Tíminn - 11.01.1975, Qupperneq 11

Tíminn - 11.01.1975, Qupperneq 11
Laugardagur 11. janúar 1975. TÍMINN 11 Sýningar hefjast á ný í Leikbrúðulandi Leikbrúöuland hefur sýningar á ný eftir jólin nú um helgina á þremur brúöuleikþáttum, Noröur kaldan Kjöl, Meistara Jakob og pylsusalanum, og skemmtiþætti meö söng og dansi. Framvegis veröa sýningar bæöi á iaugardögum og sunnudögum kl. 3 aö Frikirkjuvegi 11, kjallara. Miöasalan er opnuö kl. 1.30, tekiö er á móti pöntunum milli 1.30 og 2 i sima 15937. Helga Seffensen, Haiiveig Thorlacius og Erna Guö- marsdóttir aö störfum i Leikbrúöuiandi. A myndina vantar Bryndfsi Gunnarsdóttur. Timamynd Gunnar. lélegri en d sama tíma Aflinn í fyrra YFIRLITSSKÝRSLA um sjósókn og aflabrögð i Vestfirðingafjórð- ungi i desember 1974 hefur nýlega borizt blaðinu. Segir þar, að gæft- ir hafi verið stopular nær allan mánuðinn og afli tregur, þegar gaf til róðra. Togbátarnir fengu þó dágóðan neista i kringum hátiðirnar, en fyrri hluta mánaðarins var algjör ládeyða. 1 desember stunduöu 24 bátar bolfiskveiðar frá Vestfjörðum, 27 réru með linu, en 7 stunduðu tog- veiðar. Heildaraflinn I mánuðin- um varð 3.073 lestir, en var 4.176 lestir á sama tima i fyrra. Aflahæsti linubáturinn I mánuðinum var Sólrún frá Bol- ungavik með 93,4 lestir i 15 róðr- um. Af togbátunum var Guðbjörg frá Isafirði aflahæst með 305,1 lest. Heildaraflinn á þessari haust- vertið er nokkru lakari en i fyrra. Það eru ógæftirnar i desember, sem valda þessum samdrætti. Heildaraflinn á timabilinu októ- ber/desember varð nú 9.749 lestir, en var 10.673 lestir á sama timabili i fyrra. Aflahæsti linu- báturinn á haustvertiðinni var Víkingur III frá Isafirði með 353,4 lestir I 68 róðrum. Vaka eða víma Sjónvarpið fræddi okkur um það á jólaföstunni að það muni vera almennt að börn I höfuð- staðnum byrji áfengisneyzlu 12- 13 ára. Um sama leyti birtir dagbl. Vísir könnun á fjárþörf og peninganotkun unglinga i fram- haldsskóla i Kópavogi. Þar kemur það fram að nemendur á aldrinum 16-17 ára segja að einna dýrast sé að kaupa tóbak og áfengi. Nú er að visu ekki vist hve vel má treysta þessum upplýsing- um. Þess er getið, að ,,hjá 16 ára fólkinu” ,,var svo mikið af brandaraköstum” að litið mark var takandi á svörunum. T.d. nefndi einn pilturinn vændis- konur sem sérlega dýran út- gjaldalið.” Það voru unglingar úr skólan- um sjálfum, sem gerðu þessa athugun. En ef það er nú svo, að unglingar telji það mannalæti að ýkja notkun þessara eitur- efna, þá segir það slna sögu og hana næsta alvarlega. Það er næsta augljóst hvaða lögmál er hér að verki. Börnin heyra frá óvitaaldri hina full- orðnu syngja að það sé lifandi ósköp gaman að vera svolitið hífaður og þau hafa mörg vanizt þvl, að það þykir sjálfsagt eða jafnvel nauðsynlegt að bjóða áfengi og neyta þess á góðri gleðistund. Afleiðing þessa er sú, að börnunum finnst skömm að þvi að ná 12 eða 13 ára aldri án þess að hafa bragðaö áfengi og fundið á sér áhrif þess og þora jafnvel ekki að kannast við að svo sé, þó að þau hafi aldrei áfengi snert. Vesalings óvitarnir lita upp til þess, er þeir ættu að lita niður á. Uppreisnarhugur æskunnar gegn eldri kynslóðinni beinist átakanlega sjaldan gegn hættu- legustu og heimskulegustu lifs- venjunum, svo sem nautn tóbaks og áfengis. Þvi er nú miður. Mér hefur komið það á óvart hve góðar undirtektir tillagan um að afnema vinveitingar hins opinbera hefur fengið. Skýringin er sú að margur dansar nauðugur með áfengis- tizkunni. Fólki finnst sómi sinn liggja við að fylgja þeirri tizku þó að bæði samvizkan og skynsemin mæli þar á móti. Það er auðvitað ekki stórmannlegt, en fólkið er nú eins og það er. Það þráir að rikisvaldinu sé beitt sér til styrktar og hjálpar. Það óskar þess, að æðstu menn þjóðarinnar gefi gott fordæmi, og vonar að þá verði léttara að fylgja þvi og gera það, sem rétt- ast er. Hver er ábyrgur i þessum efn- um? Erum við öll ábyrgðarlaus? Eru 12 ára börn ein að öllu leyti ábyrg fyrir þvi að þau neyta áfengis? Fylgir þvi engin ábyrgð hvernig við stöndum að þessum málum ? Fylgir þvi engin ábyrgð að beita rikisvaldinu til að magna áfengistizkuna og brjóta niður almenna bindindis- semi? Séum við frjálsir menn þá berum við ábyrgð — karlar jafnt sem konur. -H. K. Sdttasemjari hefur boðað til fyrstu funda FB—Reykjavik. — Sjómanna- sambandið hefur visað samning- um sinum og LIú til sáttasemj- ara rikisins, eins og gert var með samningamál sambandsins og togaraeigenda. Sáttasemjari hefur boðað til fyrstu funda með þessum aðilum, og verður fundur sjómanna og viðsemjenda þeirra á þriðjudagin og miðvikudaginn i næstu viku. Skrifstofustjóri Starí skrifstofustjóra Selfosshrepps er laust til umsóknar. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skila til undir- ritaðs sem veitir nánari upplýsingar um starfið. Selfossi 10. janúar 1975. Sveitarstjóri Selfosshrepps. B Stærsta BINGÓ drsins I N o G ° O I SIGTUNI SUNNUDAG KL. 8 húsið opnað kl. 7 ★ Spilaðar verða 25 umferðir ★ Verðmæti vinninga milli 5-600 þús. kr. ★ Allt vandaðir vinningar m.a. þrjár Kanaríeyjaferðir í 2 vikur hver 2 ferðir með Ftugleiðum og 1 ferð með Sunnu ★ 70^80 aukavinningar. ★ Sætamiði gildir sem happdrættismiði - • ° ★ Miðar við innganginn. Einnig kl. 2-4 laugardag og sunnudag í Víkingsheimilinu v/Hæðargarð° Tapið ekki af stærsta BINGÓ ársins VIKINGUR

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.