Tíminn - 11.01.1975, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Laugardagur IX. janúar 1975.
þótt komið væri ofsarok. Hvorugt mælti orð frá vörum.
Yfir stóran stein, sem þau húktu undir, sá út á sjóinn. í
fölri morgunskímunni gat glöggt að Ifta, hvílíkt æsibrim
var komið. Grannar greinar elrirunnanna börðust við
jörðina, og úr furulundinum uppi á hólmanum barst
draugalegt gnauð.
Katrín og Jóhann nötruðu og skulfu, enda bæði renn-
blaut, og biðu þess, sem verða vildi, eins og hrædd börn.
Ekki leið á löngu, unz þau f undu regndropa hrjóta í and-
lit sér.
„Nú kemur það", sagði Jóhann og tennurnar glömruðu
í munni hans. „Ég vissi alltaf, að það myndi enda með
þessu".
Hann hafði varla lokið við setninguna, þegar ósköpin
dundu yfir. Hagl og regn dundi á jörðinni samtímis.
Hjónin hlupu eins og fætur toguðu inn í skóginn. Þar var
helzt skjól að fá. Þau fundu loks afdrep undir stóru
grenitré með slútandi greinum og fleygðu sér másandi
og blásandi á jörðina í skjóli grænnar hvelf ingar. Regnið
náði ekki að streyma gegnum þéttar greinar hins gamla
trés, en gnýrinn af hamförum veðursins barst þeim að
eyrum. Þeim fannst sem þau væru jaf n aum og hjálpar-
vana og dýr, sem flýja inn í fylgsni skógarins, þegar
náttúran fer í reiði sinni hamförum um jörðina.
Brátt tók vatnið að hripa niður af yztu greinunum, og
innan stundar myndaði það of urlítinn læk, sem ruddi sér
farveg gegnum barrbeðjurnar í skógarhöllinni. Jörðin,
sem virzt hafði þurr, varð á svipstundu rök og fúl, og
kuldahrollur læsti sig um stirðnaða líkama þeirra, þegar
þau höfðu legið þarna stundarkorn. Katrín veitti því at-
hygli, að Jóhann var orðinn bláf lekkóttur í andliti, og
hann skalf svo heiftarlega, að tennurnar nötruðu.
„Færðu þig nær mér, Jóhann", sagði hún uppörvandi.
Hann skreiðalveg til hennar, og hún lagði arminn yfir
hann, hallaði höfði hans að brjósti sér og reyndi að skýla
þeim báðum með treyju sinni.
„Katrin", heyrði hún, að hann umlaði, er þau höfðu
legið þannig þegjandi um hríð.
„Ja-á", svaraði hún.
„Þú ert þá ekki reið við mig?"
„Nei. Hvers vegna ætti ég að vera reið við þig?"
,, Ég var svo hranalegur hérna úti á sundinu í nótt".
„O— það gerði ekkert til. Það var bara hollt fyrir mig
að vita, hvernig það er að hafa sjókaldan skipstjóra yf ir
sér", sagði Katrín glaðlega.
„Maður getur orðið svo bráður og fautalegur á sjó og
æpt og öskrað, þó að maður sé ekki vitund reiður. Ég
meinti ekkert illt með því. Þú, sem getur alla hluti, — þú
værir auðvitað orðinn kapteinn fyrir löngu, ef þú hefðir
verið karlmaður og stundaði sjó", stamaði Jóhann og
hjúfraði andlitið að brjósti Katrínar.
Katrín hló.
„Nei. Bóndi hefði ég getað orðið, en ekki sjómaður. Ég
er of sein að átta mig. Þannig hef ur allt mitt fólk verið:
Það hef ur verið lengi að átta sig á hlutunum, en áttað á
þeim til hlítar að lokum."
„Þú hef ur líka oft látið bændakurfana á Þórsey verða
sér til skammar."
„O-jæja. — Er þér hræðilega kalt?"
„Fæturnir eru alveg eins og rekadrumar".
„Hvernig komumst við héðan, Jóhann?"
„Þaðfara sjálfsagt einhverjir bátar hér framhjá
þegar hann lægir, og þá verðum við að veifa".
„Hvað skyldi Eiríkur hugsa?"
„Honum er engin vorkunn. Hann er á þurru landi".
„Það er ægilegt veður svona snemma hausts. Hugsaðu
þér allt kornið sem er í skrýf um á ökrunum!"
„Já— En nú er hann víst að stytta upp. Það er sjálf-
sagt orðið bjart af degi".
„Eigum við að skríða út og svipast um?"
