Tíminn - 10.05.1975, Side 8

Tíminn - 10.05.1975, Side 8
8 TÍMINN Laugardagur 10. mai 1975. Laugardagur 10. mai 1975. TÍMINN 9 Karl Kristjánsson, fyrrverandi aiþingismaöur, er áttræöur i dag, 10. mai. Hann er fæddur i Kaldbak viö Húsavik 1895. Foreldr- ar hans voru hjónin Jakobina Jósiasdóttir frá Kaldbak og Kristján Sigfússon frá Sultum I Kelduhverfi. Karl nam I hálfan vetrartima I unglingaskóla Benedikts Björnssonar I Húsavik og siöan tvo vetur i Gagnfræöaskóla Akurcyrar. Hann kvæntist 13. nóv. 1920 Pálinu Jóhannesdóttur, frá Lauga- seli og hófu þau búskap I Eyvik á Tiörnesi. Karl var um skeiö kennari á Tjörnesi, siöan hreppsnefndarmaöur og oddviti þar lengi eöa tii 1935, er hann fluttist til Húsavikur, einnig sýslu- nefndarmaöur Tjörness- Og Húsavikurhr. til 1950, hreppsnefndar- maöur f Húsavik, oddviti og siöan fyrsti bæjarstjóri þar til hann tók sæti á Alþingi haustiö 1950. Forseti bæjarstjórnar Húsavikur var hann lengi, Hann átti sæti i fulltrúaráöi Samb. Isl. sveitarfélaga frá stofnun til 1970 og var kjörinn heiöursfélagi samtakanna þaö ár. Karl var kjörinn þingmaöur S.-Þingeyinga fyrir Framsóknar- fiokkinn 1949 og sat á þingi til 1967. Er nú heiöursfélagi Kjör- dæmissambands Framsóknarmanna I Noröurlandskjördæmi eystra. Hann var varaformaöur þingflokks Framsóknarmanna aílmörg ár. Karl er og hefur veriö um skeiö formaöur Alménna bókafélagsins. Starf Karls i samvinnuféiögunum er einnig oröiö mikiö. Hann var fyrst deildarstjóri i Kaupfél. Þingeyinga lengi og I stjórn félagsins 1925—70, formaöur nær aldarfjóröung, og gegndi starfi kaupfélagsstjóra 1935—37. Sparisjóösstjóri K.Þ. 1932—56, og er nú heiöursfélagi K.Þ. Formaöur stjórnar húsmæöraskólans á Laug- um nær 40 ár. Hefur átt sæti I stjórn Kisiliöjunnar frá stofnun. Var I stjórn Garöræktarféiags Reykhverfinga nær 40 ár og er nú heiöursfélagi þess. Karli var veitt Fálkaoröan fyrir féiagsmála- störf 1974. Hér er aöeins stiklarö á hinu helsta I mikilli og fjöiþættri félags- málasögu Karls Kristjánssonar, og þó fleira ótaliö. Karl er enn hress og sistarfandi, þótt áttræöur sé oröinn, og vinnur nú aö sögu Húsavikur. Þau hjón eiga á lifi fjögur uppkomin börn: Kristján bókmenntafræðing, Gunnstein augiýsingastjóra StS, Aka afgreiöslumann og Svövu húsmóöur I Húsavik. Kari og Pálina kona hans búa nú i Ibúö I Iijónagarði Harfnistu h.f. aö Jökulgrunni 1 I Reykjavik. Þar fór erftirfarandi viðtal viö Kari fram i tilefni afmæiisins fyrir nokkrum dögum. Karl Kristjánsson — Manstu nokkuö eftir þér á fæðingarstað þinum, Kaidbak, Karl? — Það er nú fátt, enda fluttist ég þaðan barnungur. Kaldbakur er og var smábýli rétt sunnan við Húsavik. Foreldrar minir hófu þar búskap i sambúð við Jósias afa minn og Katrinu ömmu mina, ljósmóður. Jósias var fésæll, úr- ræðagóður og fjölvirkur, Talinn var hann hafa nokkra spádóms- gáfu og sagði mönnum stundum fyrir óorðna hluti i ævi þeirra, svo að eftirtektarvert þótti. Hann var skytta mikil, enda var fugl og sel- ur honum lifslaunsynleg búbót. Hann var af Schevings-ætt. Katrin amma