Tíminn - 21.12.1974, Blaðsíða 15

Tíminn - 21.12.1974, Blaðsíða 15
Laugardagur 21. desember 1974 TÍMINN 15 42 rithöfundar fá viðbótarritlaun Hinn 21. nóvember 1974 skipaði menntamálaráðuneytið úthlutunarnefnd i samræmi við reglur um viðbótarritlaun frá 11. nóvember sl. — i nefndinni áttu sæti: Rannveig Agústsdóttir, B.A., og Bergur Guðnason, lög- fræðingur, tilnefnd af Rithöfundasambandi islands, og Þorleifur Hauksson, cand. mag. tilnefndur af kennurum í islenskum bókmenntum við manna og mikill véla- kostur sendur til hjélpar H.J. Rvik — Laust eftir miðnætti hafði Tlminn samband við 3 fréttaritara sina á Austfjörðum og spurði, hver viðbúnaður hefði verið við hafður til aðstoðar við björgunarstarfið i Neskaupstað. Marinó Sigurb jörnssyni á Reyðarfirði sagðist svo frá: — Hér var þegar safnað saman 30-40 manna liði, til að aðstoða við hjálparstarfið. Laust eftir miðnætti lögðu þeir af stað með írafossi til Neskaupstaðar. Þar að auki voru 2 mokstursvélar og litil ýta sendar með skipinu. Ætlunin var að senda stóra ýtu, sem hér er til, en það var ófram- kvæmanlegt, vegna þess, að bómur skipsins gátu ekki borið hana. — Nokkur bið var á þvi, að hjálparliðið héðan færi af stað, þvi að sækja þurfti tæki út i héraðið. Sú ferð gekk fremur hægt, sökum ófærðar og þurfti snjóblásari að fara á undan alla leiðina. Héðan er u.þ.b. þriggja og hálfs til fjögurra tima sjóferð til Neskaupstaðar, svo að búast má við, að Irafoss verði kominn þangað fyrir morgun. Jón Kristjánssoná Egilsstöðum sagði: — Ekki var almennt útboð manna hér, en rétt fyrir klukkan 7 fóru héðan 2 vörubílar, annar með rafkapal og útbunað til að gera við bilaðar rafmagnslinur, en hinn með gröfu á pallinum. Einnig fóru 2 stórar moksturs- vélar. Snjómoksturtæki var á Fagradal I dag og fóru tækin i kjölfarið og áttu þau að fara i veg fyrir trafoss, sem lá á Reyðar- firði, en fara síðan með honum til Neskaupstaðar, — Ég er ekki viss um, hversu margir menn hafa farið héðan, en þeir munu sennilega nálægt 10 talsins. Allavega fóru menn til að stjórna tækjunum og nokkrir i viðbót. Ekki eru meira en 30 km til Reyðarfjaröar og i górði færð u.þ.bþ þriggja stundarfjórðunga akstur, en búast má við, að ferðin hafi tekið öllu lengri tim nú, þar sem hér er allt á kafi i snjó og alltaf þurfti að ryðja tækjunum braut. Sigmar Hjelm fréttaritari á Eskifirði sagði: — Héðan fór stór hluti björgunarsveitarinnar upp úr 8 i kvöld. Ég þori ekki aö fara með, hversu margir þeir voru en i björgunarsveitina eru skráðir u.þ.b. 60 menn. Ætlunin var, að írafoss kæmi hér við á leið sinni frá Reyðarfirði til Neskaupstaðar og tæki bæði mannskap og tæki, en þar sem skipið tafðist nokkuð lengi á Reyðarfirði, var ákveðið að senda björgunarmenn með heimabátnum Sæbergi. — Hér biöa 2 gröfur, sem fyrir- hugað var að senda til Neskaup- staðar með Irafossi, en þar sem hjálparliðið er þegar farið af stað er ails óvist, hvort skipið kemur og tekur gröfurnar. AAestu snjóflóð í seinni tíð Oft hefur oröið tjón af slóðum hérlendis. Mestu snjóflóð, sem komið hafa i seinni tið, eru snjó- flóðið á Seyðisfirði árið 1885, þegar 24 fórust og 14 ibúðarhús bárust út á sjó, og snjóflóðið I Ilnifsdal 1910, þegar 20 manns fórust. Þessi