Tíminn - 26.09.1974, Side 11
Fimmtudagur 26. september 1974.
TÍMINN
11
íþróttaiðkendum fjölgaði
um 12 þús. ó tveim órum
Gísli Halldórsson endurkjörinn formaður ÍSI
52. iþróttaþing iíSi var
haldið í Reykjavik 7. og 8.
sept. s.l.
Þingið var mjög f jölsótt
og komu 90 fulltrúar til
þirr'S af 100, sem eiga rétt
til þingsetu.
Meðal gesta þingsins
voru menntamálaráðherra
Vilhjáimur Hjálmarsson,
sem ávarpaði þingið og
bauð jafnframt til kvöld-
verðar i lok fyrri þing-
dagsins, og Hafsteinn Þor-
valdsson formaður UMFi,
sem einnig ávarpaði
þingið.
Þingforsetar voru kjörnir Úlfar
Þórðarson og Einar Sæmundsson
og þingritarar Hannes Þ.
Sigurðsson og Torfi Steinþórsson.
Minnzt látins félaga
1 upphafi þingsins minntist
forseti 1S1 Frímanns Helgasonar,
er lézt nokkru eftir að siðasta
Iþróttaþing var haldið. Fór hann
viðurkenningarorðum um mikið
og gott framlag Frímanns Helga-
sonar til iþróttahreyfingarinnar,
en hann var meðal þekktustu
knattspyrnumanna landsins um
langt árabil, sat mörg ár i stjórn
ÍSl og varð meðal hinna fyrstu til
að skrifa að staðaldri um iþróttir i
dagblöð. Þingfulltrúar heiðruðu
minningu Frimanns Helgasonar
með þvi að risa úr sætum.
Setningarræða
forseta ISi
Gisli Halldórsson forseti ISI
flutti itarlega setningarræðu og
rakti gang ýmissa mála frá
siðasta Iþróttaþingi. I ræðu hans
kom m.a. fram eftirfarandi:
1. Að á s.l. 2 árum hefði virkum
iþróttaiðkendum f jölgað um 12
þúsund og væru nú komnir yfir
50 þúsund.
2. Að þessa aukningu mætti
einkum rekja til árangurs
trimmherferðarinnar undan-
farin 3 ár og ötuls starfs
iþróttahreyfingarinnar
viðsvegar um landið.
3. Að unnið hefði verið þrotlaust
að þvi að fá aukinn fjárstyrk
opinberra aðila til iþrótta-
starfsins.
4. Að menntamálaráðuneytið
hefði samþykkt samkv. tillögu
1S1 að skipa nefnd til að kanna
fjárþörf og stöðu iþrótta-
hreyfingarinnar i þjóðfélaginu.
5. Að eðlileg fjármögnun iþrótta-
starfsins gæti talizt: 30% frá
viðkomandi sveitarfélagi, 30%
frá rikinu og 40% frá félags-
mönnum sjálfum.
6. Að nú væri lokið að mestu
stækkun Iþróttamiðstöðvar-
innar i Laugardal og við það
myndi stórum bætast starfs-
aðstaða sérsambandanna, sem
nú eru orðin 15 innan ÍSI.
7. Að i framtiðinni þyrfti að
stækka íþróttamiðstöðina enn
meira, ekki sizt vegna væntan-
legrar tilkomu Grunnskóla ISÍ.
8. Að unnið hefði verið markvisst
að iþróttaiðkunum fyrir
fatlaða.
9. Að leggja þurfti áherzlu á að
ná til starfsfólks á vinnustöðum
og í fyrirtækjum til þess að
auka enn á útbreiðslu iþrótt-
anna.
Námsefni Grunnskóla ISI
Á þinginu var kynnt námsefni
Grunnskóla ISl, sem Fræðslu-
nefnd sambandsins hefur unnið
að útgáfu á sl. 2 ár. Er þar um
mikið verk að ræða um 300 bls. I
tveimur bindum Var héraðssam-
böndunum og sérsamböndunum
afhent eintak af Grunnskólanum,
en hér er um fjölbreytt námsefni
að ræða fyrir þá, sem ætla að taka
að sér leiðtogastörf hjá iþrótta-
hreyfingunni, annaðhvort sem
félagslegir eða iþróttalegir
leiðbeinendur.
Verið er nú að undirbúa
kynningu námsefnisins meðal
sambandsaðila og annarra sem
vilja færa sér það i nyt.
Frh. á bls. 15
Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra ávarpar tSÍ-þing
Hestamenn fundu ekki náð
fyrir augum ÍSÍ-þingsins
— margar samþykktir gerðar á þinginu, m.a. um stærð og gerð íþróttamannvirkja
F jölmargar sam-
þykktir voru gerðar á
nýafstöðnu íþróttaþingi.
Kennir þar margra
grasa. M.a. samþykkti
þingið að „reiðhesta-
íþróttir verði að svo
stöddu eigi skilgreindar
í flokki þeirra íþrótta,
sem átt er við í 3. gr.
laga ISI og því verði inn-
göngu hestamannafé-
laga í héraðssambönd
ISI frestað".
Hér á eftir verður get-
ið um samþykktir ÍS(-
þingsins:
Skattur sambandsfélaga
íþróttaþing I.S.I. 1974 sam-
þykkir að skattur sambandsfé-
laganna til Iþróttasambands Is-
lands fyrir árin 1975 og 1976 verði
krónur 101 stað 5 áður á hvern fé-
lagsmann 16 ára og eldri.