min var hins vegar nærfærin ljósmóðir með liknar- hendur. Mér fannst hún kunna ráö við öllu. Ég held að fyrsta minning min sé sú að ég vappaði út á hlaðið i Kaldbak, liklega þriggja ára, og sá föður minn við fjárhús niður á túni handan bæjarlæksins. Ég lagði af stað i áttina til hans, en þegar ég kom að læknum, hikaði ég við torfæruna. t sama bili kom mamma út og kallaði til min að snúa við. Þá fleygði ég mér i læk- inn og öslaði yfir en varð alvotur. Svona minningamyndir frá fyrstu árum ævi manns geta setið skýr- ar I huganum ein áttatiu ár eða meira. Onnur mynd af pabba, þegar hann greip húfuna, er lika enn 1 jóslifandi frá þessum árum. Við vorum á leið suður i Saltvík, næsta bæ, og ég sat framan við hann á hestinum. Á höfði hafði ég húfu, sem mér þótti góður gripur. Hvassviðri var, og allt i einu fauk húfan af mér, en pabbi greip hana á fluginu með fimi sem mér þótti furöulega mikil iþrótt. Ég man lika eftir þvi, er ég rölti smáhnokki með ieikbróðum min- um, Jóhanni Sigvaldasyni i Salt- vflc, — siðar kunnum bátasmið og borgara i Húsavik — út á Kald- baksleitið i kvöldhúmi til þess að sýna honum ljósamergðina á Húsavik. Sú dýrð var mesta heimsundur i okkar augum þá. — Hvert lá leiö þin og foreldra þinna frá Kaidbak? — Út i Hallbjarnarstaði á Tjörnesi aldamótaárið, og siðan eftir tvö ár inn i Saltvik, Þá var „Sár sem hefur eina ör ei má gálaust skjóta" Rætt við Karl Kristjánsson, fyrrverandi alþingismann áttræðan erfitt um jarðnæði fyrir ung og fátæk hjón. Árið 1904 fékk faðir minn Eyvik á Tjörnesi og bjó þar eftir það. Hún var heldur erfið jörð en þó landgóð eftir staðhátt- um, og nokkuð sjávargagn. Faðir minn var góður fjárræktarmað- ur, og honum búnaðist sæmilega. Tjörnes var engin stórbúskapar- sveit og talin landlétt, en þar eru ýmis önnur föng, svo að ekki var þar sultur i búi. — Naustu einhverrar fræðslu utan heimilis i bernsku? — Ofurlítillar. Fyrsti sveitar- kannari, sem ég naut, var Jakobina Jakobsdóttir, Hálf- dánarsonar, en sfðar var mér komið til fræðslu hjá Kára Sigur- jónssyni á Hallbjarnarstöðum stuttan tlma. Hann var merkileg- ur fróðleiksmaður og afburða- kennari. Siðar var ég I skóla Benedikts Björnssonar á Húsa- vik. Móðurmálskennsla hans og málfræði varð mörgum mannin- um bjarg að byggja á. Hann var einstakur kennari, og málfræði- kennsla hans svo einföld, rökvis og traust að hún varð mörgum nemanda hans mikilvægasta veganestið, þótt lengra nám væri fyrir höndum. Mér reyndist hún þannig, að mér fannst ég aldrei þurfa neitt fyrir islenskunámi að hafa eftir það. — Það er alkunna, aö þú ert af- buröa skrifari, Karl. Hverjar voru fyrirmyndir þínar? — Pabbi skrifaði fallega og lið- lega rithönd og gaf mér fyrstu forskrift. Ég hafði einnig Gröndalsforskrift i skriftarbók- um. Siðarreyndi ég að likja ofur- litið eftir listaskrift Jóns Jakobs- sonar i Arbæ, og upp úr þessu þroskaðist minn eigin skriftar- still. Annars þótti ég ekki skrifa sérlega vel á barnsaldri. Páll gamli Jóakimsson, sá sérkenni- legi gáfumaður, sagði mér eitt- hvað