Tíminn - 24.12.1974, Blaðsíða 5

Tíminn - 24.12.1974, Blaðsíða 5
JÓLABLAÐ 1974 TiMINN 5 Forsetahjónin dr. Kristján Eldjárn og Halldóra Eldjárn, innst I móttökusalnum á BessastöAum. I baksýn hiö gamla málverk frá konungskomunni 1874, og einnig sjáat brjóstmyndir Einars Jónssonar af Sveini Björnssyni forscta og frú Georgiu. fræöilega ritsmið min. Hún var upphafið á afskiptum minum af Árbók, sem nú hefur lengi verið i minni ábyrgð eða rúman aldar- fjórðung, og talsvert margt hef ég skrifað þar þegar allt kemur saman, þó fáir muni hafa lesið það allt. Ekki er það heldur allt um fornleifafræði f þrengsta skilningi, en það er allt um ein- hver þau efni sem tengd eru ýms- um hliðum islenzkrar menningarsögu, einkum þó þeim sem Þjóðminjasafnið á að vera málsvari fyrir. Það heyrir allt undir þá fræðigrein sem ég kalla einu nafni minjafræði. Bækur, sem komið hafa frá hendi forsetans — Bók yðar, Gengið á reka, náði miklum vinsældum. Hver af köflum hennar er yður hugstæð- astur nú, 25 árum eftir útkomu hennar? — Mér er sú bók yfirleitt ekkert sérstaklega hugstæð nú og aldrei hef ég lagt neitt sérlega mikið upp úr henni. Það er satt að hún varð vinsæl af þvi að hún var á sinn háttdálitiðnýstárleg. Núna finnst mér að fræðimaður eigi helzt ekki að skrifa svona bók fyrr en seinna á ævi, þegar hann hefur orðið staðbetri þekkingu. En ef til vill er það sama og að segja að hann skrifi hana aldrei. Ég er kominn á þá skoðun nú, að tilraunir til að samhæfa fornleifafundi og frá- sagnir i Islendingasögum séu varhugaverðar og vinni heldur á móti heilbrigðu mati á gildi rannsókna. Sumir þættirnir i þessari bók eru með þessu marki brenndir. Aðrir eru aftur á móti enn i sæmilegu gildi sem alþýðleg fornleifafræði og eiga ekki að leiða neinn á glapstigu. — En Stakirsteinar? Hafið þér meiri mætur á henni? Það er að minu áliti miklu betri bók, þótt hún vekti ekki nándar nærri eins mikla athygli, eða öllu heldur mjög litla, að ég hygg, og hefur verið til i búðum fram undir þetta og er kannski enn. Það bezta, sem ég skrifaði af hálf- alþýölegum ritgerðum um forn- leifafræði og menningarsögulegt efni er i þeirri bók, til dæmis grein sem heitir Islands þúsund ár og önnur sem heitir Meitill og fjöður. Annars eru þetta smámunir sem ekki er ástæða til að fjölyrða mjög um. Ég færðist smám saman frá þvi, að skrifa þessar tilreiddu og hálfvegis bók- menntalegu ritgerðir, og þær urðu ekki miklu fleiri en það sem er i þessum tveimur bókum, fyrir utan Hundrað ár i Þjóðminja- safni, sem er dálitið sérstaks eðl- is. Ég er enn sæmilega ánægður með hana sem það sem hún er. — Miglangar að við minnumst næst á doktorsritgerð yðar, Kuml og haugfé. Já, þetta er tæmandi yfirlit yfir alla heiðna legstaði eða kuml, sem fundizt höfðu fyrir 1956, og heldur enn gildi sinu að þvi leyti. Ég reyndi svo að draga þær ályktanir sem skynsamlegt var af öllum þessum efnivið. Menn hafa sjálfsagt orðið fyrir vonbrigðum með þá bók, þótti hún ekki skemmtileg, en hún var ekki heldur tilreidd sem skemmtilesn- ing og átti ekki að vera það. Ég ber enn ekki skynbragð á að sjá að hægt sé að fá öllu meira út úr þessu efni, en vel má vera að sið- ar meir verði það séð i einhverju öðru ljósi.Helzt hef ég það út á bókina að setja, að þar vottar sums staðar fyrir óskynsamlegri trú á heimildargildi vissra fornra rita eins og til dæmis þegar sagt er aö „óvéfengjanlegar” söguleg- ar heimildir séu fyrir þvi, að pap- ar hafi verið hér á landi. Þetta er auðvitað ekki rétt. Þessar heimildir (sem er reyndar litið sem ekki annað en íslendingabók Ara) kunna að fara rétt með, en þær eru ekki „óvéfengjanlegar”. Þær eru fjarri þvi að vera samtimaheimildir. En nóg um þetta að sinni. Það er annars merkilegt að veita þvi athygli að forn kuml eru næstum þvi hætt að finnast nú á siðasta áratug. Astæðurnar til þess eru að visu auöséðar, það er vegna þess stigs I bókhlöðu: skrifborö og nokkur hluti bókasafns. Forsetinn notar þennan stað fyrir vlnnustofu ekkert siður en gömiu stofuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.