Tíminn - 10.05.1975, Page 3

Tíminn - 10.05.1975, Page 3
Laugardagur 10. mal 1975. TtMINN 3 I A þessum uppdrætti má sjá, hvernig borgarlæknir hefur hugsað sér, að skipta megi Reykjavfk I heilsu- gæzlusvæði. Reykjavík skipt í 9 heilsugæzlusvæði? FB-Reykjavik. Ráðstefna um heilbrigðismál hófst hér f Reykja- vfk í gær, og er hún haldin að tilhlutan Læknafélags Reykja- vfkur. Þátttakendur i þessari ráðstefnu eru allir þeir aðiiar, sem kynnu að vinna saman á heilsugæslustöðvum f r a m t Iða rin n a r , læknar, hjúkrunarfólk, iæknaritarar, félagráðgjafar og ýmsir aðrir, sem talið er æskilegt, að vinni á heilsugæzlustöðvunum. I framsöguerindi, sem Skúli Johnsen borgarlæknir flutti við upphaf ráðstefnunnar kom fram m..a., að talið er æskilegt, að ekki seu fleiri en 12 þúsund, sem tilheyra ' hverri heilsugæzlustöð borgarinnar, væri Reykjavik skipt upp i heilsugæzlu-umdæmi. Er þessi tala byggð á reynslu Breta i þessum efnum. Skúli sagði, að á sl. vori hefði verið gerð tillaga um skiptingu borgarinnar i heilsugæzlu-um- dæmi, og var þar að mestu látin ráða sú hefðbundna, skipulags- lega skipting, sem i borginni er. Enn sem komið er hefði þessi tillaga ekki hlotið formlega af- greiöslu af hálfu borgarstjórnar né Heilbrigðisráðuneytis, en stuðzt hefði veriö við hana i sam- bandi við þá áætlanagerð og undirbúning framkvæmda, sem þegar hefði farið fram. Gert er ráð fyrir, að heilsu- gæzluumdæmin í borginni yrðu samtals 9, með 6 til 17.500 ibúum i hverju umdæmi. Þá sagði Skúli: „Fyrst var gengiö út frá þvi, sem skýrt er tekið fram i lögun- um um heilbrigðisþjónustu, að heilsugæzlustöðvar skuli staðs. við sjúkrahús, þar sem þau eru fyrir hendi. Við Landakotsspitala yrði reist heilsugæzlustöð fyrir hluta Vesturbæjar og gamla Miðbæinn milli Hringbrautar annars vegar og Lækjargötu og Frikirkjuvegar hins vegar og i þessu umdæmiyrðu samtals 6.600 ibúar. í Domus Medica, eða þegar fram liða stundir, á Land- spitalanum, yrði gert ráð fyrir heilgugæzlust., er tæki yfir ibúa Þingholts og Norðurmýrar og hluta af Hliðunum, og yrði það stærsta heilsugæzlustöðin, með 17.500-17.600 manns. Borgar- spitalinn iFossvogi tæki við Foss- vogshverfi og Bústaðahverfi, en þar búa um 12.000 manns. Fyrir ibúa Háaleitis,hluta af Hliðum og Teigana, svo og vestasta hluta Kleppsholts yrði heilsugæzlustöð staðsett við Lágmúla, en þar er húsnæði tengt rannsóknastöð Hjartaverndar, sem ákjósanlegt væri að útbúa sem heilsugæzlu- stöð. Til mála kæmi að reisa heilsugæzlustöð á Eiðsgranda, er tæki yfir Melahverfi svo og Skerjafjörð, en þar búa nú sam- tals um 8.000 manns. með fyrir sjáanlegri aukningu innan 10 ára um 3.500 manns. Fyrir ibúa Heima, Voga og Kleppsholts væri æskilegt að finna húsnæði, er hentaði, t.d. í Glæisbæ, en að öðrum kosti yrði reist þar i grenndinni sérstök stöð. Þegar hefur verið ákveðið að stofnsetja heilsugæzlustöð við Arbæjar- hverfi með samtals 4.000 ibúa, með fyrirsjáanlegri aukningu um 2.000 ibúa á næstu 10 árum og er það I Hraunbæ 102. 