Tíminn - 23.11.1974, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Laugardagur 23. nóvember 1974.
Laugardagur 23. nóvember 1974
Vatnsberinn (20. jan.—18. febr.)
Nú skaltu lofa áhugamálunum að hat'a yfir-
höndina i dag, hver svo sem þau eru. og gefa þig
allan á vald þeim. Það er nauðsynlegt svona við
og við aö helga sig þeim og láta áhyggjur og
amstur lönd og leið.
Fiskarnir (19. febr.—20. marz)
Hjá þér er hollast að slaka á við tómstunda-
gaman. Það er upplagt aö fara i kvikmyndahús
eöa leikhús til aö dreifa huganum Ef þú færir að
taka þér eitthvað fyrir hendur, gæti farið svo, að
þú sæir eftir þvi.
Hrúturinn (21. marz-+-19. april)
Dagurinn i dag er mesti rólegheitadagur i einu
og öllu, og unga fólkið ætti að huga að iþróttun-
um. Þetta er góður dagur fyrir Hrútana á sviði
Iþrótta, hugsanlegur árangursemekki hefur áðui
náðst hjá sumum.
Nautið (20. april—20. mai)
Veðrið hefur sin áhrif á Nautin i dag, og sé það
ekki þvi betra, ættu þau að halda kyrru fyrir. En
I góðu veðri gera þau bezt i þvi að fara í ferðalag,
og jafnvel huga að iþróttum, helzt útivið. Annars
innivið.
Tvíburar (21. mai—20. júni)
Ef þú færö ekki heimsókn i dag, ferð þú i
heimsókn, þar sem þú færð fréttir, sem skipta
þig verulegu máli. Þaðer óvist, að þú gerir þér
Ijóst undir eins, hvaö liggur að baki þeim, en þú
getur verið viss um, að þér er hagur i þessu.
Krabbinn (21. júni—22. júli)
Þetta er mesti ágætisdagur, og ekkert, sem
mælir á móti þvi, að þú lyftir þér upp, annað-
hvort skemmtir þér sjálfur á skemmtistað eða i
leikhúsi, eða njótir úlilífs, ef veðrið verður
þannig, að slikt er ákjósanlegt.
Ljónið (23. júll—23. ágúst)
Það er gaman að lifa, þegar maður er ungur
og hraustur, en full ástæða er til að huga að sál-
inni líka — eða skyldi ekki vera nokkuð langt sið-
an þú hefur komið i kirkju? Þú ættir að láta
verða af þvi i dag.
Jómfrúin (23. ágúst—22. sept.)
Þú skalt taka lifinu með ró i dag. Fjölskyldu-
fólk á að vera saman i dag, og einstaklingar
heföu gott af að koma til gömlu fjölskyldunnar
og reyna að rifia upp gamlar ánægjustundir.
Slikt er öllum til góðs.
Vogin (23. sept.—22. okt.)
Gamlir kunningjar hafa samband við þig, og
þið ákveðið að bralla eitthvað saman. Þetta
verður ánægjulegur dagur fyrir þig, en engin
ástæða er til að ætla, að sviptingar veröi miklar,
nema þvi aðeins þú stofnir til þess sjálfur.
Sporðdrekinn (23. okt.—21, nóv.)
1 hópi Sporðdrekanna er álitlegur hópur
Iþróttamanna, og það er full ástæða til að ætla,
aö þeir notfæri sér daginn vel, enda má segja, að
talsverðar likur séu á, að hann verði þeim
ánægjulegur, enda þótt þetta sé naumast meta-
dagur.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Þetta er dagur afþreyingar og hvilda. Ertu bú-
inn að skoða bækurnar þinar það vandlega, að
þar leynist ekki einhver, sem þú átt eftir að
lesa? Það er jafnvel liklegt, aö þú hafir gagn af
þvi. Kunningi þinn hefur samband.
Steingeitin (22. des.-+19. jan.)
Þó að það sé alltaf hægt að skemmta sér. þá
eru sumir dagar öðrum hagstæðari til þeirra
hluta. Þaðlitur út fyrir, að persóna, sem þér hef-
ur vgrið hugfólgin um skeið, hafi samband viö
þig, og það verður þér til ánægju.
Hjúkrunarkonur
Sjúkrahúsið i Húsavik óskar að ráða
hjúkrunarkonur nú þegar eða eftir
samkomulagi. Góð launakjör.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri i
sima 96-4-14-33.
£júltral)ijsið í Husflvíb s.f.
I!i4l'"'l iii
M Ww i'M B.iBffl.M..
Feimnismdl borgarinnar
Landfari góður!
Ég vona að mér leyfist, eftir 45
ára búsetu hér i Reykjavik, að
kalla hana „borgina okkar”, þótt
ég sé hvorki skjalfestur né rót-
gróinn ihaldsmaður. Hér hef ég
lifað 9/14 hluta ævi minnar, bæði
við vöntun og vesæld, en alltaf
lifað hamingjusömu lifi, vaxið i
önn dagsins og glaðzt á góðum
stundum. Er þar skemmst að
minnast þjóðhátiðarinnar i
sumar, sem tókst með ágætum
eins og allir vita, og var öllum til
ánægju, er með henni fylgdust.
