Tíminn - 03.12.1974, Side 20
Þriðjudagur 3. desember 1974
Tíniitmer
peningar
AugjýsitT
iTÍmamun
SIS-ltHHlt
SUNDAHÖFN
fyrirgóúun mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Ófriðarástand
/ pl ^ A *
i Eþiopiu
Reuter-Addis Ababa. Tvær öflug-
ar sprengjur sprungu I Addis
Ababa, höfuðborg Eþiópiu i gær.
Að minnsta kosti fimm manns
létu iifið og fjöldi fólks særðist.
Herforingjar þeir, er fara nú
með völd i Eþiópiu, kenndu
áhangendum fyrri valdhafa um
sprengjutilræðin. Þeir hétu að
koma tilskildum viðurlögum
fram viö tilræðismennina.
Sprengjurnar sprungu með
minútu millibili: Sú fyrri i kjall-
ara Wabe Shebelle-hótels og sú
siðari á fyrstu hæð ráðhússins i
Addis Ababa.
Hótelgestir voru einmitt að
koma sér fyrir i matsalnum um
hádegi i gær, þegar sprengjan
sprakk.Fyrstu fréttir bentu til, að
fjöldi gesta heföi særzt lifshættu-
lega i sprengingunni. óstaðfestar
fréttir hermdu, aö tveir hefðu lát-
izt og fimm særzt i sprengingunni
i ráðhúsinu.
Nærliggjandi götum var þegar
lokað. Lögregla og hermenn meö
alvæpni stóðu vörð og meinuðu
öllum aðgang að hótelinu og ráö-
húsinu, m.a. vestrænum frétta-
mönnum.
Eins og áður segir kenndu
stjórnendur Eþiópiu stuönings-
mönnum fyrri valdhafa um
sprengjutilræðin, en u.þ.b. sextiu
þeirra voru sem kunnugt er tekn-
ir af lífi um fyrri helgi.
Fréttaskýrendur höfðu hins
vegar eftir háttsettum lögreglu-
foringjum, að Frelsissamtök
Eritreu hefðu staðið að baki til-
ræðunum. Samtökin hafa komið
sér fyrir i Addis Ababa og hyggja
á fleiri tilræði af þessu tagi til að
leggja áherzlu á kröfu sina um
fullt sjálfstæði til handa Eritreu.
Fréttir hermdu, aö lögreglan
hefði þegar handtekið sex menn
af eritresku bergi brotna og fleiri
væri leitað.
Hersveitir frelsissamtakanna
höfðu i gær slegið hring um
Asmara, höfuðborg Eritreu, en
hersveitir stjórnarinnar bjuggust
til varnar i borginni.
Astandið i Addis Ababa er
striðsástandi likast: Strangur
hervörður er um öll mikilvæg
mannvirki I borginni, t.d. aðal-
stöðvar pósts og sima, útvarps-
og sjónvarpsstöövar. Þá eru veg-
farendur krafðir um persónuskil-
riki. Útgöngubann hefur verið i
gildi I borginni frá miðnætti til
sólarupprásar um þriggja mán-
aöa skeiö.
Fréttir frá Eþiópiu I gærkvöidi
hermdu, að enginn hefði látizt I
sprengjutilræöunum. Talsmaður
innanrlkisráðuneytis landsins
kvað þrettán hafa særzt: Sex I
ráðhúsinu og sjö á hótelinu.
Vladivostok-samkomu-
lagið birt í nótt
Hagnast Sovétstjórnin ein ó þvi?
Reuter-Washington. Gerald Ford
Bandarikjaforseti hélt fund með
fréttamönnum I nótt og skýrði frá
samkomulagi þvi, er þeir Leonld
Brésjnef, aðalritari sovézka
kommúnistaflokksins, geröu um
takmarkaðan fjölda eldflauga á
fundinum i Vladivostok fyrir
rúmri viku. Fréttamannafundin-
um var sjónvarpað um gervöll
Bandarikin.
Ford sat i gærmorgun fund með
öryggisráöiBandarikjanna, sem i
eiga sæti æðstu menn varnar-,
Búvara hækk-
ar í verði
Framleiðsluráð landbúnaðarins
auglýsti I gærkvöldi hækkun á
verði búvara. Hækkun þessi
starfar að nokkru af hækkun
rekstrarvara við sjálfan búrekst-
urinn og einnig vegna hækkunar á
rekstrar- og dreifingarkostnaði
varanna. Þá koma einnig til hinar
svokölluðu láglaunabætur sam-
kvæmt ákvæðum nýútgefinna
bráðabirgðalaga. Verðgrunnur-
inn til framleiðenda hækkar um
6.94%. Verö á kjarnfóðri hefur
hækkað um rúmlega 18% siöan
siðast var verðlagt þann 1. sept.
Flutningskostnaöur hefur hækkað
á sama tlma um tæplega 36%.
