Tíminn - 31.12.1974, Page 1
frtilllilHlflilll
lyftarinn
kominn
Lofttjakkar
Olíutjakkar
Stjórnventlar
HF HORÐUR GUNNARSSON
SKÚLATUNI 6 -SIMI (91)19460
262. tölublað — Þriðjudagur 31. des.—58. árgangur.
Landvélar hf
Skaftá fer hamförum
Sandasel í Meðallandi einangrað — hætta á tjóni í AAeðallandi
SJ—Reykjavik. Hlaup hófst I
Skaftá aöfaranótt sunnudags.
Hefur það farið vaxandi og var
slðdegis i gær orðið með mestu
Skaftárhlaupum, sem orðið hafa
siðan 1955. Bærinn Sandasel i
Meðallandi einangraðist i gær, og
þangað er slmasambandslaust af
völdum vatnavaxtanna. Nokkrar
skemmdir höfðu orðiö á vegum,
en alvariegar skemmdir höföu
ekki orðið á nýja hringveginum,
— þó var þar 70 sm djúpt vatn á
kafla í gærdag. Brúin skammt frá
Ásum var einna helzt talin i hættu
af brúm á hringveginum, en síð-
degis I gær hafði vatnið rifið sig
svo út þar, að brúin var ekki I
yfirvofandi hættu. Brennisteins-
fnyk af hlaupinu lagði þegar á
sunnudag langar leiðir, og varð
hans vart á Húsavik, Akureyri og
Egilsstöðum. Þetta er ellefta
hlaupið af þessu tagi i Skaftá á
slöari árum en frá 1970 hafa þau
orðið hvert ár. Upptök fyrri
hiaupanna tiu hafa verið um 8
kilómetra vestnorðvestur af
Grimsvötnum, og trúlega á þetta
Skaftárhlaup einnig upptök sin
þar.
• — Sunnudaginn 4. sept 1955
varð I fyrsta skipti vart við svona
hlaup I Skaftá, sagði Sigurður
Þórarinsson jarðfræðingur i gær.
— Það var alveg eins og núna.
Fyrst barst fréttin frá Húsavik.
Þar fannst brennisteinsfýla, og
Húsvikingar töldu að hún væri
svo megn, að hún hlyti að stafa af
í gær blöktu fánar i
hálfa stöng um land
allt vegna útfarar
þeirra, sem létu lifið
i snjóflóðunum á
Neskaupstað. Frá
útförinni segir á bls.
3.
T
eldsumbrotum. Svo fannst hún i
Eyjafirði og Bárðardal. Við fór-
um og athugðum þetta. Þá hafði
myndazt heilmikið sig I jöklinum
og vatnið hlaupið undan, og það
hefur siðan orðið æ ofan i æ.
• — Hlaupin hafa verið misjöfn,
og á sunnudaginn leit út fyrir aö
þetta gæti orðið það mesta. — Ég
ætlaði að fljúga yfir Grimsvatna-
svæðið á sunnudag og I dag, en
þaö hefur ekki verið fært, sagði
Sigurður Þórarinsson I gær.
Böðvar Kristjánsson i Skaftár-
dal sagði siðdegis I gær, að hlaup-
ið hefði farið heldur vaxandi og
frá bænum Hvammi, sem er
handan árinnar, þ.e. vestan meg-
in og neðar en Skaftárdalur, hafði
hann þær fréttir að flóöið væri
orðið æði mikið. — Hlaupið kom
óvanalega snarpt, sagöi Böövar.
Það voru engin merki þess kl. 12
aðfaranótt sunnudags, en um
morguninn var það I fullum
gangi.
— Hlaupið 1972 um sumarið
var meira en þetta, enn sem kom-
ið er, en þetta er með meiri
hlaupunum.
• — Það er orðið ófært hingað,
sagði Böðvar, það verður það
alltaf I Skaftárhlaupum.
— Við eigum erfitt með að lýsa
þessu þvi það sézt illa fyrir rign-
ingu og þoku.
• — Þetta er orðið með stærstu
Skaftárhlaupum, og fer vaxandi,
sagði Sæmundur Björnsson I
Múla I gær. — Og hætta er orðin á
skemmdum af völdum þess, þótt
þær hafi ekki orðið alvarlegar
enn. Vatnið fer nærri brúm á
gamla þjóðveginum og yfir
uppfyllingar á milli þeirra.
Tómas Gislason á Melhóli i
Meðallandi sagði siðdegis i gær,
að hlaupið flæmdist yfir allt, en
Kúðafljót hefði verið á is og mikill
snjór. Sauðfé á bæjunum Melhóli
og Sandaseli, sem nú er einangr-
að, var i gær flutt frá fjárhúsun-
um og nær bæjunum, sem standa
hærra. Var þetta gert af öryggis-
ástæðum.
— Varnargarðarnir bjarga
ennþá miklu, sagði Tómas, en
fyrir neðan þá flæmist vatnið
austur yfir. Um fjögurleytið i gær
höfðu enn ekki orðið verulegar
skemmdir á vegum i Meðallandi,
en hlaupið var þá aö komast að
aðalveginum gegnum sveitina.
— Þetta hagar sér likt og hin
stærri hlaup, sagði Sigurjón Rist
vatnamælingamaður, þegar við
náðum tali af honum um hálfsex-
leytiö i gærkvöldi, en þá var hann
nýkominn til Oddsteins I
Hvammi, sem mælir fyrir Sigur-
jón i Skaftárdal. Og voru þeir að
bera saman bækur sinar. —
Hlaupið hefur hækkað örlitið hér i
dag, jafnt og þétt, en til þess að
gera litið sagði Sigurjón. Niður
við Ásaeldvatn er töluvert mikið
vatn, en það hefur orðiö meira
þar niður frá. Það fór mjög hátt á
sunnudagskvöld og lokaði vegin-
um, en það var eingöngu fyrir
það, hve mikill is var i farvegin-
um. Nú er isinn óðum að brotna,
lyftast upp og fljóta fram, þannig
að á köflum rennur áin alveg
óhindruð. Þá er hægt að fara að
átta sig á rennslinu.
Vegurinn lokaðist austan við
Flögu en varð aftur fær fyrir
hádegi á mánudag. 70 sm kyrr-
stætt vatn var á veginum og jakar,
Framhald á 5. siðu.
t gær viöraðl ekki til myndatöku eystra, en þessa loftmynd tók Gunnar V. Andrésson Ijósmyndari
Timans af Skaftárhlaupinu 1972.
... ., ,, , ípirA,
.skipbrots moTutas/cyli,
örin sýnir Sandasel, sem einangraöist i gær, þegar vatnsflaumurinn rauf simalinur til bæjarins.
Bryggjan á Flat-
eyri að sökkva?
Hefur sigið um allt að hálfum metra á 30 metra kafla
BH-Reykjavik. — A Flateyri brá stálþili að framanverðu. Sáu steypti kanturinn brotnað frá
mönnum allmjög I brún, er þeir menn, að hafskipabryggjan hafði þekjunni og uppfyllingin undir
komu niöur á bryggju i gær- sigið á 25-30 metra kafla, mest um þekjunni horfin á stóru svæði.
morgun, en þar er ný hafskipa- hálfan metra. Hafði stálþilið Stór krani er þarna á bryggjunni
bryggja með steyptum kanti, og sprungið út og gliðnað I sundur, Framhald á 5. siöu.
Tíminn óskar landsmönnum öllum órs og friðar