snjóflóð bar bæði upp á sama daginn — 18. febrúar. Snjóflóðið Fólk var hvatt til að yfirgefa þau hús, sem standa við efstu göturnar i bænum, og var fólkið þegar i gærkvöldi farið aö flytja sig i félagsheimiiið Egilsbúö og Ggnfræðaskólann. Menn óttast, að fleiri skriður eigi eftir að falla, og þá á sjálfan bæinn, en mjög fá Ibúðarhús voru á svæðinu, sem flóðin féllu á i gær. Heldur mun þó vera snjo'- léttara yfir sjálfum bænum, en eins og áður sagði er spáö mjög slæmu veðri meö mikilli úrkomu. Nánar er sagt frá öllum smá- atriðum þessa hryllilega atburðar annars staðar i blaðinu, en geta má þess hér, að snjóflóð hafa ekki fallið á Norðfirði i rösk- lega hálfa öld. Aðalástæðan fyrir þessu flóði mun vera mjög mikill lausansnjórá freðinni jörðinni, en snjórinn féll á tiltölulega mjög stuttum tima. Konurnar tvær og börnin, sem voru mjög ung að árum, voru i starfsmannahúsi sildarplansins Mána, svokölluðum Mánabragga, en einn mannanna sem fórst var ökumaður rútubils og mun bifreiðin hafa lent út i sjó. óttast er, að annar maöur hafi veriö með honum i bifreiðinni og er hann meðal þeirra, sem saknað er. Reynt er aö lýsa flóðasvæðiö upp með kösturum báta heima- manna. Siðast þegar fréttist i gærkvöldi, haföi verið hætt við að senda flugvél Landhelgis- gæzlunnar til Neskaupstaðar, vegna hættu á þvi, aö vélar- gnýrinn frá henni ylli frekari snjóflóðum Ófært var að fljúga til Egilsstaöa og tæplega þarf að taka það fram, aö Oddskarð er ófært, jafnvel fyrir snjóbfl. Ekki er aö svo stöddu unnt að birta nöfn hinna týndu og látnu. Fréttaritari Timans á Neskaupstað, Benedikt Gutt- ormsson, hafði samband við blaðið á öðrum timanum I nótt. Sagði hann að leit væri hætt i rústum Síldarverksmiöjunnar, þar sem allir þeir sem þar hefðu verið væru fundnir látnir. Voru það þrir menn. Leit var einnig hætt i frysti- húsinu i bili, vegna ammoniaks- mengunar. 285 þúsund d mann Háskóla tslands og var hann jafn- framt formaður nefndarinnar. Nefndin auglýsti eftir upp- lýsingum frá höfundum um rit- verk, útgefin eða flutt opin- berlega á árinu 1973 og bárust henni upplýsingar frá 98 aðilum. Nefndin hefur nú lokið störfum og veitt 42 aðilum viðbótarritlaun samkvæmt heimild i 3. gr. fyrr- nefndra reglna, og nam veiting til hvers þeirra rúmum 285 þúsund krónum. Greiðsla þessa fjár hefst eftir næstu áramót. Hér á eftir fer listi yfir þá höfunda, sem viöbótarritlaun hlutu: Armann Kr. Einarsson, Baldur Óskarsson, Birgir Sigurðsson, Björn Th. Björnsson, Björn Þ. Guðmundsson, Björn Magnússon, Björn Teitsson, Einar Bragi, EHnborg Lárusdóttir, Guðbergur Bergsson, Guðjón Sveinsson, Guðmundur G. Hagalin, Gunnar Benediktsson, Gunnar Gunnars- son, Gunnar Gunnarsson, blaðam., Gunnar M. Magnúss, Hannes Pétursson, Hrafn Gunn- laugsson, Indriði G. Þorsteinsson, Ingimar Erlendur Sigurðsson, Jóhann Hjálmarsson, Jón Gunnarsson, Jón Óskar, Jónas Guðmundsson, Jökull Jakobsson, Kári Tryggvason, Kristján frá Djúpalæk, Lýður Björnsson, Magnús Þór Jónsson, Njörður P. Njarðvik, Oddur Björnsson, Ólaf- ur H. Símonarson, Óskar Clausen, Sigurður Guðjónsson, Stefán Júllusson, Steinar J. Lúðviksson, Thor Vilhjálmsson, Vésteinn Lúðviksson, Yngvi Jó- hannesson, Þóra Vigfúsdóttir v/Kristins