Um aukinn
fjárstuðning Alþingis
íþróttaþing l.S.l. haldið i
Reykjavik 7.-8. sept. 1974 skorar á
rikisstjórn og alþingi aö verða
við umsókn tþróttasambands Is-
lands um aukna fjárveitingu á
fjárlögum 1975, svo að samband-
inu verði mögulegt að standa
undir siauknu og vaxandi starfi
iþróttasamtakanna i landinu.
Visar þingið til bréfs og grein-
argerðar l.S.I. til stjórnvalda
þetta varðandi.
Um fjármögnun
iþróttahreyfingarinnar
tþróttaþing t.S.l haldið i
Reykjavik 7. og 8. september 1974
telur eðlilegt að eftirgreindir 3
aðilar beri kostnað við iþrótta-
starfið i landinu.
Rikisvaldið 30%
Viðkomandi sveitarfélag 30%,
tþrótta- og ungmennafélög og
héraðssambönd 40%
Skorar íþróttaþing á rikisvald-
ið og sveitarstjórnir að samræma
fjárstuðning sinn við framan-
greinda skiptingu.
Um ferðakostnað
íþróttafólks
íþróttaþing t.S.Í. haldið i
Reykjavik 7. og 8. september 1974
samþykkir, að fela nefnd þeirri,
er kjörin var á sambandsráðs-
fundi 27. april 1974 til að athuga
gerð heildarsamninga um ferða-
kostnað iþróttafólks, hjá flugfé-
lögum og ferðaskrifstofum, að
halda áfram starfi sinu og leggja
niðurstöðu fyrir vorfund sam-
bandsráðs Í.S.Í. 1975.
Um slysatryggingu
iþróttamanna
íþróttaþing l.S.Í. haldið 7. og 8.
september 1974, skorar á hæstvirt
alþingi að samþykkja frumvarp
til laga um breytingu á lögum al-
mannatrygginga, sem tryggi
iþróttamönnum, er slasast sömu
bætur og launþegum sem slasast
við vinnu sina.
Um stærð og gerð
iþróttamannvirkja
tþróttaþing I.S.I. haldið dagana
7. og 8. september 1974 samþykkir
að beina þeim tilmælum til þeirra
aðila innan Menntamálaráðu-
neytisins og fulltrúa Sambands
isl. sveitarfélaga sem vinna nú að
endurskoðun reglugerðar nr.
159/1969 um stofnkostnáð skóla og
breytingu á þeirri reglugerð frá
mai 1972, að miðsvæðis iþróttahús
og sundlaugar geti verið reist i
hverju iþróttahéraði af þeim
stærðum, að þessi iþróttamann-
virki geti veitt löglega aðstöðu
fyrir sem flestar þær iþróttir,
sem skólar, iþrótta- og ungmenna-
félög og almenningur þurfa til
iþróttaiðkana og keppni. Einnig
að áhorfendasvæði og fylgirými
þeirra verði við hæfi.
Ennfremur skorar þingið á
sömu aðila að gæta þess, að i
reglugerð þeirri, sem unnið er að
samkv. 9. gr. iþróttalaga varð-
andi greiðsluþátttöku iþrótta-
sjóös i kostnaði iþróttamann-
virkja iþrótta- og ungmennafé-
laga, bæjar-og sveitarfélaga, eða
samtök þessara aðila, að hundr-
aðstöluleg þátttaka sjóðsins i
kostnaði þeirra verði eigi lækkuð
frá þvi, sem hún hefur verið áætl-
uð að undanförnu af Iþróttanefnd
rikisins.
I þessu sambandi fer þingið
þess á leit við sömu aðila, að
hundraðstöluleg þátttaka i kostn-
aöi við iþróttavelli og golfvelli fé-
laga verði 40%.
Um grunnskóla i.S.I.
Iþróttaþing I.S.Í. haldið 7. og 8.
sept. 1974 felur framkvæmda-
stjórn I.S.l. aö hefja nú þegar
kynningu á efni Grunnskóla I.S.Í.
Verði stefnt að þvi að héraðs-
sambönd og sérsambönd hefji
undirbúning að þvi að efna til
leiðbeinendanámskeiða, þar sem
kennsla færi fram samkvæmt ný-
útkomnu námsefni Grunnskól-
ans. Fræðslunefnd t.S.I. hafi yfir-
umsjón með framkvæmd nám-
skeiðanna.
Um eflingu
iþróttakennaraskóla ls-
lands
Iþróttaþing Í.S.I. haldið dagana
7.-8. september 1974 samþykkir
að beina þeirri áskorun til
Framhald á bls. 13
A þessari mynd, sem tekin var á ISI-þinginu, sjást, talið frá vinstri: Ólafur Jónsson, Þorsteinn Einars-
son, Gisli Halldórsson, forseti tSt, Sveinn Björnsson, varaforseti tSt, Hafsteinn Þorvaldsson, form.
UMFt, Gunnlaugur J. Briem og Baldur Jónsson, vallarstjóri. Hægra megin sést m.a. Jón Magnússon,
varaformaður KSt.t ræðustói er menntamálaráðherra.