Tíminn - 20.03.1975, Page 16
Fimmtudagur 20. marz 1975.
Nútíma búskapur þarfnast
SIS-FODIJll
SUNDAHÖFN
fyriryóúun nmt
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Fundur sex leiðtoga austantjaldsríkja í Búdapest:
Kommúnistaleiðtogar taka undir kröfu Sovét
stjórnarinnar um fund æðstu manna Evrópu
Enn d ný hefur slezt upp á vinskap rúmenskra og sovézkra rdðamanna
Reuter—Búdapest — Leiðtogar
sex austantjaldsrikja komu sam-
an til fundar i fyrradag til við-
ræðna um bætta sambúð austurs
og vesturs og önnur alþjóðamál.
Fundurinn var haldinn i tengslum
við þing ungverska kommúnista-
flokksins, er nú stendur yfir I
Búdapest.
Fundinn sátu eftirtaldir komm-
únistaleiðtogar: Leonid Bresjnev
(Sovétrikjunum), Todor Zhivkov
(Búlgariu), Gustav Husak
(Tékkóslóvakiu), Edward Gierek
(Póllandi), Janos Kadar (Ung-
verjalandi) og Erich Honecker
(Austur-Þýzkalandi). A fundin-
um fór Bresjnef — að sögn
Reuter-fréttastofunnar — þess á
leit, að austantjaldsrikin legðust
öll á eitt um að ljúka öryggis-
málaráðstefnu Evrópu i sumar
með fundi æðstu manna álfunnar.
Það vekur athygli, að Nicolas
Enn hallar undan
fæti fyrir Saigon
ctíÁrnínni »|óm thi.u »iii
stjórninni
Stjórn Thieu vill
koma á vopnahléi
NTB—Saigon. — Hundruð þús-
unda flóttamanna eru nú á leið
frá fjallahéruðunum I Suður-VIet-
nam til strandhéraðanna, þar
sem Suður-VIetnamstjórn ræður
enn rikjum. Talið er, að yfir 250
þúsund manns hafi flúið frá
héruðunum i norðurhluta lands-
ins suður á bóginn.
Að sögn UPI-fréttastofunnar
hefur Suður-Vietnamsstjórn (sú,
er situr i Saigon) skorað á ibúa
borgarinnar Hue og næsta
nágrennis að forða sér, áður en
borgin falli i hendur sveita þjóö-
frelsisfylkingarinnar. Frétta-
menn segja, að á að gizka 100
þúsund manns hafi orðið við þess-
ari áskorun og brjótist nú áfram i
átt til borgarinnar Da Nang.
Varnir stjórnarhersins i Da
Nang — sem talin er ein mikil-
vægasta hafnarborg
Suður-Vietnam — hafa veikzt að
undanförnu, þvi að Nguyen van
Thieuforseti hefur skipað sveit
fallhlifarhermanna að snúa til
Saigon til að aðstoða við varnir
höfuðborgarinnar.
Þess má geta, að Phan Quang
Dan, varaforsætisráðherra
Suður-Vietnam, er um þessar
mundir staddur i Manilla, höfuð-
borg Filippseyja i gær fór hann
þess á leið við Ferdinand Marcos
forseta, að Filippseyjastjórn
beitti sér fyrir tilraunum til að
koma á vopnahlé I
Suður-VIetnam.
Ceausescu, leiðtogi kommúnista-
flokks Rúmeniu, er eini flokks-
leiðtoginn I Austur-Evrópu, er
ekki lætur sjá sig I Búdapest. Ce-
ausescu, sem hefur fylgt tiltölu-
lega sjálfstæðri stefnu gagnvart
Sovétstjórninni, sótti siðasta fund
æðstu manna austantjaldsrikj-
anna, er haldinn var I Varsjá i
april 1974. Nú er talið, að enn á ný
hafi sletzt upp á vinskapinn hjá
rúmenskum og sovézkum ráða-
mönnum — I þetta sinn vegna
óska Sovétstjórnarinnar um nán-
ari hernaðarsamvinnu við
Rúmeniustjórn.
1 fréttatilkynningu, sem gefin
var út að loknum fundinum I
Búdapest i fyrradag, er sagt, að
einhugur hafi rikt meðal leiðtog-
anna um öll þau mál, er á góma
hafi borið. (Var við öðru að bú-
ast?). Og að sjálfsögðu er tekið
undir kröfu Bresjnevs um, að
öryggismálaráðstefnunni verði
lokið sem fyrst — og það með
fundi æðstu manna.