E. Andréssonar, Þor- geir Þorgeirsson, Þóroddur Guö- mundsson. ) Seyðisf jörður Hengjan hefur siðan farið af stað og sópað öllum lausum snjó á undan sér á leiðinni niður, og að lokum hafnað á fjárhúsunum á Selstað. A Selstað bjó i hálfa öld Jón Jónsson bóndi, sem lézt ifyrra, og var aldrei vitað til þess alla hans búskapartiö, aö þarna hefði kom- iö snjóflóð. Bóndinn á Selstöðum núna er Kristján Eyjólfsson. En það voru synir hans, ómar B. Kristjánsson 9 ára og Eyjólfur Kristjánsson 23 ára, sem fóru út að fjárhúsunum i morgun skömmu áður en snjóflóðið féll. Þegar piltarnir komu að fjár- húsunum hafði fennt þar fyrir all- ar dyr, svo Eyjólfur stakk bróður sinum inn um glugga, og átti hann að sækja reku til þess að hægt væri að moka frá dyrum fjár- hússins. Rétt i þvi, að sá minni er kominn inn i fjárhúsin heyrir Eyjólfur hvar snjóskriðan kemur, og tekst honum að komast undan. Ómar náðist út fljótlega, heill á húfi. Um fimmleytið i gær var búið að ná út 83 ám lifandi, en 17 voru dauöar og 2 slasaðar. Voru bænd- urnir búnir að koma þeim lifandi fyrir i fjárhúsum á Kollsstöðum, en þar eru önnur fjárhús Sels- staðabóndans. Strax eftir að snjóflóöið féll i morgun fór fólk frá Seyðisfirði til hjálpar á tveimur bátum. Var i allan gærdag unnið við aö bjarga fénu út úr fjárhúsunum og flytja það á öruggan stað. m n HUELI Eftir Margaret Mitcnell 0 I þýðingu Arnórs Sigurjónsonar Þessi fræga og eftirsótta skáldsaga hefur verið uppseld árum saman, en er nú komin út í nýrri vandaðri útgáfu með myndum úr kvikmyndinni. Vinsældir hennar má best marka á því, að hún er stöðugt gefin út í fjölda mörgum löndum og er þar með söluhæstu bókum. Sagan er i tveim stórum bindum, rétt um 1000 blaðsíður, innbundin í vandað band. SIGILDAR SKEMMTISÖGUR CHAttlS QAftVlCI ITTflRSKÖMM ÆTTARSKÖMM eftir Charles Garvice og KORDULA FRÆNKA eftir E. Marlitt eru 14. og 15. bókin í bókaflokki Sögusafnsins, SÍGILDAR SKEMMTISÖGUR. Báðar þessar skáldsögur hafa notið mikilla vinsælda, en verið uppseldar árum saman. Þær eru atburðaríkar og spennandi, eins og aðrar bækur Sögusafnsins, ósvikinn og góður skemmti- lestur fyrir fólk á öllum aldri. Hvor bók er tæpar 300 bls. í vönduðu bandi. SÖGUSAFN HEIMILANNA Happdrætti Fram- sóknarflokksins Vinningarnir i happdrættinu aö þessu sinni eru 24 farseölar i' hðpferö til Kanarieyja, með ferðaskrifstofunni Sunnu. Feröin stendur i hálfan mánuö, 22. mars til 5. april 1975. Dvalið veröur á Hótel Waikiki og er hálft fæði innifaliö i farseðli. Verðið á happdrættismiöunum er aðeins 200 krónur og má panta þá á Skrifstofu happdrættisins, simi 24483. Þeir, sem fengiö hafa heimsenda miða, með glróseöli, eru vinsamlegast hvattir til að greiða þá I næsta banka eöa pósthúsi ellegar á Skrifstofu happdrættisins, Rauðárárstlg 18, pósthólf 5121. Afgreiösla Timans, Aðalstræti 7, tekur einnig á móti greiðslum og hefur miöa til sölu. Dregið verður I happdrættinu 23. desem- ber n.k. og veröur ekki frestað. Tökum að okkur gerð FRYSTI- OG KÆUKLEFA "'Srrrnn: W:-:' nnnminxf-i-IX í sambýlishúsum og verzlunum - Gerum fullnaðartilboð í efni (einangrun, allar vélar, hurðir o. fl.) og vinnu llllíM Ármúla 38 - Sími 8-54-66

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.