Tíminn - 24.12.1974, Side 29
JÓLABLAÐ 1974
TIMINN
/
29
starfandi á Núpi og nú eru fjöl-
mennir vinnuflokkar i Mjólkurár-
virkjun. Þaö munu vera um 800-
900 manns i læknisumdæminu og
svo bætist önundarfjörður og
Flateyri við.
Varðskipum
ætlað fast
hlutverk i heil-
brigðisþjónustunni
Ferðalög eru á bilum og svo er
gripið til skipa og báta.
Varðskipin hlaupa undir bagga og
I útfærslu á heilbrigðisþjón-
ustunni er nú beinlinis gert ráð
fyrir varðskipi. Það á að vera
skip fyrir Vestfjörðum, sem geti
þá i og með flutt sjúklinga og
lækna milli staða, þegar vegir eru
ófærir. Á Isafirði er ágætt sjúkra-
hús, skurðlæknir og sjúkrahús-
læknar, og það er öryggi fyrir
þessibyggðarlög. Yfirlæknir þar
er úlfur Gunnarsson,
Gunnars Gunnarssonar skálds.
Þá er þess að geta, eins og áður
hefur komið fram, að flugsam-
göngur eru góðar, þótt þær séu
háðar veðri. Hingað ér flogið af
Flugfélagi tslands tvisvar i viku á
Fokkerskrúfuþotum, svo sam-
bandið er gott við Reykjavik, og
sjúkraflugvélar lenda hér, ef þess
gerist þörf.
Lyf i póstflugi
vikulega
— Hvernig er með lyf?
— Það er hér útibú frá apótekinu
á Patreksfirði. Samgönguerfið-
leikar eru miklir og þvi var oft
erfitt að koma lyfjabirgðum
hingað, en nú hefur verið leyst úr
þvi á hvakvæman hátt. Póstflug
suður á firði frá ísafirði er einu
sinni i viku. Nú hefur samizt svo
um, að póstflugvélin lendi hérna
einnig i bakaleið frá Patreksfirði
og komi þá með viðbótarbirgðir I
apótekið, eða útibúið, svo nú er
betur séð fyrir lyfjum en áður
var.
Starfslið
á Þingeyri
— Hvað vinnur margt á sjúkra-
skýlinu við heilzugæzlustöðina á
Þingeyri?
— Á sjúkraskýlinu eru starfandi
læknir, sjúkraliði og starfsstúlka
og ljósmóðir er á Núpi og kemur
hér þegar tilefni er til. Hún heitir
Vilborg Guðmundsdóttir. Ólöf
Soffía Gunnarsdóttir er sjúkra-
liði og Sólborg Þorláksdóttir
starfsstúlka. Ég er núna að reyna
að fá hingað heilsugæzlu-
hjúkrunarkonu, en það tel ég al-
gjörlega nauðsynlegt vegna allra
hluta og vona ég að það takist.
Sérstaklega er það nauðsynlegt
þar eð ég verð oft að fara yfir til
Flateyrar, eða annað burtu frá
Þingeyri, og þá þarf einhver
að vera til taks á meðan, til
þess að sinna neyðarþjónustu I
Dýrafirði og ýmsu cðru sem æfð
hjúkrunarkona getur leyst í
samráði við lækni. Auk þess eru
ærin verkefni fyrir hjúrkunar-
konu. Gamalt fólk á heimilum
þarfnast hjúkrunar og
leiðbeininga og ótalmargt fleira
mætti telja. Eins og nú er háttað,
þá þarf læknir i strjálbýli að
vinna töluvert að almennum
hjúkrunarstörfum með læknis-
starfinu og alls konar störf
hlaðast á þessa menn, vegna
einangrunar. Ég meira að segja
verð stundum að skrifa recept
fyrir dýr, svo eitthvað sé nefnt.
Annars er ég ekki að kvarta, þvi
að skipulagsmál eru nieira en
orðin tóm i heilbrigðisþjón-
ustunni.
Tannlækningar —
tennurnar
grotna niður
i fólki
— Verður að telja að
heilbrigðisþjónusta i héraðinu sé
góð?
— Hún er nokkuð vel við unandi,
verður að teljast það. Auðvitað er
þetta i uppbyggingu núna. Það er
þó langt frá þvi að fólk hafi sam-
bærilega þjónústu á við fólk i
þéttbýli. Á þessum stöðum, fyrir
vestan, á Þingeyri t.d. eru engir
tannlæknar. Það er tannlæknir á
ísafirði. Það er kostnaðarsamt að
láta gera við tennur, þótt ekki
bætist atvinnumissir, löng ferða-
lög og uppihald við sjálfa að-
gerðina. Tennurnar grotna þvi
niður I fólkinu. Það er mikið mál,
sem þyrfti að leysa Hingað koma
sérfræðingar og er gert ráð fyrir
að heilsugæzlustöðin veiti þeim
aöstöðu og þjónustu. Augnlæknar
koma hér tvisvar á ári og sér-
fræðingar i kvensjúkdómum
koma annað kastið. Þegar lag er
pólska dróttarvélin
Við getum afgreitt núna nokkrar URSUS dráttar-
vélar, 40 og 60 hestafla, ennþá á
sérstaklega hagstæðu verði:
40 hö: Verð kr. 348.000,00
60 hö: Verð kr. 449.000,00
Leitið upplýsinga og kynnist fjölþættum útbúnaði
URSUS dráttarvélanna.
VÉIADCCG
Skeifunni 8 • Reykjavík • Sími 8-66-80
Núpsskóli i Dýrafiröi, hinn frægi héraðsskóli. Þar eru um 200 manns á vetrum.
Vetrarmynd frá DýrafirOi, tekin frá Gerðhamradai vio noroanveroan ijoróinn. Ljósm. Jens A.
Guðmundsson, læknir.
komið á þessa hluti, verður hægt
að segja, að þeir séu komnir i
horf, en fyrr ekki, segir Jens A.
Guðmundsson, læknir við heilsu-
gæzlustöðina á Þingeyri að lok-
um. JG.
Komið inn
úr kuldanum
Þið sem eigið vörubila og þungavinnuvélar, nú er óþarfi að koma
að kaldri vinnuvél, við höfum 100% vörn gegn því.
PRIMUS vélarhitarinn sér um það.
PRIMUS vélarhitarinn er fyrir vélar með allt að 100 lítra kælikerfi
og hefur tvöfaldan öryggisbúnað gegn yfirhitun.
PRIMUS vólarhitarinn gengur fyrir gasi, hefur sjálfstæðan
rafkveikibúnað, tengdur 12-24 volta spennu frá rafgeymi
tækisins og er algjörlega óháður öðru rafkerfi en vélarinnar sjálfrar.
PRIMUS vélarhitarinn er með 24 klst. hitunartlmastilli.
PRIMUS vólarhitarinn flýtir gangsetningu og lengir endingu vélarinnar.
PRIMUS vélarhitarinn er sjálfvirkur, sparneytinn, fyrirferðarlftill,
(stærð 16x10x30 cm) auðveldur í uppsetningu, ódýr í rekstri,
eykur þægindi og öryggi.
HFH0RDUR
GUNNARSS0N
HEILDVERSLUN - SKÚLATÚNI 6
REYKJAVÍK - SlMI 19460