Tíminn - 21.12.1974, Blaðsíða 11

Tíminn - 21.12.1974, Blaðsíða 11
ostur . ^ veízlukostur Nú á að veita vel, og ostur er ómissandi. Eigum við að bjóða ostapinna með fordrykknum? Byrja á ostasúpu? Gæða okkur á ostakjúklingi? Bera fram ostabakka til að gogga í með samræðunum? Fá okkur ostafondue, heitt ostabrauð eða ost- borgara eftir miðnætti? Ostur kemur alls staðar til greina, þeg- ar gera skal góða veizlu. Það gerir fjölbreytni í fram- boði og su stað- reynd að ostur gengur með næst- um öllum mat. til bragðbætis. Ostur er \ eizlukostur. . y'Á ' S Laugardagur 21. desember 1974. TÍMINN laugarnar, sunnudagsbilferð til Hveragerðis, sjúkrahúsdvöl annars tviburanna og vanga- veltum hins um sprunginn botn- langa bróður sins, svo að eitt- hvað sé nefnt. Þarna er Jói hrekkisvin, Soffia barnfóstran með gullhjartað, og amma dreki sem er svo ólik öðrum ömmum i islenzkum barna- sögum, að húner erindreki.sem ferðast im landið á jeppa. (Þaðan fékk hún viðurnefnið, sem tviburarnir gáfu henni) Lögreglan, sorphreinsunar- mennirnir og vinir foreldranna eru þarna öll til og skapa mjög svo lifandi umgjörð um tilveru drengjanna. Bókin er ekki samfelld frá- saga með ákveðnum söguþræði, heldur fremur dagbókarkennd frásögn sögð af utanaðkomandi sögumanni. Aðeins i örfá skipti kemur sögumaður fram i eigin persónu t.d. á siðu 15 ,,..liklega hef ég alveg gleymt að segja ykkur frá henni önnu Jónu....” og s. 72: .. liklega hef ég alveg gleymt að segja ykkur, af hverju Jón Oddur og Jón Bjarni eru báðir sex ára, þó aö þeir séu bræður. Þeir eru nefnilega tviburar.” Þetta gæti bent til þess að höfundur ætlist til að sagan sé lesin upphátt og til þess er hún einmitt mjög vel fallin, eða að hinn alsjáandi en ósýnilegi sögumaður hefur gleymt sér stundum og komið fram undan sögunni. Kaflarnir eru stuttir og segja likt og i smá söguformi frá hugdettum snáðanna litlu, atvikum úr lifi þeirra og alls kyns uppátækjum. Frá öllu er sagt frá þeirra sjónarmiði, sem að minum dómi hefur tekizt með ágætum Og blómin anga — ný bók eftir Jennu og Hreiðar Og blómin anga eftir hina vinsælu barnabókahöfunda, Jennu og Hreiðar, er ný bók, sem er kjörin handa börnum,sem eru að læra að lesa. Það fer ekki á milli mála, að barnabækur eftir Jennu og Hreið- ar njóta meiri vinsælda en al- mennt gerist, t.d. hafa öddu- bækurnar komið út i fimm útgáf- um á undanförnum árum og segir það sina sögu. Þessi nýja bók er útgefin af Bókaforlagi Odds Björnssonar, en teikningar. og kápumynd er eftir Hólmfriði Valdimarsdóttur. HVtTMANUÐUR nefnist safn smásagna eftir Unni Eiriks- dóttur, sem Helgafell hefur gefið út. 1 þessari bók eru átján smásögur, flestar stuttar en lengst sú þeirra, sem bókin dreg- ur nafn af. Gerast þær á ýmsum slóöum — ein til dæmis á ókomn- um tima, þegar búið er að hola Arnarhól að inan og gera loftúarnarbyrgi, en önnur i himnariki, sem kannski er rökrétt framhald af tilvist byrgisins undir Arnarhóli. Ýmsum öðrum sögum Unnar verður ekki markaður staður né stund, og getur vettvangur þeirra sagna verið hvar sem er. Hamingja í hnotskurn og sýnir að höfundur þekkir vel til þessa