til fyrir skólaskyldualdur og gaf mér þá einkunn, að ég læsi eins og prestur en skrifaði eins og sýslumaður. Það var góð einkunn um lesturinn, en harla léleg um skriftina. — Var ekki öröugt aö afla tekna til skólagöngu á Akureyri á þessum árum? — Jú, faðir minn gat auðvitað ekki lagt mikið af mörkum. Ég var kaupamaður tvö sumur hjá Jóni Gauta á Héðinshöfða, sem rak allstórt bú. Um helgar vann ég oft heima, batt til að mynda fyrir pabba, og Aðalsteinn kaup- maður á Húsavik, sem ég var i reikningi hjá, lánaði mér nokkrar krónur af höfðingsskap sinum. Ég tók próf upp i annan bekk Gagnfræðaskóla Akureyrar 1914 og var þar siðan til loka skólans tvo vetur. Þar voru ágætiskenn- arar, einsog kunnugt er, og sam- starf þeirra við nemendur var ekki aðeins I kennslustundum, heldur einnig i félagslifi og miklu nánara en nú tiðkast. Með mér I Akureyrarskóla ý9ru. Þá ýmsir menn, sém hátthefur borið i þjóð- lifinu siðan, og með sumum þeirra hef ég átt langt og gott samstarf. Ég nefni aðeins þá Her- mann Jónasson og Halldór As- grimsson. — Þú gekkst snemma i ung- mennafélag og varst þar forystu- maður? — Já, ég gekk i Ungmenna- félag Tjörnesinga, þegar það var stofnað og var lengi formaður þess. Starf þess var mikið og gott eins og margra annarra ung- mennafélaga, og öll sveitin, ungir sem aldnir, tóku lifandi þátt i þvi. Alvara og gaman héldust i hend- ur. Fundirnir hófust ætið með framsögu og umræðum um mál, sem ákveðin höfðu verið áður. Siðan var oft upplestur, söngur og önnur skemmtun, og loks Iþróttir eða dans. Gefið var út skrifað blað, sem lesið var upp á fundum. Þetta starf leysti menn úr læð- ingi, svo að ótrúlega margir sprengdu feimnisham sinn og urðu vel mæltir og umræðudjarfir á fundum og liðtækir I riti. Þegar ungmennafélagið minntist merkisafmælis sins löngu siðar, kom I ljós, að margir töldu þessa þjálfun meðal hins mikilvægasta i lifi sinu. — Og þú gekkst lika snemma I samsvinnustarfið? — Það var einboðið á þessum árum I samræmi við lifsviðhorf mitt. Sveitungar mínir fólu mér stjórn Tjörnesdeildar rúmlega tvitugum 1918, og ég hafði hana á hendi, þangað til ég fluttist til Húsavikur, og þar annaðist ég siðan aðra deild um skeið. Deildarstjórn i kaupfélagi var meira en orðin tóm i þá daga, þegar samábyrgðin rikti. Hún var að nokkru leyti sveitarforsjá. Deildin var ábyrg sem heild fyrir viðkiptum. Með þvi móti gátu þeir, sem betur voru stæðir, hjálpað öðrum, sem minna höfðu umleikis. Þá varð deildarstjóri að gera með hverjum heimilisföður stranga áætlun um úttekt og inn- leggsgetú heimilisins, og færi úttekt fram úr þvi, varð það að gerast með heimild og á ábyrgð deildarstjórans, sem hafði þá mið af heildarstöðu deildarinnar. Þessi ár voru mjög misjöfn við- skiptaár, og til að mynda kreppti mjög að eftir verðhrunið 1919 þá þurftu margir heimilisfeður þvi miður að hitta deildarstjórann til þess að fá úttektarheimild. Maður hlaut að verða eins konar ráðgjafi hvers heimilis við að hjálpa þvi að finna færa við- skiptaleið. En þetta var mikil samhjálp, og margt