Tíminn - 21.12.1974, Blaðsíða 7
Laugardagur 21. desember 1974.
TÍMINN
Norsk mótmæli gegn fóstureyðingum:
MIKILL MEIRI-
HLUTI KONUR
FYRIR nokkrum dögum
voru menn á ferð með
skrýtið ökutæki á Akers-
götu i Osló. Á ökutækið
var fest mynd af fóstri,
innrammað á prentaða
lagabálka.
Þeir, sem þarna voru á ferð,
héldu rakleitt að þinghúsinu,
enda var ferðinni heitið þangað.
Upp úr kafinu kom, að þeir höfðu
meðferðis undirskriftir 610
þúsund Norömanna, sem mót-
mæltu frjálsum fóstureyðingum,
sem nú eru svo viða deiluefni.
Undirskriftum þessum hafði
verið safnað i mörgum héruðum
Noregs. A Suður- og Vesturland-
inu, aö Hörðalandi undanskildu,
hafði um helmingur fólks, sem til
aldurs er kominn, tekið þátt i
undirskriftunum, og á Austur-
ögðum hvorki meira né minna en
64,9%
Mikill meirihluti þeirra, sem
skrifuðu undir mótmælin, eru
konur, og virðast þær vera á
öllum aldri, frá átján ára og upp
úr.
Skjölin, sem undirrituð voru,
eru á norsku bókmáli, nýnorsku
og lappnesku.
Mótmælamenn á ferð með 610 þúsund undirskriftir á leið til norska
þinghússins.
LEYNDA
KONAN
— ný saga
Victoriu Holt
Leynda konan eftir Victoriu
Holt er ný saga, um ástir, ævin-
týri og spennu. Aðalsöguhetjan er
Anna Brett, ung kona, sem alin
hafði verið upp af viljasterkri
ógiftri frænku i sögulegu húsi I
enskri hafnarborg.
örlög önnu virtust ætla að
veröa þau, aö fylgja I fótspor
frænku sinnar, og lifa friðsælu en
viöburöasnauöu llfi gamallar
piparmeyjar, þegar röð óvæntra
atburða leiða til þess, að hún
ræðst sem kennslukona á heimili
rikustu og voldugustu fjölskyldu
borgarinnar.
Fjöldi athyglisverðra einstak-
linga og framandlegt baksvið,
ásamt æsandi atburðakeðju, eru
þau atriði, sem gera Leyndu kon-
una aö hrifandi sögu i hinum óvið-
jafnanlega stil Victoriu Holt.
Bókaútgáfan Hildur gefur bók-
ina út, en Setberg prentaði.
Leikfang
vindanna
— Ijóðabók eftir
Árna Larsson
ÖT ER KOMIN ný bók, „Leik-
fang vindanna”, eftir Arna Lars-
son og er þetta önnur bók hans.
„Leikfang vindanna” er ljóða-
flokkur og skiptist i þrjá hluta:
,,Um sólina, manninn og auðn-
ina”, „Valdið” og „Mannaður
heimur”.
Arni Larsson, sem er þritugur
reykvikingur, sendi fyrir tveimur
árum frá sér bókina „Uppreisnin
i grasinu”, en auk hennar hefur
hann ritað greinar um menning-
armál i blöð og timarit. Arni er
einn af stofnendum SÚR — sam-
bands ungra rithöfunda og fékk
viðbótarritlaun fyrr á þessu ári.
„Leikfang vindanna” er offset-
fjölrituð hjá Letri s/f, útgefandi
er höfundur.
Ársskýrsla
AAennamálaráðs
Menntamálaráð Islands hefur
sent frá sér ársskýrslu sina fyrir
árið 1973.
í skýrslunni er greint frá út-
gáfustefnu Menningarsjóös. Sér-
stakt þýöingaherbergi hefur verið
tekið i notkun i stofnuninni og rit-
ar Kolbeinn Sæmundsson, þýð-
andi grein i skýrsluna um skáld-
verkið, sem hann hefur unniö við
að þýöa s.l. ár. Þá er i skýrslunni
bréf frá Alan Boucher, prófessor i
ensku við Háskóla íslands, en
bréf þetta ritaði hann meö um-
sókn Menntamálaráðs um fjár-
stuðning frá UNESCO.
Þetta er i annað sinn, sem
Menntamálaráð gerir grein fyrir
störfum sinum i skýrslu og liggur
hún frammi á skrifstofu Menn-
ingarsjóðs.
Hrossaþjófum
sleppt
Gsal—Rvik — Hrossaþjófunum,
sem setið hafa i gæzluvarðhaldi
um nokkurt skeið I Hafnarfirði,
hefur veriö sleppt úr varðhaidinu.
i iok varðhaldsins viðurkenndu
þeir tvo hrossaþjófnaði til viðbót-
ar þeim sjö, sem þeir höföu áður
greint frá. Auk þjófnaða á hross-
um viöurkenndu þeir ýmiss konar
annan stuld, þ.á.m. á hnökkum,
störturum úr bilum og öðru.
Táminn er
peningar
Hefurðu heyrt Svartaskóg
nefndan?
Svartiskógur er fremur lítið hérað I suðvestur hluta
Vestur-Þýzkalands. Á þýzku heitir það Schwarz-
wald. í þessu héraði þykja hafa búið einhverjir
beztu handverks- og iðnaðarmenn Þýzkalands, og
hafa þær iðnaðarvörur, sem frá Svartaskógi hafa
komið, þótt vera í svo háum gæðaflokki, að smám
saman hefur orðið til orðatiltækið „Schwarzwálder-
Qualitát", eða Svartaskógar-gæði. — SABA verk-
smiðjurnar víðkunnu eru einmitt í Svartaskógi, enda
hafa þær átt sinn rikulega þátt í að byggja upp það
ágæta orðspor, sem af héraðinu fer. — Aðaltækið
i þeirri hljómtækjasamstæðu, sem við bjóðum hér,
er frá SABA, og ber það tegundarheitið Studio
8730. Studio 8730 er sambyggt úr eftirfarandi tækj-
um: Útvarp með FM-stereo-bylgju með fimmskiptu
forvali, langbylgju, miðbylgju og stuttbylgju + 2x9
sinus/RMS watta magnari, sem hefur innan við
0,1% bjögun við hámarksútgangsstyrk og er gerður
fyrir stereo- eða fjórviddarnotkun (SABA quadros-
onic) + 3ja hraða plötuspilari, sem fullnægir vel
öllum kröfum skv. DIN 45.500, eins og aðrir hlutar
Studio 8730, og er með DMS-200 segulþreif. Há-
talararnir eru af gerðinni SCANDYNA HT-35F, og
er tónsvið þeirra 35—20.000 rið og flutningsgeta
hvors þeirra allt að 80 wöttum. — Heildarverð þes-
arar samstæðu, sem er óvanalega vönduð og traust,
er kr. 126.700,00, og er hún fáanleg bæði í valhnotu
og hvítu.
NESCO HF
Leiöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-úlvarps- og hljómtækja.
Verzlun Laugavegi 10 Reykjavik. Simar: 19150-19192-27788