1 Breiðholts- hverfum verður að gera ráð fyrir tveim heilsugæzlustöðvum, annars vegar fyrir Breiðholt I og II, með væntanlegan íbúafjölda um 13.000 manns og I Breiðholti III, með ibúafjölda um 12.000 manns. Að lokum sagði Skúli Johnsen þetta: Skipulag heimilislækninga i Reykjavik hefur nú um nokkurt árabil þarfnazt verulegra breytinga. Markmið sérhverrar viðleitni til breytinga á þessu skipulagi felur i sér tvöfalt markmiðy að læknum, sem við heimilislækningar starfa, verði veitt sú fullnægja i starfi, sem þeir sækjast eftir, og að þjónustan viö fólkið verði sem mest og bezt innan veggja þeirra stofnana, sem með timanum munu risa i hinum ýmsu hverfum borgar- innar.” Útvegsbankamenn kvarta undan popptónlist Stöðvast kaup- skipaflotinn ? BH-Reykjavik. — Vélstjórar á kaupskipaflotanum hafa boðað samúðarverkfall meö starfs- bræðrum sinum á stærri togurun- um frá miðnætti aöfaranótt nk. miðvikudags, 15. mai, hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tima. Hafa samningaviðræöur við togaravélstjóra gengið tregt upp á sfðkastið, en forsvarsmenn vél- stjóra hafa engu að síður verið önnum kafnir á sáttafundum fyrir hönd vélstjóra hjá Alverk- smiöjunni, Sementsverksmiðj- unni og Kfsiliðjunni, sem boðaö hafa til verkfalls frá og með miðnætti nk. Annars voru annir miklar hjá sáttasemjara, þó sérstaklega i fyrradag, og fjölgar nú með hverjum degi þeim aðilum sem erindi eiga til hans. Hin fjölmenna samninganefnd BSRB, sem skipuð er milli 40-50 mannskom saman I Reykjavfk i fyrradag og aftur i gær, og ræddi kjaramál opinberra starfs- manna, en I þeim efnum er fyrst og fr’emt um bráðabirgðasam- Simon tvarsson með gitarinn. Fyrsti gítarleikarinn lýkur fullnaðar prófi hér — heldur tónleika í Norræna húsinu Símon Helgi Ivarsson, sem lauk fullnaðarprófi i gitarleik við tónskóla Sigursteins D. Kristins- sonar á þessu vori, heldur tónleika I Norræna húsinu klukkan 16 i dag, laugardaginn 10. mai. Hann leikur verk eftir Bach, Villa Lobos Tarrega og Aldeniz. Auk 'þess leika með honum Brynja Guttormsdóttir pianó- leikari og strokkkvartett nemenda undir stjórn Victors Techar fiðluleikara verk eftir Haydn Vivaldi og Boccherini. Símon Helgi er fyrsti nemandi, sem lýkur fullnaðarprófi i gitar- leik hérlendis. Kennari hans hef- ur verið Gunnar H. Jónsson. komulag að ræða, svipað sem aðrir aðilar hafa náð. Er það von manna, að komizt verði aö ein- hvers konar samkomulagi fyrir fimmtudag i næstu viku, 15. mai, en þá fara kjaramál BSRB i Kjaradóm, hafi samkomulag ekki náðzt. Þá var i gær haldinn samninga- fundur 9 manna samninga- nefndar ASl og fulltrúa vinnu- veitenda. Voru aðilar sammála um, að kosta beri kapps um að ná samkomulagi fyri 1. júni, og uröu ásáttir um aö snúa sér til sátta- semjara með ósk um, aö hann taki við stjórn samningafunda. Nemendur Myndlista- skólans sýna í Ásmundarsal JG-Rvik. Myndlistarskóiinn i Reykjavik sýnir verk nemenda dagana 10. og 11. mai i húsakynn- um skólans Asmundarsal við Sólavörðuholt. I vetur stunduðu liðlega 250 nemendur nám við skólann, kennarar voru 7, Borghildur Oskarsdo'ttir, Hringur Jóhannes- son, Katrin Briem, Sigrún Guðmundsdóttir, Valgerður Bergsdóttir,Þorbjörg Höskulds- dóttir og Þórunn Sigurðardóttir. Kennt var I höggmynda- málara- og teiknideildum fullorðinna og 7 deildum barna og unglinga. teiknun málun og leir- mótun auk þess leikræn tjáning i deild yngstu barnanna en í þeirri deild voru nemendur á aldrinum 4-6 ára. Á sýningunni er mest af modelteikningum, ennfremur eru þarna oliumálverk. Þegar blaða- maður átti leið um hjá skólanum, var I óða önn verið að hengja upp myndir og er sýnt að þarna verður óvenjulega skemmtileg nemendasýning á ferðinni. Verður sýningin opin á