heimilið losn-aði við að þurfa að þiggja af sveit vegna hennar. Hins vegar fól hún i sér nokkrar hættur fyrir félagið. Af þessu öllu, svo og starfi minu að hreppsmálum, varð gest- kvæmt á heimili minu, þvi að margir áttu við mig erindi. Ég, og við bæði hjónin, kunnum þeim samskiptum við grannvini vel, en auðvitað mæddi þetta mest á Pálinu konu minni. Hún kvartaði þó ekkiog leysti hvern vanda eins og kostur var. — En þú vannst lika fleira fyrir kaupfélagiö næstu ár? — Já, meðan ég bjó I Eyvik var ég um sinn annar gæslustjóri söludeildar. Það var nokkurt starf. Einnig varð ég sem deildarstjóri framan af árum að gera reíknínga deíldarmanna minna. Deildarstjórar fengu þá aðeins i hendur yfirlit um við- skipti þeirra við félagið I skýrslu- formi, og eftir þvi voru fullgildir viðskiptareikningar til deildar- manna gerðir. Þannig var skrif- stofustarf kaupfélagsins að nokkru I höndum deildarstjóra. Eftir að ég var kominn I stjórn kaupfélagsins, bættust við ýmis verkefni, sem mér voru falin. Kaupfélagið lenti eins og kunnugt er i allmiklum fjárhagsvanda eft- ir kreppuna og varð ekki bjargað frá þroti, nema leita samvinnu- fómar af hendi þeirra manna, sem þar áttu innstæður. Mér var falið þetta erfiða starf, og það tókst að bjarga kaupfélaginu. Ég skal ekki um það dæma, hver þar á mestar þakkir. Ég kann þvi vel að þær séu sameign okkar — min og þeirra, sem fjárhagsfórnirnar færðu —. Þar var unnið i sam- vinnuanda. Mér voru þetta harla lærdómsrik verkefni, og manna- kynnin, sem ég hlaut af þeim, tel ég hafa orðið mér mikilvægari en flest reynsla önnur. Auðvitað voru þetta erfið og viðkvæm mál, og enginn skyldi lá þeim, sem ber ábyrgð á fjölskyldu sinni og heimili, þótt hann sé á báðum átt- um um það, hvort hann geti fórnað fyrir félag fjármunum, sem öryggi vandamanna hans hvilir að einhverju leyti á, en jafnframt fannst mér ég fá um það hverja óhrekjandi sönnunina af annarri um það, hvilikt hamingjuafl byr I samvinnuand- anum I samfélagi manna. Ég mun aldrei gleyma orðum ekkj- unnar i Skriðulandi sem var all- vel stæð, en gekk fúslega til samninga um að láta hluta inn- eignarkröfu sinnar af hendi til björgunar félaginu. Einhverjir kunningjar hennar ámæltu henni fyrir að vera of eftirlát við félagið i þessum samningum. En hún svaraði hiklaust og með þunga: „Nei, ég á nú kaupfélaginu meira að þakka en það”. 1 slikum orðum er mikil samvinnusaga. En ég varð ekki aðeins að semja um inneignir, heldur lika skuldaskil, og siðan annaðist ég framkvæmd þessara samninga, þótt annar maður væri tekinn við stjórn kaupfélagsins. Þessir samningar voru allir haldnir, og I þeim fólst mikil eignajöfnun i héraðinu. Með þeim var lagður nýr grundvöllur efnahagslifs. Endanlega urðu fórnirnar hverfandi litlar. — En varekki verkefnið likt, er þú tókst fyrst viö oddvitastörfum I Húsavík? — Jú, svo má segja. Hreppsfé- lagið var illa statt eftir kreppuár- in. Hafði að sjálfsögðu orðið fyrir sama efnahagsfárviðri timanna og Kaupfélagið. Ég varð að fara samningaleið að mörgum vegna útistandandi