Tíminn - 03.12.1974, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Þribjudagur 3. desember 1974.
Vatnsberinn (20. jan.—18. feW.)
Þú skalt fara fyrr á fætur i dag en þú ert vanur,
þvi a& þa& er ekki óliklegt, að þú verðir gripinn
einhverju letisleni, svo aö verk dagsins vaxa þér
siöur i augum. En þú stendur þig, þegar þú ert
byrjaður á annað borð.
Fiskarnir (19. febr.—20. marz.)
Þetta er einn af þessum dögum, þegar þér er
ráðlegast að reyna eftir fremsta megni aö hafa
hemil á skapsmunum þlnum. Það er hætt við
þvi, að ef þú sleppir fram af þér beizlinu, gerir
þú eitthvað, sem þú sérð eftir.
Hrúturinn (21. marz—19. april)
Það er rétt eins og athyglin beinist skyndilega aö
þér, og þess vegna skaltu vera viss um, aö
ástæðan til þess sé af jákvæðum toga spunnin.
Gremja kemur þér ekki að neinu liði, getur
skemmt aöstööu þina.
Nautið (20. apríl—20. mai)
Þaö bendir ýmislegt til þess, að eitthvert leynd-
armál, sem hefur veriö varöveitt mjög lengi,
verði komiö á allra varir áöur en langt um liöur.
I sambandi viö þetta getur vel fariö svo, að þú
farir I heimsókn I kvöld.
Tviburarnir (21. mai—20. iúní)
Það er eitthvaö, sem þú hefur blandað þér inn i
fyrir löngu siöan, sem gæti komiö þér I koll I dag.
Þú skalt fara að öllu með mestu gát I dag og ekki
hika viö að leita aöstoðar vina þinna og kunn-
ingja.
Krabbinn (21. júni—22. júlí)
Þetta er svolitið einkennilegur dagur, sem ekki
er gott aö segja til um, hvernig verður. Það er
verulega undir sjálfum þér komiö. Þó skaltu
gera þér grein fyrir þvi, aö ýmislegt getur ennþá
komið þér á óvart.
Ljónið (23. júli—23. ágúst)
Þaö eru kunningjarnir, sem máli skipta i dag, og
það er alls ekkert óliklegt, að þiö hittist á nýjum
staö. Þetta getur orðið hiö mesta fjör, en þú
veröur samt að halda vel á spö&unum til þess aö
gamaniö veröi ekki endasleppt.
Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.)
Þú hittir einhvern eða kynnist einhverjum þeim
aðila i dag, sem hugsanlega á eftir aö hafa tals-
verð áhrif á tilveru þina. Aö minnsta kosti er
hætt við, aö samtal ykkar veröi þér minnisstætt,
eftir að annað er gleymt.
Vogin (23. sept—22. okt.)
Rólegur dagur hjá þeim eldri — rómantiskur hjá
þeim yngri. Þaö er rétt eins og trúlofaða fólkið
hagnist eitthvað, en eldra fólið lyftir sér að
likindum eitthvað upp seinni hluta dagsins eöa
undir kvöldið.
Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.)
Þaö er fjölskyldan, sem máli skiptir i dag, og þú
skalt kappkosta að leggja grundvöllinn aö ýms-
um umbótum i þágu heimilisins. ÞÚ skalt forö-
ast fólk, sem fer I skapið á þér, alveg sérstak-
iega i dag.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Kimnigáfan er þér oft hjálpleg, en i dag er hún
blátt áfram nau&synleg, þvi að hún hjálpar þér
til aö losna úr klipu sem annars gæti oröiö þér
fjári erfið. Hugaðu að smávandamálum innan
fjölskyldunnar og laga&u þau.
Steingeitin (22. des.—19. jan.)
Þetta, sem þú hefur verið aö biöa eftir undanfar-
iö, gerist að öllum likindum i dag. 1 kvöld skaltu
sinna áhugamálunum, og skemmtanir eða fjöl-
menni bjóða upp á ýmsa möguleika og nýjungar
og fjölbreytni.
Laxveiðiá
Tilboð óskast i Miðá i Dalasýslu. Tilboðum
sé skilað fyrir 1. janúar 1975 til Hjartar
Einarssonar, Neðri-Hundadal Miðdala-
hreppi, er gefur allar nánari upplýsingar,
réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Stjórn Fiskiræktar- og Veiðifélags Mið-
dala.
m
Illllíl l'll
IlllKIIlll
,Fiskur undir
Landfari góður.
Undanfarið hafa oröið miklar
umræður um sjónvarpsmyndina
„Fiskur undir steini”, og hefur
mörgum þótt sem þar væri ómak-
lega að Grindvikingum vegið eða
jafnvel ibúum sjávarplássa al-
mennt. Vel má svo vera. En i
þessum umræðum öllum megum
við ekki missa sjónar á þvi sem er
mcrgurþessa máls, þ.e. félagsleg
umræða hér á landi. Hún er i
rauninni nánast engin, og þá sizt i
fjölmiöli eins og sjónvarpinu, sem
þó væri einkar vel til þess fallið.
Ég vil þvi skora á þá, sem fara
með mál sjónvarpsins, að láta
hina misheppnuðu Grindavikur-
mynd — eða öllu heldur umræður
og skrif um hana — ekki verða til
þess að hræða sig frá frekari
tilraunum til þess að koma á
félagslegri umræðu i
sjónvarpinu. Þá væri illa farið.
Sjónvarpsáhorfandi.
f
Utvarp í
strætisvögnum
Mig langar til þess að biðja Land-
fara um fyrirspurn til forráða-
manna Strætisvagna
Reykjavikur. Svo er mál með
vexti að sumir strætisvagna-
stjóranna hafa útvarpstæki hjá
AuglýsidT
íTímanum
sér I vögnunum,viðþvi er svo sem
ekkert að segja, þvi að trúlega er
starf þeirra með afbrigðum
leiöinlegt og tilbreytingarlaust,
þannig að þeim er ekki of gott að
fá að hluta á útvarp. En mér
finnst hins vegar, að þeir ættu þá
aö láta sér nægja að hluta á is-
lenzka útvarpið. Það gerist þvi
miður oft, að hermannaútvarpiö
frá Keflavikurflugvelli dynur i
eyrum manns, þegar stigið er upp
i strætisvagn, og ég er áreiðan-
lega ekki einn um að finnast það
harla óviðkunnanlegt, svo að ekki
sé meira sagt. Finnst ráðamönn-
um SVR ekki eðlilegt, að þær
reglur væru settar, að vagn-
stjórar láti sér nægja islenzka út-
varpið, þegar vitaö er að
margir farþegar kunna her-
mannaútvarpinu illa?
Farþegi.
Bótagreiðslur
almannatrygginga
í Kjósarsýslu
og i Seltjarnarneskaupstað fyrir
desembermánuð fara fram sem hér segir:
Mosfellshreppi
miðvikudaginn 4. des. kl. 2-4.
Seltjarnarnesi
fimmtudaginn5. des. kl. 10-12 og 1,30-4,30.
Kjalarneshreppi
föstudaginn 6. des. kl. 2-3.
Kjósarhreppi
föstudaginn 6. des. kl. 4-5.
Sýslumaður Kjósarsýslu.
Bæjarfógetinn Seltjarnarnesi.
^ \ Bjarg, Akranesi
( 3 \ TERRA ) fvrlr / HERRA frá Gefjun Kaupfélagið Fram Neskaupstað Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum Kaupfélag Skagfirðinga Sauðórkróki