laugard. og sunnudag frá kl. 2-10. Lítill bifreiða- innflutningur Gsal-Reykjavik — Innflutningur á bifreiðum er mjög lltill það sem af er þessu ári, sé miöaö við undanfarin ár. i skýrslu Ilagstof- unnar um bilainnflutning á tima- bilinu janúar — marz 1975 kemur fram að alls hafa verið fluttar inn 788 bifreiöar, en á sama timabili I fyrra voru fluttar tii landsins 3525 bifreiðar. Nýjar fólksbifreiðar voru 624 talsins fyrstu mánuði þessa árs, 86 notaðar fólksbifreiðar voru fluttar inn, 27 nýjar sendiferða- bifreiöar, 3 notaðar sendiferða- bifreiðar, 27 nýjar vörubifreiðar og 10 notaðar vörubifreiðar. í Austurstræti Gsal-Reykjavik Nokkrir starfs- menn Útvegsbankans við Lækjar torg hafa margltrekað kvartað undan ónæði sökum tónlistar, sem leikin er í verzluninni Karna- bæ og talið að hún hafi truflandi áhrif. Lögreglumenn hafa oft verið kvaddir á vettvang, og nú hefur lögreglustjóri ritað borgar- stjórn bréf, þar sem hann kemur þessum kvörtunum á framfæri. Eins og þeir vita, sem ganga um Austurstræti, er tónlistin frekar lágvær og hafa gangandi vegfarendur aldrei kvartað undan henni. Hins vegar virðist sem tónlistin magnist upp með vegg bankans, að sögn lög- reglunnar, og valdi bankamönn- um sem vinna á annarri og þriðju hæð hússins ónæði. Hins vegar hafa kvartanir ekki borizt frá öörum fyrirtækjum. — Frá og með kl. 4 i dag þegar bankinn lokar, verður tónlistin hækkuð allverulega til að hún nái þeim tilgangi sem henni er ætlað, sagði Guðlaugur Bergmann, for- stjóri Karnabæjar, er við töluðum við hann í gær. — Við látum slag standa meö strið á hendur þess- um mönnum I útvegsbankanum, þvi að kvartanir þeirra sæta mikilli furðu. Jesúbörn og Hjálpræðisfólk hefur sungið undir gluggum þeirra og umferðargnýr var um þetta stræti þangað til gatan var gerð aö göngugötu — þannig að þetta er bara einhver fyrirsláttur i mönnunum. Guðlaugur sagði, að spurningin væri sú, hvort Austurstrætið ætti að vera dautt banka-stræti eða lifleg verzlunargata. Stefna Þróunarstofnunarinnar væri á þá leið, að gatan ætti að vera llfleg verzlunargata. Guðlaugur kvaðst vita um tvær skýrslur, sem hefðu verið gerðar vegna þessa máls af lögreglu- mönnum, og I báðum tilvikum hefðu þeir ekki greint neina tónlist. — Við erum ekki að leika tónlist þarna til að hún rétt ómi, heldur til þess að hún heyrist almenni- lega, og þaö er engu líkara en að maður sé að slást viö gamla tré- drumba, sagði Guðlaugur. „Við byggjum leikhús" Það var afskaplega gaman að sjá leikarana og hljóðfæraleikarana bruna niöur Laugaveginn á fimmtudaginn undir kjörorðinu VIÐ BVGGJUM LEIKHÚS. Margt var um manninn, sem fylgdist með og tók þátt I fyikingunni, sem sett var saman til þess að leggja áherziu á kröfur þeirra Leikfélagsmanna um nýtt leikhús. Sumir voru lika I gervum, sem settu sinn svip á umhverfið, og það er afskapiega gott að geta brosað eða klmt i rigningunni. Æskan birtist okkur i tveim myndum, þeim sem varöveita hana alla ævi með sinni iéttu iund, þótt svo árin færist yfir, og svo eru hin, sem ennþá hafa ekki kynnzt árunum. Það er fátt, sem jafnast á við svona bros, nema blessuð sólin. Allir þekkja Ninu, og litla stúlkan, sem þarna er með henni langömmu sinni, fetar kannski I fótspor hennar og eign- ast sina ótal aödáendur fyrir leik sinn og söng. Tlmamyndir Ró- bert.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.