aldurs. Loksins er hér komin bók um nútimabörn i Reykjavik, sem eiga venjulega foreldra, sem bæði vinna úti, án þess að börnin bfði skaða af, eins og oft hefur verið látið i skina I barnabók- um. Þeir búa i blokk og þykir þaö miklu betra en að búa I húsinu hjá ömmu. Þessar tvær listakonur, höfundur og teiknari, hafa unnið vel saman og við lok lesturs þessarar bókar get ég ekki stilt mig um að gæla við þá ósk að út komi fljótlega jafn trúverðug saga um hana önnu Jónu, stóru systur, sem var að fermast. Hún er ljóslifandi i sögunni og væri mjög gaman að fá að kynnast henni svolitið betur. Sigrún Klara Ilannesdóttir. Öddu- bækurnar — eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson Margir foreldrar minnast þess með ánægju, þegar þeir lásu öddu-bækur Jennu og Hreiðars i bernsku sinni, og munu þess vegna hafa ennþá meira gaman af að gefa börnum sinum þessar ágætu bækur. Nú hafa tvær þeirra verið endurprentaðar, en það eru Adda og litli bróðir og Adda lærir að synda. Hinar vinsælu öddu-bækur eru skrifaðar fyrir þau börn, sem eru að lesa fyrstu bækurnar á ævi sinni. Allar eru þær bæði hollur og skemmtilegur lestur. Bækurnar eru fallega mynd- skreyttar af Halldóri Péturssyni listmálara, en það er Bókaforlag Odds Björnssonar sem þær gefur út. Smásagnasafn Eftir Unni Eiríksdóttur sem hún er hálfsystir tviburanna, gerir hana öfunds- verða i þeirra augum sérlega á afmælum og jólum. Magga, litla systir, sem er sipissandi, kemur litið við beina sögufrásögnina þótttilvera hennar sé mjög skýr I llfi tviburanna. Tvíburarnir eru alltaf I kjarna sögunnar og pabbi og mamma og fjölskyldan eru hinn eðlilegasti bakgrunnur I sögunni. Tilsvör þeirra, gerðir og viðbrögð við uppátækjum tviburanna eru túlkuð frá sjónarmiði tviburanna sjálfra, sem oft furða sig á fullorðna fólkinu. Allt umhverfi sögunnar er mjög trúverðugt og að minu áliti er þetta mjög kærkomin viðauki við barnabókaútgáfu okkar. Sagt er frá ferð i sund Guðrún Helgadóttir Jón Oddur og Jón Bjarni Kolbrún S. Kjarval myndskreytti. Iðunn, 1974 Það er alltaf með nokkurri eftirvæntingu sem ég nálgast nýjar barnabækur frumsamdar á Islenzku, einkum þó þegar i hlut á höfundur, sem ég hef ekki áður kynnzt. Þannig var mér farið er ég hóf lestur ofan- nefndrar bókar. Lestur hennar i útvarpið hafði algerlega farið fram hjá mér og þar sem þetta er fyrsta bólf höfundar var engin leið að gera sér nokkra fyrirfram ákveðna hugmynd. Aðalpersónur bókarinnar eru sex ára tviburar, sem heita báðir Jón, sem getur bent til þess að höfundur hafi viljað undirstrika, að þetta væru ósköp venjulegir litlir snáðar, en siðan gerir seinna nafnið þá að sjálfstæðum persónum. Jðn Bjarni, sá rangeygði með köldu lappimar, er heldur skörulegri en Jón Oddur en yfirleitt koma þeir þó fram eins og einn maður. Þeir búa I blokk 1 Reykjavik og öll fjölskyldan er dregin af nákvæmni og fær hver sin einkenni. Annna Jóna með táningaveikinga og sorglegu blöðin sin er ekta stóra systir og sú staðreynd, að hún á auka- pabba og aukaafa og ömmu, þar Barna- og unglingabækur 1974

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.