Tóku allir saman höndum við að
geraþá daga ánægjulega: veður-
guðirnir, stjórnendur skemmti-
kraftarnir og fólkið, er sýndi
framúrskarandi góða framkomu
og umgengni. Hafa Reykvikingar
sýnt með þvi að þeir geta verið til
fyrirmyndar og afsannað þann
orðróm og álit, sem margar
undanfarnar þjóðhátiðir og
skemmtanalif i sambandi við
áfengið hefur skapað þeim.
Nú er Reykjavik vaxandi borg
hins nýja tima, breiðir sig yfir
holt og hæðir og stendur vist á
fleiri hæðum en sjálf Róm
Margar byggingar hennar eru
fagrar og reisulegar, þó að alltof
mörg hús hafi orðið að „pislar-
vottum tizkunnar”, bæði hvað
snertir gerð og staðsetningu, Við,
sem munum eftir Reykjavik fyrir
ALLIR VEGIR
FÆRIR Á
Yokohama
SNJÓBÖRÐUM
KAUPFÉLAG
TÁLKNAFJARÐAR
um það bil hálfri öld, getum ekki
annað en glaðzt yfir vexti hennar
og framförum. Sérstaklega
getum við fagnað þvi, hvað
andrúmsloftið breyttist með til-
komu hitaveitunnar. Áður lá
kolareykurinn yfir bænum eins og
þykkt ský, og lagði alla leið út á
Flóa á góðviðrisdögum, en nú sest
ekki eimur i lofti nema gula
skýið, er liggur yfir Aburðar-
verksmiðjunni, fyrirboði þess,
sem koma skal, ef reist yrði hér i
borgarlandinu oliuhreinsunarstöð
eða orkuver af sama tagi. Auk
þess hefur blessað heita vatnið
samhliða okkar ágæta Gvendar-
brunnavatni bætt hreinlætisað-
stöðu fólks, velliðan og heilbrigði,
aukið þægindi og sparnað.
Fyrir utan „grænu byltinguna”
eru nokkrir almenningsgarðar,
útivistarsvæði og grasfletir i
borginni, til þæginda og yndis-
auka. En ef efni væru til mætti
gjarnan hafa viðar bekki á gang-
stéttunum fyrir okkur gamla
fólkið að tylla okkur ár.
Einn er þó sá ljóður á ráði
Reykjavikurborgar og hann er
sá, hvað fá náðhús eru i borginni.
Það er ekki vansalaust, að ekkert
slikt skuli vera á Rauðarártorgi
(Hlemmi) fjölfarnasta torgi
borgarinnar og aðal skiptistöð
strætisvagnanna. Þegar náðhúsin
voru gerð i Bankastræti var
minni umferð um Lækjartorg en
nú er um Rauðarártorg, og i þvi
Vandaðir ódýrir
svefnbekkir og
svetnsófar
öldugötu 33
Sími 19407.
tilliti erum við á eftir timanum.
Það hefði ekki verið meiri hneisa
fyrir nýju lögreglustöðina að hýsa
þá aðstöðu heldur en sjálft
Stjórnarráðið að hafa náðhúsin
fyrir næsta nábúa. Það þyrfti að
koma upp snyrtingu I Vestur-
bænum, við Suðurlandsbraut,
sem orðin er stærsta verzlunar-
gata borgarinnar, Grensásveg og
viðar. — A tveimur stöðum við
höfnina og einum I Austurbænum
er afdrep fyrir karlmenn, en
þangað er ekki komandi nema i
ýtrustu neyð fyrir sóðaskap.
Hafnarbúðum þeim eina stað,
sem komandi var á, var lokað.
Má kenna bakkusi um það eins og
fleira illt. Við Tjörnina, I Banka-
stræti og undir Miklubrautinni er
ágætis þjónusta. En svo klaufa-
lega vildi til, að göngin undir
Miklubrautinni lentu öfugu megin
við Lönguhliðina, þeim megin,
sem minna er gengið.
Ef ráðamenn „borgarinnar
okkar” sjá sóma sinn i þvi að
afgreiða þessi feimnismál sin á
viðunandi hátt, get ég vel fyrir-
gefið, þó að„græna byltingin”
dragist þeim mun lengur.
Að siðustu vil ég segja við
almenning: Gangið hreinlega um
götur borgarinnar og al-
menningsstaði. Munið, að borgin
er sama og heimiliö ykkar.
Umgengnin- lýsir innri manni.
tJtlit borgarinnar er ykkar stolt.
Guðjón Bj. Guðlaugsson
Efstasundi 30.
Tímínner
peningar
| AuglýsícT
iTímanum
AUÐVITAÐ!
Það er
Bowmar
sem mig hefurj
alltaf vantað
f
Litið inn og skoðið
rafreiknana hjá
ÞÚR HF
REYKJAVIK SKOLAVORÐUSTIG 25
SANDVIK
snjónag'lar
SANDVÍK SNJÓNAGLAR veita öryggj í
snjó og hálku. Látið okkur athuga gömlu
hjólbarðana yðar og negla þá upp.
Skerum snjómunstur í slitna hjólbarða.
Verkstæðið opið alla daga kl. 7.30 til kl. 22,
GÚMMIVNNUSTOFAN HF.
SKIPHOLTI 35 REYKJAVlK SiMI 31055