gjalda og reyna að endurvekja lánstraust Húsavikur I bönkum, meðan hjallinn væri klifinn. Þetta tókst vonum fram- ar, en þó urðu hreppsnefndar- menn að ganga I persónulega ábyrgð fyrir skyndilánum. Þetta verkefni reyndi talsvert á taugarnar. —Viltu segja mér eitthvaö frá þeim málum, sem þú hafðir mestan hug á I þingtiö þinni, Karl? — Það yrði nú löng og leiðinleg upptalning. En ég held að dreif- býlissjónarmið hafi verið sterk- ust I öllum málflutningi minum. Ég var lengi I fjárveitinganefnd, og af sifelldum viðfangsefnum þingsins lét ég mig mestu varða fjárhagsmál og sveitarstjórnar- mál og menntamál. Ég flutti t.a.m. tiliögu, sem náði fram að ganga, um tengivegi milli sveita, en það var eins konar viðbót við framlög rikis til þjóðvega. Af þessu nutu ýmis byggðarlög góðs á næstu árum, þar á meðal byggðirnar norðaustan lands. Ég beitti mér allmikið fyrir Kisiliðj- unni, sem var mjög tvisýnt mál, en að minu mati felst i starfsemi hennar mikil samtenging sveita og þéttbýlis i Þingeyjarþingi. Fjölmörg kjördæmismál mætti auðvitað nefna, sem oftast voru þá um leið mál landsbyggðarinn- ar i heild, svo sem tillaga um merkingu og fjárframlög til sjúkraflugvalla, en hana fluttum við Páll Þorsteinsson saman. Ég hafði og hef mikinn áhuga á stjórnarskrármálinu, og hafði mótað mér nokkuð ákveðnar skoðanir um það, vil t.a.m. ein- menningskjördæmi og tel þau nauösyniega forsendu ábyrgðar- kenndar i stjórnmálum. Ég flutti einnig tillögu um samvinnunefnd launþega og vinnuveitenda, er starfa skyldi milli samninga og reyna að ryðja úr vegi ágrein- ingsefnum, sem skytu upp kolli, og auðvelda með þvi samninga. Þá má nefna tillögu um hita- vatnsleit og kaup á stórvirkum bor, en af þvi leiddi nýja sókn I þeim málum. Ég gæti auðvitað talið margt fleira, en ég held, að Karl á siöasta reiöhestinum slnum, Neista. iff w IJh ■ «•»* 1;I, Hjónin Karl Kristjánsson og Páiina Jóhannesdóttir. það sé tilgangslitið. Við skulum láta staðar numið við það. í þing- tiðindum má rekja þau spor. — Jæja, drepum þá á eitthvaö annað. Þú haföir yndi af hestum og varst góður hestamaöur? — Já, gæðingar voru lif mitt og yndi allt frá bernsku. Faðir minn átti góða hesta. Fyrsti gæðingur, sem ég eignaðist hét Börkur. Frændi minn gaf mér hann sem folald. Hann var skörungur og kunni ekki að hræðast, stökk á eftir mér hvaða torfæru sem var og yfir girðingar og hliðgrindur. Ég tók llka stundum hesta til tamningar. Siðan hef ég átt nokkra góðhesta, en auðvitað of fáa. Mér þótti einnig gott að starfa i Landssambandi hesta- manna. — En hvaö um giimur, lausa- tök og steintök? Mig minnir aö Hermann Jónasson hafi sagt, aö hann hafi ekki fundið fyrir þéttari tökum en þinum. — Já, mér var gefið gott þrek, og I æsku minni var það talin skylda að rækta krafta sína. Við Hermann glimdum oft og tók- umst á alltfram að fimmtugu. Ég hef lika haft gaman af að lyfta steinum, sem til slikra taka voru fallnir og ætlaðir. Þú manst sjálf- sagt eftir steini, sem verið hafði ferðamönnum til átaks á Sila- lækjarhlaði frá fyrri öld, og