Tíminn - 11.04.1975, Síða 1
TARPAULIN
RISSKENMUR
HF HOKÐUR 6UNNARSS0N
SKULA'l .11. ’ SiM!
SLÖNGUR
BARKAR
TENGI
(M>>. M sa'ZS..
V 'V ' i / K / &
C—.................y.i
82. tbl. — Föstudagur 11. april 1975 —59. árgangur
Landvélarhf
SKULDA VERÐUR
BH—Reykjavík — t ræðu sinni á
aðalfundi Vinnuveitendasam-
bands tslands i gær kvað Geir
Hallgrimsson, forsætisráðherra,
„sennilegt, að visitölubinding
fjárskuidabindinga i einu eða
öðru formi verði aukin á næstu
árum.’\og hún tekin fram yfir
sveigjanlega vaxtastefnu.
Kvað forsætisráðherra i ræðu
sinni rikisstjórnina hafa hug á að
kanna nánar visitölubindingu,
ekki aðeins i sambandi við laun,
heldur og á sviði lánamála. Til
greina gæti komið með visitölu-
bindingu lánsfjár, að leysa þau
vandamál, sem gætti i vaxandi
mæli, að sjá fjárfestingarlána-
RÁÐUNEYTIÐ HÓTAR
STÖÐVUN EF FISK-
KAUPENDUR LÁTA
EKKI GÆÐAMETA
FISK VIÐ LÖNDUN
VÍSITÖLUBINDING
AUKIN
sjóðakerfinu fyrir nægilegu fjár-
magni á hverjum tima og jafn-
framt tryggja verðgildi fjár-
magns lifeyrissjóðanna. Benti
forsætisráðherra á þá staðreynd,
að opinberir starfsmenn nytu lif-
eyris, sem bundinn væri launum
fyrir siðasta starf lifeyrisþega,
eins og þau eru á hverjum tima,
en lifeyrisgreiðslur flestra ann-
arra sjóða væru óverðtryggð með
öllu. Af þessu leiddi mikinn
kjaramun á milli hinna ýmsu
launþega, sem ekki fengi staðizt
til lengdar.
Þurfum ekki að
gæðameta fisk við
löndun, segir
fiskkaupandi í
Grindavík
S.J.—Reykjavik— „Ég tel fisk-
kaupendum ekki skylt að láta
meta fiskinn við löndun,” sagði
Jón Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Þórkötlustaða hf. i Grindavik i
viðtali við Timann i gær, en
sjávarútvegsráðuneytið tilkynnti
I gær að til greina kæmi „stöðvun
á móttöku til þeirra fiskverkenda
er ekki vilja láta gæðameta hrá-
efni sitt.”
Jón Guðmundsson sagði, að
eftir sem áður væri allur fiskur
flokkaður i bátunum og að hann
teldi fiskverkendum aðeins skylt
að láta fara fram mat áður en
fiskur væri fluttur úr landi.
1 tilkynningu, ráðuneytisins seg-
ir,aðráðuneytið túlki gildandi lög
og reglugerðir svo, að um skyldu-
mat sé að ræða á ferskum fiski og
hefur ráðuneytið falið Fiskmati
rikisins að beita öllum tiltækum
ráðum til þess að koma i veg fyrir
að fram hjá sliku mati verði
gengið.
Þessi tilkynning ráðuneytisins
er til komin vegna frétta um að
fiskkaupendur i Grindavfk og ef
til vill viðar kaupi fisk á meðal-
verði án gæðamats eða stærðar-
flokkunar.
Bergsteinn Á. Bergsteinsson
sagði, að hingað til hefði verið lit-
iðsvo á, að ekki væri skylt að láta
gæðameta þann fisk sem kemur
að landi. Hins vegar hefði hann
verið háður eftirliti Fiskmats rik-
isins skv. ákvörðun ráðherra. Nú
hefði Sjávarútvegsráðuneytið
hins vegar ákveðið að herða eftir-
litið og framfylgja lögunum á
strangari hátt en gert hefur verið
til þessa. — Það hafa þó verið litil
brögð að þvi að menn skytu sér
undan gæðaflokkun til þessa,
sagði Bergsteinn.
FB-Reykjavik. Borgarstjórn mun
senn fjalla um á fundi sinum óskir
um að opnaður verði veitinga-
staður við Hallarmúla, nánar til
tekið á hæðinni fyrir ofan
veitingastaðinn Múlakaffi.