Rafmagn um tæp 34%. Vextir um
rösklega 10%. Kostnaður við vél-
ar um 7% og laun til bóndans og
skylduliðs hans, sem er sambæri-
leg ■ launahækkun sem laun-
Mjólk i 2 1. fernum
Mjólk i 1 1 umbúðum
Rjómi I lausu máli hver litri
Skyr, hvert kiló
Smjör 1. flokkur, kiló
Ostur 45% hvert kiló
Siípukjöt. Frampartar og siöur
hvert kiló
Læri, hvert kiló
Kótilettur hvert kiló
Heilir skrokkar, skipt eftir ósk
kaupenda hvert kiló
Þessar prósentur sem hér eru
nefndar eru ekki aö öllu leyti
raunhæfar, þvi aö i mörgum
tilfellum er búið að greiða vöruna
niður um meira en helming og
aurafjöldinn kemur þvi á miklu
lægri grunn. Verðgrunnurinn til
framleiðenda hækkar t.a.m. nú
þegar fá núna um 3%. Auk þess
gera hinar svonefndu láglauna-
bætur kr. 1.06 aura á lltra mjólkur
og sambærilegt á aðrar tegundir
búvara.
Vinnsla og dreifingarkostnaður
á mjólk hefur verið hækkaður um
kr. 1.10 á litra, er gerir 7,9%.
Umbúðakostnaður miðaö við
tveggja litra fernur hefur verið
hækkaður um kr. 1,90 á Iítra.
Dreifingarkostnaður kinda-
kjöts hefur veriö hækkaöur um
kr. 2.40 á hvert kiló kjöts, er gerir
um 4%. Af þessari ákveðnu hækk-
un á mjólkurverðinu hefur rikis-
stjórnin ákveðið að niðurgreiðsl-
ur á mjólk hækki um kr. 2.30 á
litra.
Sem dæmi um þær hækkanir,
sem hér um ræðir, má nefna
eftirfarandi smásöluverð:
Eldra Nýtt mismunur mismunur
verð verð I kr. I %
56.70 65.50 8.B0 15.5
27.50 31.00 3.50 12.7
269.20 303.00 33.80 12.6
82.20 91.00 8.80 10.7
386.00 463.00 77.00 19.9
395.00 445.00 50.00 12.7
259.00
296.00
338.00
301.00
341.00
388.00
42.00
45.00
50.00
16.2
15.2
14.8
16.4
238.00 277.00 39.00
um 6.94%, en sumar vörutegundir
koma út úr þessu 19.9% eins og
smjörið, enda er það mest greitt
niður. Aurafjöldinn gerir þvi
miklu hærri prósentu á niður-
greiddri vöru heldur en á þeirri
vöru sem er óniðurgreidd.
utanrikis- og annarra öryggis-
mála. Að fundinum loknum ákvað
forsetinn að birta opinberlega
helztu atriði samkomulagsins.
Areiðanlegar fréttir hermdu
siödegis i gær, að samkomulagið
fæli i sér eftirfarandi efnisatriði:
Bandarikin og Sovétrikin mættu
ráða yfir 2400 eldflaugakerfum til
árása — hvort stórveldi um sig —■
svo og 1200 eldflaugum, búnum
kjarnaoddum.
Bandarikjastjórn hefur taliö
samkomulagið mikilsverðan
áfanga á leiðinni til gagnkvæmr-
ar afvopnunar stórveldanna. Aðr-
ir hafa þó dregið gildi þess i efa,
enda virðist I engu hróflað við
áætlunum beggja stórveldanna
um aukinn vigbúnað. Þá hafa
andstæðingar stjórnarinnar,
þ.á.m. Henry Jackson öldunga-
deildarmaður, sagt Sovétstjórn-
ina eina hagnast á samkomulag-
inu, þar eð Sovétmenn hafi nú
þegar yfir að ráða langdrægari
eldflaugum — staðsettum á jörðu
niöri — en Bandarikjamenn.
Ford forseti boðaði til fundarins
i nótt fyrst og fremst til að skýra
frá árangri Vladivostok-fundar-
ins. önnur mál bar þó á góma,
m.a. samskipti Bandaríkjanna og
Kina, ástandið I Miðjarðarhafs-
löndum, vaxandi verðbólga og
minnkandi vinsældir Fords for-
seta heima fyrir.
lltLSHORNA
' 'Á MILLI
Reuter-Ankara. Tyrkneska
utanrikisráðuneytið tilkynnti i
gær; aö viðræður um frið á
Kýpur milli grisku- og tyrk-
neskumælandi manna féllu
niður, um leið og Makarios
erkibiskup stigi fæti á Kýpur.
Talsmaður ráðuneytisins
endurtók þá staðhæfingu, sem
tyrkneskir ráðamenn hafa lát-
ið hafa eftir sér að undan-
förnu: Valdataka Makariosar
torveldar allar viðræður um
friöarsamninga.
