Tíminn - 24.12.1974, Page 21
JÓLABLAÐ 1974
TÍMINN
21
MANNAB YGGÐ
vert landiö i upphafi manna-
byggðar á Islandi. Fornleifa-
gröftur staðfestir það, að land-
námsmenn i Reykjavik hafa orðið
sér úti um rostung, og vestur i
Hvallátrum voru alveg nýlega að
finnast rostungsbein. Þvi rúá
skjóta hér aö til gamans, að miklu
liklegra er, að Hvallátur hafi i
upphafi verið rostungalátur, eða
rosmhvalslátur, heldur en að hér
hafi verið um venjulega hvali að
ræða. Rostungsbein frá ýmsum
timum hafa fundizt viða með
ströndum, en fyrst og fremst við
vestanvert landið.
Við getum með mörgu móti
komizt að nokkurri vitneskju um
þær breytingar, sem orðið hafa
hér á landi frá upphafi. Það er
hægtað leita i fornum heimildum,
eins og til dæmis þvi, sem Ari
fróði hefur til málanna að leggja,
og það er hægt aö styðjast viö
frjógreiningu, .sem veitir mjög
glögga heimild um útbreiðslu
skóga.
En það hafa orðið fleiri breyt-
ingar á gróðrinum, og þær sem
trúlega hafa orðið þyngztar á
metunum, eru þær breytingar,
sem orðið hafa i fjalllendi, ofan
við skógarbeltin. Þar hefur án efa
veriö mikið bldmstóð hávaxinna
tegunda, hvannaro.fi., likt og enn
er á Suður-Grænlandi og á Aljút-
eyjum, þar sem sauðfjárbeit er
ekki til að dreifa. Auk þessa hafa
vafalaust orðið miklar breytingar
á strandgróðri. Melgresi hefur
sjálfsagt verið miklu meira með
ströndum fram þá en nú. Þetta
sjáum viö bezt hérna i kringum
Reykjavik, þar sem sandgrandar
viö sjó hafa veriö girtir af og þar
með notið friðunar. Nú eru þeir
allir að gróa upp, og þar er mel-
gresi og fleiri stórvaxnar tegund-
ir mjög áberandi.
— Og þessar gróöurfarsbreyt-
ingar hafa haft áhrif á dýralifiö?
— Já, á þvi er engmn efi. En sá
er ljóður á, að það er yfirleitt ekki
svo auðvelt að staðfesta þetta
með áþreifanlegum sönnunum.
Við vitum alltof litið um breyting-
ar á skordýralifinu, svo við verð-
um i flestum tilfellum að láta
okkur nægja að áætla þær út frá
breytingunum, sem viö vitum aö
orðið hafa á gróðurrikinu.
Örnefni og
gamlir lagabálkar
— Hvernig er hægt að kanna
þær breytingar, sem orðið hafa á
dýralifi við ströndina
— Það er hægt að gera meö
ýmsu móti. Það má til dæmis að
talsverðu marki styðjast við ör-
nefni. örnefni sem kennd eru við
örninn, benda yfirleitt til þess að
þar hafi verið arnarsetur, —
hreiður arnarins. Við þekkjum öll
Dr. Arnþór Garöarsson.