Areiðanlegar fréttir herma, að
leiðtogarnir sex hafi haft miklar
áhyggjur af sameiginlegu þingi
evrópskra kommúnista, sem
fyrirhugað er i sumar. Stjórnir
Rúmeniu og Júgóslaviu hafa
nefnilega lagzt gegn þeirri hug-
mynd Sovétstjórnarinnar, að á
þinginu verði mótuð sameiginleg
afstaða kommúnista i alþjóða-
máium.
Bresjnev: Allir auðsveipir — að
Ceausescu einum undanskildum.
Stúdentaleiðtogar í Kambódíu:
Hin bandaríska aðstoð þjónar aðeins
hagsmunum fámennrar valdaklíku
Reuter—Phnom Penh — Stú-
dentaleiðtogar i Kambódiu skor-
uðu i gær á Bandaríkjastjórn að
hætta allri aðstoð við stjórn Lon
Nol. A meðan héldu skæruliðar
uppi látlausum eldflaugaárásum
á höfuðborgina Phnom Penh.
Stúdentaleiðtogarnir sögðu á
fjölmennum mótmælafundi i gær,
að hin bandariska aðstoð þjónaði
á engan hátt hagsmunum hinnar
kambódisku þjóðar, þvi hún væri
misnotuð af fámennum hópi
valdaaðila.
I gær féllu a.m.k. sex eldflaug-
ar á' miðborg Phnom Penh og
fjórar flaugar á Pochentong-flug-
völl, sem er aðalflugvöllur höfuð-
borgarinnar og er i 6 km fjarlægð
frá borginni. Vigstaðan umhverf-
is Phnom Penh virðist annars
óbreytt.
Brezka stjórnin boðar niðurskurð hernaðarútgjalda:
Umdeild ákvörðun
r
Aform stjórnarinnar eru m.a. að leggja niður allar herstöðvar
á AAiðjarðarhafi innan fimm ára
A páska-
borðið
JPs^f-servéttur
í hreinum og fallegum litum
NTB/Reuter-London. Brezka
rikisstjórnin tiikynnti I gær mik-
inn niðurskurð á hernaðarút-
gjöidum I náinni framtið. Astæð-
an er að sjáifsögðu þeir efnahags-
örðugieikar, er nú steðja að Bret-
um.
Aætlað er að skera hernaðarút-
gjöld niður um upphæð, er nemur
4,7 miiijörðum punda (u.þ.b. 1700
miiljörðum isl. króna). Þessi
mikli niðurskurður hefur m.a. i
för meö sér, að Bretar verða að
leggja niður allar herstöðvar
sinar á Miðjarðarhafi og i Mið-
Austurlöndum á næstu fimm ár-
um.
Aform brezku stjórnarinnar
eru kynnt f „hvitri bók”, er loks
sá dagsins ljós i gær, en áður
höföu átt sér stað viðræður milli
Breta og bandalagsþjóða þeirra i
Atlantshafsbandalaginu.
önnur aðildarriki NATO hafa
gagnrýnt þessi áform og hafa
m.a. bent á, að slikur niður-
skurður hernaðarútgjalda af
hálfu Breta veikti mjög styrk
bandalagsins, bæði á norðan og
sunnan verðu Norður-Atlantshafi.
1 opinberri fréttatilkynningu, sem
gefin var út I aðalstöðvum NATO
I gær, er lýst áhyggjum vegna
hins mikla niðurskurðar.
Sérstaklega óttast forráðamenn
NATO, að sú ákvörðun að leggja
niður allar herstöðvar á
Miöjarðarhafi dragi mjög úr her-
styrk bandalagsins á þeim slóð-
um.
Þá hafa áformin verið gagn-
rýnd af stjórnmálamönnum i
Bretlandi, bæði frá vinstri og
hægri. Frank Allaun, sem er for-
maður sérstakrar friðarnefndar
innan vinstra arms Verkamanna-
flokksins, sagði i gær, að ekki liði
á löngu, unz út kæmi ný „hvit
bók”, þar sem stefnt yrði að enn
frekari niðurskurði hernaðarút-
gjalda. Vaxandi efnahagsörðug-
leikar og áróður friðarnefndar-
innar sæju áreiðanlega til þess.
George Younger, talsmaður
íhaldsflokksins i landvarnamál-
um, gagnrýndi hins vegar hinn
mikla niðurskurð og sagði, að
stjórnin hefði tekið ákvörðun sina
að óathuguðu máli. Younger lagði
áherzlu á, að nú á dögum mætti
alls ekki slaka á vörnum Vestur-
Evrópu, og þvi kæmi þessi
ákvörðun sem þruma úr
heiðskiru lofti.
A- .
ulagöar
feröir
Farseölar um
allan heim
Ferðamiðstöðin hf.
Jt Aðalstræti 9 Slmar 11255 og 12940
Upplýsingar á skrifstofunni
um verð og greiðslukjör