Tilkynningin var birt að
loknum fundi Sadi Irmaks,
sem nú gegnir embætti for-
sætisráöherra til bráðabirgða,
með æöstu yfirmönnum tyrk-
neska hersins. Að sögn frétta-
skýrenda magnast i sifellu
óánægja I Tyrklandi með
fyrirhugaða valdatöku
Makariosar á Kýpur.
Ilhami Sankar landvarna -
ráðherra sagði i gær, að ráð-
stafanir yrðu gerðar til að
mæta óeirðum á Kýpur. Ráð-
herrann kvaöst telja hættu á
átökum griskumælandi
manna á eynni vegna valda-
töku Makariosar. Fréttir
hermdu I gær, að nokkur við-
búnaður væri hjá hersveitum
Tyrkja á Kýpur. Hugsanlegt
er, aö skæruliðar griskumæl-
andi manna láti til skarar
skriöa gegn þeim siðar i vik-
unni — um þaðleyti, er
Makarios snýr aftur til eynnar
úr nokkurra mánaða útlegð.
Reuter-Moskvu. Sovézka
geimfarinu Soyuzi 16. var
skotið á loft I gær á braut um-
hverfis jörðu. Um borð eru
tveir geimfarar — Anatoli
Filipchenko og Nikolai
Rukavishnikov — sem eiga að
prófa nýjan tæknibúnað —
búnaö, sem nota á við sam-
tengingu bandariskra og
sovézkra geimfara á næsta
ári.
Fréttaskýrendur álita, að
áhöfn Soyuzar 16. eigi að koma
fyrir tæki úti I geimnum, sem
aftur verði notað i júli á næsta
ári, en þá er fyrirhugað að
skjóta tveim geimförum á
loft: öðru frá Bandarikjunum
og hinu frá Sovétrikjunum og
tengja þau saman úti i geimn-
um.
Bandariskir og sovézkir vls-
indamenn hafa um nokkurra
ára skeið unnið að sameigin-
legri geimferðaáætlun, og er
þetta geimskot Sovétmanna
einn liðurinn I þeirri áætlun.
1 geimferö Soyuzar 16. verð-
ur reynd ný gerð lofts, en sam-
setning lofts i Apollo- og
Soyuz-geimförum hefur verið
allt önnur til þessa: Sovét-
menn hafa notazt við blöndu
lofts, er likist mjög andrúms-
lofti jarðar að samsetningu og
þrýstingi, meðan Bandarikja-
menn hafa notað hreint súr-
efni með lágum þrýstingi.
Sovézkir visindamenn hafa nú
dregið úr þrýstingi loftsins og
aukiö súrefnismagn þess.
Hugsanlegt er, að Soyuz 16.
verði I talstöðvarsambandi við
aðalstjórnstöð bandarisku
geimferðarstofnunarinnar I
Houston I Texas, en sú frétt
hefur ekki verið staðfest af
bandariskri hálfu.
Reuter-Tókió. Takeo Miki
verður Hklega næsti forsætis-
ráðherra Japans að sögn
fréttaskýrenda I Tókió.
Leiðtogar frjálslynda lýð-
ræðisflokksins koma saman til
fundar á morgun til að velja
eftirmann Kakuei Tanaka, er
sagt hefur af sér forsætisráð-
herraembætti.
Samkomulag náöist um kjör
Miki um helgina innan
stjórnarflokksins eftir all-
snarpar deilur. Masaygshi
Ohira og Takeo Fukuda þóttu
liklegastir eftirmenn Tanaka
en hvorugur hlaut nægilegt
fylgi.
Nýjar mjólkurumbúðir
Mjólkursamsalan I Reykjavik
sendir frá sér I dag nýjar eins
litra mjólkurumbúðir, og verða
hyrnurnar jafnframt teknar úr
notkun. Hinar nýju umbúðir eru
handhægari I notkun en hyrnurn-
ar og taka mun minna rúm i kæli-
skápum og öðrum geymslum.
Eru nýju umbúðirnar kubblaga,
svipaðar múrsteini að stærð og
gerð. Mjólkurpakkarnir eru hvit-
ir bláir og gulir á lit með svörtu
letri. A pökkunum er mynd af
fornum sveitabæ, og er sólin að
koma upp að fjallabaki. Framan
við bæinn rennur mjólkurhvit á. t
forgrunni leiðir kona kvigu og er
liklegast aö verið sé að minnast
þjóðhátiðarárs og alþjóðlegs
kvennaárs með mynd þessari og
er konan að festa sér land með þvi
aö leiöa kvlguna umhverfis
landnám sitt. A bakhliö er
nákvæm tafla yfir þau efni, sem
mjóikin inniheldur.
X*- . v
Alltaf er nú blcssuð mjólkin bezt. — Tlmamynd: Gunnar.