„Þau bröltu á f jórar fætur og skriðu út úr fylgsni sínu
og teygðu úr stirðnuðum limum sínum. Jóhann gat varla
staðið á fótunum. Hann skjögraði að stórum steini og
settist þar. Sjóinn hafði heldur lægt við rigninguna, en
hvítfextar öldurnar voru þó enn býsna nöturlegar í
grárri árdagskímunni. Þau horfðu um stund þögul yfir
sjóinn.
„Við misstum meðulin okkar líka," sagði Katrín.
„O svei! Þess háttar glundur hefði nú ekki orðið að
miklu gagni", sagði Jóhann fyrirleglega. „Það er verra
með bátinn hans Seffers".
„Heldurðu, aðhonum skoli ekki einhvers staðar upp?"
„Fjalirnar úr honum rekur sjálfsagt við einhvern
hólmann".
Það birti nú meira og meira. En það var jaf n kalt f yrir
því, skýjaður himinn og þungabrim við ströndina. Hjónin
reikuðu þegjandi um hólmann og tylltu sér öðru hverju
niður. Þau gerðu sér engar vonir um, að til bátsferða
sæist meðan veðrið var svona vont,þvi að stórir bátar
áttu ekki leið framhjá þessum hólma, og litlum kænum,
er helzt var að vænta á þessum slóðum, var ekki róið til
fiskjar nema í lygnu. Þau voru bæði orðin svöng, en
forðuðust þó að hafa orð á því. Þorsta sinn gátu þau
1,
iiflili
Laugardagur
11. janúar
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05 Fréttir kl. 7.30, 8. 15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.55
Veðriö og við kl. 8.50:
Markús A. Einarsson veð-
urfræðingur talar. Morgun-
stund barnanna kl. 9.15:
Finnborg örnólfsdóttir les
söguna „Maggi, Mari og
Matthias” eftir Hans
Petterson (9). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli liða.
Óskalög sjúklinga kl. 10.25:
Kristln Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 tþróttir Umsjón: Jón .
Asgeirsson.
14.15 Að hlusta á tónlist, XI.
Atli Heimir Sveinsson sér
•um þáttinn.
15.00 Vikan framundan
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir Islenskt
málDr. Jakob Benediktsson
flytur þáttinn.
16.40 Tiu á toppnum örn
Petersen sér um dægur-
lagaþátt.
17.30 Sögulestur fyrir börn
Gunnar Stefánsson les fyrri
hluta sögunnar „Ákvæöa-
skáldsins” eftir Sigurbjörn
S-veinsson.
18.00 Söngvar i léttum dúr Til-
kynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Tveir á tali Valgeir
Sigurðsson ræðir við Gunn-
ar Eggertsson tollvörð.
20.00 Hljómplöturabb
Þorsteinn Hannesson
bregður plötum á fóninn.
20.45 Galdratrú og djöflar: —
sfðari þáttur Hrafn Gunn-
laugsson tók, saman. Les-
ari: Randver Þorláksson
21.20 Frá tónleikum I Selfoss-
kirkju 29. f.m.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Danslög
23.55 Fréttir i stuttu máli Dag-
skrárlok.
Laugardagur
ll.janúar
16.30 íþróttir Knattspyrnu-
kennsla
16.40 Enska knattspyrnan.
17.30 Aörar íþróttir M.a.
myndir frá badmintonmóti i
Reykjavik, og kjöri iþrótta-
manns ársins og leik 1R og
Gróttu I fyrstu deild i handb.
Rætt er við Birgi Björnsson
og Einar Bollason.
18.30 Lina Langsokkur Sænsk
framhaldsmynd fyrir börn
og unglinga, byggð á sam-
nefndri sögu eftir Astrid
Lindgren. 2. þáttur. Þýð-
andi Kristin Mantyla. Áður
á dagskrá i október 1972.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar
20.30 Læknir á lausum kili
Breskur gamanmynda-
flokkur. t greipum réttvis-
innar Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
20.55 Ugla sat á kvisti Get-
raunaleikur með skemmti-
atriðum. Umsjónarmaöur
Jónas R. Jónsson.
21.35 Dagbók önnu Frank
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1959, byggð á dagbók
hollenskrar gyðingastúlku.
Leikstjóri George Stevens.
Aðalhlutverk Mille Perkins,
Joseph Schildkraut, Shelley
Winters og Richard Beym-
er. Þýðandi Jón O. Edwald.
Myndin gerist i Amsterdam
i heimsstyrjöldinni sfðari og
lýsir lifi gyðingafjöl-
skyldna, sem lifa i felum
vegna ofsókna nasista.
00.05 Dagskrárlok