Vil- hjálmur i Hliðskjálf á Húsvik flutti að húsi sinu þar til þess að reyna á afl vina sinna og gesta. Ég lyfti honum allvel að talið var. Ég hef lika lyft steinunum i Drit- vik og kviahellu Snorra að Húsa- felli. Þorsteinn i Húsafelli sagði, að hann hefði ekki séð aðra fara öllu léttilegar með hana. — En svö við vikjum aftur að alvörumáium. Hafðiröu ekki mikil afskipti af fjárskiptamálum Þingeyinga? Mig minnir, að þú hafir fengiö ómælt lof fyrir þau. — Jú, mér var þrivegis falin forganga i þeim málum og bar gæfu til að fá þau leyst farsællega i öll skiptin, og voru þau þó engan veginn auðveld. Hefðu fjárskipti- þessi ekki farið fram, hefði orðið upplausn búskapar i héraðinu. En þess ber að geta, að það var skörpum skilningi og skörungs- skap Vilhjálms Þór, sem þá var ráðherra, að þakka, að málin gengu fram, þegar mest lá við. — Þú hefur flutt m'argar ræöur um dagana, Karl. Hvaö heidurðu t.a.m. aö þú hafir talaö yfir mold- um margra eöa minnst i blööum? — Ég hef týnt tölunni á þvl fyrir löngu. Þessi siður, að leik- menn tali yfir kistu manna, var töluvert rikur i Þingeyjarþingi og er enn. Það hefur atvikast svo, að mjög hefur verið til min leitað um þetta, og mér hefur orðið örðugt að neita slikum bónum, þegar vinir ognánir samferðamenn hafa átt I hlut. Þá hefur mér oft orðið leitaö til ljóðanna til þess að skýra myndir máls og efnis. Sama hefur orðið uppi á teningi i mörgum öðrum ræðum minum. — Hver heiduröu aö hafi haft mest áhrif á stil þinn? — 1 æsku var ég hrifnastur af stil Einars Hjörleifssonar, og enn dái ég hann — rökvisina, likinga- auðinn og hinn mjúkláta kraft. — Viö gætum haldið svona lengi áfram, Karl, en liklega teygöist þá um of úr samtalinu. Þú ert nú áttræöu'r og viö góöa heilsu enn. Hvaö ertu helst að fást viö núna? Varla siturðu auöum höndum. — Ég tók að mér fyrir bæjar- stjórn Húsavikur áð standa fyrir samningu sögu staðarins. Þetta er mikil saga og ofin mörgum þáttum. Ég hef sjálfur reynt að gera ýmsum þáttum skil, en feng- ið ýmsa aðra til þess að taka að sér sérstaka þætti. Þetta verk er nú allvel á veg komið. — En þykir þér ekki skemmti- legt að hafa lifaö svona lengi? — Jú, ekki mundi ég vilja af- sala mér neinum ævihluta. Og ekki bið ég dauðann enn að flýta sér til min, meðan mér finnst ég skynja fegurð lifsins i rikum mæli. Ég hef kynnst mörgu ágætu fólki á vegferð minni, fólki, sem ég á mikið að þakka og hugur minn blessar. Vafalaust býr eitt- hvað gott I allra sál, þótt það njóti sin misjafnlega, og ekki séu allir jafngeðfelldir. Gallalaus er vist enginn. Galla sjálfs min þykist ég þekkja nokkuð, þótt konan min — blessuð — þekki þá auðvitað enn betur og allra manna best, þvi miöur og óverðskuldað. En samt hefur hún ekki uppgefist við mig enn þá eftir meira en hálfrar ald- ar sambúð. Hún orti til min fyrir stuttu: Við erum bráðum bæði á förum, bið ég um eilifa samfylgd við þig. Með öðrum deili ég ekki kjörum. A eftir bara að signa mig. Mér skilst á visunni, að konan minséekki orðin yfir sig leið á fé- lagsskap okkar, og