú I
vikunni. En oft verður minkunum,
sem ófriðhelgastir eru allra dýra,
hált á þvl að gerast of nær-
göngulir við mannkindina, og sú
varð raunin á I Vopnafirði. Sá,
sem þar birtist, var lagður aö
velli.
Um nokkur undanfarin ár hefur
minks orðið vart við árnar i
Vopnafirði, en aldrei fyrr hafa
þeir hætt sér út i kauptúnið, svo
að kunnugt sé.
Skammtersiðan minksins varð
fyrst varti kauptúninu,og á mánu-
daginn fengu menn þar færi á
honum og lögðu hann að velli.
Árásarmaður-
inn ófundinn
Gsal-Rvik. — Arásarmaðurinn,
sem rændi tösku af konu I Banka-
stræti fyrir nokkru, er enn
ófundinn.
Rannsóknarlögreglan skorar á
alla þá, sem einhverjar
upplýsingar geta gefið, að hafa
tal af sér — og sérstaklega vill
rannsóknarlögreglan skora á tvo
pilta, sem konan hafði tal af við
Laugavegsapótek, stuttu eftir að
hún var rænd, að gefa sig strax
fram.
TUMI ÞUMALL í PAPPA-
KASSA TIL REYKJAVÍKUR
JH-Reykjavik. — Börnunum á
Búðarhóii i Landeyjum finnst
hálf-tómlegt. Tumi þumall hefur
haft vistaskipti og er fluttur I
höfuðstaðinn. Það er svo margt,
sem þangað fer eins og allir vita.
I gærmorgun kom gestur i
leigubil frá Selfossi austur að
Búðarhóli. Þar var kominn
Kristján Jósepsson, forstöðumað-
ur tslenzka dýrasafnsins við
Skólavörðustig, og það er
skemmst af því að segja, að hon-
um tókst að fá kálfinn keyptan.
Verðið vitum við ekki. „Það er
leyndarmál”, sagði Konráð
bóndi, er Timinn ræddi við hann.
Kristján bjó um hann i pappa-
kassa, sem komið var fyrir i
aftursæti bilsins, og siðan var ek-
ið eins og leið liggur til Reykja-
vlkur. Við vitum ekki, hvort hann
varö bilveikur, en það mun að
minnsta kosti ekki hafa verið
neitt að ráði.
1 dag er Tumi fjögurra vikna,
og afmælið heldur hann i stiu i Is-
lenzka dýrasafninu, þar sem
hann verður nú til sýnis gestum
og gangandi. Það gjáir á dökkar
granir og stirnir á svartan
skrokkinn, og hvitu sokkarnir
hans eru sæmilega hreinir eftir
þvi sem gerist um kálfa. Hann
gengur ekki með neina kálfsfætur
i sóöalegri merkingu.