Tíminn - 24.12.1974, Page 27
JÓLABLÁÐ 1974
TÍMINN
27
Eins og kemur fram í viötaiinu við Jens A. Guðmundsson, lœkni.eru samgöngur erfiðar um vetrar-
mánuðina. Stórar framfarir hafa oröið á sumarferðalögum manna um Vestfirði. Hér sést hestvagn i
Onundarfirði þokast eftir vegi, þar sem Broncóar og Maverikar Vestfirðinga bruna nú millistaða.
Séra Stefán Eggertsson á Þing-
eyri er þjóðfrægur maður fyrir
störf sin að slysavarnarmálum og
flugmáium.
Hann rekur fjarskiptastöð við
flugvélar og skip, og taliö er að
þar sé vakt allan sólarhringinn og
áhugi presthjónanna hefur orðið
til þess að flýta fyrir flugi á
Dýrafjörð og að þar er nú
myndarlegur flugvöliur.
Sjúkrahúsið var þá búið að gera
verulega mikið gagn i byggðar-
laginu, og auk þess veitti það
sjómönnum þjónustu.
Þorgeirlæknir rak sjúkraskýlið
ásamt konu sinni, en þar voru 3
sjúkrastofur og rúm fyrir 9 sjúkl-
inga. Þessi rekstur varð þeim þó
fljótt ofviða, og var þá byggt við
og fengin ráðskona og starfslið.
Þorgeir var áhugasamur og hinn
mesti dugnaðargarpur. Hann afl-
aði strax nýrra skurðlækninga-
tækja, fékk vandað skurðarborð
og samdi við Landspitalann um
sótthreinsun sáraumbúða. Var
þarna allgóð aðstaða til vissra
skurðaðgerða eins og til dæmis
botnlandaskurðs, en Þorgeir skar
þó menn ekki upp, nema i algjör-
um neyðartilfellum. Til Þingeyr-
ar leitaði fjöldi brezkra togara, en
þar var og er ein bezta vélsmiðja
landsins, og þangað leituðu Bret-
arnir einnig læknis.
Séra Stefán Eggertsson,
áhugi hans kom góðu
til leiðar
Arið 1950 kom séa Stefán
Eggertsson og varð prestur á
Þingeyri. Hann mun hafa verið
gamaíl radió-amatör og hann er
mikill slysavarnamaður. Um likt
leyti hóf Björn heitinn Pálsson
sjúkraflug sitt, og það leysti
mikinn vanda fyrir heilbrigðis-
þjónustuna viða um land. Séra
Stefán á sinn veigamikla þátt i
þvi, að flugsamgöngur komust á
við Dýrafjörð og hann er vakandi
og sofandi fyrir slysavarnarmál-
um og flugi. Um þetta hefur verið
ritað i árbók Slysavarnafélags-
ins, hans merku störf.
— Hver er munurinn á sjúkra-
skýli og sjúkrahúsi?
— Sjúkraskýlin eru ætluð til
þess að leysa minniháttar vanda
sjúkra manna. Ekki er gert ráð
fyrir að þar liggi sjúklingar, sem
þurfi meðferða við., heldur séu
þeir þar til eftirlits skamman
tima. Þannig er sjúkraskýli
skilgreint i nýjustu heilbrigðis-
lögunum (1974).
Ennfremur hafa sjúkraskýli
verið notuð til þess að hjúkra
öldruðu fólki og fyrir fæðandi
konur i sængurlegum og fyrir
nýfædd börn þeirra.
Er afturför i
heilbrigðisþjónustunni?
— Ef maður skoðar söguna, þá
virðist manni að heilbirgðis-
þjónustu hafi sumstaðar farið
aftur frá þvl i gamia daga. Er þá
átt við smærri kaupstaði, þar
voru áður læknar og hjúkrunar-
fólk og sérstakt sjúkrahús. Nú
fæst ekki einu sinni læknir á þessa
staði. Er um afturför að ræða i
heilbrigðisþjónustu?
— Nei þaðheld ég ekki. Éger að
visu ekki hæfasti maðurinn til
þess að dæma þetta. En ég held
að aðstaða manna hafi e.t.v.
verið jafnari i gamla daga.
Framfarir i læknisfræði hafa
orðið gifurlegar, og það væri
óhugsandi að veita alhliða
sjúkrahúsþjónustu i hverju þorpi.
Þess vegna hefur nýtt skipulag
orðið að komast á þessi mál.