Upphaflega var sótt um leyfi
fyrir veitingarekstri og
skemmtistað i þessum
húsakynnum árið 1971 og var það
veitt bæði i bygginganefnd og
samþykkt af borgarstjórn. Nú
fyrir skömmu sóttu þeir, sem að
fyrirhuguðum rekstri þessa
staðar standa, um leyfi til
nokkurra breytinga á innrétting-
um, sem áður höfðu verið sam-
þykktar. Var það leyfi veitt i
bygginganefnd, en eftir það kom
ósk annarra eigenda að sama
húsi, um að leyfi til rekstrar
veitingastaðar þarna yrði ekki
veitt. Töldu þeir, að slikum
rekstri kynni að fylgja ýmislegt,
sem ekki væri æskilegt, og ónæöi
gæti stafað af rekstrinum. Var
afgreiðslu málsins þá frestað um
sinn, en þa ð verður sem sagt tekið
fyrir á fundi borgarstjórnar
bráðlega, samkvæmt upplýsing-
um Jóns Tómassonar skrifstofu-
stjóra.
Stefán Ólafsson forstjóri Múla-
kaffis sagði, að fyrirhugað hefði
• Á hæðinni fyrir ofan Múla-
kaffi hefur lengi verið i ráði
aö opna veitingastaö.
(Timamynd Róbert)
verið I langan tima, að opna
veitingastað á efri hæð sama
húss, og Múlakaffi er i. Þarna
væri meiningin að hafa ódýran
mat i hádeginu, en nýta siðan
staðinn til skemmtanahalds að
kvöldlagi. Salarkynnin eru nær
fimm hundruð fermetrar, en
matreiðsla færi hins vegar fram i
eldhúsi Múlakaffis á neðri hæð-
inni.
Nýr skemmtistaður í
Reykjavík?
Snör
hand-
tök!
Gsal-Reykjavik. Bilanir i is-
lenzkum togurum hafa verið
talsvert i fréttum og það ekki
að ósekju. Ekki alls fyrir
löngu bilaði stykki i islenzkum
togara, sem var á veiðum —
og það eitt er i sjálfu sér vart
fréttnæmt. Hins vegar voru
viðbrögð útgerðarmannsins
harla athyglisverð. Þegar
hann hafði spurnir af bilun-
inni, — og varð þess áskynja
að umrætt stykki fékkst ekki
hér á landi, — hraðaði hann
sér sem mest hann mátti tii
Þýzkalands og lét smiða vara-
hlutinn fyrir sig.
Það stóð á endum, að þegar
hann kom aftur til landsins
var togarinn að koma til
hafnar og þá var ekkert annað
að gera en að smella stykkinu
á sinn stað og halda aftur á
miðin.
Með snörum handtökum
slnum hefur útgerðarmaður-
jnn eflaust komið i veg fyrir
nokkurra daga eða jafnvel
viku landlegu, en eins og öll-
um er kunnugt, er dýrt að láta
stórvírk atvinnutæki liggja við
festar og gæla við
bryggjurnar.
VARLA í TÍMAHRAK í BRÉFSKÁKINNI
HVER SKÁK GETUR
STAÐIÐ í UM ÁR!
Gsal-Reykjavik. í vetur var kosin
svonefnd bréfskákanefnd innan
Skáksambands tsiands, og er
hlutverk nefndarinnar að skipu-
ieggja og sjá um framkvæmd ár-
legs bréfskákarþings, sem halda
á i tengslum við Skákþing ts-
lands. Nú hefur verið ákveðið að
fyrsta bréfskákarþingið hefjist i
maf n.k.
Að sögn Þórhallar B. Ólafs-
sonar, sem á sæti i nefndinni
verður á þennan hátt reynt að ná
til skákmanna í dreifbýlinu, þar
sem þeir hafa fá eða engin
tækifæri til að keppa á skákmót-
um. Þátttakendum verður raðað
niður i riðla, eins og á venjulegu
skákmóti og siðan er teflt
innbyrðis i riðlunum, á þann hátt
að leikirnir eru stendir i pósti
milli keppenda.
Þórhalldur sagði að hver skák
gæti tekiðár eða meira,eneftir að
mótið hefði staðið í ár væru senni-
lega úrslitin að verulegu leyti
ráðin, og þvi hægtaðheíja nýja
keppni. í efsta riðlinum, sem i
eiga að vera sterkustu bréf-
skákarmennirnir, er keppt um
titilinn:
lands.
Bréfskákarmeistari ts-
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast skriflega til nefndar-
mannafyrir 1. mai n.k. og einnig
er hægt að fá nánari upplýsingar
hjá þeim um mótið. t nefndinni
eiga sæti: Þórhalldur B. Ólafs-
son, Laufskógum 37, Hveragerði,
Bjami Magnússon, Þórufelli 4,
Rvik,og Jón Þ. Þór, Vifilsgötu 5,
Rvik.
„CARMEN KOMIN HEIM' O