vitanlega er mér það hin mesta gleði. — Finnst þér ekki kjör almenn- ings betri en þau vor á æskuárum þinum? A ekki ætiö aö spyrja þannig aö lokum? — Jú, þau eru ósambærileg. En svona er lifið skritið, að samt finnst mér fólkið hafa verið glað- ast og bjartsýnast á fyrstu ára- tugum aldarinnar. Ég hef ein- hvern tima sagt, að þá hafi verið almenn hugbirta, og finn ekki sannara orð enn. Þá héldu menn, að allir gætu orðið farsælir, skyn- samir og góðir, ef þeir yrðu að- eins sjálfum sér ráðandi — og væri ekki ofgert með erfiði — yrðu eigin húsbændur og hefðu aöstöðu til almennrar fræðslu. Þá hlyti friöaröld að renna upp eftir þá almennu reynslu, sem fyrri heimsstyrjöldin veitti. Verka- lýðsfélög mundu fljótlega leysa á- greining um kaup og kjör. En vonbrigði hafa hlaðist á vonbrigði ofan. Vigöld og vargöld er enn. Mér finnst nærri þvi eins og mannkynið hafi glatað miklum hluta af tuttugustu öldinni i mis- heppnaða og ofsalega leit að i- myndaðri hamingju. En auðvitað er þetta ekki rétt. Guð er bara svona lengi að skapa menn. Honum hlýtur samt að takast það. — Nú eigið þiö hjónin heima á hjónagaröi Hrafnistu, hvernig likar ykkur að vera þar? — Við teljum okkur hafa verið heppin, þegar við fengum leigða eina af ibúöum hjónagarðsins, iitla og þægilega fyrir hjón. Þar getur kona min neytt i mörgu húsmóðurhæfilega sinna, þótt sjón hennar sé mjög biluð. Yfirmenn fyrirtækisins hafa á- reiöanlega mikinn hug á að reka það þannig, að vistmönnum liði vel. Hér finnst manni hann vera sjálfráður og sjálfstæður — með- an hann getur greitt daggjald sitt — og það er nokkurs virði. Gatan, sem hjónagarðurinn stendur við, heitir Jökulgrunn — það nafn minnir á hinstu sigling- una: Löngum verður úfin Unn. oft þarf báti að venda. Ég er kominn á Jökulgrunn. — Ég vil sjálfur lenda. Það er hollt að gera við og við grin að sjálfum sér. Sá er snauð- ur, sem telur sig ekki hafa efni á þvi. — Hefur þú fleiri visur á tak- teinum? — Miklu fleiri en þörf er á. í sumar sem leið kom ég á minar gömlu smalaslóðir fyrir norðan: Söm er heiöin, ljúf er leiðin, langt er siðan hér ég sat, yfir ánum, uppi á flánum, át minn góða smalamat. Þarna var yndislegt i sólskininu að hugsa sjötiu ár til baka. Margir hafa miklar áhyggjur af þvi, hvað um þá verði sagt eftir dauðann, en flestir gleymast fljótt: Ahyggjur þér engar gjörðu um eftirmæli vond né góð. Ferill manna flestra á jörðu fyrnist likt og daggarslóð. Dauðinn er óbrigðull. Ævidag- urinn er stuttur. Lif hvers manns er eins og ein ör i eigu bogmanns: Dauðinn kemur,— Dýrt er fjör. Dagsins stutt að njóta. Sá, sem hefur eina ör, ei má gálaust skjóta. Ekki er lifsleiði farinn að ásækja mig, þótt ég sé áttræður. Það á aö felast i þessari afmælis- visu minni til annars manns. Tel ég ár með eftirsjá okkar beggja, vinur góður, þvi svo ljúf er lifsins þrá og laukafagur jarðargóður. Og með þessari visu Karls slá- um viö botn I þetta afmælisspjall. Það er mikil hamingja að eiga slika llfssýn áttræður. —AK.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.