Hándlækningar og meðalalækn-
ingar voru á öðru stigi i gamla
daga og þá var minni munur á
þjónustunni, hvar sem hún var
veitt á landinu. Þó verður á þessu
breyting þegará fyrstu áratugum
aldarinnar og siðan hefur bilið
verið að breikka. Getum við vikið
að þvi siðar.
Heilsugæzlustöðvar —
læknislaust á Flateyri
— Nú hefur verið gerð skipu-
lagsbreyting á héraðsiæknis-
umdæmunum. Hvernig er þessu
háttað á Vestfjörðum?
— Það er rétt. Stefnt hefur verið
að þvi að stækka umdæmin og
koma á fót læknamiðstöðvum eða
heilsugæzlustöðvum. Á Vest-
f jörðum er þetta hins vegar erfitt
af landfræðilegum ástæðum. Gert
er ráð fyrir að læknir sé á Flat-
eyri og Þingeyri, að þar séu
sérstök svæði. Fyrir sunnan
okkur, er t.d. Bildudal þjónað frá
Patreksfirði, þar sem er spitali og
tveir læknar. Súgandafirði er
þjónað frá ísafirði. A Flateyri er
hins vegar ekki læknir — það
hefur ekki tekizt að fá lækni
þangað en þar starfa tvær ágætar
og færar hjúkrunarkonur, þær
Sigrún Gfsladóttir og Sigurveig
Georgsdóttir, i Holti.
Siminn gerir þjónust-
una auðveldari —
einnig flugið
— Hvernig er með læknis-
þjónustuna. Eru mikil ferðalög
yfir fjallaskörð og heiðar, eins og
i gamla daga, eða hefur þetta
breytzt?
— Menn veikjast auðvitað um
allt héraðið og veður og .færð eru
svipuð, sem geta má nærri. Hins
vegar hafa orðið nokkrar fram-
farir, sem hafa gjörbreytt
aðstöðu lækna i strjálbýli. Að visu
eru Vestfirðir ennþá sér á parti.
Þar er erfitt að komast ferða
sinna að vetrarlagi þrátt fyrir
öflug farartæki. Það sem mestu
munar er flugið og sima-
þjónustan. Þetta tvennt gjör-
breytir aðstöðu læknisins. Hann
getur I svo til öllum tilfellum
vitað mjög mikið um ástand
sjúklinga áður en hann litur þá
augum, áður en hann fer af stað.
Einnig er mikils virði að hafa
góðar upplýsingar frá þjálfuðu
fólki. Gott dæmi um þetta er, að á
Flateyri eru tvær hjúkrunar-
konur með mikla starfsreynslu.
Þær geta oft gert viðeigandi ráð-
stafanir I samráði við lækninn i
bráðum tilfellum.
Það er þó ekki svo, að ferðalög
séu aflögð. Að visu eru sveitir
ekki fjölmennar i Dýrafirði, en
meðan önundarfjörður er með I
myndinni, þá eru ferðalög mikil.
Ennfremur er stór unglingaskóli
ALLS KONAR
vinnu
hlífar
SVO SEAA:
Rykgrímur
Heyrnarhlífar
Andlitshlífar
Hlífðarhjálmar
og fleira
Einnig FENTON loftræstiviftur
fyrir gripahús og fleira á afar
hagstæðu verði
Vélsmiðjan Dynjandi hf.
Skeifunni 3h — Reykjavík Simar 8-26- 70 og 8-26-71
Hún þarfnast
hnns
Þið sem eigið vörubíla og þungavinnuvélar, nú er óþarfi að koma
að kaldri vinnuvél, við höfum 100% vörn gegn þvi.
PRIMUS vélarhitarinn sér um það.
PRIMUS vélarhitarinn er fyrir vélar með allt að 100 litra kælikerfi
og hefur tvöfaldan öryggisbúnað gegn yfirhitun.
PRIMUS vélarhitarinn gengur fyrir gasi, hefur sjálfstæðan
rafkveikibúnað, tengdur 12-24 volta spennu frá rafgeymi
tækisins og er algjörlega óháður öðru rafkerfi en vélarinnar sjálfrar.
PRIMUS vélarhitarinn er með 24 klst. hitunartímastilli.
PRIMUS vélarhitarinn flýtir gangsetningu og lengir endingu vélarinnar.
PRIMUS vélarhitarinn er sjálfvirkur, sparneytinn, fyrirferðarlítill,
(stærð 16x10x30 cm) auðveldur f uppsetningu, ódýr I rekstri,
eykur þægindi og öryggi.
HFHÖRÐUR
GUNNARSS0N
HEILDVERSLUN - SKÚLATÚNI 6
REYKJAVÍK - SlMI 19460